Þjóðviljinn - 21.05.1983, Page 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 21. - 22. maí 1983
bókmenntir
Er ástin
snýkj udýr ?
Árni
Bergmann
skrifar
Einar Ólaf'síion:
Augu við gangstétt.
Mál og menning 1983.
Byltingin er skáldum einatt hugstæð, en
nú um stund hefur sjaldan verið farið með
hana sem galdraþulu, hún ákölluð til
skjótra heilla mennskri kind. Hin háði
blandna fjarlægð er tekin við, skáld hafa
skopast að „byltingu í einu herbergi" og
þeir eru að vonum óhressir með að „Fra-
nkenstein tók völdin" í helsta byltingarr-
íkinu.
Ýmsar byltingar
Einar Ólafsson víkur oft að byltingum í
ljóðum sínum í þessari bók og vill bersýni-
lega ekki sleppa af þeim vonarhaldi og er
það í sjálfu sér virðingar vert.
- Næst kemst Einar sögulegum hræringum
þegar hann lýsir því hvernig hin rauða von
hrærir upp í grámósku örbirgðarinnar
nokkra febrúardaga árið 1848. í kvæðum
sem fjalla um Parísarkommúnuna 1871 og
októberbyltinguna 1917 er Einar bundnari
ákveðnum formúlum sem lítill kraftur er
eftir í, því miður. Og satt best að segja
kemst hann heldur ekki langt með skilningi
sínum á atburði sem er mjög nálægt í tíma
og rúmi - fregninni um að Ulrike Meinhof
sé látin í þýsku fangelsi, líklega myrt.
Sumt af því sem Einar Ólafsson gerir best
er tengt hæfileika hans til að þjapþa saman,
koma fyrir hlið við hlið staðreyndum úr
næsta hversdagsleika og úr hinum stóra
fjarska. Af þeirri ætt er vandvirknislegt
byltingarljóð frá 1971: um febrúarsólina
yfir Skerjafirðinum sem skín líka á Hósím-
ínstíginn austur í Indókína:
og snjórinn er hvítur
settur raudum rósum.
En svo grátt leikur tíminn riddara hinnar
samfelldu byltingar, að við fáum ekki að
vera í friði með þessa einföldu minningu um
samstöðu með þeim sem fetuðu suður Hós-
ímíngötuna - fyrr en varir er byltingarmað-
urinn Pol Pot farinn að hrella okkur, og
stríð hans við byltingarmennina úr Vietnam
og stríð þeirra við byltingarmennina úr
Kína. Fyrir nú utan allt annað. Enda verður
það að segjast eins og er, að þegar Einar
Ólafsson yrkir kvæði sem heitir „Eftir Okt-
óber“ þá stígur honum mjög hinn skáldlegi
larður og hugsunin veit ekkert í hverja
heima skal halda:
Einar Ólafsson
Og þegar við stöndum
með valdið í höndum okkar og sköpum
okkur örlög sjálf, vitum við ekki
hvorl enn þarf að beita vopnum
gegn gömlum arfi, gegn eigin mistökum,
við vitum ekki
hvort tími er kominn
til að breyta byssunni í haka
í skóflu, hamar
og sigð.
Öskutunna og ást
Kveðskapur tengdur byltingum og bylt-
ingarfólki er mest áberandi sérkenni þess-
arar bókar og því ekki nema sjálfsagt að
víkja fyrst og mest að honum. Hinn pólitíski
þráður er reyndar mjög sterkur einnig þeg-
ar aðrir hlutir eru á dagskrá. Til dæmis í
löngu Öskutunnukvæði aftast í bókinni þar
sem Einar nær skemmtiiegum sprettum í að
safna saman ýmislegum tíðindum úr mann-
heimum um leið og skoðaður er fullkom-
lega óskáldlegur úrgangur borgarlífs. Það
er líka margt viðfelldið í bálki sem ber yfir-
skriftina „Til okkar“ og einnig þar eru teng-
ingar sterkar við þau tíðindi sem gefa
mönnum tilefni til pólitískrar útleggingar. f
kvæði sem heitir „Meðan tunglið verður
fullt“ er fljótlega horfið frá þeim náttúru-
myndum sem lengst af hafa fylgt ástinni í
ljóði - og komið að ótíðindum úr samfé-
laginu: pyntingum, barsmíðum, ofbeldi,
sljóleika - meðan sú myndkeðja er rakin
„elska ég þig“. Ástin í sínu gamalkunna
hlutverki sem skjól fyrir nepju tímans - og
því ekki það? I öðru ljóði eru bornar fram
ótal spurningar um ástina („Er ástin sníkj-
uplanta?"?) og þeim er svo öllum vísað frá
með lokaspurningunni
Er ástin kannski við öll án hlekkja
án þreytu, án vonleysis, við öll
saman?
