Þjóðviljinn - 21.05.1983, Síða 20
Samvinnuferðir
Landsýn
Stóraukin
markaðs-
hlutdeild
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 21. - 22. maí 1983
Sex
Andrésar
og þrjár
Sigríðar
Guðlaugur Jónsson bóndi við bæjarvegginn á ‘Seljum. Tíu systkina
hans dóu í æsku. Myndin er tekin árið 1937 en þá var Guðlaugur 63 ára
°8 jafngamall klukkunni hans sem fest hefur verið upp á vegginn í
tilefni af myndatökunni.
Aö berja sér er íþrótt okkar
íslendinga nú á dögum. Við
kvörtum og kveinum, höfum
ekki efni á aö fara til útlanda eöa
kaupa okkur nýjan bíl. Þvílík
hörmung og ógæfa!
Ég lagði leið mína um Mýrar
vestur um síöustu helgi og sá þá
gamlar tóttir forfeðra minna sem
bjuggu þar í pínulitlum bæjum,
torfbæjum meö moldargólfi og
rétt drógu fram lífiö sumir. Enn
er í fullu fjöri fólk sem er alið upp
viö svona aöstæður.
Þegar ég kom heim fletti ég í
gamni mínu upp nokkrum kot-
ungum á síöustu öld í Borgfir-
ungum á síðustu öld í Borgfirsk-
um æviskrám og skyndilega opn-
uðust fyrir mér veraldir harma.
Um miðja síðustu öld bjuggu
hjón í litlu koti niður við sjóinn í
Hraunhreppi á Mýrum. Þau hétu
Andrés og Sigríður en bærinn
Seljar. Þegar þau voru orðin
gömul tóku dóttir þeirra og
tengdasonur, Málfríður og Jón
Jónsson við búinu. Barneignir
þeirra lýsa best þjóðfélaginu fyrir
hundrað árum.
Málfríður og Jón voru 25 ára
þegar þau gengu í heilagt hjóna-
band árið 1860. Og ntikið hefur
Málfríði þótt vænt um foreldra
sína. Sex sinnum reyndi hún að
koma upp nafni föður síns, And-
résar, og þrisvar sinnum nafni
móður sinnar, Sigríðar, - en allar
mistókust. Fyrsta barn þeirra hét
Andrés, hann dó mánaðar-
gamall. Annað barn þeirra hét
Andrés, hann dó 3 mánaða gam-
all. Þriðja barn ' þeirra hét
Guðbjörg, hún komst til full-
orðinsára. Fjórða barnið hét Jón,
hann dó 2 ára, fimmta barnið hét
Sigríður, hún dó 3 mánaða.-
Sjötta barn þeirra hét Jón, hann
komst upp. Sjöunda barnið hét
Sigríður, hún dó hálfs annars árs.
Attunda barn þeirra var Sigurð-
ur, hann komst upp. Næst gerðu
þau þriðja tilraunina með Andr-
ésarnafnið en í öryggisskyni
skeyttu þau öðru nafni við. Þetta
var Andrés Illugi, hanndó2ára.
Og ekkí hafa þau enn gefist upp
við Andrésarnafnið. Nú fæddist
dóttir. Hún var skírð Andría en
Ingibjargarnafni bætt aftan við.
Hún dó hálfs árs gömul. Ellefta
barn þeirra var Guðlaugur (sá
sem myndin er af), hann komst
upp. Og enn er reynt við Andrés-
arnafnið. Tólfta barnið er Andr-
és Bjarni, hann dó 9 mánaða.
Og ekki er öll von úti. Enn einu
sinni er reynt við foreldranöfn
Málfríðar. Þrettánda og fjór-
tánda barn þeirra eru Sigríður og
Andrés Sigmundur. Þau dóu með
vikumillibili, hún á 4. ári og hann
á 3. ári.
Málfríður var orðin 43 ára þeg-
ar hún eignaðist sitt síðasta barn
og hafði þá átt fjórtán börn á átj-
án árum, útslitin manneskja í litlu
koti. Tíu dóu en aðeins fjögur
komust til fullorðinsára. Getum
við sett okkur í spor hennar?
Börnin fjögur sem upp komust
gerðu svo sem ekki víðreist. Þau
fóru aldrei af Seljúm. Synir
þeirra tveir voru bændur þar og
sá þriðji lausamaður. Eini
tengdasonurinn varð líka bóndi í
kotinu.
Jón og Málfríður á Seljum lifðu
fram á 2. áratug þessarar aldar.
