Þjóðviljinn - 21.05.1983, Qupperneq 21
Helgin 21. - 22. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21
bridge
r
Islandsmótið í tvímenningskeppni
Jón og Sævar sigruðu
Jón Baldursson og Sævar Þor-
björnsson urðu íslandsmeistarar í
tvímcnningskeppni 1983, sem hald-
ið var um síðustu helgi.
Þeir háðu harða baráttu undir j
lokin við þá félaga Guðmund Pál
Arnarson og Þórarin Sigþórsson,
og höfðu lukkudísirnar með sér er
upp var staðið. Þessi tvö pör ásamt
Jóni Asbjörnssyni og Símoni Sím-
onarsyni hafa verið áberandi bestu
pör okkar í vetur og svo heppilega
vill til að þessi þrjú pör skipa ein-
mitt landslið okkar í ár, sem keppa
mun á Evrópumótinu í júlí í Wies-
baden.
Svo við snúum okkur að íslands-
mótinu, þá tóku 24 pör þátt í úr-
slitakeppninni, að undangenginni
forkeppni 64 para, víðs vegar að á
landinu. Spiluð voru 5 spil milli
para í úrslitakeppninni, allir v/ alla,
alls 23 unrferðir.
Við skulurn líta á þróun mála.
Eftir 3 umferðir var staða efstu
para þessi:
Jón-Sævar 58
Ásmundur-Karl 50
Jón-Símon 43
Guðlaugur-Örn 43
Eftir 6 umferðir var staðan þessi:
Ásmundur-Karl 90
Jón-Sævar 88
Guðmundur-Þorgeir 63
Guðlaugur-Örn 56
' (Þarna höfðu Guðmundur-
Þórarinn 42)
Eftir 9 umferðir var staðan þessi:
Ásmundur-Karl 105
Guðmundur-Þórarinn 82
Guðinundur-Þorgeir 75
Guðlaugur-Örn 66
(Parna höfðu Jón og Sævar lent í
andstreymi)
Eftir 12 umferðir var staðan orð-
in:
Ásmundur-Karl 123
Guðmundur-Þorgeir 91
i Jón-Sævar 88
GuðmundurrÞórarinn 80
Guðlaugur-Örn 73
Eftir 15 umferðir fór aðeins að
teygjast úr:
Jón-Sævar 147
Ásmundur-Karl 124
Guðmundur-Þorgeir 109
Guðmundur-Þórarinn 109
Guðlaugur-Örn 92
Eftir 18 umferðir var staðan
þessi:
Guðmundur-Þorgeir 175
Guðmundur-Þórarinn 172
Ásmundur-Kar! 145
Jón-Sævar 133
Parna leit út fyrir að
Guðmundur-Þorgeir og
Ásmundur-Karl stæðu með pálm-
ann í höndunum, en þeir fyrr-
nefndu fóru illa með sig í 19. um-
ferð er þeir mættu Hermanni og
Ólafi og fengu heldur mikinn skell.
Bræðurnir áttu eftir að koma meir
við sögu þessa móts, með heldur
sögulegum hætti.
Eftir 20 umferðir var staðan því
orðin:
Guðmundur-Þórarinn 200
Jón-Sævar 180
Ásfnundur-Karl 180
Guðmundur-Þorgeir 146
Og eftir 21 umferð (af 23) var
staðan þessi:
Jón-Sævar 216
Guðmundur-Þórarinn 206
Ásmundur-Karl 185
Guðmundur-Þorgeir 140
Og eftir 22 umferðir (fyrir síð-
ustu umferð) var staðan mjög hag-
stæð fyrir Guðmund-Þórarin:
Guðmundur-Þórarinn 214
Jón-Sævar 196
Ásmundur-Karl 193
Guðmundur-Þorgeir 136
Guðmundur-Þórarinn áttu að
spila við Hermann og Ólaf og Jón-
Sævar við parið í fjórða sæti, Guð-
mund og Þorgeir (sveitarfélaga
Þórarins). Og enn á ný sannaðist
hið forna, að allt getur (og gerist)
gerst í bridge. Jón og Sævar rúst-
uöu þá Guðmund og Þorgeir með
19 í plús á sama tíma og Guðmund-
ur og Þórarinn töpuðu með 2 í mín-
us. Heldur súrt fyrir þá Guðmund
og Þórarin, svona nálægt endin-
um. En að sama skapi gleðilegt,
fyrir þá Jón og Sævar. Eins dauði,
annars....
Jón Baldursson vann því það
afrek í þessu móti, að vera íslands-
meistari í tvímenning, þrjú árí röð.
Stórglæsilegt hjá þessum úrvals-
spilara, sem þrátt fyrir ungan aldur
(enn ekki þrítugur) hefur þarmeð
skipað sér á bekk með okkar bestu
spilamönnum fyrr og síðar.
Fyrir Sævar Þorbjörnsson er
þetta einnig stórmerkur áfangi, því
þetta er í fyrsta skipti sem hann
sigrar þetta mót, og áreiðanlega
ekki í það síðasta. , :
Umsjón
Ólafur
Lárusson
Lokastaða efstu para varð þessi:
1. Jón Baldursson-Sævar Þorbjörnsson
Reykjavík 215 stig.
