Þjóðviljinn - 21.05.1983, Side 19
Helgin 21. - 22. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
Að loknum aðalfundi Krabbameinsfélags íslands var fulltrúum á fund-
inum, starfsfólki og nokkrum velunnurum félagsins boðið að skoða húsið.
Á myndinni sést dr. Gunnlaugur Snædal, formaður félagsins, ávarpa
viðstadda við þetta tækifæri.
öflug starfsemi Krabbameinsfélagsins
Tólf þúsund komu
til leitarstöðva
Aðalfundur
Rithöfunda-
sambands Islands
Snorri Hjartarson
var kjörinn
heiðursfélagi
Á aðalfundi Rithöfundasam-
bands íslands, sem haldinn var
dagana 30. apríl og 15. maí sl. var
Snorri Hjartarson kjörinn heiðurs-
félagi með lófataki, segir í frétt frá
sambandinu.
I stjórn voru kpsin Ása Sólveig
og Olga Guðrún Árnadóttir í aðal-
stjórn og Anton Helgi Jónsson til
vara. Fyrir í stjórn eru: Formaður
Njörður P. Njarðvík, varafor-
maður Birgir Sigurðsson og með-
stjórnandi Porvarður Helgason.
Varamaður Aðalsteinn Asberg
Sigurðsson. Fulltrúi Rithöfunda-
sambandsins í Bandalagi íslenskra
Snorri Hjartarson, heiðursfélagi
Rithöfundasambands íslands.
listamanna var kjörinn Birgir Sig-
urðsson og varamaður Olga
Guðrún Árnadóttir. Félagslegir
endurskoðendur voru kosnir And-
rés Kristjánsson og Jón Dan.
Eitt aðalmál fundarins að þessu
sinni snerist um tillögur til breyt-
inga á inntökuskilyrðum sam-
bandsins, og var samþykkt að
víkka þau þannig að félagar geti
orðið „höfundar sem birt hafa tvö
fræðirit er teljast hafa ótvírætt
fræðslu- og menningargildi." Jafn-
framt var samþykkt að kjósa sér-
staka inntökunefnd er fjalla skal
ýtarlega um allar inntökubeiðnir
og getur enginn orðið félagsmaður
„nema með honum mæli meirihluti
inntökunefndar, enda séu niður-
stöður nefndarinnar samþykktar á
aðalfundi með 3A hluta greiddra at-
kvæða.“ í ljósi þessarar samþykkt-
ar taldi aðalfundurinn ekki rétt að
afgreiða umsóknir þeirra fræði-
manna, sem lágu fyrir, heldur
skyldi þeim vísað til nýkjörinnar
inntökunefndar til frekari
meðferðar.
„Starf félagsins er mjög blómlegt.
Við höfum aldrei áður leitað til
jafnmargra aðila, sem með jafn-
miklum áhuga hafa hjálpað okkur
á margvíslegan hátt. Ég vil þakka
öllum velunnurum Krabbameins-
félagsins þessar góðu undirtektir
og vænti þess að landsmenn leggi
félaginu áfram lið“. Þetta voru lok-
aorð ýtarlegrar skýrslu, sem dr.
Gunnlaugur Snædal formaður
Krabbameinsfélags íslands flutti á
aðalfundi félagsins 29. apríl 1983.
Það sem mestan svip setti á starf-
semina á síðasta ári var landssöfn-
unin undir kjörorðinu „Þjóðarátak
gegn krabbameini". í maí 1982 var
stofnað „Landsráð gegn krabba-
meini“, en aðildarfélög þess voru 62.
Þetta ráð skipulagði söfnunina sem
fram fór í lok október, en þá söfn-
uðust rúmar 13 milljónir króna.
Skyldi þeim varið til að skapa
Krabbameinsfélaginu betri
aðstöðu til að berjast gegn þessum
sjúkdómi. í forystu fyrir Lands-
ráðinu voru forseti íslands, forsæt-
isráðherra og biskupinn yfir ís-
landi. Framkvæmdastjóri Lands-
aðvið Dani
Nýlega er komin út hjá Bókaút-
gáfu Arnar og Örlygs bókin Bann-
fcerð sjónarmið cftir Hannibal
Valdimarsson. Alþýðusambans Is-
lands hafði frumkvæði að útgáfu
bókarinnar í tilefni af áttræðisaf-
mæli Hannibals hinn 13. janúar sl.
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ
ritar formála bókarinnar og segir
þar m.a.: „Fáir menn eiga jafn
langa sögu í fremstu víglínu í bar-
áttunni fyrir bættum heimi, í for-
ystu íslenskra verkalýðssamtaka og
á vettvangi stjórnmálanna.“
Bókin Bannfræð sjónarmið fjall-
ar um viðskilnað Islendinga við
ráðs gegn krabbameini var Eggert
Ásgeirsson.
Sumarið 1981 fékk Krabba-
meinsfélagið úthlutað lóð undir
framtíðarstarfsemi sína við Hvass-
aleiti og hafði félagið látið gera
teikningar af húsi á þeirri lóð. Þeg-
ar peningarnir sem söfnuðust í okt-
óber höfðu verið afhentir, og að
vandlega athuguðu máli, var horfið
frá því ráði að byggja nýtt hús og
þess í stað fest kaup á húsi sem
Istak h/f hafði verið að reisa við
Reykjanesbraut. Var félaginu af-
hent það hús í apríl sl. tilbúið undir
tréverk, en gengið verður frá
lóðinni í sumar. Þetta hús er rúrnir
2600m2 að stærð, á fimm hæðum.
Verður nú hafist handa við innrétt-
ingar.
Starfsemi Krabbameinsfélagsins
var að mestu leyti með hefðbundnu
sniði á síðasta ári.