Þau lentu ekki í ferðalögum, hafa
kannski tæpast komist til Reykja-
víkur. Þau hafa sennilega ekki
svo mikið sem leitt hugann að
utanförum. Eini möguleikinn til
þess var að stela eða drepa. Þá
hefðu þau kannski verið send í
Stokkhúsið og Spunahúsið á
Brimarhólmi í Kaupmannahöfn
og orðið sigldar manneskjur.
Þetta er gott að hugleiða nú
seinna á öldinni - eða nánar til-
tekið á því herrans ári 1983.
- Guðjón
Aðalfundur Samvinnuferða-
Landsýnar 1983 var haldinn þann
17. maí. Þar kom fram að á árinu
1982 var brúttó velta fyrirtækisins
124 míllj. króna og hagnaður kr.
205.525. í krónutölum jókst sala í
hópferðir um 116% og sala áætlun-
arfarseðla um 133%. Auk mikils
fjölda farþega í einstaklingsferðum
fóru 9.876 farþegar utan í skipu-
lögðum hópferðum. Er það 43%
aukning frá árinu 1981, en þá varð
einnig yfir 40% aukning frá árinu á
undan. Aukning heildarfarþega-
fjölda frá íslandi til annarra landa á
síðastliðnu ári varð hins vegar ekki
nema um 10% þannig að markaðs-
hlutdeild Samvinnuferða-
Landsýnar hefur aukist verulega.
Alls komu hingað til lands unt
3.600 erlendir ferðamenn á vegum
ferðaskrifstofunnar og er það 89%
aukning frá fyrra ári. Innanlands-
deildin hefur því einnig aukið mjög
umsvif sín og skilar hún umtals-
verðum tekjum auk þess sem
starfsemi hennar hefur opnað ís-
lendingum ótal nýja möguleika á
ódýrum utanlandsferðum í gagn-
kvæmu leiguflugi.
Á síðastliðnu ári festi
Samvinnuferðir-Landsýn kaup á 1.
og 3. hæð í húsnæði sínu við
Austurstræti 12 en áður hafði skrif-
stofan bæði keypt kjallara hússins
og afgreiðslusal. Húsriæði hefur
því aukist verulega og miklar
breytingar verið gerðar á þeim fjór-
um hæðuin sem starfsemin er nú
rekin í. Um leið var bókunartalva
Flugleiða, Alex, tekin í notkun og
á næstunni verður bókunartalva
Arnarflugs og KLM einnig tekin í
notkun. Aðstaða til þjónustu við
afgreiðslu áætlunarfarseðla er því
eins fullkomin og frekast er unnt.
sunnudagskrossgátan 372
2 3 H- V S‘ (o 7 2 T~^ /0 // 2 12.
4 /3 )d /<>- ’f 1? ¥~ if 1/ 18 / 6 7-
,/? !(, ? zv )á> y Z/ n? 10 )(, 2j T~ &
zz 8 /6 20 II 20 /S" )b ? V /S" /5' ??
8 vf ¥ 7- Z2 )(? V \(* r 7 Zf )(o 7
*T '*ft !k /2 W~ 7~ ze V 2J, y /8 !(, 4 k
rV' w * i- 8 )sr frr V n 2v 7- n, ¥ ? /? 3
P z8 32 zo 5 n, ’f 4 JT r V y 30
l 7 22 7 )C> r 8 T~ ZG 1? 3/ )b 8 22
f ¥■ 31 28 22 )to )$- y iy )d V Z?
t. H, 22 )t> * y V 4 ¥ w IS
°> T~ '3 /V </- // isr T~ 22 ¥ 2T 2/
K? >r V 3o k K n 32 e u /8 ¥
aábdðeéfghiíjklmnoóprstuúvxyýþæö
SetjiS rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á
þorpi norðanlands. Scndið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 372“.
Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða s^nd til vinningshafa.
30 1/ 5 22 H- 27 28 2 )8
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að
finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp, þvi
með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum.Það eru því eðlilegustu
vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem
tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í þessari
krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða og
breiðum, t.d. getur aldrei a komið í stað á og öfugt.
Verðlaunin
Verðlaunin fyrir krossgátu
nr. 368 hlaut Guðrún E.
Karlsdóttir, Strandgötu 3,
Eskifírði. Þau eru bókin Gefíð
hvort öðru... eftir Svövu Jak-
obsdóttur.
Verðlaunin að þessu sinni eru
bókin í kvosinni eftir Flosa
Ólafsson sem Iðunn gaf út á
síðasta ári.