Þjóðviljinn - 23.10.1982, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 23.-24. október 1982
st jórnmál á sunnudegi
% A^!!!
Kjartan
Ölafsson
skrifar
Almenningur borgar fyrir
auðhringinn
Orkuverðið ber að þrefalda.
Til þess þarf aðeins nœga
pólitíska samstöðu
Fyrst 82% munur. — Nú 436% munur.
Svona féflettir Alusuisse almenning.
Orkuverft til almenningsrafveitna->/
34,6 milly
Eitt allra brýnasta
viðfangsefni íslenskra
stjórnvaida á næstu vikum og
mánuðum hlýtur að verða það,
að knýja fram mjög verulega
hækkun raforkuverðs til
álverksmiðjunnar í
Straumsvík.
Svo sem margoft hefur verið
rakið hér í Þjóðviljanum þá
hefur álverið í Straumsvík
fengið í sinn hlut á
undanförnum árum 40-50%
allrar þeirrar orku, sem í
landinu er framleidd, en hins
vegar ekki greitt fyrir þetta
mikla orkumagn nema um og
innan við 10% af heildartekjum
fyrir selda orku í hcildsölu.
Mismuninn hefur almenningur
i landinu verið látinn borga með
þeim mun hærra verði á orku
frá Landsvirkjun til almenn-
ingsrafveitnanna.
436% verðmunur
Á síðasta ári var orkuverðið frá
Landsvirkjun til almenningsraf-
veitna í landinu 300% dýrara held-
ur en verðið á þeirri orku sem seld
er álverinu í Straumsvík. Það er
hins vegar staðfest af öllum, sem til
þessara mála þekkja að eðlilegur
munur þarna á milli væri ekki nema
í kringum 50%
En þótt orkuverðið til álversins
haggist ekki, þá hækkar állur til-
kostnaður hjá Landsvirkjun engu
að síður, og nú hefur Landsvirkjun
tilkynnt, að hún ætli enn að hækka
heildsöluverðið á raforku til al-
menningsveitnanna um 35% þann
1. nóvember n.k. til þess að afla
tekna upp í hallarekstur. Þar með
verður orkuverðið til almennings-
rafveitna 436% dýrara en til ál-
versins. Það er að sjálfsögðu hið
lága orkuverð til álversins sem hall-
arekstrinum veldur, en það verð á
samt ekki að hækka nú þann 1. nó-
vember, heldur verðið til almenn-
ingsrafveitnanna, sem verður
meira en fimmfalt hærra en það
gjafverð sem álverið nýtur.
Er ekki kominn tími til að stöðva
þessa hringavitleysu, að láta al-
menning í landinu borga hundruð
miiljóna króna fyrir orku, sem hér
er afhent fjölþjóðlegum auðhring?
Verð til
aimennings-
rafveitna
mætti jafnvel
lækka um helming
Sýnt hefur verið fram á með
óvefengjanlegum hætti að væri ál-
verið látið greiða framleiðslu-
| f-Verftmunur 82%,
3 mill ;
1969 1970 1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978 1979 1980 1981 1982,
nóv.
iLÍnuritið sýnir heildsöluverð á raforku frá Lands-
virkjun á árunum 1969-1982 annars vegar til álversins
í Straumsvik og hins vegar til almenningsrafveitna i
landinu. Neðri línan sýnir þróun raforkuverðsins til
álversins, en sú efri þróun raforkuverðsins til almenn-
ingsrafveitna. Árið 1969 var verðið til álversins 3 mill
(eitt mill=V,ooo úr Bandaríkjadollar), en verðið til al-
menningsrafveitna var þá 5,47 mill. Munurinn þarna
á milli var þá 82%.Nú er verðið til álversins 6,45 mill,
en verðið til almcnningsrafvcitna á að verða 34,6 mill
frá 1. nóvember n.k. Munurinn verður þá frá næstu
mánaðamótum kominn upp í 436% og hefur vaxið
eins og línuritið sýnir.
kostnaðarverð fyrir orkuna, og
verðið til verksmiðjunnar þannig
þrefaldað, þá gæti Landsvirkjun
lækkað sitt heildsöluverð á orku til
almenningsrafveitnanna í landinu
um meira en helming og staðið þó
jafnrétt eftir. Auðvitað mætti svo
líka hugsa sér, að aðeins hluta
þeirra tekna, sem fengjust með
hækkun orkuverðs til álversins,
yrði varið til lækkunar á verði tii
almenningsrafveitnanna, en að
öðru Ieyti yrði því fjármagni ráð-
stafað til að styrkja fjárhag og
framkvæmdagetu Landsvirkjunar
og létta skuldabagga fyrirtækisins.
Þetta er skattur
til Alusuisse
Fólkið sem greiðir hina háu ork-
ureikninga m.a. fyrir orku til hús-
hitunar úti um landið, það er allt að
borga sinn níðþunga skatt til
Tólf meginatriði úr niðurstöðum
athugunar færustu sérfræðinga
á raforkuverðinu til álversins
IRaforkusamningurinn við ÍSAL gildir til 2014. Raf-
orkuverðið er nú 6,45 mill/kWh eða sem samsvarar
2,3 mili/kWh á verðlagi 1969. Árið 1994 og 2004 á að
endurskoða raforkuverðið samkvæmt ákveðnum
reglurn í samningnum. Á tímabilinu frá 1982-1994 er
verðið um 40% verðtryggt miðað við skráð álverð en
á tímabilinu 1994-2ÍKI4 og á tímabilinu 2004-2014 er
engin verðtrygging á því. Miðað við 8% verðbólgu og
sömu hækkun á álverði mun meðalorkuverðið á
næstu 32 árum verða um 5 mill/kWh miðað við verð-
lag 1982 að óbreyttum samningum. (Sem sagt
lækkunl-innskot Þjóðviljans).