2. Guðmundur P. Arnarson-Þórarinn
Sigþórsson R.vík 212 stig.
3. Ásmundur Pálsson-Karl Sigurhjart-
arson R.vík 179 stig.
4. Pétur Guðjónsson-Stefán Ragnars-
son Akureyri 141 stig.
5. Guðmundur Sveinsson-Þorgeir
Eyjólfsson R.vík 117 stig.
6. Guðlaugur R. Jóhannsson-Örn Arn-
þórsson R.vík 82 stig.
7. Guðmundur Pétursson-Hjalti
Elíasson R.vík 77 stig.
8. Jón Ásbjörnsson-Símon Símonarson
R.vík 55 stig.
9. Guðni Sigurbjarnason-Ómar Jóns-
son R.vík 33 stig.
10. Kristján-Blöndal-Georg Sverrisson
R.vík 26 stig.
Um árangur annarra para en
þeirra efstu má geta þeirra Péturs
og Stefáns frá Akureyri. Þeir halda
uppi heiðri landsbyggðarinnar með
miklum sóma og ná sínum besta
árangri í bridge fram að þessu.
Einnig má geta þeirra Þorsteins
Ólafssonar og Kristjáns Kristjáns-
sonar frá Reyðarfirði. Þeir sigruðu
undankeppnina með glæsibrag, þó
þeim gengi miður í útslitunum.
Einnig má nefna einu spilakonuna í
úrslitunum, hana Soffíu
Guðmundsdóttur. Þar er á ferðinni
kona sem seint gefst upp. Enda úr
Fljótunum, þó Akureyringursé. Á
móti henni spilaði Ævar Karlsson.
Sagnir herma að Soffía hafi spilað
spil mótsins, einmitt á móti þeim
Þórarni og Guðmundi. Það birtist
vonanadi innan tíðar í spiladálkum
blaðanna (raunar þegar komið í
Mbl., fyrsta spilið sem Guðmund-
ur Páll birtir frá þessu móti, að
vonum..)
Spilin voru tölvugefin, og verður
að segjast að dreifingin að þessu
sinni var nokkuð jöfn og góð, og
spil nokkuð eðlileg. Þó er raunar
alltaf leiðinlegt að sjá það koma
fyrir, þega pör „ná“ pottþéttri al-
slemmu sem fimmtán slagir standa
harðir, að drottning liggur öfug
þriðja bak við kóng-ás, þegar
aðeins vantar þrjú spil í litinn.
Þetta skeði í einu „alslemmunni“ í
mótinu og fengu Guðlaugur-Örn
að kenna á því m.a.. Sannarlega
ekki verðlaunuð sagntækni þarna á
ferðinni.
Að öðru leyti fór mótið fram af
stakri prýði, undir öruggri stjórn
Agnars Jörgenssonar. í mótslok af-
henti forseti Bridgesambandsins,
Kristófer Magnússon verðlaun
fyrir móthald á vegum þess. fs-
landsmeistarar 1983 urðu: Jón
Baldursson og Sævar Þorbjörnsson
í tvímenning. Sveit Þórarins Sig-
þórssonar í sveitakeppni (með hon-
um voru: Guðmundur Páll Arnar-
son, Björn Eysteinsson, Guð-
mundurSv. Hermannsson, Þorgeir
P. Eyjólfsson og Guðmundur
Sveinsson). í kvennaflokki varð
sveit Estherar Jakobsdóttur ís-
landsmeistari (með henni voru:
Erla Sigurjónsdóttir, Halla Berg-
þórsdóttir og Kristjana Stein-
grímsdóttir).
Og í sveitakeppni yngri flokks,
sveit Braga Haukssonar, en með
honum voru: Sigríður Sóley Krist-,
jánsdóttir, Hróðmar Sigurbjörns-
son og Karl Logason.
Og þá er ekkert annað en að
óska þessum sigurvegurum til ham-
ingju með árangurinn.
Sumarbridge
Ekki er enn ljóst hvort spilað
verður í Domus Medica í Sumar-
bridge 1983. Vonirstanda þó til,að
húsnæðið fáist.
Þegar það liggur ljóst fyrir, er
ekkert að vanbúnaði að hefja
keppni sem fyrst.
Sumarbridge Bridgesambands
Reykjavíkur hefur verið fjölmenn-
asta samkunda bridgemanna á
landinu undanfarin ár. Þar hafa
menn stigið sín fyrstu spor í
keppnisbridge. Öll kvöld í sumar-
bridge eru sjálfstæðar keppnir og
öllum ópið sem vilja. Spilað er
ávallt á fimmtudögum og ávallt
stuðst við sama keppnisform, sem
er riðlakeppni, tvö til þrjú spil milli
para. Og ekki er nauðsynlegt að
mæta með makker (félaga), því
oftast eru einhverjir á lausu, sem
gjarnan vilja grípa í spil eða tvö.
Nánar síðar.
