Þjóðviljinn - 21.05.1983, Blaðsíða 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 21. - 22. maí 1983
um helgina
Hugarflug I heitir þessi mynd sem er unnin úr steinleir og gleri.
Asmundarsalur
Myndir
úr gleri og
steinleir
Um helgina lýkur sýningu
Borghildar Óskarsdóttur í As-
mundarsal viö Freyjugötu. Þar
sýnir Borghildur 26 verk sem
unnin eru úr gleri, steinleir, fjör-
usteinum, hrauni, kopar og mes-
sing.
Þetta er fyr'sta einkasýning
Borghildar en hún hefur tekið
þátt í samsýningum bæði hér
heima og erlendis.
Öldutúns-
skólakórinn
Vor-
tónleikar
Vortónleikar Kórs Öldutúns-
skóla verða haldnir í Hafnar-|
fjarðarkirkju laugardaginn 21.
maí kl. 14.00. Þar koma fram
rúmlega 100 kórfélagar í 4
hópum.
Ameríski Drengjakórinn frá
New Jersey í Bandaríkjunum
kemuf einnig fram á þessum tón-
leikum og syngur nokkur lög
undir stjórn Stephen Howard.
Ameríski
drengjakórinn
Tónleikar
á nœstu
dögum
Hér á landi er nú sem stcndur
einn frægasti drengjakór Banda-
ríkjanna, „Ther American Boy-
choir“ og verSur hann á söng-
ferSalagi um landið út þennan
mánuð. Kórinn var upphaflega
Safna-
húsiö á
Selfossi
Jón Ingi Sigurmundsson opnar
málverkasýningu í Safnahúsinu á
stofnaður 1937 og hefur nú aðset-
ur í Princeton í New Jersey. 18
hljómplötur hafa verið gefnar út
með söng kórsins frá því hann var
stoínaður.
Kórinn starfar við skóla sem er
einkaskóli og sá eini heimavistar-
skóli í Norður Ameríku sem ekki
tengist ákveðnum trúarbrögðum.
Næstu tónleikar kórsins hér á
landi verða í Selfosskirkju í kvöld
kl. 20.30 í Langholtskirkju á
annan í hvítasunnu kl. 17.00 á
Akureyri á miðvikudaginn í
Gamla bíó á föstudaginn kemur
og í Borgarfirði á laugardag. Þá
mun kórinn syngja á sjúkrahús-
um og vistheimilum víða um
land.
Selfossi, laugardaginn 21. maí kl.
14.00.
A sýningunni eru 30 olíu- og
vatnslitamyndir.
Þetta er fyrsta einkasýning
Jóns Inga, en hann hefur áður
tekið þátt í samsýningum Mynd-
listarfélags Árnessýslu.
Sýningin stendur yfir frá 21.-
29. maí og verður opin frá kl.
14.00-22.00 um helgar, en frá kl.
15.00-22.00 aðra daga.
myndlist
Ásmundarsalur:
Borghildur Óskarsdóttir sýnir 26 myndir
unnar i steinleir, gler. fjörustein, messing
og kopar. Þetta er fyrsta einkasýning
Borghildar en hún hefur áöur tekið þátt í
samsýningum hér heima og erlendis.
Sýningin er opin frá 14-22, síðasta sýn-
ingarhelgi.
Barnaskólinn Stokkseyri:
Elfar Þórðarson og Vignir Jónsson sýna.
Um er að ræða tvær einkasýningar og
eina samsýningu. Elfar sýnir olíu-,
vatnslita- og akrílmyndir en Vignir sýnir
hnýtingarverk sem eru með nokkuð öðru
sniði en menn eiga að venjast. Opið alla
daga frá 14-22.
Galleri Langbrók:
Sýningu Jóhönnu Þórðardóttur lýkur um
helgina. Á sýningunni eru 15 verk, allt
lágmyndir úr tré. Jóhanna stundaði nám
hér heima og í Amsterdam og Stokk-
hólmi.
Gallerí Lækjartorg:
Gunnar Dúi sýnir ný olíumálverk. Þetta
er sjöunda einkasýning hans hérlendis
auk þess sem hann hefur sýnt erlendis.
Síðasta sýningarhelgi.
Gerðuberg:
Útskriftarnemar úr Myndlista- og hand-
íðaskólanum sýna verk sin á sölusýn-
ingu sem veröur opnuö kl. 12.00 i dag.
Sýningin stendur til loka mai, opið virka
daga frá 16-22 og um helgar frá 12-20.
Kjarvalsstaðir:
Páll Reynisson sýnir Ijósmyndir, Guð-
mundur K. Ásbjörnsson málverk og
vatnslitamyndir og Sveinn Björnsson
málverk. Síðasta sýningarhelgi.
