Þjóðviljinn - 23.10.1982, Síða 25
Helgin 23.-24. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SiÐA 25
Minning:
Karl Nikulásson
á Gunnlaugsstöðum
Fœddur 17. septeber 1908 —
Dáinn 16. október 1982
Við andlát Karls á Gunnlaugs-
stöðum koma fram í hugann minn-
ingar um kynni, sem stóðu á
fimmta tug ára. Lengst af vorum
við sveitungar og skammt á milli
okkar og höfðum oft margt saman
að sælda. Við áttum mörg sameig-
inleg áhugamál og skoðanir okkar
fóru saman um margt. Karl var
ákaflega vinfastur, var afar glögg-
skyggn um marga hluti, gat verið
hrókur alls fagnaðar, enda gæddur
mikilli kímnigáfu.
Hann naut ungur skólamenntun-
ar, sem á sinni tíð var gott vega-
nesti, las löngum mikið og hlaut
óvenju fjölbreytilega lífsreynslu á
yngri árum og nýtti vel alla þessa
reynslu. Hann var einn þeirra
manna, sem auðgaði líf þeirra, sem
kynntust honum náið.
Karl Nikulásson fæddist 17.
september 1908, sonur hjónanna
Nikulásar Jónssonar og Guðrúnar
Guðmundsdóttur, sem lengst af
bjuggu á Gunnlaugsstöðum 'í
Skógum.
Árið 1927 settist hann í Gagn-
, fræðaskólann á Akureyri og lauk
þaðan gagnfræðaprófi 1930. Skóla-
vistin á Akureyri og dvölin þar átti
eftir að hafa mikil áhrif á hann.
Hann hreifst mjög af tveimur ung-
um kennurum í skólanum: Einari
Olgeirssyni og Pálma Hannessyni.
Gerðist hann þá félagi í Jafnaðar -
mannafélagi Akureyrar þansem
báðir þessir kennarar voru fram-
arlega í flokki. 1 2. bekk eignaðist
hann skólabróður, sem um skeið
varð einn besti vinur hans: Hall-
grím Hallgrímsson, sem á síðari
hluta fjórða áratugarins varð einn
af efnilegustu leiðtogum íslenskra
sósíalista. Þeir voru nánast óað-
skiljanlegir í 2 ár til haustsins 1930,
bæði í skólanum og í margs kyns
ævintýrum: f síld á Siglufirði, þátt-
töku í Krossanesverkfaliinu fræga,
stofnun Kommúnistaflokksins,
átökum í verkalýðsbaráttu í
Reykjavík. Haustið 1931 skildu
leiðir þeirra, og sáust þeir ekki eftir
það.
Frá þessum viðburðaríku árum
sagði Karl mjög fróðlega í viðtali,
sem birtist í jólablaði „Austur-
lands“ í Neskaupstað 1970.
Áratuginn 1930—1940 er Karl
„einn kóngsins lausamaður“, sem
fór víða og vann hin margvísleg-
ustu störf. Ég hygg hann hafi fram-
an af þessu tímabili verið fyrir
norðan á síld á sumrum, en síðari
hluta áratugarins er hann kominn
heim í Vallahrepp og er þá í vega-
innu og kaupamaður á ýmsum bæj-
um. T.d. man ég hann var oft tíma
og tíma hjá foreldrum mínum í
heyskap og í skógi, og eins man ég
hann vann í skógræktinni hjá Gutt-
ormi móðurbróður mínum.
Sumarið góða 1939 vann hann við
húsbyggingu Gunnars Gunnars-
sonar á Skriðuklaustri. Hafði hann
þar að tjaldfélögum sveitunga sína
Hrafn á Hallormsstað og Guð-
mund Jóhannesson (sem síðar var
kenndurvið VíkíMýrdal). Oftrifj-
uðu þeir félagar upp minningar frá
þessu sumri, en bygging Klaustur-
hússins var afar mikið fyrirtæki á
sinni tíð og vakti mikið umtal í hér-
aðinu.
Haustið 1942 giftist Karl Önnu
Björgu Sigurðardóttur frá
Sauðhaga á Völlum, einstakri
ágætiskonu. Þau voru þennan
fyrsta vetur í húsmennsku í
Sauðhaga, en hófu 1943 búskap í
Vallanesi hjá séra Pétri Magnús-
syni og bjuggu þar í tvö ár. Bund-
ust þarna mikið vináttubönd þeirra
séra Péturs þrátt fyrir næsta ólík
sjónarmið um marga hluti.
