Þjóðviljinn - 23.10.1982, Side 16

Þjóðviljinn - 23.10.1982, Side 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 23.-24. október 1982 Helgin 23.-24. október 198Í ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17 Sýnishorn úr bókinni jobba so, (d. jobbe) —»• djobba. jogg h, (e. jog) (íþ) hægt, létt hlaup, oft til upphitunar, skokk. joll h, [1-lj ástafundir, ástarsam- band; skemmtun, útstáelsi. jolla so, [1-lj skemmta sér; j. við daðra við, reyna við, vera með; j. saman eiga í ástarsambandi, vera saman jonni k, (fí) vindlingur úr grasi (marihjúana), —*djoint. jól h ft, í samb. þessvegna á jólunum það kann að vera. jómfrú kv, (sj) jómfrúin fata sem menn hægja sér í á litlum bátum. (sjá mynd) jómfrúrræða kv, fyrsta ræða þing- manns á þingi (sbr. d. jomfrutale, e. maiden speech). jóna kv, (fí) gras, —» marihjúana: Jóna var á fullu það var mikið um gras/ mikið framboð af grasi; -*djoint, grasvindlingur: reykti smájónu. jónas k, (fí) vindlingur úr grasi (marihjúana), -^djoint. jónta kv, vindlingur úr grasi (mari- hjúana), -*djoint. jóreykur k, í samb. það stendur jó- reykurinn aftur úr honum/ henni hann / hún er fjörug(ur) í ástamál- um. jukk h, fúsk, illa unnið verk; (illa heppnaðar) samfarir. Viðtal við þá Mörð Árnason, Svavar Sigmundsson og Örnólf Thorsson sem eru að senda frá sér nýstárlega orðabók um slangur, slettur, bannorð og annað utangarðsmál Orðabækureru hið mesta þarfaþing og það sætirtíðindum í jólabókaflóðinu, sem nú er að skella yfir, að gefin verður út ný íslensk orðabók af sérstöku tagi. Titill hennar er Orðabók um slangur, slettur, bannorðog annað utangarðsmál. Höfundar hennareru þrírungir íslenskumenn, þeir MörðurÁrnason, Svavar Sigmundsson og Örnóflur Thorsson. Þjóðviljamenn fóru á stúfana og hittu þremenningana að máli í Árnagarði til að forvitnast um þetta nýstárlega verk. Tómstundastarf - Hver eru tildrög þess að þið fóruð af stað með þessa orðabók? -Það er nú það. Við unnum allir samtímis á Orðabók Háskólans og þau störf hafa sennilega orðið til þess að hugmyndin kviknaði. Aðdragandinn var þó vitaskuld lengri, allir höfðum við hlustað eftir og skrifað hjá okkur slangur- yrði og nýjungar í málfari, en það vár ekki fyrr en um síðustu áramót að sú iðja vatt upp á síg og varð að skipulegri orðasöfnun með ein- hvers konar útgáfu í huga. Þetta hefur verið unnið í tómstundum okkar. - Hefur þá enginn sinnt slíkri orðasöfnun fyrr? - Það getur varla heitið, að minnsta kosti ekki á skipulegan hátt. í eldri orðabókum er talsvert af slettum og slangri, oft auðkennt á einhvern hátt, en það virðist vera með höppum og glöppum hvaða orð hafa hlotið náð fyrir augum út- gefenda. Ýmsir kennarar hafa unn- ið með nemendum sínum að orða- söfnun á þessu sviði og má sérstak- lega nefna til Árna Böðvarsson. Hann fékk nemendur sína í Menntaskólanum við Hamrahlíð til að skrifa ritgerðir um unglinga- mál og slangur og vann upp úr þeim grein í Samvinnuna 1971. Við höf- um fengið að nota þessar ritgerðir og ýmis ámóta gögn frá öðrum kennurum. Þá má nefna rithöfunda sem auðvitað hafa eyrun opin fyrir ýmsu orðfæri til að nota við vinnu sína. Við fengum að láni orðasafn sem Elías Mar skráði á árunum eftir stríð og notaði sumt í skáld- sögur sínar. Þar kennir margra grasa, og furðu margt af því sem þá voru nýjungar lifir enn góðu lífi á vörum manna þótt það hafi ekki ratað inn í orðabækur. Nú, það vakti athygli að Magnea Matthías- dóttir birti orðalista aftast í fyrstu skáldsögu sinni og hefur hann reynst okkur gagnlegur. Annars eru