Þjóðviljinn - 21.05.1983, Síða 13
Helgin 21. - 22. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SB>A 13
Vilmundur Gylfason í hlutverki litla lávarðarins.
Sigurlaug Bjarnadóttir (t.v.) í hlutverki alþingiskonunnar.
Ekki
einu
sinni
friöur
í bíó
Stundum langar mann til að
slappa af. Að fylgjast með Geireða
Steingrími sem virðast halda að
þeir muni mynda ríkisstjórn, það
er skemmtilegt. En mann getur
líka langað til að hugsa um eitthvað
annað. Fara t.d. í bíó, til að sjá fólk
sem reynir eitthvað fyrir alvöru.
Um daginn var ég örlítið
þreyttur. Ég hafði sofið illa nóttina
áður, skorið miðg við raksturinn og
leigusalinn var nýbúinn að tilkynna
mér að ég yrði að fara úr íbúðinni
eftir mánuð. A leiðinni í vinnuna
bilað svo hjólið. Vinnuveitandi
minn gaf mér reisupassann, ástæð-
an var ómerkileg, ég hafði komið
of seint átta daga í röð. Þegar ég
kom heim frá slysadeildinni (ég
hafði hrasað í stiganum á leið úr
vinnunni) sagði ég við konu mína:
það þýðir ekkert að vera að stressa
sig, slöppum af og förum að sjá Á
hjara veraldar.
Ég þekki Sigurlaugu Bjarnadótt-
ur vel, persónulega. Aldrei hefur
hana skort ábyrgðartilfinningu.
Það er augljóst að hún er notuð
sem fyrirmynd alþingiskonunnar
sem Helga Jónsdóttir leikur. Ég
játa, að aldrei gat ég séð fyrir mér
hana Sigurlaugu mína. Og Sigríður
Dúna. Ég veit vel að hún var ekki
ennþá orðin alþingiskona þegar
hún lék í myndinni. En hvað var
hún að slæpast á ströndinni með
leikkonu þegar svo mikil vinna
beið hennar í kvennaframboðinu?
Ég skil ekki stefnu kvikmynda-
húsanna þessa dagana. Það eru
einungis sýndar myndir sem minna
okkur á (stundum mjög óbeint, ég
viðurkenni það) íslenska pólitík.
Tökum Tootsie. Saga þessa
leikara, Dustins Hoffmann, sem
klæðir sig sem kona til þess að fá
vinnu. Ég hef eftir áreiðanlegum
heimildum að það er það sem Sig-
hvatur Björgvinsson ætlar að gera
ef kosningar verða aftur í júlí, til
þess að hefna sín á Karveli. Ég
álasa honum ekki: hver og einn
verður að bjarga sér sem best hann
getur. En að fara í Stjörnubíó til
þess að hlæja og lenda svo á kafi í
Vestfjarðapólitík, nei takk.
Sömu sögu er að segja með Trú-
boðana í Regnboganum. „Spenn-
andi og sprenghlægileg litmynd um
tvo hressilega svikahrappa, með
hinum óviðjafnanlegu Terence
Hill og Bud Spencer.“ Maður
skilur eftir fimm mínútur að fram-
Dr. Gottskálk
Gottskálksson
skrifar
leiðandinn er að vísa beint til Árna
Gunnarssonar og Ólafs Ragnars
Grímssonar. Mér finnst . Bud
Spencer sannfærandi í hlutverki
Ólafs Ragnars, jafnvel þótt kraftur
Buds sé fyrst og fremst líkamlegur
á meðan kraftur hins mikla hugs-
uðar Alþýðubandalagsins er
kannski aðallega vitsmunalegur.