Gott framtak
Kristófer Magnússon forseti
Bridgesambands íslands, aflienti
Þórarni Sigþórssyni veglega gjöf,
sem staðfestingu á því að Þórarinn
er okkar fyrsti stórmeistari i
bridge, með yfir 500 meistarastig.
Gjöfina afhenti Kristófer sl.
sunnudag, um leið og verðlaun
fyrir mótshald á vegum B.L, voru
afhent. Göfin var áletruð úrklippu-
bók, vegleg mjög, tileinkuð fyrsta
stórmeistara íslands í bridge. Að
sjálfsögðu var bókin græn á lit,
með gylltu ívafi.
Virðingavert framtak hjá
Bridgesambandsstjórn og afar til-
hlýðilegt að Þórarinn hlyti þennan
virðingavott. Til hamingju Þór-
arinn.
Bridgefélag Breiðholts
Nú er lokið fyrirtækjakeppni fé-
lagsins, sem jafnframt var ein-
menningskeppni. Úrslit urðu
þessi:
1. Kjötmiðstöðin, spilari Guðmundur
Sigursteinsson.
2. Steintak h/f spilari Kristinn Hclga-
son.
3. Prófíll, spilari Helgi Nielsen
Úrslit í einmenningskeppninni
urðu:
1. Guðmundur Sigursteinsson 217 stig.
2. Guðmundur Grétarsson 205 stig.
3. Guðmundur Bernharðsson 204 stig.
Athygli spilara er vakin á því, að
félagið hyggst standa fyrir eins
kvölds tvímenningskeppnum á
þriðjudögum, eitthvað fram á sum-
ar. Spilað er í Menningar-
miðstöðinni v/Gerðuberg og hefst
spilamennska stundvíslega kl.
19.30.
Allir velkomnir.
Bridgefélag kvenna
í annarri umferð parakeppninn-
| ar fengu eftirtalin pör hæsta skor:
Esther Jakobsdóttir-Svavar Björnsson
192
Ólafía Jónsdóttir-Baldur Ásgeirsson
192
Margrét Margeirsdóttir-Gissur Gissur-
arson 178
Aldís Schram-Ellert Schram 178
en efstu pörin eftir 2 umferðir eru:
Esther Jakobsdóttir-Svavar Björnsson
387
Sigríður Pálsdóttir-Óskar Karlsson 364
Guðrún Bcrgsdóttir—Eggert Benónýs-
son 359
Gerður Ísberg-Sigurþór Halldórsson
356
Margrét Margeirsdóttir-Gissur Gissur-
arson 353
Þorgerður Þórarinsdóttir-Steinþór Ás-
gcirsson 350
Innilegustu þakkirfæri ég ykkur öllum, nemendum og öðrum
vinum, fyrir þann hlýhug sem þið sýnduð mér á sjötugsaf-
mæli mínu 11. maí sl., með miklum og merkum gjöfum,
skeytum, viðtölum og heimsóknum.
Gæfan fylgi ykkur.
Haukur Jörundsson.
Verksmiðjustjóri
Óskum eftir að ráða verkstjóra að verksmiðju
í matvælaiðnaði í Reykjavík.
Við leitum að manni sem hefur vilja til sam-
hliða verkstjórn, að setja sig inn í framleiðslu
verksmiðjunnar jafnframt því að starfa að
henni. Viðkomandi þarf að kynna sér véla-
kost verksmiðjunnar og hafa umsjón með
viðhaldi og breytingum á vélbúnaði. Starfið
gæti hentað tæknisinnuðum manni eða
manni með iðnréttindi á sviði véltækni eða
vélstjórnunar.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá starfs-
mannastjóra, er veitir nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 1. júní nk.
SAMBANDISL. SAM VINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALD
Icl
ÍÖ3
ra
fa
ra
ia
ra
BORGARSPÍmiNN
LAUSSTáDA
Hjúkrunarfræðingar/ljósmæður.
Hjúkrunarfræöingur sem jafnframt hefur Ijósmóðurmenntun óskast
(a
ra
la
m
ra
ra
ra
01-1^1^1131110001119^ sem jaiMirami neiur ijosmoourmenniun osKasi p-|
til starfa á Fæöingarheimili Reykjavíkurborgar vegna rekstrarbrey- ICJ
(gJ tingaþar.
Nánari upplýsingar gefur Guöjón Guönason yfirlæknir í síma 22544 jg
ia
ra
la
ra
la
fyrir hádegi.
Reykjavík, 20. maí 1983.
BORGARSPÍTALINN
0 81-200
ia
la
la
ra
bIbIbIbIbIbIbIeIbIeIbIbIeIbIgIeIeIbIbIb] bI
Lausar
V7ð eigum ætíð mikið úwal afskrúf-
um, boltum, róm, saum í pökkum
og í lausu, málningu, Handverkfæri,
járnvörur, lím, þéttilistar, skóflur,
lökk, iæsingar, iyklaefni, lásar, og
m.m.O,. OPIÐ í HÁDEGINU OG Á
LAUGARDÖGUM TIL HÁDEGIS
'LIPPBÚÐiN
VU) HÖFMMA
Mýrargötu2 - simi 10123