það einkum erlendir fræðimenn sem sinnt hafa slangri og slettum í íslensku, t.d. Bruno Kress, Oscar Jones og Ulrich Gro- enke. íslenskir starfsbræður þeirra hafa að mestu látið þetta málfar afskiptalaust, ef til vill vegna áhrifa frá hreintungustefnunni svoköll- uðu. Önnur verkefni hafa líka þótt brýnni, enda státum við ekki af mörgum orðabókum um íslenskt mál. Engin vísindaleg skýring - En hvað er slangur? - Góð spurning, eins og ráðherr- arnir segja þegar þeir vilja ekki svara. Sannleikurinn er sá að það er engin pottþétt vísindaleg skil- greining til á slangri. Svo er nú raunar um fleiri hugtök; t.d. vefst mjög fyrir mönnum að skilgreina hvað sé orð þó að fáum blandist hugur um að orð séu til. Erfið- leikarnir stafa meðal annars af því,_ að slangur á sér bæði mállegar og félagslegar forsendur. Slanguryrðin eru oft og einatt tengd ákveðnum hópum í samfé- laginu, jafnvel leynimál þeirra upphaflega, og það einkennir slangur að njóta ekki opinberrar viðurkenningar sem „gott mál“. Slangur nota menn í sinn hóp, en síður á prenti eða við formlegar að- stæður, það hefur beina tilfinn- ingalega skírskotun og er oft kraft- mikið og myndauðugt líkingamál. Oft fer slangrið eigin leiðir við orð- myndun og orðatengsl, til marks um það má nefna öll orðin sem enda á ó t.d. púkó og tíkó, og þá venju unglinga fyrir nokkrum árum að setja orðið til framan við allan skrattann, vera til hressileik- ans, vera til drykkjar o.s.frv. En með þessu er ekki öll sagan sögð, og við rákum okkur fljótlega á að í íslensku eru mörkin milli slangurs og slettna mjög óljós, og titill bókarinnar fór að lengjast. Bókin verður því einnig vísir að Ryksugufloti. Teikning: Guðmundur Thoroddsen V ííto. Að vera múraður. Teikning: Grétar Reynisson tökuorðabók, sem hér er ekki til, og við reynum að finna íslensk orð fyrir sletturnar og segja frá upp- runa þeirra. Það er líka erfitt að draga marka- línu á milli slangurs og máls ýmissa sérhópa. Hver starfsstétt hefur sín málfarseinkenni og einnig ýmsir hópar, t.d. þeir sem drekka saman eða hlaupa saman... Sumir þessara hópa eru áhrifameiri en aðrir við að skapa slangur. Við höfum reynt að gera okkur grein fyrir því hvaða hópar eru áhrifamestir og einbeita okkur að málfari þeirra. Sjómennska, íþróttir, rokk og fíkniefni - Hvaða hópar eru það helst? - Við höfum merkt sérstaklega orð frá fjórum hópum í bókinni. Hér er um að ræða sjómannamál, íþróttamál, mál tengt rokktónlist og orð um fíkniefni og áhrif þeirra. Mörg slanguryrði og raunar margar slettur líka eru ættuð frá sjómönnum. Sjómenn voru fyrrum sá hópur alþýðu sem mest sam- skipti hafði við starfsbræður í út- löndum, þeir eru langdvölum fjarri heimilum sínum, og mynda sterk tengsl innbyrðis. Orðafar þeirra um verklag, tæki og tól er mikið sótt til nágrannamálanna eða heimatilbúið, enda sátu engar málnefndir í messanum og lögðu línuna. Það við bætist að sjómenn hafa hraustlegar skemmtanavenjur og hafa verið drjúgir við að leggja til orð á því sviði. íþróttaiðkendur, t.d. knattspyrnu- menn og áhugamenn um íþróttir eru líka mikilvirkur hópur í mál- farsefnum. Sérmál íþrótta hefur víða skotið upp kollinum. Þannig töluðu hæstvirtir alþingismenn um það, þegar stjórnarmyndunin gekk sem verst hér um árið, að nú væri það bara „maður á mann“, og blöðin tilkynntu með stríðsletri að nú væri „boltinn hjá Svavari". Þetta er raunar ekki ný bólaímál- inu, allir þekkja reiptog og hnútu- kast. í þriðja lagi er það svo málfar tengt rokki og djassi. Þessi tónlist, einkum rokkið, nýtur gríðarlegrar