Arið 1945 fluttu þau í Gunn-
laugsstaði, föðurleifð Karls, og
bjuggu þar ein til 1971, en síðan til
1978 í félagi við Sigurð son sinn og
Maríu tengdadóttur. Karl hafði þá
verið mjög heilsuveill og oft sár-
þjáður um meira en áratuga skeið.
Börn þeirra Karls og Önnu voru
6: Guðrún húsfreyja í Reykjavík,
Pálína húsfreyja á Akranesi, Sig-
urður verkamaður á Egilsstöðum,
Valgerður húsfreyja í Reykjavík,
Gunnlaugur sem dó 1976, og Finn-
ur nemandi í íslenskum fræðum,
búsettur í Reykjavík.
Karl sat í hreppsnefnd Valla-
hrepps 1946—1958 og var formað-
ur Búnaðarfélags Norður-Valla og
Skóga frá 1946 í nær tvo áratugi.
Þau Karl og Anna bjuggu aldrei
stóru búi, en farsælu. 1 búskap
þeirra réði forsjálni og hyggindi.
Jörðin var lítil, en góð til ræktunar
og þau ræktuðu hana vel.
Éins og fyrr var nefnt, átti Karl
við mikla vanheilsu að stríða á
annan áratug, en naut þá einstakr-
ar hugprýði og dugnaðar konu
sinnar. Það gerðist þó, sem sjald-
gæftmáteljast, að sl. eittog hálftár
leið Karli miklu betur en verið
hafði um langt skeið, svo að krafta-
verki gekk næst. Þegar svo kallið
kom sl. laugardag, kom það
snöggt.
Líf Karls Nikulássonar var ólíkt
lífi flestra íslenskra bænda í samtíð
hans. Hann fór ungur út í heiminn,
kynntist nýjum straumum á um-
brotatímum og hreifst af þeim, en
sneri heim að þeirri reynslu lokinni
og gerðist traustur bóndi og góður
félagsþegn sveitar sinnar meðan
heilsan entist.
Kynnin við hann allt frá því ég
var unglingur og síðar sem ná-
granni, voru mér og fjölskyldu
minni ómetanleg. Við þökkum
honum samfylgdina.
Sigurður Blöndal
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stödur
LANDSPÍTALINN
DEILDARSJÚKRAÞJÁLFARI óskast viö endurhæf-
ingardeild.
Upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari endurhæfinga-
deildar í síma 29000.
SKURÐSTOFUHJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast
á göngudeild Landspítalans. Vinnutími kl. 14.30-
18.30 þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 29000.
HJÚKRUNARFRÆRÐINGUR óskast á lyflækninga-
deild 2 og 4.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 29000.
KLEPPSSPÍT ALI
Stöður SÉRFRÆÐINGA við Geðdeildir ríkisspítal-
anna eru lausar til umsóknar.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist
stjórnarnefnd ríkisspítalanna fyrir 20. desember n.k. á
þar til gerðum eyðublöðum fyrir lækna.
Upplýsingar veita yfirlæknar deildanna í síma 29000
og 38160.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast á hinar ýmsu
deildir Kleppsspítalans. Fullt starf eða hlutastarf.
Barnaheimili á staðnum.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 38160.
STARFSMENN óskast til ræstinga í 70% og 50%
starf.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 38160.
STARFSMAÐUR óskast við eldhús Kleppsspítalans í
fullt starf. Vaktavinna.
Upplýsingar veitir yfirmatráðskona í síma 38160.
Reykjavík, 24. október 1982,
RÍKISSPÍTALARNIR
gúmmístígvél
cherrox
LAUGAVEGI 1- SÍM11-65-84
Laus staöa
Staða framkvæmdastjóra rannsóknarráðs ríkisins er laus til um-
sóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, fyrir 19. nóvember n.k.
Menntamálaráðuneytið,
19. október 1982
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
Árna Björns Kristóferssonar
frá Kringlu
Aðstandendur
Við þökkum innilega samúð og vináttu við andlát og útför
Þórdísar Guömundsdóttur
frá Helgavatni
Rut Guðmundsdóttir
Ásmundur Guðmundsson
Anna Einarsdóttir