Þjóðviljinn - 06.11.1982, Síða 19
Helgin 6. - 7. nóvember 1982 WÓÐVILJINN — SÍÐA 19
Ein lítil afmœliskveðja:
Skúli Guðmundsson
áttræður
Við systkinin vorum á aldrinum
9 til 15 ára þegar Skúli Guðmunds-
son kennari og móðir okkar, Ásta
Jónasdóttir, giftu sig og hófu bú-
skap. Það var seinna hjónaband
þeirra beggja. Skúli hafði verið
barnakennari um áratuga skeið og
starfaði hann við Austurbæjar-
barnaskólann þegar hér var komið
við sögu.
Skúli var ekkill og átti fjögur
börn með fyrri konu sinni. Þau eld-
ri þeirra voru komin á legg um
þessar mundir, en yngsta barnið
fylgdi Skúla í hinn nýja búskap þar
sem þrjú börn voru fyrir. Skúli var
ákaflega vel látinn kennari og erfitt
er að ímynda sér að nokkurt starf
geti átt einn mann eins og barna-
kennarastarfið átti Skúla. Enda var
hann vinsæll bæði af nemendum
sínum og samkennurum.
Lítið atvik segir sína sögu. Eitt
okkar systkina var statt i strætis-
vagni einhverju sinni, þegar tvær
ungar stúlkur ræddu um skóla-
göngu sína. Spyr þá önnur: „En
Vísnavinakvökl
Vísnavinir halda sitt mánaðar-
lega vísnakvöld í Þjóð-
leikhúskjallaranum á mánudaginn
kemur. Gestir kvöldsins eru Magn-
ús Þór Sigmundsson með „Draum
aldamótabarnsins", sönghópurinn
Hálft í hvoru, Karl Esrason og
Stormskersflokkurinn. Ljoðskáld
kvöldsins verður Aðalsteinn As-
berg Sigurðsson með „Fuglinn“,
Auk þess er frjálst fyrir aðvífandi
einstaklinga með hljóðfæri að
troða upp.
hvaða kennara færð þú?“ „Ég fæ
Skúla“ - sagði hin. „Guð hvað þú
átt gott“ var svarið. Skúli hefur alla
tíð verið tillitssamur og hjálpfús
maður svo af ber. Þó hann sé fastur
fyrir í skoðunum, er hann viðmóts-
þýður og þægilegur í umgengni.
Þegar litið er yfir farinn veg, um
þrjátíu ár, minnumst við þess, að
aldrei hefur okkur systkinum orðið
sundurorða við hann, en skýring-
arinnar mun að leita í þroska hans
og lyndiseinkunn.
1 tómstundum sínum stundar
Skúli enn sem endranær þekking-
arleit, en bókasafn hans er orðið
allviðamikið og nær yfir fjölmörg
svið. Heilsurækt og náttúrulækn-
ingar hafa verið drjúg áhugaefni.
Ætla má þeim málum í það minnsta
hlutdeild í hans góður heilsu, en
ekki er okkur kunnugt um að hann
hafi leitað læknis um ævina. Verði
honum nokkrun tíma misdægurt,
ber hann það með sjálfum sér, því
enginn verður þess var.
Áttatíu ár eru vissulega nokkuð
hár aldur, en ekki er að sjá að Elli
kerling hafi bitið skarð í varnir
hans, andlegar eða líkamlegar.
Við systkinin erum Skúla ákaf-
Iega þakklát, en finnst oft að skort
hafi á að við sýndum það í verki.
Það er enginn leikur að taka að sér
þrjá óstýriláta rollinga með nýrri
eiginkonu og troða um leið hina
þröngu slóð réttlætisins gagnvart
eigin börnum. Ein lítil kveðja og
þakkargrein breytir víst litíu af
okkar hálfu.
Við sendum þér, Skúli, hug-
heilar hamingjuóskir með daginn
og vonum að þú eigir enn eftir að
lifa mörg hamingjusöm.ár við góða
heilsu. Við erum þess fullviss að þú
eigir eftir að láta þann gamla
draum ykkar mömmu rætast að
klífa Mælifellshnúk og láta sjónir
ykkur líða yfir Skagatjörð í aftan-
kulinu. Góða ferð!
Svanhildur, Jónas og Svavar.
Fyrirlestur í
heimspekideild
Marcel la Follette ritstjóri flytur
opinberan fyrirlestur í boði
heimspekideildar Háskóla íslands
sunnudaginn 7. nóvember 1982 kl.
