Þjóðviljinn - 21.05.1983, Síða 11
Helgin 21. - 22. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
ALDA: þvottavél og þurrkari
Tekur heitt og kalt vatn.
Vindur 800 snúninga.
Fullkomin þvottakerfi.
Verðið er ótrúlega hagstætt,
Kr. 14.990,-
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1a, sími 86117.
gja góðri línu í jafnréttismálum. Nokkrar
deilur hafa því undanfarið átt sér stað um
ágæti þess að útiloka karlana frá
aðgerðunum.
Konurnar hafa þann hátt á að setjast í
hlið herstöðvarinnar og aftra umferð inná
svæðið. Þarsem búðirnar eru bókstaflega
fáeina metra frá hliðinu geta þær auðveld-
lega fylgst með þegar meiriháttar verk eru á
döfinni innanhliðs og hafa með setum sín-
urn valdið usla með því að hindra flutning
verktaka á fólki og vinnuvélum inná her-
stöðina.
Lögregla
og jarðýtur.
Yfirvöld í Greenham Common misstu
skjótt þolinmæðina og hafa hvað eftir ann-
að sigað beljökum sínum á konurnar, með
engum árangri þó. Fjölmiðlar lýstu til hlítar
hvernig hinir mætu þjónar laganna drógu
konurnar í burt án þess að þær veittu við-
nám af neinu tæi. Ekki voru aðfarirnar
geðslegar og vöktu víða mikla reiði. Afleið-
ingarnar urðu svo auðvitað þær að óvígur
her kvenna þusti hvaðanæva að á landinu til
að leggjast í hliðið í Greenham Common.
Jafnframt kom upp urgur í liði lögreglu-l
manna, sem þótti illt að þurfa að níðast á
konum dag eftir dag, og hafa ugglaust líkai
fengið orð í eyra hjá spúsum sínum heima-j
fyrir. i
Yfirvöld brugðu þá á það ráð að senda
jarðýtur til að eyðileggja búðir kvennanna
og hafa síðan gert með reglulegu millibili en
þær jafnan hróflað upp nýjum íverustöðum
af skyndingu, og jarðýtufrægð yfirvalda
ekki orðið mikil.
Þrjátíu þúsund
kertaljós.
Barátta kvennanna náði svo hámarki í
desember síðastliðnum, þegar þær stóðu
fyrir afar áhrifamiklum, táknrænum
aðgerðum. Konum og börnum þeirra var
stefnt til Greenham Common, til að taka
höndum saman, umkringja herstöðina og
syngja baráttusöngva. Af mikilli bjartsýni
var búist við að fáeinar þúsundir kvenna
mættu í aðgerðina. Raunin varð allt önnur,
hvorki meira né minna en þrjátíu þúsund
konur mættu. Þegar rökkvaði kveiktu þær á
kertum, þrjátíu þúsund blaktandi kertaljós
kringum tortímingartólið. Þetta var mikil
og áhrifamikil aðgerð.
Skoðanakannanir sem voru gerðar rétt
fy rir og eftir aðgerðina sýndu að þessi mátt-
ugu mótmæli kvennanna höfðu snúið átta
prósent breskrar alþýðu frá fylgi við kjarn-
orkuvopn til andstöðu. Þessi viðhorfs-
breyting var einkum djúp meðal kvenna. í
síðari könnunum hefur svo meir en finim-
tungur aðspurðra talið að mótmælin í frið-
arbúðunum hafi haft áhrif á afstöðu þeirra
til kjarnorkuvopna.
Forystuleysi.
Yfirvöld hafa reynt að brjóta á bak aftur
mótmælin með því að fá réttarúrskurð um
að ákveðnum, nafngreindum konum sé
óheimilt að dvelja í Greenham Common.
Með þessu átti að fjarlægja þær konur sem
yfirvöld töldu forsprakka búðanna, nota
hið gamalkunna ráð að lama samtökin með
því að nema burt forystuna.
