Þjóðviljinn - 31.12.1982, Side 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. desember 1982
Ávinningar á ári aldraðra Ávinningar á ári aldraðra
Byggingarframkvæmdir síðustu tvö árin
Gífurlegt átak
í þágu aldraðra
Droplaugarstaðir í Reykjavík voru teknir í notkun á ári aldraðra en
þar eru 68 rúm fyrir gamla sjúklinga. Ljósm. gel.
Uppsteypu B-álmu Borgarspftalans var lokið á árinu en þar verða 174
rúm fyrir aldraða. Byggingin verður að hluta tekin í notkun næsta
sumar. Ljósm. gel.
Fjárframlög úr ríkissjóði
til bygginga fyrir aldraða
hafa aldrei verið eins mikil
og á árinu sem er að líða -
ári aldraðra. Stóra stökkið
upp á við í þeim efnum varð
á árinu 1981 þegar Fram-
kvæmdasjóður aldraðra
var stofnaður en þá marg-
faidaðist fjármagnið til
bygginga fyrir aldraða,
bæði með tilkomu nef-
skatts á alla gjaldendur í
landinu og einnig með stór-
felldri aukningu til sér-
stakra framkvæmda. Með
árinu 1981 jókst
heildarframlagið miðað við
verðlag þess árs úr því að
vera um að bil 611.000
krónur 1980 í tæpar 17 milj-
ónir árið 1981. Raungildi
þeirrar upphæðar hefur svo
haldist síðan þrátt fyrir
rýrnandi þjóðartekjur.
Litið til 10 ára
1971, í ársbyrjun, voru elli- og
dvalarheimili aldraðra og þær
stofnanir sem höfðu hjúkrunar-
og endurhæfingardeildir, 15 alls.
Fjöldi rúma var þá 1.439, fjöldi
sjúklinga 1.437. Elliheimilið
Grund með sínum útibúum var
með 500 rúm samtals og Hrafn-
Dvalarheimili og
hjúkr: nardeildir sjúkrahúsa
Hornbrekka, Ólafsfirði, ellideild
Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili
aldraðra, Kópavogi
Droplaugarstaðir, Reykjavík
Elli- og hjúkrunarheimili
A-Skaft., Höfn, Hornafirði
Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri, hjúkrunardeild
Hrafnista, dvalarheimili aldraðra
sjómanna, Hafnarfirði
Borgarspítalinn, Hvítabandið
Samtals:
ista í Reykjavík með 418 rúm.
Á áratugnum 1971-1981 risu af
grunni nokkur dvalarheimili
aldraðra og önnur voru stækkuð.
í ársbyrjun 1981 voru þessar
stofnanir orðnar 29 talsins. Vist-
rými voru um 2006 og þar dvöldu
1.967 aldraðir. Efviðgerumsam-
anburð á þróuninni þennan ára-
tug eru niðurstöðurnar einkum
þær að í fyrsta lagi hefur stofnun-
um fjölgað um helming, eða úr 15
í 29. I öðru lagi hefur vistrýmum
fjölgað um 39.4%, úr 1.439 í
2.006.
Þess verður að geta í þessu
sambandi að tölur eru ekki alveg
nákvæmar. Yfirlitið nær aðeins
yfir elli- og dvalarheimili svo og,
langlegudeildir sjúkrahúsanna.
En víða á sjúkradeildum sjúkra-
húsanna eru auðvitað aldraðir
þannig að hópur öldrunarsjúk-
linga er því eflaust stærri en hér
kom fram.
Hvað gerðist 1982?
Á árinu sem er að líða hafa
bæst við tölu rúma á dvalar-
heimilum og hjúkrunardeildum
sjúkrahúsa samtals 268 rúm.
Vistmönnum hefur fjölgað um 63
og hjúkrunarsjúklingum um 205.
Hér fer á eftir yfirlit yfir þau
dvalar- og hjúkrunarheimili sem
tekin voru í notkun á ári aldr-
aðra:
Tala Vist- Hjúkr.
rúma menn sjúkl.
