Þjóðviljinn - 23.10.1982, Síða 13

Þjóðviljinn - 23.10.1982, Síða 13
Helgin 23.-24. október 1982 ÞJÖPVILJINN — SIÐA 13 Vetraráætlun Arnarflugs er gengin í garð Arnarflug hefur nú hafíð vetrar- áætlun sína á flugleiðinni til Am- sterdam, og er það jafnframt í fyrsta sinn sem Arnarflug er með vetraráætlun í millilandaflugi. Flogið er tvisvar í viku að heiman og heim alla þriðjudaga og föstu- daga. A miðvikudaginn gerðu for- ráðamenn Arnarflugs grein fyrir rekstri flugfélagsins á blaðamanna- fundi og kom þar ýmislegt fram sem ekki hefur áður þekkst í rekstri félagsins. Arnarflug mun fljúga sitt Amesterdam-flug með nýjum far- kosti, Boeing 737, sem tekur 120 farþega, en auk þess mun vélin sinna vöruflutningum af ýmsu tagi til og frá landinu. Þá er nú afráðið að vélin muni sinna leiguflugsverk- efnum fyrir Britannia. í sambandi við Amsterdamferð-. irnar getur Arnarflug boðið fram hina svokölluðu helgarpakka, en það kom fram hjá forráðamönnum Arnarflugs á blaðamannafundin- um, þeim Halldóri Sigurðssyni markaðsstjóra og Stefáni Halldórs- syni markaðsfulltrúa, að verð á þessari flugleið yrði frá 4700 krón- um til 12300 króna og væri verð verulega háð ýmsum ákvæðum hvers farseðils. Hópferðir til Kanaríeyja í gegn- um Amsterdam Þá kom einnig fram hjá þeim Halldóri og Stefáni að Arnarflug hefur í samvinnu við Ferðaskrif- stofuna Atlantik og Ferðamiðstöð- ina skipulagt ferðir til Kanaríeyja í vetur. I boði eru 11,18 eða 25 daga ferðir með brottför alla þriðju- daga. Fyrsta ferðin verður farin 2. nóvember og mun verða frá kr. 11.000. Ferðir til íslands frá Mið- Evrópu Ferðum Hollendinga til íslands hefur fjölgað, sögðu þeir Halldór og Stefán. Á hinn bóginn hefur ferðamannastraumur dregist saman frá Sviss og V-Þýskalandi. Ekki kunnu þeir félagar aðra skýr- ingu en þá að efnahagsástandið í heiminum hefur farið versnandi og almenningur haft úr minnu að spila. Þetta kæmi fram hjá velflest- um flugfélögum. Sértiiboð fyrir fólk í viðskiptaer- indum Arnarflug hefur nú kynnt sér- stakt tilboð fyrir fólk í viðskiptaer- indum, en millilending á Schipol- flugvellinum í Amsterdam er talin vera hinn prýðilegasti áningarstað- ur fyrir fólk sem þarf að sinna við- skiptum. f verði flugsins til Am- sterdam eru m.a. innifaldar tvær gistinætur með morgunverði á Hilton Airport hótelinu og úr flug- vélinni geta farþegar hringt eða sent telex-skeyti sér að kostnaðar- lausu. Ýmis þjónusta er einnig látin í té af hálfu Arnarflugs s.s. öll aðstoð við bókanir framhaldsflugs, hótela, bílaafgreiðslu, lestarferða o.s.frv. Grundarfjörður fellur út í innan- landsfluginu Vetraráætlun Arnarflugs innan- lands gekk í gildi 16. september síðastliðinn. Helsta breytingin á ferðum félagsins innanlands er sú að Grundarfjörður fellur út sem áætlunarstaður en í staðinn verður ferðum á Rif fjölgað. Er nú flogið þangað alla daga vikunnar í stað fimm daga áður. Ástæðan fyrir því að Grundar- fjörður fellur út sem áætlunarstað- ur var að sögn Arnarflugsmanna sú að Flugmálastjórn hafi vegna fé- lagsins ekki getað ráðið flugum- sjónarmann til starfa við flugvöll- inn þar. Mun aðstaðan við flugvöll- inn á Grundarfirði vera mjög bág- borin og ekki samræmast reglum um áætlunarflug flugfélaga. -hól. Yfirlýsing frá fóstrum: „Vídeóvæðingin ógnar börnunum” Á' fjölmennum félagsfundi í Fóstrufélagi íslands s.l. mánudag var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Miklar umræður hafa átt sér stað um fjölmiðla og ekki síst víde- óvæðingu þá, sem náð hefur fót- festu hér á landi. Ekki þarf að fjöl- yrða um áhrif sjónvarps, sem er máttugasti fjölmiðill okkar í dag - og gefur auga leið að börn eru við- kvæmust fyrir þessum áhrifum. Vídeóvæðing ógnar börnum þjóðarinnar. Sá tími, sem börn notuðu til heilbrigðra starfa og leikja fer nú í sjónvarpsgláp og get- ur gengið svo langt að þau njóti vart nægilegrar hvíldar. Ógnvæn- legast er þó að efnið, sem boðið er upp á, er misjafnt að gæðum og sjaldan við hæfi barna. Börn eru óvarðasti neytendahópurinn í okk- ar samfélagi og heimilin eru misvel í stakk búin til að stýra sjónvarps notkuninni. Fóstrur hvetja for- eldra til að vernda börnin sín og gera þá kröfu til ráðamanna þjóð- arinnar, að hagsmunir barna sitji í fyrirrúmi fremur en gróðasjónar- mið fárra manna.“ Byggung Kópavogi Lausar til endurúthlutunar eru íbúðir í 7. byggingaáfanga við Álftatún. Þeir félagsmenn sem áhuga hafa á að sækja um þessar íbúðir fá nánari upplýsingar á skrifstofunni Hamraborg 1 Kópavogi. Stjórnin. FOBÐflBORIÐ Nýtt Fyllt ýsa Fylltar skarkolarúllur Fyllt smálúðuflök Kryddlegið heilagfiski Kryddlegnar gellur Sítrónumarineruð ýsa Grýsa Ysa - smálúða - skötuselur - lax - Splúnkunýr eldislax - Nýtíndur kræklingur - Humar - rækjur - Smokkfiskur Hörpuskelfiskur tilbúinn á pönnuna Auk þess Fteyktur fiskur - saltflök - fiskfars - fiskhakk og ýmislegt fleira góðgæti. Mjólkurvörur, grænmeti, ávextir og nýlenduvörur. Gjörðu svo vel og líttu inn. FORÐfl BÚRIÐ iHeremmviö BORCARTÚN Klúbburfnn [□ Tilboðsverð á barnahúsgögnum Svefnbekkur - skrifborð - sæti Afborgunarverð: Allt settið kr. — +**+.*%. 5.300 Staðgreitt: Allt settið kr. 5.035 VörumarkaDurinn hf. Ármúla 1A. Húagagna- og Haimilisd. S-86-112 Matvörudaild S-86-111. VafnaSarv.d. S-86-113

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.