Þjóðviljinn - 21.05.1983, Side 3
Umboðsmenn í áætlunarhöfnum
Lissabon Leixoes Bilbao
Keller Maritima Lda.,
Praca D. Luis,
9 - 3, P-B. 2665,
Lisbon.
Slmi: 669 156/9
Telex: 12817 P
Burmester & Co. Lda.,
Rua da Reboleira, 49,
Porto.
Leixoes.
Slmi: 21789
Telex: 22735 P
Centramares S.L.,
J. Ajuriaguerra, 9-6,
Bilbao.
Slmi: 445 8600
Telex: 32015 E
Flutningur er okkar f ag
EIMSKIP
Sími 27100
*
Helgin 21. - 22. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Sýning Borghildar Óskarsdóttur
Eitt verka Borghildar.
Ljóðrænar
hugmyndir í
Ásmundarsal
Borghildur Óskarsdóttir hefur
undanfarin ár verið að sækja í
sig veðrið, sem skapandi
listamaður. Hún hefurtekið þátt
'samsýningum, m.a. ásamt
.eirlistarfélaginu sem hún er
félagi í. Nú heldur Borghildur
einkasýningu í Ásmundarsal
viðFreyjugötu. Þarsýnirhún
26 myndverkunniní
aðskiljanlegustu efni, steinleir,
gler, fjörustein, kopar og fleira.
Flestar myndirnar eru smá-
gerðar og viss fínleiki er einkenn-
andi fyrir Borghildi. f*að er greini-
legt að hún fikrar sig áfram í athug-
un efniviðarins, möguleikum hans
og virkni. Þessi leit gerir sýninguna
nokkuð sundurleita og kemur du-
lítið niður á stíl og stefnumörkun.
Borghildur er m.ö.o. enn í leit að
sjálfri sér og þeirri leið sem hentað
geti henni til frambúðar.
Það kennir margra grasa í þess-
um verkum og sum benda til rök-
vísrar myndhugsunar, meðan önn-
ur falla nokkuð í gryfju ofhleðslu.
Einnig bítast á eiginleikar list-
iðnaðarins og hins frjálsa lista-
manns. Víst er að Borghildur er
óðum að vinna sig frá hinu fyrr-
nefnda, enda bendir allt til þess að
hún vilji losa sig við hefðbundnari
aðferðir leirlistarinnar, þ.e. nytja-
listareinkennin. En það eimir enn
eftir af þeirri tilhneigingu hj á Borg-
hildi, að vilja ganga í augu sýning-
argesta í einu vetfangi.
Þetta er of áberandi í verkum þar
sem fara saman of margbreytileg
efni í einu, of „flott" efni s.s. kop-
ar, leir og gler, eða mislitt gler.
Einnig verður hugsunin og hug-
myndin að baki þessara verka,
bæði loðin og ónákvæm. Miklu
betri eru þær myndir og verk. þar
sem Borghildur sækir inn á conc-
eptuelt svið eða hugmyndrænt og
reynir að notfæra sér einfalda efn-
isnotkun til að túlka afmarkaðar
hugdettur. „Óskasteinn I og II“,
„Tímans rás“, „Ögursund" og
„Aðfall“ eru ljóðræn, látlaus og án
kyrkings.
Þetta eru einnig þau verk sem
lausust eru við listiðnaðarsmekk-
inn, sem svo oft loðir við smáhluti
unna á þennan hátt. Hér er skóla-
bragurinn einnig hverfandi, en það
eru einkenni sem lýsa sér í ofurfág-
un klisjukenndra og augnalokk-
andi yrkisefna, sem rúin eru ölluni
sköpunarmætti.
Borghildur Óskarsdóttir er
greinilega á réttri leið, en skortir
enn staðfestu hins framsækna og
markvissa, sjálfstæða listamanns.
Verk hennar eru enn of veikbyggð,
og sú snerpa sem hefur birst okkur]
undanfarið í verkum ungra glerlist-
armanna, gerir samanburðinn enn
of óhagstæðan. En með betri sort-
eringu, meiri áherslu á sköpunina
sjálfa fremur en útlit fram-
leiðslunnar, á Borghildur áreiðan-
lega eftir að yfirstíga alla vankanta
verka sinna. Hún hefur næga hæfi-
leika til þess.
-HBR.
Félag íslenskra
rithöfunda
Telur
samning um
fjölföldun
ógildan
Stjórn Félags íslenskra rithöf-
unda lítur svo á að undirritun
samnings um ljósritun í skólum og
fjölföldun efnis höfunda sé ógildur
þar sem hann sé ekki undirritaður
af fulltrúa höfunda í Félagi ís-
lenskra rithöfunda. Segir í frétt frá
FÍR að Hta beri á þá málsmeðferð
fremur sem afglöp en illgirni. I frétt
frá félaginu segir m.a.:
„Ekki er hægt að bera því við að
menntamálaráðherra hafi ekki vit-
að um réttarstöðu FÍR, því
menntamálaráðuneytinu var til-
kynnt bréflega 11. nóv. 1982 að Fé-
lag íslenskra rithöfunda hefði tekið
réttargæslu félagsmanna í sínar
hendur. Samhljóða bréf var einnig
sent til ríkisútvarpsins, en það inn-
heimtir enn gjald af höfundar-
launum, sem rennur til skrifstofu-
halds óviðkomandi félags.“
húsbysgjendur
ylurinn er
" góður
AlnraiAum oinannrunarntxt á
Afgreiðum einangrunarplast á
Stór-Reykjavíkursvæðið frá
mánudegi — föstudags.
Afhendum vöruna á byggingarstað.
viðskiptamonnum að kostnaðar
lausu. Hagkvæmt verð og
greiðsluskilmálar
við flestra hæfi.
Borgarplast hf
Borganfti nmíti
Siglingaáætlun
frá frá frá
Lissabon Leixoes Bilbao
M.s. MÚLAFOSS 14/5 16/5 18/5
M.s. MÚLAFOSS 9/6 10/6 06/6
M.s. SKEIÐSFOSS 4/7 5/7 7/7
M.s. SKEIÐSFOSS 18/8 19/8 22/8
Nánari upplýsingar í meginlandsdeildinni.
Ný lönd
og nýjar
hafnir
í beint samband
við ísland
Nú hafa tvö ný lönd til viðbótar bæst í hóp
reglubundinna viðkomustaða Eimskips. Siglt
verður mánaðarlega til Lissabon og Leixoes
í Portúgal og til Bilbao á Spáni. Sérstök þjón-
ustuhöfn verðureinnig starfrækt í Barcelona
og um leið er örugg og reglubundin flutnings-
þjónusta milli íslands, Spánar og Portúgal
orðin að veruleika. Þannig opnum við ís-
lenskum inn- og útflytjendum stóraukin tæki-
færi til nýrra og hagkvæmra viðskiptasambanda.
Umboðsmaður í þjónustuhöfn
Barcelona
Comercial Combalia - Sagrera S.A.
Via Layetana 15
Barcelona - 3
Sími: 319 0712
Telex: 54704 E