Þjóðviljinn - 21.05.1983, Síða 1
SUNNUDAGS
BLAÐIÐ
28 SÍÐUR Helgin 21. — 22. maí 1983 Fjölbreytt lesefni um helgar
109. - 110 tbl. 48. árg. Verð kr. 22
Viðtal við Söndru
Martinez frá Ecuador,
fyrsta skiptinemann á
íslandi frá 3. heiminum
á Mýrum
OPNA
Stjómarmyndunarviðræðurmr:__
Höldum áfram
viðræðum í dag
segir Svavar Gestsson
í gær voru haldnirtveir langir fundir meö
fulltrúum þeirra fimm flokka, sem nú
eigahlut aö
stjórnarmyndunarviðræðum undir
forsæti Svavars Gestssonar, formanns
Alþýöubandalagsins.
Frá Alþýöubandalaginu tóku þeir
Svavar Gestsson og Ragnar Arnalds
þátt í viöræðunum, frá
Framsóknarflokknum þeirSteingrímur
Hermannsson og HalldórÁsgrímsson,
frá Alþýöuflokknum þeir Magnús H.
Magnússon og Karl Steinar Guðnason,
frá Bandalagi jafnaöarmanna þeir
Vilmundur Gylfason og Stefán
Benediktsson og frá Samtökum um
kvennalista þær Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir og Guörún
Agnarsdóttir.
Við spuröum Svavar Gestsson, þegar
seinni fundinum lauk, hvort þokast heföi
í átttil samkomulags á þessum fundum.
Svavarsagði aö menn hefðu rætt málin
af hreinskilni og þetta verið gagnlegir
fundiraðsínum dómi.
Samkomulag væri enn ekki á næsta
leiti, en menn hefðu ákveðið að halda
áfram að ræðast við.
Á fundinum hafi verið gerð nánari grein
fyrir hugmyndum um einstök atriði úr
þeim viðræðugrundvelli, sem
Alþýðubandalagið lagði fram í byrjun,
og fulltrúar annarra flokka einnig kynnt
nánarsínviðhorf.
Svavar sagði að fyrir hádegi í dag,
laugardag, yrði rætt einslega við fulltrúa
hvers flokks, - en stefnt að þriðja
sameiginlega fundinum síðdegis í dag.
Sjá viöræöugrundvöil
Alþýöubandalagsins
á síðu 4