Olíuverð hefur
þrítugfaldast
2 . Þegarálsamningarnirvorugerðirvarolíuverðmjög
** lágt og talið var að almennt orkuverð í heiminum
myndi fara lækkandi á næstu árum og áratugum, m.a.
vegna tilkomu kjarnorkustöðva. Verð á hráolíu er nú
u.þ.b. þrjátíu sinnum hærra en 1966 og framleiðslu-
kostnaður raforku frá kjarnorkuverum hefur reynst
miklu hærri en talið var.
Meðal orkuverð
til álvera 22 mill
- hér 6,5 mill
3Á árunum 1964-1965 var algengt raforkuverð til ál-
vera í heiminum um og innan við 3 mill/kWh. Með
hliðsjón af því féllust fslensk stjórnvöid á að ÍSAL
greiddi að meðaltali rúmlega 2,5 mill/kWh á samn-
ingstímanum. Á árinu 1981 var meðalraforkuverö til
álvera í hciminum rúmlega 22 mill/kWh og sanikvæmt
fyrri forsendum ætti raforkuverðið til ÍSAL því að
vera rúmlega 18 mill/kWh.
tí samningaviðræðum og ákvörðunum um raforku-
verð hefur ætíð verið tekið sérstakt mið af raforkuverð
i til, álvera í Bandaríkjunum og Vestur-Evrópu. Frá
því 1974 hefur raforkuverð tii álvera í Bandaríkjunum
fimmfaldast og er nú að meðaltaii um 22 mill/kWh.
Lægsta raforkuverð til áliðnaðar í Bandaríkjunum
hefur iengst af verið hjá Bonneville Power Adminis-
tration (PBA) og við samningsgerðina 1966 var það 2
mill/kWh, en hækkaði í 3,2 miII/kWh árið 1974. Frá
1978 hefur verðið hjá BPA hækkað jafnt og þétt og
var það komið í 17,5 mill/kWh í árstok 1981 og seinna
á Þessu án er fyrirhugað að verðið hækki í 21-25
mill/kWh.
i Yfir 95% af framleiðslu ISAL er seld til Vestur-
Evrópu. Þegar álsamningarnir voru gerðir á sínum
tíma var fallist á það sjónarmið Alusuisse, að raforku-
verðið til ÍSAL þyrfti að vera lægra hér á iandi vegna
þess að greiða þyrfti toll af áli sem selt yrði til helstu
álmarkaða í Vestur-Evrópu. Þessir tollar hafa nú ver-
ið felldir niður. Eina óhagræðið af staðsetningu álvers
hér á landi felst því t lítið eitt hærri flutningskostnaði
en hjá áiverum í V-Evrópu. Meta má þetta óhagræði á
um 2 mill/kWh en tii samanburðar má nefna að með-
alorkuverð til álvera í Evrópú er um 21 mill/kWh, ef
ISAL er undanskilið.
8
I Þýskalandi og Bandaríkjunum
borgar Alusuisse 30 mill
Aluspisse á eignaraðild að 13 álverksmiðjum í 8
löndum. Meðalorkuverð til þessara álverksmiðja er
20 mill/kWh. Lægsta orkuverðið er hjá ÍSAL, 6,5
mill/kWh, en hæst er vcrðið í Þýskalandi og Banda-
ríkjunum, þ.e. um og yfir 30 miIl/kWh.
Samkvæmt spá Commodities Research Unit mun
orkuverö til álvera annars staðar í heiminum hækka
enn frekar á næstu árum og verða komið í um 24
mill/kWh að mcðaltali árið 1990 miðað við verðlag
1981.
Hægt er að líta svo á að ein af meginforsendum raf-
orkusamningsins við ÍSAL hafi verið sú að orkuverð-
ið væri í samræmi við framleiðslukoslnað á raforku í
landinu, en hann hefur sexfaldast að nafnverði í
bandaríkjadölum frá því að samningurinn var gerð-
ur. Miðað við þær forscndur ætti raforkuverðið til
ÍSAL því að vcra sex sinnum hærra en um var samið
1966 eða 15-18 milI/kWh.
Að mati starfshópsins er munur á raforkuvcrði til
almcnningsveitna og stóriðju orðinn óeðlilega mikill.
Miðað við eðlilega kostnaðarskiptingu virðist raun-
hæft að reikna með því að stóriðja greiði orkuverð
sem nemur a.m.k. 65% afveröi til almenningsveitna.
Samkvæmt því ætti ÍSAL að greiða nú um 20 mill/
kWh.
Samkeppnisstaða Islands í álframleiðslu er góð með
hliðsjón af legu landsins og mörkuðum austan hafs og
vestan. Telja má að samkeppnisfært raforkuverð til
áliðnaðar hér á iandi sé um 20 mill/kWh.
Krafa um þreföldun
Að öllu samanlógðu telur starfshópurinn að gjör-
breyttar forscndur frá því að raforkusamningurinn
var gerður 1966 og eftir endurskoðun hans 1975 rétt-
læti kröfúr um að raforkuverðið til ÍSAL hækki í
15-20 mill/kWh miðað við verðlag 1982.
| Starfshópurinn telur jafnframt að orkuverðið þurfi að
1 vera að fullu verðtryggt á samningstímanum og kæmi
til greina að miða verðtrygginguna að hálfu við verð-
þróun á áli og að hálfu við gjaldskrá Landsvirkjuriar.
10
11