Um 13.000 konur komu í leitar-
stöðvar, þar af rúrn 8.000 í Reykja-
vík. í frumurannsóknastofunni
voru rannsökuð um 17.000 sýni.
Krabbameinsskráin sinnti vísinda-
rannsóknum eins og áður.
Dani á sínum tíma og deilur manna
um hvernig það skyldi bera að.
Skiptust menn í tvo hópa, lögskiln-
aðarmenn og hraðskilnaðarmenn.
Prófessor Ólafur Björnsson ritar
inngangsorð bókarinnar og gerir
þar grein baráttu lögskilnaðar-
manna og afstöðu hraðskilnaðar-
manna.
Hannibal Valdimarsson byrjar
frásögn sína á þessum orðum:
„Sjaldan eða aldrei hygg ég, að
orðið hafi þrengra um skoðana -
frelsi á íslandi en rneðan skiln-
aðarmálið við Dani var á dagskrá.“
Hannibal finnur þessum orðum
sínum stað víðsvegar í bókinni og
er ekki að efa að efni hennar mun
koma mörgum á óvart.
Alþýðusamband íslands efndi til
áskriftarsöfnunar að bókinni og er
fremst í henni á heillaóskaskrá
nöfn þeirra sem gerðust áskrifend-
ur. Bókin fæst einnig í lausasölu í
verslun forlagsins að Síðumúla 11.-
Stœrri Árskógskirkja
5 börn fermd
Á Hvítasunnudag verða 5 ung-
lingar fermdir í Stærri Árskógs-
kirkju kl. 10.30 árdegis. Sigurður
Arngrímsson sóknarprestur ferm-
ir, en organisti er Guðmundur Þor-
steinsson. Börnin sem fermd verða
eru þessi:
Ásdís Gunnlaugsdóttir,
Árbæ, Litla-Árskógssandi.
Agnes Anna Sigurðardóttir,
Grund, Litla-Árskógssandi.
Gunnar Rafnsson,
Svalbarði, Litla-Árskógssandi.
Ingibjörg María Gylfadóttir,
Furulandi,
Litla-Árskógssandi,
Þóra Soffía Gylfadóttir,
Furulandi,
Litla-Árskógssandi.
Útboð
Viðgerðir - viðhald
Hagsmunafélag húseigenda að Kjarrhólma
2-38 óskar eftir tilboðum í viðgerðir og við-
haldsverk á húsunum að Kjarrhólma 2-38.
Verkið er einkum fólgið í:
Viðgerðum á kverkum og samskeytum
húsa 500 m.
Sprunguviðgerðum 300 m.
Útboðsgögn með verk- og efnislýsingum eru
afhent hjá Línuhönnun h.f., verkfræðistofu,
Ármúla 11,105 Reykjavík gegn 500 kr. skila-
tryggingu frá og með þriðjudegi 24. maí kl.
1300. Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 31.
maí kl. 1400 hjá Línuhönnun h.f., verkfræði-
stofu Ármúla 11, 105 Reykjavík.
Línuhönnun h=
Bók Hannibals um skiln
I SUMAR
Sumarbuxur barna st. 104-164 kr. 210.-
Sumarkápur Litur: hvítur kr. 780.-
Sumarkápur L: Ijós grænleitur,
dökkblár kr. 1.424.-
Sumarjakkar dömu, L: Ljósgrár,
grænleitur kr. 1.099,-
Sumarjakkar dömu, L: Milliblár,
dökkblár kr. 1.164.-
Sumarjakkar herra, L: Beige kr. 556.-
Mittisjakkar herra. L: Hvítur kr. 480.-
Sumarjakkar herra, L: Beige,
dökkblár kr. 1.215.-
Sólbtddar 2 gerðir frá kr. 350.-
Sólstólar m/háu stillanlegu baki,
6 gerðir frá kr. 580.-
Sólstóiar m/lágu baki, 2 gerðir frá kr. 495.-
Tjaldborðssett frá kr. 595.-
Létt nylon tjöld, 3 gerðir frá kr. 900.-
Hústjöld 2 gerðir frá kr. 4.700.-
DOMUS
■
KAUPFELAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENNIS
Utboð
Verkfræðistofan Fjarhitun h.f. óskar eftir til-
boðum í smíði afloftara fyrir Hitaveitu Reykja-
hlíðar. Afloftarinn er úr ryðfríu stáli 2,2 m í
þvermál og 6 m hár.
Útboðsgögn verða afhent á verkfræðistof-
unni Fjarhitun h.f. Borgartúni 17, Reykjavík
gegn 1000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á verkfræðistofunni Fjar-
hitun h.f. föstudaginn 10. júní 1983 kl. 11.00.
Útboð
Verkfræðistofan Fjarhitun h.f. Borgartúni 17,
Reykjavík óskar eftir tilboðum í tvo röra-
varmaskipta.
Afköst hvors um sig eru 5300 kW.
Útboðsgögn verða afhent á verkfræðistof-
unni Fjarhitun h.f.
Tilboð verða opnuð á verkfræðistofunni Fjar-
hitun h.f. föstudaginn 20. júní 1983 kl. 11.00.
2
C
2
-
w
%is\^
Gluggaskipti
á Laugaveg 166
Tilboð óskast í gluggaskipti á Laugaveg 166,
„Víðishúsi".
Um er að ræða 207 glugga, alls ca. 830 m2.
Verkinu skal að fullu lokið 1. okt. 1983.
Bjóðendum stendur til boða, að kynna sér
aðstæður á vinnustað miðvikudaginn 1. júní
n.k.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Borgartúni 7, Rvk. frá 25. maí, gegn 1.500,-
kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð hjá Innkaupastofnun
ríkisins föstudaginn 10. júní 1983, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006