Þjóðviljinn - 21.05.1983, Page 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 21. - 22. maí 1983
, stjórnmál á sunnudegi
„Verðbólga magnist ekki
f rekar en orðiö er og verði
komin niður í 55-60% um
næstu áramót og verði
ekki hærri en 35% í lok
ársins 1984.“
„Kaupmáttur meðallauna
og lægri launa verði ekki á
neinu þriggja mánaða
tímabili lægri en nemur
falli þjóðartekna frá árinu
1981 til 1983ogað
kaupmáttur launa batni
strax með hækkandi
þjóðartekjum.“
„Ef samkomulag næst um
lækkun verðbóta á laun þá
komi á móti lækkun
verslunarálagningar,
lækkun vaxta, verulega
minni lækkun á gengi
krónunnar en ella hefði
orðið og takmarkaðar
hækkanir innlends
verðlags, þar á meðal
búvöruverðs og
fiskverðs.“
„Upphitunarkostnaður
sambærilegs húsnæðis
verði hvergi meir en
tvöfaldur að tveimur árum
liðnum.“
„Sérstök léyfi þurfi til að
stunda
innf lutningsverslun og
hert verði eftirlit með
framkvæmd hennar, þar
meðtalinskilá
umboðslaunum, svo og
gjaldeyrismeðferð
útflutnings- og
innflutningsverslunar.“
„Framlögtil
húsnæðislána verði aukin
svo að þau geti numið um
50% kostnaðar af
: vísitöluíbúð þeirra sem
eru að tryggja sér
húsnæði í fyrsta sinn.
Seðlabankinn endurkaupi
alla lánshækkunina um
300 miljónir króna af
bundnu innstæðufé í
Seðlabankanum.“
Fulltrúar allra flokka nema íhaldsins komu til stjórnarmyndunarviðræðna við Alþýðubandalagið undir stjórn Svavars Gestssonar í gærmorgun kl. 9.30.
Tilraumr til stjórnarmyndunar:_
V iðræðugrundvöllur
Alþýðubandalagsins
Við birtum hér í dag þann
viðræðugrundvöll, sem fulltrúar
Alþýðubandalagsins hafa lagt fram
í þeim viðræðum um
stjórnarmyndun, sem undanfarna
daga hafa farið fram milli allra
flokkanna nema
Sjálfstæðisflokksins, og Svavar
Gestsson, formaður
Alþýðubandalagsins hefur haft
forystu um.
Hér er aðeins fjallað um nokkra
málaflokka, en þokisttil
samkomulags munu fleiri
hugmyndir verða lagðar fram,
einnig varðandi ýmsa málaflokka,
sem hér er ekki fjallað um.
Plaggið sem við birtum hér var
afhent fulltrúum Alþýðuflokksins
og Bandalags jafnaðarmanna sl.
miðvikudag og fulltrúum Samtaka
um kvennalista og
Famsóknarf lokksins á f immtudag. -
Það lítur svona út:
Aðgerðlr í efnahags-
og kjaramálum
Greiðslu verðbóta svo og öllum hækkunum
verðlags um næstu mánaðarmót verði frest-
að til 1. júlí svo að tími gefist til samninga-
viðræðna við samtök launafólks um hvernig
dregið verður úr þeim miklu víxlhækkunum
kaupgjalds og verðlags sem framundan eru.
2. Hafnir verði samningar verkalýðs-
hreyfingarinnar og atvinnurekenda um
launastefnu til tveggja ára sem hafi þessa
viðmiðun:
2.1. Að verðbólga magnist ekki frekar en
orðið er og verði komin í 55-60% um
næstu áramót og verði ekki hærri en um
35% í lok ársins 1984.
2.2. Að kaupmáttur meðallauna og lægri
launa verði ekki að meðaltali á neinu
þriggja mánaða tímabili lægri en nemur
falli þjóðartekna frá árinu 1981 til 1983
og að kaupmáttur launa aukist strax
með hækkandi þjóðartekjum.
2.3. Að tryggð verði full atvinna.
2.4. Að viðskipti við útlönd komist í jafn-
vægi.
3. Ef samkomulag næst um lækkun verð-.
bóta á laun komi á móti lækkun verslunar-
álagningar, lækkun vaxta, verulega minni
lækkun á gengi krónunnar en ella hefði orð-
ið og takmarkaðar hækkanir innlends verð-
lags, þ.á.m. búvöruverðs og fiskverðs.
4. Verðbótakerfið verði endurskoðað og
tekinn upp nýr vísitölugrundvöllur. Sett
verði þak á vísitölubætur á hæstu laun.
