Þjóðviljinn - 15.01.1983, Síða 25
Helgin 15. - 16. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 25
Könnun jafnréttisnefndar í Kópavogi:
Samgöngur eru
efstar á blaði
Forgangsmál kvenna önnur en karla
Flest fólk í Kópavogi telur, að
bæjaryfirvöld ættu að einbeita sér
mest að samgöngumálum á næstu
árum, en að öðru leyti vilja konur
að lögð verði áhersla á dagvistun-
armál, heilbrigðismál og jafnréttis-
mál. Karlarnir vilja hins vegar
leggja mesta áherslu á húsnæðis-
mál, atvinnumál og skipulags- og
umhverfismál.
Þessar athyglisverðu niðurstöð-
ur fengust í könnun einni, er Jafn-
réttisnefnd Kópavogs fékk Friðrik
Þór Guðmundsson, þjóðfélags-
fræðinema, til þess að gera fyrir sig
sl. vor. Könnunin er ekki strangvís-
indalegt úrtak af Kópavogsbúum,
heldur var farið með spurningalista
á vinnustaði í Kópavogi, en vita-
skuld vinna þar einnig aðrir en
Kópavogsbúar. Svörun á könnun-
inni var léleg og því ekki hægt að
draga af henni miklar ályktanir.
Svör þeirra sem spurð voru um
forgangsmál benda þó eindregið
til þess, að „reynsluheimur" karla
og kvenna skili sér aldeilis í við-
horfum til bæjarmálefna. En hér
koma svo spurningarnar og svörin.
Spurt var: Að hvaða málaflokk-
um telur þú að bæjarstjórn ætti að
einbeita sér hvað mest á næstu
árum? Merkið við 4 málaflokka
eftir forgangsröð (1, 2, 3 og 4).
Karlar Konur
Samgöngumál (gatnamál, umferð gangandi, strætisvagnar o.fl.) 21 29
Verklegar framkvæmdir (svo sem holræsagerð, hitaveita) 3 1
Fullorðnisfræðsla (endurmenntun, starfsþjálfun 3 4
Hafnarmál (hafnargerð, 1 0
Húsnæðismál (byggingar og lóðamál) ' 13 5
Skipulags- og umhverfismál (fegrun, hreinsun) 8 2
Dagvistunarmál 4 11
Menntamál (skólar og fræðslumál) 3 4
Æskulýðsmál 3 8
Iþrótta- og útivistarmái 1
Jafnréttismál (tækifæri kynja, kjarajöfnun) 1 9
Heilbrigðismál (sjúkrahús, fæðingarheimili, málefni fatlaðra).... 4 10
Málefni aldraðra (húsnæði, aðhlynning) 1 4
Öryggismál (löggæsla, brunavarnir) . 0 2
Verslunarmál (lögbundin þjónusta, ný hverfi, stuðningur) 0 0
Atvinnumál (atvinnuöryggi, stuðningur við atvinnulífið) 9 3
Samtals svöruðu: 76 93
Að samgöngumálum frátöldum kemur fram mikill munur á viðhorfum
kynjanna til forgangsmálefna í Kópavogi. Dagvistunarmál eru í öðru sæti
hjá konum en í fimmta sæti hjá körlum.
Söluhæstu bækurnar fyrir jólin:
Reyfari í fyrsta sæti
Könnun Félags íslenskra bókaút-
gefenda á bókasölunni fyrir jólin er
nú lokið. Gerðar voru fimm kann-
anir og tóku 15 bókabúir víðs vegar
um land þátt í þeirri síðustu, þeirra
á meðal stærstu bókabúðirnar.
Söluhæsta bókin varð Dauða-
fljótið eftir Alistair MacLean, í
öðru sæti hafnaði bókin Æviminn-
ingar Kristjáns Sveinssonar augn-
læknis og í þriðja sæti Bréfin hans
Þórbergs. Síðan er röðin þessi:
Kvistir í lífstrénu, Persónur og leik-
endur, Hverju svarar læknirinn,
Seld norðurljós, Albert, Orðabók
um slangur og í tíunda sæti kemur
Bermudaþríhyrningurinn.
Af söluhæstu barna- og ungling-
abókum kemur bókin 555 gátur í
fyrsta sæti og síðan þessi röð:
Mömmustrákur, Lukku Láki,
Svalur og félagar og Viltu byrja
með mér?
Blikkiðjan
Ásgarði 7, Garöabæ
önnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiöi.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468
erlendar
baeHur
The Penguin Complete
Lewis Carroll.
With an introduction by Aiexander
Woolicott and the iilustrations by
John Tenniel. Penguin Books 1982.
Þetta er endurprentun None-
uch í Press frá ’ 39. Lewis Carroll er
höfundaheiti stærðfræðikennarans
sirs Charles Lutwidge Dodgson.
