Þjóðviljinn - 12.06.1982, Síða 35
H'elgin 12.-13. júní 1982 ÞÍÓÐVILJINN —'SÍÐA 39
Málm- og skipasmiðir:
Verða ekki með í
allsher j arverkf alli
Málm- og skipasmiðasamband
islands mun ekki taka þátt i alls-
herjarverkfallinu, sem boðað
hefur veriðiloknæstu viku. Sama
er að segja um Alþýðusamband
Vestfjarða og ýmis önnur stærri
sambönd. Verkalýðsfélögin i
Vestmannaeyjum hafa einungis
boðað til yfirvinnubanns frá og
með 14. júni og verkalýðsfélögin i
Keflavik og Njarðvik boða til ails-
herjarverkfails frá og með 21.
júni.
20 félög eru innan Málm- og
skipasmiðasambandsins og eru
stærst þeirra Félag bifvélavirkja
i Reykjavik, Félag járniðnaðar-
manna og Félög málmiðnaðar-
manna á Akureyri og Akranesi.
Tiltölulega litið virðist bera i
milli i kjaradeilum iðnaðar-
manna og viðsemjenda þeirra og
má túlka þessa ákvörðun Málm-
og skipasmiðasambandsins sem
svo að það ætli að biða og sjá
hverju fram vindur i viðræðunum
næstu daga.
Menn i forystu verkalýðshreyf-
ingarinnar voru almennt þeirrar
skoðunar i gær að skriður kæmist
ekki á viðræður deiluaðila fyrr en
liða tæki á næstu viku. Hins vegar
er óvist hver viðbrögð fulltrúa
launafólks verða við afléttingu
verkbanns atvinnurekenda.
— v.
Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga
Mjög slæm fjárhagsafkoma Járnblendiverksmiðjunnar
Skipverjar á Páli Pálssyni voru komnir með tæp 70 tonn af þorski og
grálúðu í gær, eftir fjögurra daga úthald.
Guðjón Kristjánsson skipstjóri
á Páli Pálssyni ÍS 102
Aflinn að glæðast á
Vestf j arðamiðum
„Þorskurinn stendur óvenju-
lega djúpt allt niður á 320 faðma
dýpi. Hann gengur litið upp úr
köntunum og er nokkuð dreifður
um sjóinn”, sagði Guðjón Krist-
jánsson skipstjóri á skuttogar-
anum Páli Pálssyni ÍS-102, sem
var að toga djúpt úti í Vikuráls i
gær.
Þorskafli hefur heldur veriö að
glæöast á Vestfjaröarmiðum frá
þvi um siðustu helgi og sagði
Guðjón að þeir fengju nú orðið
2—3 tonn I hali af fremur horuð-
um en annars ágætum fiski.
„Það er dálitið af grálúðu innan
um, enda erum við komnir inn á
grálúðuslóð, en við höfum ekkert
orðið varir við ufsa og lltið við
karfa.
Guðjón sagðist hafa skipt yfir á
flottroll á miðvikudag og aðrir
togarar á sömu slóðum væru
einnig að prófa flottrollið. „Við
förum með trolliö alveg niður á
400 faðma, en hitaskilin i sjónum
er á 220 —30 faöma dýpi og þar
viröist þorskurinn hafa fundið
eina ætið á þessum slóðum, bæði
loðnu og Ishafsrækju. Það virðist
ekki vera neitt ætisframboð
annars staöar i sjónum fyrir
þorskinn. Lltið var komið I sjóinn
ennþá, við erum rétt að byrja aö
sjá grænt I báruna. Þetta er allt
seinna á ferðinni en venjulega.
— Hvað eruö þið komnir með?
— Sjálfsagt eitthvaö I kringum
60—70 tonn. Ætli við förum ekki
inn á mánjdag, þá er þetta oröinn
vikutúr.
— Heldur þú að þorskleysið I
slðasta mánuði sé slæmur fyrir-
boði?
— Það er ekkert nýtt aö þorsk-
veiði sé treg I mai. 1974 og 75 var
litið um þorsk i mai. Þorskurinn
hafði litið æti i vetur, sjórinn
hefur veriö kaldur og hrygningin
var léleg.
— Þú ert þá ekki svartsýnn á
framhaldiö?
— Nei ég hef aldrei verið neitt
svartsýnn á þetta. Skilyrði i
sjónum eru öðruvísi nú en verið
hefur og það hefur haft sitt að
segja, hvort sem það er hitafarið
eða seltan. Fiskurinn liggur hér I
hitaskilunum að visu dreifður og
óvenju djúpt austur eftir öllu.”
Um 15 togarar voru að veiöum I
Vikurál I gær og aðrir 50 i Þver-
álnum.
-lg
n
Ertu með á Laugavatn?
Síðustu forvöð
Nú fer hver að verða sið-
J astur að panta vikudvöl á
ILaugarvatni i júli á vegum
Alþyðubandalagsins. Frestur
til þess að panta og staðfesta
, pantanir rennur út i næstu
Iviku, nánar tiltekið á miðviku-
dag.
Eins og auglýst hefur veriö i
, Þjóðviljanum er um að ræða
vikudvöl annars vegar frá 19.
til 25. júli og hinsvegar frá 26.
til 31. júli. 1 sumarfrii og sam-
veru Alþýðubandalagsins á
Laugarvatni verður lögð á-
hersla á útivist, vandaöa dag-
skrá, kvöldvökur og umræður.