hylli meðal yngri kynslóða, og ófáir dálkar lagðir undir efni um þetta í dagblöðunum, oft á máli sem aðeins innvígðir skilja. Hvað eru til dæmis „gigg“, „riff“, og „fútúr- ismi“, Guðjón? Flytjendurnir eru fyrirmyndir aðdáenda sinna, einn- ig í málfarsefnum, og sum slangur- yrði eða slettur má rekja beint til þeirra, t.d. „sánd“, „að fíla“ og fleira. í fjórða lagi auðkennum við sér- staklega orðafar tengt neyslu fíkni- efna, þ.e.a.s. ólöglegrafíkniefna. f þessu orðafari er oft mikill leikur, vísur hálfkveðnar og talað rósa- mál. Menn sem eru líklegir til að eiga hampefni eru „efnilegir“, þeir eru spurðir hvort þeir eigi eitthvað „að lesa“ eða „séu með kvef“. Auðvitað eru hráar slettur úr ensku eða norðurlandamálunum á- kaflega áberandi, en þar kviknar líka orð af orði. Algengt orð um áhrif hamps er að vera „stónd“, beint úr ensku. Það hefur breyst í að vera „stónaður“ eða „steindur“. Þá liggur beint við að vera „grýtt- ur“, „steinrunninn“ og „steingerð- ur“ og þessi leikur nær svo skáld- legu hámarki með orðinu „berg- numinn“. Raunar höfum við rekist á svip- aða leikgleði og sköpunarkraft á velflestum slangursviðum, og má raunar telja það eitt af einkennum slangurmálsins. Þar er stöðug end- urnýjun. Reynsluheimur karla - Eru ekki til ýmis fleiri sérsvið slangursins? - Jú vissulega eru þau fleiri. Við göngum t.d. býsna langt í því að birta orðafar um áfengisneyslu og ýmis stig ölvunar, allt frá því að „lyfta glasi“ og „fá í annan fótinn" til þess að vera „urrandi fullur" og „á eyrnasneplunum“. Málfar á þessu sviði höfum við talið of al- mennt til að merkja það sérstak- lega. Hið sama á við um orð sem tengj- ast ástalifi og kynathöfnum. Þau svið eru allra, en oftast rædd í hálf- um hljóðum, enda svífur einhvers konar bannhelgi, tabú, yfir vötn- unum. Til að heyja okkur orða- forða á þessum vettvangi sátum við meðal annars á Landsbókasafninu og lásum klámblöð og sjoppubók- menntir við hlið hinna virðulegu fræðimanna. Eftirtekjan að þeirri iðju var reyndar ósköp rýr því orðaforði þessara bókmennta er fábrotinn og klisjukenndur. Þar að auki má koma fram, að í bókinni eru ýmis orð úr sérmáli fanga, og reyndar fleiri hópa, t.d. homma. Verst þykir okkur hvað kvennaslangur er fátæklegt í bók- inni. Raunar halda margir mál- fræðingar því fram, að konur tali „betra mál“ en karlar og séu ekki eins mikilvirkar á slangursviðinu og þeir. Slangur sé fyrst og fremst karla, sprottið úr „reynsluheimi“ þeirra. Okkur hefur stundum þótt nóg um þá heimssýn í bókinni. En kannski vantaði bara konu í rit- nefndina. Svipað karlveldi ríkir í þeim erlendu slangurorðabókum sem við höfum haft hliðsjón af, enda eru höfundarnir karlar. Eina undantekningin sem við vitum af er finnska bókin sem er eftir konu, en þar skortir okkur málakunnáttu. - Hvernig hafið þið safnað í bókina? - Við lásum um 200 bækur, aðal- lega ritverk ungra höfunda, fórum yfir ýmis vinsæl tímarit og höfum fylgst með dagblöðunum undan- farið ár. Við fengum að líta á bréfin sem send eru Lögum unga fólksins, lásum leikrit og fleira. Skemmti- legast hefur okkur samt þótt að tala við fólk og yfirheyra það um orða- far. Við höfum talað við marga, og margir komið að máli við okkur að fyrra bragði. Við höfum orðið varir við mikinn áhuga. Til að auðvelda okkur þessa beinu orðasöfnun bjuggum við til nokkra orðalista um ýmis sérsvið, lögðum þá fyrir gest og gangandi, og reynduin þannig að láta þetta hlaða utan á sig. Óhreinu börnin hennar Evu - Nú sögðuð þið áðan að þetta málfar væri ekki opinberlega