Það er gott að koma börnunum
inn í pólitík til þess að þau viti, eins
fljótt og mögulegt er, hvers er að
vænta þaðan. En að velja, eins og
Bíóhöllin hefur gert, ævisögu Vil-
mundar Gylfasonar fyrir barnasýn-
ingu er einum of langt gengið. Það
er ekki það að Litli lávarðurinn sé
léleg mynd, Alec Guiness er alveg
ágætur í hluverki Gylfa Þ., en dreng-
urinn sem leikur litla lávarðinn
fannst mér samt nokkuð ungur
fyrir hlutverk Vilmundar.
Titlar myndanna eru blekkjandi.
Allt á hreinu, til dæmis. Með þess-
háttar titil er maður 100% viss um
að myndin fjalli ekki um íslenska
pólitík. Maður fer, og þar gefur að
líta sögu kvennaframboðsins í mús-
ikformi.
Sem stendur er ekki nema ein
mynd í Reykjavík sem minnir ekki
á stjórnmálakreppuna. Það er
myndin í klóm mafíunnar. Helvíti
góð mynd sem allir ættu að sjá.
Myndin gerist á Sikiley meðal
glæpamanna mafíunnar. Þar er
gamall guðfaðir af gamla skólan-
um, Giorgio Trodossino, sem er
farinn að eldast en allir óttast enn-
þá. Mafíuforinginn er Giri Al-
grimo, veikgeðja maður sem held-
ur sterkri stöðu sinni á éyjunni en
vald hans minnkar stöðugt í borg
hans. Og síðan er Don Alberto,
týpískur mafíuforingi. Vald hans
hvílir á gerðum greiðum, hann
skrifar aldrei línu sem nota má
gegn honum. Hann hefur full-
komna stjórn á yfirráðasvæði sínu:
þríhyrningi mynduðum úr póstin-
um, bankanum og borgarráði. Og
aö lokum kemur Frederico Zopho,
ungi mafíuforinginn mótaður úr
ameríska skólanum. Hann spyr sig
hvort ekki sé runnin upp rétta
stundin til að láta vélbyssurnar tala
og táka sæti hinna eldri. Dramað
byrjar þegar allir foringjarnir hitt-
ast á hinni dularfullu pizzeriu, Val
Ollina. Ég ætla ekki að segja ykkur
framhaldið til þess að spilla ekki
ánægju ykkar. En það var
blóðugt...
Gottskálk Gottskálksson.
kj^rn
FRAMKVÆMDASTJÓRI
BHM
Starf framkvæmdastjóra BANDALAGS HÁ-
SKÓLAMANNA (BHM) er auglýst laust til
umsóknar.
Æskilegt er aö framkvæmdastjórinn geti haf-
ið störf í ágúst.
Nánari upplýsingar um starfið eru veittar á
skrifstofu BHM, Lágmúla 7, sími 82090,
82112.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf skal senda skrifstofu BHM fyrir
10. júní nk.
BANDALAG HASKOLAMANNA
Við viljum
vekja athygli
leigjenda og leigusala á því,
að Félagsmálaráðuneytið
gefur út eyðublöð fyrir
leigusamninga um íbúðarhúsnæði.
Notkun þess tryggir réttindi
beggja aðila.
LEIGA
HÚS
Leígjandasamtakin
HÚSEiGENDASAMBAND
ÍSIANDS
Hið löggilta eyðublað fyrir leigusamninga
um íbúðarhúsnæði fæst án endurgjalds
hjá bæjar- og sveitarstjórnum
og á skrifstofum okkar.
Önnur samningseyðublöð
eru ekki gild.
1 §JHúsnærtiv>fo!nun ríkisins
8
FUNDARBOÐ
Aðalfundur Fjárfestingarfélags íslands hf, ár-
ið 1983, verður haldinn að Hótel Sögu, átt-
hagasal, jarðhæð, fimmtudaginn 26. maí nk.,
kl. 17.00.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Fundargögn verða afhent á skrifstofu Fjár-
festingarfélagsins að Grensásvegi 13,
Reykjavík, þrjá síðustu virka daga fyrir aðalf-
und og á fundardegi.
Stjórnin.