Og vill nú svo til að menn úr furðumörg-
um pólitískum húsum gætu tekið undir við
það vonartetur sem í þessum orðum felst.
Hversdagsleikinn
Það er margt fleira í þessu kveri. „Galop-
in“ ljóð utan um hversdagsleikann og þó
jafnan einhver dul í þeim sem skilur þau frá
algengum prósa. Stundum eru þessar
hvunndagsmyndir ansi þreytulegar: „Lyft-
ur fara upp
Og niður
Og stöðvast
A ýmsum hæðum
Og gleypa fólk
Og æla fólki
Og flytja fólk.
Milli hæða.
Hvert á móti öðru.
Og samferða.
Á leið hvert í sína áttina...“ Daufleg þula
það. Betur vegna skáldinu, þegar það
hleypir sér í þann ham að kalla á ímyndun-
araflið til valda: „Nú er dagur til að dansa“
heitir ljóð, þar eru fiskistelpum og skurðas-
trákum boðið að dansa á götunum „yrkja
Ijóð með löppunum“....„dansa uns allar
kirkjur sökkva....“. En kannski dugir það
Einari Ólafssyni best í glímunni við hvunn-
dagsleikann að hella einum dropa af fárán-
leika yfir fábreytileikann. Eitt slíkt dæmi er
„smáatvik við færiband":
hœgra auga mitt hefur fallið úr höfði mér
niðrá fœribandið og berst nú gegnum
pökkunarvélina sem leið liggur til amrtku...
Merkilegt byrjandaverk
Fjölskylduskáldsaga
eftir Isabel Allende.
Sagt hefur verið að hvergi sé
nákvæmari lýsingu á Rómönsku
Ameríku að finnaení
skáldsögum álfunnar. Því þær
lýsi álfunni ekki aðeins með
þeim bláköldum staðreyndum
sem menn geta fundið í
heimildaritumog
kappræðubókum, heldursýni
þærfullan sómadraumum
manna, hugarflugi, fáránlegum
tiltækjum og goðsögnum.
Frænka forsetans
Allt er þetta sagt á sínum stað í nýlegri
skáldsögu eftir Isabel Allende sem heitir
„Hús andanna“ og fær hina bestu dóma.
Isabel er af hinni þekktu Allende-ætt, sem
mjög hefur komið við sögu í því litla og
langa landi, Chile. Hún er systurdóttirSalv-
adors Allendes, sem hrakinn var frá völd-
um og myrtur fyrir tíu árum. Isabel Allende
hefur áður skrifað leikrit og barnabækur en
þetta er fyrsta skáldsaga hennar.
Ættfaðirinn
„Hús andanna“ er fjöldskyldusaga um
það fólk sem hefur stjórnað Chile á þessari
öld og hún sækir margt í sögu Allendeættar-
innar, að sögn höfundar sjálfrar. Esteban
Trueba heitir sú persóna, sem lifir allan
þann tíma sem sagan spannar. - hann deyr
níræður á miðjum síðasta áratug. Esteban
elst upp í höfuðborginni í fjölskyldu sem
hefur séð betri daga. Hann verður yfir sig
ástfanginn af Rósu hinni fögru, sem er af
sýnu göfugri ætt. Esteban gerist gullgrafari
til að reyna að afla skjótt þess fjár sem hann
þarf til að kvænast inn í ríka ætt. En hann-
hættir við gullleit þegar hann fréttir að Rósa
hafi dáið af því að drekka ólyfjan sem ætluð
var föður hennar - frambjóðanda frjáls-
lyndra til þings.