5. Gerðar verði ráðstafanir til þess að
koma til móts við láglaunafólk með sérstök-
um félagslegum aðgerðum til þes að jafna
lífskjörin í landinu.
5.1. Framlög til húsnæðislána verði aukin
svo að þau geti numið um 50% kostn-
aðar af vísitöluíbúð þeirra sem eru að
tryggja sér húsnæði í fyrsta sinn. Seðla-
bankinn endurkaupi alla lánshækkun-
ina, um 300 milj. kr. af bundnu inni-
stæðufé í Seðlabankanum. Gerðar verði
ráðstafanir til að bæta stöðu leigjenda
og tryggja rétt þeirra með löggjöf.
Framkvæmd verði allsherjar skuld-
breyting til húsbyggjenda þannig að þeir
eigi kost á 10—15 ára lánum í stað
skammtímalána. Lenging lánanna verði
fjármögnuð með stuðningi lífeyris-
sjóðanna. Gerðar verði ráðstafanir til
þess að létta greiðslubyrði af húsnæðis-
lánum þannig að hækki lánskjaravísitala
umfram kaupgjaldsvísitölu, færist mis-
munurinn aftur fyrir í lánasamningum.
Þetta gildi um öll verðtryggð lán.
5.2. Upphitunarkostnaður sambærilegs
húsnæðis verði hvergi meiri en tvöfaldur
að tveimur árum liðnumi
5.3. Dagvistarmál - stóraukin áhersla
verði lögð á byggingu dagvistar-
stofnana.
5.4. Lækkun tekjuskatts með barnabótum
og persónuafslætti.
5.5’. Afkomutrygging einstæðra foreldra.
Viðskipti, þjónusta,
innilutningur
Gripið verði tafarlaust til aðgerða:
- til að færa fjármagn frá verslun og við-
skiptum til útflutningsgreina og sam-
keppnisiðnaðar,
- til að bæta greiðslustöðu landsins út á við,
- til að auka markaðshlutfall og atvinnu í
einstökum iðngreinum,
- til að tryggja sem lægst vöruverð og
auðvelda neytendaeftirlit.
6.1. Verslunarálagning verði lækkuð og
strangt aðhald tekið upp í verðlags-
málum.
6.2. Stuðlað verði að lækkun vöruverðs
með aukinni samkeppni í verðmyndun
og virku neytendaeftirliti, m.a. með því
að reisa skorður við skipulegum einok-
unaraðgerðum um verðmyndun (sam-
eiginlegir verðlistar, einkaumboð,
verðfyrirmæli framleiðenda).
6.3. Sérstök leyfi þurfi til að stunda inn-
flutningsverslun og hert verði eftirlit
með framkvæmd hennar, þar með talin
sk'il á umboðslaunum, svo og gjald-
eyrismeðferð útflutnings- og innflutn-
ingsverslunar.
6.4. Innflutningsleyfi á tilteknum sam-
kynja og einföldum vöruflokkum verði
boðin út opinberlega og innflutnings-
leyfi verði veitt tímabundið þeim sem
býður innflutninginn á lægstu verði (t.d.
olía, járn, timbur, kornvörur).
6.5. Sett verði löggjöf um auglýsingar, er .
m.a. kveði á um skyidur auglýsenda um
hlutlægar upplýsingar og verðmerking-
ar. Auglýsingar verði skattlagðar, m.a.
til að leiðrétta híut innlendra fram-
leiðenda á auglýsingamarkaði.
6.6. Til að auðvelda þróun og aðlögun
innlends iðnaðar og draga úr óhagstæð-
um greiðslujöfnuði verði lagt á tíma-
bundið þróunargjald á innfluttar
iðnaðarvörur, sem aðlögunargjald var
lagt á á sínum tíma. Gjaldið verði í upp-
hafi 5% en Iækki síðan í áföngum og falli
niður í árslok 1985. Tekjum af gjaldinu
verði ráðstafað til þróunar og tækni-
væðingar í iðngreinum, til eflingar Út-
flutningslánasjóðs og til sérstakra verk-
efna í samráði við samtök iðnrekenda
og starfsfólks í iðnaði.
6.7. Beitt verði almennum og sértækum
aðgerðum eftir því sem við á til að
treysta stöðu innlendrar framleiðslu,
m.a. með því að beita ytri tollum, jöfn-
unartollum, undirboðstollum, innborg-
unarskyldu og innflutningskvótum
gagnvart innflutningi.
6.8. Kröfur um gæði, vörumerkingar,
upprunamerkingar og staðla verði hert-
ar og nýjar reglur settar gagnvart inn-
flutningi eftir því sem við getur átt og
með tilliti til íslenskra aðstæðna.
6.9. Gjaldfrestir og afborgunarskilmálar