Hann veigraði sér við að gerast
sóknarprestur vegna feimni og radd-
hömlunar vegna stams. Hann
fæddist 1832 og kenndi stærðfræði í
Oxford alla sína tíð. Hann var
einkar hrifinn af börnum, en
kvæntist þó ekki, líklega hefur
feintnin valdið því. Sögur hans
urðu strax kunnar ásamt kvæðum
og gátum. Hann skrifaði einnig
stærðfræðilegar ritgerðir, sem töld-
ust heldur ómerkilegar. Allir
þekkja Lísu í Undralandi og aðrar
sögur hans. Hér er þetta allt gefið
út í einni skruddu, nema auðvitað
ekki stærðfræðiritgerðirnar.
Der Fischer
Weltalmanach 1982
Herausgegeben von Gustav Fochler
Hauke u.andere. Fischer Taschenbuch
Verlag 1981.
Þetta er 23 árgangur Fischer
Almanaksins og er gefið út í tveim
og hálfri miljón eintaka. Þetta er
meðal handhægustu uppflettirita af
þessum toga þar sem finna má mar-
gvíslegar upplýsingar um lönd og
þjóðir, atvinnuhætti og framleið-
slu, knappan ársannál og helstu
viðburði í listum og vísindum.
Almanakið tók að koma út 1959 og
var þá gefið út af Gustav Fochler-
Hauke og sá hann um útgáfuna
næstu tuttgu árin, einn. Nú er hann
skráður sem útgefandi ásamt
nokkrum samstarfsmönnum. Rit
þetta er rúmar 1000 blaðsíður, og
ásamt kortum og töludálkum er
hér mikill fróðleikur samansafn-
aður í skýru og knöppu formi.
Scotland.
With an Introduction by Lord Home of
the Hirsel.
Photographs: Uouglas Corrance.
Editorial consultant: John Hutchinson.
Fontana/Collins 1982.
Skotland er land andstæðnanna.
Búsældarleg héröð, grjót og urðir,
snævi þaktir tindar og kaldranaleg
útsker, gróin gömul sveitaþorp og
borgir skiptast á. Myndavalið er
fjölbreytilegt bæði af landslagi
mannlífi og dýralífi og af höllum og
ýmsum frægum byggingum. Þetta
er skemmtileg myndabók og inn-
gangur Homes er skrifaður af
ntanni sem er borinn og barnfædd-
ur í þessu landi og á aukþesstals-
verður landspildur þar.
Alfred Döblin: November
1918.
Band 1: Biirger und Soldaten - Band 2:
Verratenes Volk - Band 3: Hcimkehr
der Fronttruppen - Band 4: Karl und
Rosa. Deutscher Taschenbuch Verlae
1978.
Þekktasta skáldsaga Döblins er
Berlin Alexanderplatz sem kom út
1929. Fyrsta bindi þessarar skáld-
sögu November 1918, kom út 1939,
hin bindin komu út á árunum 1948-
au. í-’etta verx nerur staoiö t skug
eldri verka höfundar og þá einkt
Berlin Alexanderplatz. Döblin v
upphaflega expressionisti, hn:
aðist smátt og smátt til meiri rati
sæisstefnu og var í fyrstu mikill b:
áttumaður fyrir sósíalisma og t
virkan þátt í flokksstarfinu. Bæk
Döblin voru bannaðar eftir 1933
hann flúði land eins og svo marj
þýskir höfundar, dvaldi fyrst í Fi
kklandi og eftir 1941 í Bandaríl
unum.
Þeir höfundar sem mótuðu D
hlVn fframar"öbrum voru James.i
^21 ug sioar Carl Gustav Jung
þessu verki er fjallað um hugsjó
ina og raunveruleikann, baráttu
og-svikin. Herirnir halda heim
stéttabaráttan tekur við, nóvemt
1918. Byltingin fjarar út í sandi
og hugsjónin myndbreytist. Þei
er saga Döblins og tíðarandans.
ALÞÝÐU BAN D ALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Hafnarfírði
Bæj armálaráðsfundur
Bæjarmálaráð ABH heldur fund í Skálanum, Strandgötu 41, mánudag-
inn 17. janúar n.k. kl. 20.30.
Dagskrá:
1) Fjárhagsáætlun fyrir árið 1983
2) Staðan í málefnum BÚH.
3) Kynntar nýjar tillögur að reglum um lóðaúthlutun.
4) Önnur mál.
Félagar, fjölmennið!
Stjórnin.
Alþýðubandalagið á Vesturlandi
Fyrri umferð forvals vegna röðunar á lista flokksins í komandi alþingis-
kosningum skal lokið eigi síðar en 16. janúar næstkomandi. Kjörgögn
hafa verið send formönnum flokksfélaganna í kjördæminu.