Esteban man nú, að ættin á sér niðurnítt
óðal uppi í sveit og tekur til við að byggja
það upp. Ilann drífur upp reksturinn, písk-
ar smábændur áfram og barnar dætur þeirra
eins og óðalsherra er siður þar í álfu og
hefur lengi verið. Síðar giftist hann yngri
systur Rósu, sem Klara heitir og hefur
Ættarminningar setja mjög svip sinn á
skáldsögu Isabel Allcndc, Hús andanna.
merkilega spádómsgáfu. Hann er orðinn
ríkur maður og reisir sér hús í höfuðborg-
inni, vasast í pólitík og verður öldunga-
deildarþingmaður fyrir hægrimenn.
Kúgun og stéttir
En í fjölskyldunni er að finna róttækari
straum sem eflist með árunum. Annar son-
ur Estebans lætur lífið með Salvador Al-
lende í forsetahöllinni daginn sern herfor-
ingjarnir ræna völdum. Alba, dótturdóttir
gamla mannsins, er tekin föst og pyntuð af
lögreglu herforingjanna - og þótt hún sé
eina manneskjan, sem er kær gamla mann-
inum, verður hann með nokkrum hætti
ábyrgur fyrir misþyrmingum sem hún sætir.
Sagan minnir á það, að mynstrið kúgaðir
og kúgarar fylgir ekki alltaf stéttaskipting-
unni. Lögregluforinginn sem pyntar Ölbu
er sonur einnar þeirrar fátæku bóndadóttur
sem Esteban barnaði. Allt hans líf er tengt
hatri - því hann er útskúfaður frá þeirri
yfirstétt sem hann telur sig fæddan til að
vera í. Þegar hann vill ganga á lögreglu-
skóla fær hann Esteban til að borga kostn-
aðinn. Sá sem pyntar er af sama kyni og sá
sem er pyntaður: pyntarinn kemur úr lág-
stétt og hin pyntaða úr yfirstétt. Sagan er-
full með þverstæður af þessu tagi. Sú sem
bjargar Ölbu úr klóm pyntaranna er hóra,
sem Esteban hafði eitt sinn lánað „startkap-
ítal“, er orðin rík pútnamóðir og hefur rétt
sambönd við nýja valdhafa. ■,
Konur og skáld
Gagnrýnendur lofa mjög kvenpersónur
sögunnar, ekki síst Klöru þá sem engin
by rði fær sligað - Isabel segir, að fy rirmy nd-
in að þeirri persónu sé móðuramma henn-
ar. Konurnar eru þær persónur sögunnar
sem lifa sterkustu lífi - og hermt er, að
Isabsl takist vel að sýna, að þótt karlarnir
stjórni og æpi og heimti og kúgi þá hafa þeir
ekki tök á tilverunni og geta aldrei ráðið
yfir þeim heimi sem konurnar eiga sér.
Svo er í skáldsögu þessari, sem geymir
ríkmannlegt persónusafn og margar furðu-
legar blöndur af gleði og sorg og fáránleika
- að finna Skáldið, sem stingur upp kolli
öðru hverju. Skáldið er ekki nafngreint, en
það er ljóst að um er að ræða Pablo Neruda,
ljóðskáldið mikla og vin Allendes. Margar
kynslóðir barna í fjölskyldu sögunnar sitja
við kné hans og alast upp við ljóð hans. Og
lýst er hinni sögulegu útför Neruda, sem var
helsjúkur maður þegar herforingjarnir
rændu völdum. Útförin breyttist í mót-
mælafund gegn herstjórnunum, einn þann
síðasta sem umheimurinn gat frétt af áður
en myrkrið hvolfdist yfir Chile.
ÁB tók saman.