25 17 8
38 _ 38
68 36 32
■ 11 10 1
20 - 20
87 87
19 " 19
268 63 205
Gert hafði verið ráð fyrir því að
unnt yrði að taka í notkun hluta af
B-álmu Borgarspítalans í
Reykjavík en það dregst fram á
næsta ár. Framkvæmdir við 5. og
6. hæð B-álmunnar eru vel á veg
komnar og er búist við að þær
verði teknar í notkun í sumar. í
þessari álmu Borgarspítalans
verða samtals 174 rúm fyrir öldr-
unarsjúklinga.
Árangur ársins 1982 felst í því
að í stað 2.047 rúma á dvalar-
heimilum og hjúkrunardeildum
sjúkrahúsa 1. janúar 1982 verða
þau 2.315 1. janúar 1983. Tala
vistmanna á fyrrgreindum stofn-
unum var í ársbyrjun 1982 1.013
en verður 1.076 nú í byrjun árs
1983 og fjöldi aldraðra hjúkrun-
arsjúklinga var 936 en verður
1.141, sem er 21,9% aukning á
þessu eina ári sem tileinkað var
öldruðum.
Átakið aðeins að byrja
Og það er mikið verið að
byggja af húsnæði fyrir aldraða á
íslandi í dag, bæði á vegum ríkis-
ins og sveitarfélaganna. Áður var
minnst á B-álmu Borgarspítalans
sem að hluta verður tekin í notk-
un á árinu en á í heild að hýsa 174
vistmenn. Verði jafn myndarlega
framhaldið því
uppbyggingarstarfi í þágu aldr-
aðra og hófst fyrir 2 árum hér í
Reykjavík, er ljóst að það rými
sem verið er að taka í notkun auk
þess sem er í byggingu í höfuð-
borginni, ætti að geta fullnægt
þörfinni fram til 1984-1985, en að
síðan þurfi aðeins að bæta við 20
hjúkrunarrýmum á ári til að anna
aukinni eftirspurn! Úti á landi
hefur heilsugæslustöðvakerfið
byggst afar hratt upp á síðustu 3
árum, en þær eru einmitt horn-
steinn starfsins í þágu aldraðra á
landsbyggðinni. Áuk þess er svo
verið að byggja fjölda dvalar- og
hjúkrunarheimila um land allt
auk íbúða sem allnokkur sveitar -
félög hafa ráðist í að byggja og
eiga að nýtast af öldruðum.
Framkvæmdasjóðurinn skipti
sköpum
Með stöfnunFramkvæmdasjóðs
aldraðra, en Svavar Gestsson
heilbrigðismálaráðherra kom
sjóðnum á laggirnar, urðu vatna-
skil í málefnum aldraðra á ís-
landi. Þessi sjóðurfékkfyrst tekj-
ur 1981 sem varð til þess að
heildarframlög, þ.e. beint af fjár-
lögum annars vegar og svo með
tilkomu nefskattsins hins vegar,
30-földuðust á milli áranna 1980
og 1981!
Á árinu 1982 er búið að greiða
úr Framkvæmdasjóðnum tæp-
lega 28 miljónir króna til 15 bygg-
inga víðs vegar um land og á
næsta ári er reiknað með að af
nefskattinum fái Framkvæmda-
sjóður aldraðra um það bil 23
miljónir króna auk um það bil 17
miljóna sem veitt var beint af
fjárlögum.
Það virðist því ljóst að á árun-
um 1981-1983 liafa orðið
straumhvörf í málefnum aldraðra
á íslandi. Ríkisvaldið hefur að
sönnu gengið á undan með góðu
fordæmi og eflt stórlega allar
framkvæmdir í þágu aldraðra.
Auk þess hefur svo nýtt frumvarp
uin ntálefni aldraðra nýlega verið
samþykkt í þinginu sem tryggir
enn betur að þeim hópi þjóðfé-
lagsþegnanna sem stærstan þátt
eiga í því samfélagi sem við búurn
við í dag, verði sómasamlega bú-
ið áhyggjulaust ævikvöld.
-v.
Mestu skiptir að byrinn haldist
„Ar aldraðra“ er nú á enda.
Blaðið leitaði fregna af því í
nokkrum stærstu kaup-
stöðum á landinu hvernig
aðbúð við aldrað fólk væri
þar háttað og hvað sérstak-
lega hefði verið gert í tilefni
af árinu.