Stjórn kjördæmisráðs
Alþýðubandalagið Akranesi
Fyrri umferð forvals fer fram laugardag og sunnudag 15. og 16. janúar
næstkomandi. Allir félagsmenn AB á Akranesi eiga rétt á þátttöku í
forvalinu. Nánari upplýsingar varðandi forvalið verða sendar félags-
mönnum föstudaginn 14. janúar.
Upplýsingar um félagatal gefa þeir Ársæll Valdimarsson s. 1384 og
Guðjón Olafsson s. 1894 á laugardag, en á sunnudag eru upplýsingar
gefnar í Rein s. 1630.
Kaffiveitingar verða í Rein á sunnudag kl. 15.
Félagar! Takið virkan þátt í forvalinu.
Drekkið síðdegiskaffi í Rein.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Hafnarfírði
Opinn fundur um húsnæðismál
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði boðar til
opins fundar um húsnæðismál fimmtudag-
inn 20. ianúar að Strandgötu 41, kl. 20.30.
Framsaga: Ólafur Jónsson stjórnarfor-
maður Húsnæðismálastofnunar. Almennar
umræður á eftir.
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið í Norðurlandskjördæmi
eystra - Fyrri hluti forvals
Fyrri hluti forvals Alþýdubandalagsins í Norðurlandskjördæmi eystra fer
fram í þessari viku. Framkvæmd þess er í höndum uppstillingarnefndar-
manna á hverjum stað með aðstoðarmönnum sem félögin tilnefna. ‘
Forvalið fer fram sem hér segir: v
Ólafsfjörður: Að Aðalgötu 1, fimmtudag 13. jan. kl. 20-23.
Dalvík: Að Bergþórshvoli, laugardag 15. jan. kl. 13-17.
Akureyri: í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, föstudag 14. jan. kl. 17-19 og
laugardag 15. jan. kl. 14-18.
S-Þingeyjarsýsla: Þar verður kjörgögnum dreift um eða upp úr helginni 9.
jan. og þeim safnað saman fyrir 14. janúar.
Húsavík: í Snælandi, laugardag 15. jan. kl. 10-12 og 13-16.
Raufarhöfn: í Hnitbjörgum, sunnudaginn 9. jan. kl. 16-19.
Þórshöfn og nágrenni: Að Vesturvegi 5, þriðjudag 11. og miðvikudag 12.
janúar kl. 13-16.
Reykjavík Á skrifstofu Alþýðubandalagsins, Grettisgötu 3, mánudag 10.
og fimmtudag 13. jan. kl. 9-17.
Alþýðubandalagið í Reykjavík -
Greiðum félagsgjöldin fyrir forval
Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík hvetur félagsmenn sem enn
skulda gjaldfallin félagsgjöld til þess að greiða þau fyrir forvalið 14.-16.
janúar. - Stjórn ABR.
Alþýðubandalagið Akranesi
Árshátíð Alþýðubandalagsins á Akranesi verður í Rein laugardaginn 29.
janúar. Nú þegar getum við tilkynnt að Helgi Seljan og kona hans verða
gestir okkar.
Nánar auglýst síðar. Skemmtinefndin.
Alþýðubandalagið Kópavogi
Fulltrúar ABK í uppstillinganefnd AB í Reykjanes-
kjördæmi vegna komandi alþingiskosninga, þau
Svandís Skúladóttir og Sigurður Ragnarsson, verða til
viðtals á skrifstofunni í Þinghóli í dag, laugardaginn 15.
janúar, milli kl. 13 og 15.
Alþýðubandalagið í Neskaupstað
Fræðslu- og umræðufundur
Fræðslu- og umræðufundur um efnahagsmál verður haldinn í Egilsbúð,
fundarsal, næstkomandi sunnudag, 16. janúar kl. 16. Erindi: Ragnar
Árnason: Efnahagsmál, velferð, framleiðsla, skipulag í sjávarútvegi,
framtíðarhorfur.
-Stjórnin
vFlóamarkaður1 Þjoðviljans
Ný þjónusta við askrifendur
Á fimmtudögum geta áskrifendur Þjóöviljans fengiö birtar smáauglýsingar sér
aö kostnaöarlausu. Einu skilyröin eru aö auglýsingarnar séu stuttorðar og aö
fyrirtæki eöa stofnanir standi þar ekki aö baki. Ef svo er, þá kostar birtingin
kr. 100.—
Hringið í sima .31333 ef þiö þurfið aö selja, kaupa, skipta, leigja, ef ykkur
vantar vinnu, þiö hafið týnt einhverju eöa fundið eitthvaö. Allt þetta og fleira til
a heima á Flóamarkaöi Þjööviljans. rnmmmrni^^m
DJOÐV/Um
Ólafur Jónsson