Það reyndist á hinn bóginn hið mesta
klámhögg. Friðarbúðirnar byggjast ekki á
neinum samtökum, þar eru engir leiðtogar
kosnir, hvaða konur sem eru geta komið og
farið að vild, búðirnar og baráttan kringum
þær eru gersamlega forystulausar. Konurn-
ar hafa jafnframt meðvitað reynt að koma í
veg fyrir að fjölmiðlar reyni að gera leið-
toga úr einhverjum þeirra, sama konan gef-
ur til að mynda ekki viðtal við fjölmiðla
oftar en tvisvar. Og sökum þessa merkilega
forystuleysis hefur yfirvöldum ekki tekist
að brjóta baráttuna á bak aftur með því að
fangelsa leiðtogana, þeir eru ekki til. Bar-
áttan blómstrar og mun væntanlega aukast
þegar dregur að þingkosningum hér í Bret-
landi, þar sem baráttan gegn kjarnorku-
vopnum mun verða hitamál.
-ÖS
Konur mótmæla í Bonn í Þýskalandi Takið leikföngin frá strákunum!
Nýstárleg barátta kvenna
í Bretlandi eru konur einnig aðsópsmikl-
ar, þar hefur risið upp sjálfspróttin, ger-
samlega óskipulögð friðarhreyfing kvenna,
sem með nýstárlegu baráttusniði hefur tek-
ist að snúa talsverðum hluta almennings-
álitsins á band friðarbaráttunnar.
Búðirnar í
Greenham Common.
Miðpúnktur hinnar sjálfsprottnu baráttu
bresku kvennanna eru friðarbúðir sem þær
hafa sett upp í Greeham Common, and-
spænis bandarískri herstöð þarsem NATÓ
fyrirhugar að staðsetja kjarnorkueld-
flaugar í desember næstkomandi.
Upphaf búðanna má rekja til kvenna
göngu sem fjórar konur skipulögðu frá Car-
diff í Wales til Greenham Common, sem er
í Cambridgeskíri. Ann Pettit, ein af hinum
upphaflegu fjórmenningum, kvað tilgang
göngunnar hafa verið að ná „venjulegum“
konum út úr eldhúsunum og skrifstofunum
til að vekja athygli á þeim tortímingar-
skugga sem kjarnorkuógnin kastar yfir
gervallan heim.
Gangan var gersamlega sniðgengin af
fjölmiðlum. í vonsvikni sinni ákváðu sumar
kvennanna að fylgja fordæmi súffragett-
anna frá því í aldarbyrjun og hlekkjuðu sig
við herstöðvarhliðið í einn sólarhring.
Nokkrar aðrar ákváðu þá að slá tjöldum
systrum sínum til samlætis og á þeirri nóttu
fæddist hugmyndin um að reisa friðarbúðir
andspænis herstöðinni og hafa í frammi
langvarandi friðsamleg mótmæli.
Eingöngu konur.
Upphaflega voru karlmenn einnig meðal
búðarliða en þegar frá leið var samþykkt að
friðarbúðirnar skyldu einvörðungu skip-
aðar konum og karlar kurteislega beðnir að
koma sér annað. Að baki lágu mörg rök,
meðal annars þau að gæslumenn laga og
réttar myndu í lengstu lög skirrast við að
beita konur ofbeldi í ásýnd fjölmiðla, einn-
ig að minni líkur væru á að mótmælendur
svöruðu í sömu mynt væru þeir kvenkyns.
Þetta hefur svo af ýmsum öðrum konum
þótt firnalega vond málafærsla og ekki fyl-
Össur
Skarphéöinsson
skrifar
frá Bretlandi
Á undanförnum árum hafa
konur axlað sívaxandi hlut í
hinni nýju friðarhreyfingu í
Evrópu og sumstaðar hafa
sérstakar kvennahreyfingar
verið beinlínis afgerandi fyrir
velgengni baráttunnar,
einsog í Bretlandi. í
Þýskalandi hefur Græninginn
Petra Kellyorðið
nokkurskonar málsvari hinna
mörgu og sundurleitu
friðarsamtaka þar í landi, á
Ítalíu hratt Luciana Castellina
af stað andófinu gegn
staðsetningu kjarnorkuvopna
í Comisó á Sikiley og norðar í
álfunni er einn hraðskeyttasti
hugsuður hreyfingarinnar,
Svíinn Alfa Myrdal.
■ „Vei\julegar“ konur úr eldhúsum og af skrifstofum eru virkar í kvennahreyfmgunni