Yfirleitt voru þeir, sem við
var rætt á einu máli um að
árið hefði, út af fyrir sig,
ekki valdið neinum straum-
hvörfum í framkvæmdum.
Þó hefðu þær umræður,
sem fram hefðu farið um
málefni aldraðra og
aðstöðu í þjóðfélaginu, ýtt
við mörgum og orðið til
þess, að hraðað væri fram-
kvæmdum, sem annars
kynnu að hafa dregist.
Aðalatriðið væri þó, að byr-
inn í seglunum héldist þótt
árið væri liðið.
Akureyri
Jón G. Sólnes sagði að á árinu
hefði verið stofnað Félag aldr-
aðra á Akureyri og væntu menn
sér mikils af þeim samtökum.
Ennþá hefði félagið ekki fengið
húsnæði, sem væri þó undirstaða
starfseminnar, en vonir stæðu til,
að úr því rættist bráðlega. Þegar
húsnæði væri fengið yrði þar „op-
ið hús“ þar sem fólk gæti hist,
spjallað saman og notið ýmiss
konar skemmtunar og þjónustu.
Jón Björnsson, forstöðumaður
Félagsmálastofnunar bæjarins,
undirbjó stofnun félagsins, en
það nýtur mikils skilnings og
velvildar bæjarbúa, sagði Jón G.
Sólnes.
Isafjörður
Magnús Reynir Guðmundsson
hjá ísafjarðarkaupstað sagði þar
rekið elliheimili, sem rúmi 22
vistmenn. Þá væri búið að taka í
notkun 30 íbúðir fyrir aldraða, 20
einstaklingsíbúðir og 10 hjónaí-
búðir. Þar væri jafnframt góð
aðstaða fyrir félagsstarfa aldr-
aðra, funda- og samkomusalur.
Minni íbúðirnar eru 45 ferm, en
hinar stærri 55 ferm. Þær fylltust
um leið og eru allmargir á bið-
lista. Aðstaða er'til heilsuræktar,
snyrtingar o.fl. og fer það fram
tvisvar í viku. Komið hefur til tals
að gera gamla sjúkrahúsið að
hjúkrunarheimili fyrir aldraða
þegar flutt verður úr því.
Akranes
Ingimundur Sigurpálsson,
bæjarstjóri sagði að bæjarstjórn-
in hefði samþykkt að hefja undir-
búning að byggingu raðhúsa fyrir
aldraða í tengslum við dvalar-
heimilið Höfða og yrðu það söluí-
búðir. Er hönnun þeirra nú lokið
og að því komið að framkvæmdir
hefjist við sjálfa bygginguna. I
þessum áfanga verða 8-10 hús. Þá
hefur og verið samþykkt að hefja
stækkun á almennu vistrými fyrir
aldraða og miðað við að þar fáist
rými fyrir 20-30 einstaklinga. í
sambandi við rekstur dvalar-
heimilisins er „opið hús“ fyrir
eldri borgara einu sinni til tvisvar
í viku en þar fara m.a. fram ýmiss
konar námskeið og allslags fönd-
ur. Þá er og tekín upp dagvist
fyrir aldraða.
Neskaupstaður
Logi Kristjánsson, bæjarstjóri,
sagðist fyrst af öllu vilja nefna
það, að komið hefði verið upp
endurhæfingarstöð í sjúkrahús-
inu. Þá væru í smíðum 12 íbúðir
fyrir aldraða og væru þær nú fok-
heldar. Hálfsmánaðarlega erefnt
til tómstundastarfs í samvinnu
við kvenfélagið. Eftir áramótin
verður tekið í notkun safnaðar-
heimili við kirkjuna og verður
þar félagsmiðstöð fyrir aldraða.
Rekin er heimilishjálp og í athug-
un er að koma upp vernduðum
vinnustað. Ýmis félagasamtök í
bænum hafa látið málefni eldra
fólksins mjög til sín taka. Þá
nefndi Logi Kristjánsson að í
Neskaupstað þyrftu þeir, sem
náð hefðu aldurshámarki, ekki
að víkja úr störfum nema þeir
óskuðu þess sjálfir. En eftir það
gætu þeir hinsvegar ákveðið sjálf-
ir vinnutíma sinn, hvenær þeir
mættu í vinnu og hvort þeir kysu
að hverfa að léttari störfum.