við- urkennt. Gengur þá bók ykkar ekki í berhögg við alla málrækt? - Ýmsir hafa komið að máli við okkur og spurt hvort þetta væri ekki hættuleg iðja, svona bók festi bara í sessi „vont mál“, gerði slett- ur og tökuorð að fullgildri íslensku og mældi upp í fólki afkáralegt orðafar. Við höfum svarað því til að því fari fjarri að hægt sé að kalla slangur „vont mál“. Það er hins vegar hægt að kalla það lifandi mál, það er talmál í stöðugri endurnýj- un, oft stórskemmtilegt en ekki bókmál í föstum skorðum. Mörg slanguryrði eru tískubundin, önnur verða hluti af almennu tungutaki og endurnýja þannig málið og auðga það. Við höfum talsvert af slettum í bókinni. Það er ekki vegna þess að okkur þyki þær til bóta í íslenskri tungu heldur er það vegna þess að þær eru notaðar. Forsenda þess að hægt sé að hlúa að málinu, stunda málrækt, er að þekkja viðfangsefn- ið til hlítar. Við erum með nokkr- um hætti að draga óhreinu börnin hennar Evu fram úr fylgsninu og teljum okkur að því leyti vera að leggja málstað málræktarmanna lið. Við reynum einnig að gefa slettunum gróin íslensk samheiti. Sérkenni íslensk slangurs - Hefur íslenskt slangur einhver sérkenni? - Á ýmsurn sérsviðum er mikið um íslenskar útgáfur af alþjóðlegu slangri. Það á ekki síst við um rokk- tónlist og fíkniefni, þar er enskan ráðandi þó danska og önnur norð- urlandamál séu enn furðu seig. En þó orðstofninn sé stundum alþjóð- legur þykjumst við hafa komið auga á nokkrar séríslenskar orð- myndunarleiðir og reynum að gera grein fyrir því í formála bókarinn- ar. Við höfum áður minnst á orðin sem enda á ó, endingin -ari er mjög vinsæl, verkamaður er verk- ari, rúgbrauð erþrumariogaðstoð* armaður hljómsveita er kallaður rótari. Önnur vinsæl ending er -heit, það þýðir lítið að vera með flottheit í blankheitum. Ýmsar styttingar eru líka algengar, menn eru brjál en ekki brjálaðir, og nokkuð ber á tvöföldunum. Þannig eru róandi lyf stundum róró. Algengt er að víxla stöfum, strætisvagninni á leiðinni Hagar- Sund verður þá Sagar-Hund, veðr- ið skásmánar í stað þess að smá- skána. Oft ná einstök lýsingarorð ógeðslega miklum, klístruðum eða meiriháttar vinsældum og skiptir þá upphafleg merking þeirra ekki meginmáli. Sama á við um tíðnot- aða forliði enda þykir þræltöff að vera drullusama. Kenningasmíð er enn til þó rím- ur og dróttkvæði séu ekki efst á vinsældalistanum. Konur eru kall- aðar grýlur og karlmaður sem þeim gagnast eðlilega grýlugagn. Svo má nefna að ýmis furðuleg og fyndin orðasambönd, sum nokkuð langsótt, eru vinsælt slangur. Af einhverjum ástæðum kalla sjómenn réttinn kjöt og kjöt- súpuekki sínu rétta nafni heldur Eyvind og Höllu, kannski vegna þess að Eyvindur var frægur sauðaþjófur. Eyvindur með hor er aftur lambakjöt í karrísósu. - Verður þetta stór bók? - Það verða hátt í fjögur þúsund uppsláttarorð í henni. Stundum höfum við ekki látið beina skýringu nægja heldur tínt til nokkurn fróð- leik að auki með góðra manna hjálp, sérstaklega um fíkniefni og tónlistarstefnur. Aftast í bókinni er viðbætir um nöfn á íslenskum hljómsveitum, alls um 500 nöfn og miðað við stofnun Hljóma nokk- urn veginn. Síðast en ekki síst má nefna að í bókinni verða fjölmargar teikning- ar eftir tvo myndlistarmenn, Grét- ar Reynisson og Guðmund Thor- oddsen. - Hvar og hvenær kemur svo bókin út? - Hún kemur út hjá Svörtu á hvítu, sennilega um miðjan nó- vember. -GFr. „Sannleikurinn er sá að það er engin pottþétt vísindaleg skýring til á slangri'

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.