15.00 í stofu 101 í Lögbergi.
Fyrirlesturinn nefnist „Moral
Responsibility in the Practice of
Science and Technology: Selected
Issues“. Fyrirlesturinn verðurflutt-
ur á ensku og er öllum heimill að-
gangur.
BLÚSSA
Efni: Polyester
Stærðir: 12 - 20
Litir: hvít, Ijósblá. Verð kr. 445,-
VESTI
Efni: Hrein ull
Stærðir: 14-18
Litur: Ijós beige Verð kr. 520.-
BLAZER JAKKI
efni: Hrein ull
Stærðir: 12-20
Litir: Grár kr. 1.775,- Vínrauður kr. 1.796.-
PILS
Efni: 100% ull, fóðruð
Stærðir: 14-20
Tveir litir. Verð kr. 1.130,-
roJ KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENNIS
^PASr0
Óskast í eftirtaldar bifreiðar, sem verða til sýnis þriðju-
dagin 9. nóvember 1982 kl. 13 - 16 í porti bak við
skrifstofu vora Borgartúni 7, Reykjavík.
FordBronco.............................árgerð 1978
FordBronco.............................árgerð 1974
Ford Bronco............................árgerð 1974
Ford Bronco............................árgerð 1974
Ford Bronco............................árgerð 1974
Ford Bronco............................árgerð 1974
SubaruStation4WD.......................árgerð 1980
Subaru Station 4WD.....................árgerð 1978
Chevrolet Blazer.......................árgerð 1972
UAZ452.................................árgerð 1980
UAZ 452................................árgerð 1980
UAZ452.................................árgerð 1979
UAZ452.................................árgerð 1979
UAZ452.................................árgerð 1979
UAZ452.................................árgerð 1977
UAZ452.................................árgerð 1976
Ford F 2504x4 Pick Up..................árgerð 1975
Land Rover diesel......................árgerð 1975
Land Rover diesel......................árgerð 1973
Scout..................................árgerð 1979
LadaSport..............................árgerð 1979
LadaSport..............................árgerð 1979
LadaSport..............................árgerð 1978
LadaSport................................ árgerð.1978
LadaStation............................árgerð 1980
Lada Station...........................árgerð 1980
LadaStation............................árgerð 1980
Lada Station...........................árgerð 1978
Datzun120YStation......................árgerð 1977
Volkswagen 1200........................árgerð 1973
Moskwitch sendibifreið.................árgerö 1979
Chevy Van sendibifreið.................árgerð 1973
Volkswagen sendibifreið................árgerð 1977
Evenrudevélsleði
Til sýnis hjá varastöð við Elliðaár.
MAN 4x4 vörubifr. m.krana (biluð vél)..árgerð 1973
Til sýnís á vélaverkstæði Flugmáiastjórnar á Reykjavík-
urflugvelli
Ferguson dráttarvél m. skóflu..........árgerð 1956
Til sýnis hjá Póst og Síma (Jörva)
Volvo Laplander C 202 skemmd eftir veltu árgerð 1981
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16:30 að viðstödd-
um bjóðendum. Réttur áskilinn að hafna tilboðum, sem
ekki teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍNII 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Hafnarfjörður -
lóðaumsóknir
Lóðum verður úthlutað á næstunni á Hvaleyrarholti. Um er
að ræða raðhús, tvíbýlishús og einbýlishús, og eru lóðirnar
nú byggingarhæfar.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa bæjarverkfræðings
Strandgötu 6.
Umsóknum skal skila á sama stað á eyðublöðum sem þar
fást eigi síðar en 17.nóv. n.k.
Bæjarverkfræðingur
Veiði í Gljúfurá
í Borgarfirði.
Hér meö er auglýst eftir tilboöum í leigu
veiðiréttar í Gljúfurá frá Klaufhamarsfossi aö
Norðurá. Veiöihús fylgir. Skrifleg tilboð ósk-
ast send til Guðmundar Þ. Jónssonar á skrif-
stofu Iðju, félags verksmiðjufólks, Reykjavík
þann 23. þ.m.
Stjórn veiðifélags
Gljúfurár.
Hafnarfjörður
AÐSTOÐARMATRÁÐSKONA
óskast á dagheimilið Hörðuvöllum.
Starfsreynsla í mötuneyti æskileg.
Ennfremur óskast starfsmaður til afleys-
inga í forföllum starfsfólks.
Upplýsingar í síma 50721.