Þeir sem þegar hafa pantað
á Laugarvatni eru minntir á
að greiða fjórðung kostnaðar
til staðfestingar fyrir 15. júni á
skrifstofu Alþýöubandalags-
ins að Grettisgötu 3. Enn eru
nokkur pláss laus báðar vik-
urnar og er fólk hvatt til þess
að draga ekki að panta.
Alþýðubandalagið
V erð kísiljáms
aldrei jafn lágt
Fjárhagsafkoma
islenska járnblendifélags-
ins h.f, var mjög slæm seg-
ir í nýútkominni ársskýrslu
þess. Rekstrartap varö 64.4
milljónir íslenskra króna,
en í þeirri niðurstöðu er
innifalin 39.1 milljón vegna
afskrifta og 42.3 milljónir
vegna vaxta.
t spjalli um stöðu og horfur seg-
ir Hjörtur Torfason stjórnarfor-
maöur, að viö upphaf árs hafi
verið ljóst að horfur i rekstri
fyrirtækisins væru sist betri en
árið 1981. Bati á stálmörkuðum
heimsins hefði ekki orðið, enda
sjái ekki fyrir endann á efnahags-
þrengingum þeirra viðskipta-
landa, sem mestu ráða i þessu
efni. Af þessum sökum hafi stjórn
félagsins ákveðiö að fresta aö svo
stöddu frekari ráðagerðum um
byggingu á þriðja ofni en þaö
hafði félagið til frumathugunar á
liönu ári.
Orsakir hinnar bágu afkomu fé-
lagsins eru, aö þvi er segir i árs-
skýrslunni, i meginatriðum
tvennskonar.
Litiö seldist af kisiljárni á árinu
1981 og framleiðslumagnið var
litiö m.a. vegna orkuskömmtun-
ar. Þá var verðlag á kisiljárni
mjög lágt allt árið og tilraunir til
að hækka verð tókust illa og
drógu úr sölu að hluta til. Mun
markaðsverö kisiljárns saman-
borið við framleiðslukostnað þess
ekki i annan tima hafa oröið jafn-
lágt.
Gert er ráö fyrir hlutafjáraukn-
ingu og lántöku með ábyrgð hlut-
hafa til þess að tryggja greiðslu-
getu Járnblendiverksmiöjunnar
og rekstur næstu árin.
„Ef svo fer sem horfir veröur
árið 1982 hiö þriðja i röð af fjórum
starfsárum Járnblendiverk-
smiöjunnar, þar sem ytri aðstæð-
ur veröa mótdrægari en unnt var
aö gera ráð fyrir i öndverðu.
Þrátt fyrir þann mótbyr sem
fyrirtækið hefur þannig hlotið er
stjórnin enn eindregið þeirrar
skoðunar, sem lýst var I siðustu
ársskýrslu, aö fyrirtækið eigi sér
öruggan rekstrargrundvöll og sé
arðvænlegt til frambúðar, við
eðlilegri markaösaðstæður og
efnahagsþróun i heiminum”, seg-
ir stjórnarformaðurinn i lokaorð-
um.
—ekh
Fyrstu lóðarframkvæmdir Stálfélagsins eru nú hafnar i hrauninu uppaf Straumsvik. Ljósm. Kr.P.
Framkv æmdir
Stálfélagslns
St irtrn Stálfélaö
Könnun á brotajárni og útbreiðslu-
starf út um land í sumar
Framkvæmdir eru nú hafnar
við fyrsta áfanga i framkvæmda-
áætlun Stálfélagsins h.f. I hraun-
inu uppaf Straumsvik i Hafnar-
firði.
Samkvæmt áætlun um I.
áfanga mun félagið á næstu
dögum hefja söfnun á betri gæða-
flokkum stáls til vinnslu á hluta
lóðar félagsins. Þegar vinnslu-
tæki fyrir brotajárn hafa verið
sett upp, mun félagiö taka á móti
öllu brotajárni og flokka það jafn-
óðum og vinna fyrir bræðslu.
II. áfangi, sem er bræðsla stáls-
ins i stálhleina, verður undir-
búinn meðan á söfnun stendur, en
byggingartimi er áætlaður 12 til
18 mánuöir. Afköst bræðsluofna á
tveim vöktum eru áætluð 15.000
tonn á ári. Með fullri nýtingu er
afkastagetan 25.000 tonn á ári.
III. áfangi er völsunardeild sem
á að fullnægja þörfum lands-
manna fyrir steypustyrktarstál
eða 15.000 tonn fyrsta árið. Gera
má ráð fyrir 2 til 3% aukinni
notkun árlega. Gjaldeyris sparn-
aður verður 50 til 60 millj. kr. á
ári miðaðvið núgildandi verölag.
Stjórn Stálfélagsins h.f. hefur
mikinn áhuga á að flýta fram-
kvæmdum og hefur i þvi skyni
boöaö til hluthafafundar, sem
haldinn veröur i fundarsal Hótel
Esju þriðjud. 29. júni. Skráöir
hluthafar eru nú 325 talsins. A
hluthafafundi mun mörkuð stefna
félagsins varðandi ýmsa verk-
þætti og aukningu hlutafjár.
Stálfélagi h.f. hefur nýlega
ráðið Arna Reynisson til út-
breiðslustarfa á vegum félagsins
i sumar. Árni mun á þeim tima
heimsækja alla landshluta, til
könnunar á brotajárni og stofna
til samstarfs við bæjarstjórnir og
sveitafélög. Undanfarin ár hefur
járn verið urðað viða um land
með ærnum kostnaði og til stórra
spjalla á náttúru landsins.