Listmunahúsið:
Alfreð Flóki sýnir 40 nýjar teikningar.
Unnið í túss, svartkrít og rauðkrit. Sið-
asta sýningarhelgi.
Listasafn íslands:
Til sýnis eru Ijósmyndir af höggmyndum
þeirra Ásmundar Sveinssonar, Einars
Jónssonar og Sigurjóns Ólafssonar eftir
bandaríska Ijósmyndarann David Finn.
Einnig eru fjölmörg verk eftir listamenn-
ina á sýningunni.
Norræna húsið:
Yfirlitssýning á verkum danska lista-
mannsins Svens Havsteen-Mikkelsens
sem nú stendur á sjötugu. Sýnd eru 50
málverk mörg máluð hérlendis,
steinprentmyndir og teikningar. Opið
daglega fram til 12. júni frá kl. 14-19.
Safnahúsið Selfossi:
Jón Ingi Sigurmundsson opnar sýningur
í dag kl. 14.00 á 30 olíu- og vatnslita-
myndum. Þetta er tyrsta einkasýning
Jóns. Opið fram til 29. maí.
Þjóðminjasafnið:
I sumar verður í Bogasalnum sýning á
ýmsum myndum og merkum hlutum
sem safnið hefur nýverið keypt eða á-
skotnast á annan hátt. Margt fróðlegra
muna.
Þrastarlundur:
Sigurpáll A. Isfjörð opnar í dag sýningu í
Veitingaskálanum. Sigurpáll er frá
Húsavik en búsettur i Kópavogi. Hann
hefur haldið 6 einkasýningar áður og
tekiö þátt í fjölda samsýninga. 30 vatns-
litamyndir og 5 oliumálverk eru á sýning-
unni og allar til sölu.
tónlist
Blómasalur Hótels Loftleiða:
Sænska söngkonan Stina-Britta Me-
lander syngur fyrir matargesti um helg-
Norrœna húsið
Verk
eftir Sven
Havsteen-
Mikkelsen
í dag verður opnuð í Norræna
húsinu yfirgripsmikil sýning á
verkum danska málarans Svens
Havsteen-Mikkelsens.
Á sýningunni eru 50 málverk,
mörg máluð hérlendis,
steinprentanir og teikningar.
Sven Havsteen-Mikkelsen er
fæddur 1912 í Danmörku, ís-
lenskur að ætterni. Hann sótti
menntun sína m.a. til Listahá-
skólans í Osló, þar sem hann naut
leiðsagnar Axels Revolds og Pers
Kroghs.
Sven Havsteen-Mikkelsen ólst
upp á heimili heimskautakönn-
uðarins Einars Mikkelsens í
Kaupm.höfn, og varð snemma
handgenginn norrænni sögu og
náttúru. 15 ára kom hann fyrsta
sinni til Færeyja, sigldi til íslands
og A-Grænlands, er hann tók
þátt í rannsóknarleiðöngrum,
m.a. á franska rannsóknar-
skipinu Pourquoi-pas?, sem dr.
J.B.Charcot stýrði.
ina. Hún syngur þæði á islensku og
sænsku meðal annars lög eftir Grieg,
Alfvén, Rangström og Sibelius.
Hafnarfjarðarkirkja:
Vortónleikar Kórs Öldutúnsskóla verða i
dag kl. 14.00. Þar koma fram rúmlega
100 kórfélagar í 4 hópum. Þá mun amer-
íski drengjakórinn frá New Jersey syngja
nokkur lög. 8. júni heldur Öldutúnsskóla-
kórinn í tónleikaferð til Ungverjalands og
tekur þátt í alþjóðalega Kodály-
kórmótinu þar. Það er Egill Friðleifsson
sem stjórnar kórnum.
Háskólabíó:
Árlegir tónleikar Karlakórs Reykjavikur
verða 1., 3. og 4. júní næstkomandi.
Kristján Jónsson óperusöngvari verður
einsöngvari með kórnum.
Kristskirkja Landakoti:
Mótettukór Hallgrimskirkju heldur sína
fyrstu sjálfstæðu tónleika i Kristskirkju í
Landakoti n.k. mánudagskvöld 23. maí,
annan dag hvítasunnu, og hefjast þeir
kl. 20:30. A efnisskránni er kirkjutónlist
frá 18., 19. og 20. öld, acappella-
mótettur (kórverk án undirleiksj. Flutt
verða verk eftir Mendelssohn, Bruckner,
Duruflé og íslensk tónskáld, svo og hin
kunna mótetta Lobet den Herrn, Lofið
vorn Drottin, eftir Joh. Seb. Bach, en hún
verður flutt meö aðstoö hljóðfæra-
leikara. Stjórnandi er HörðurÁskelsson.
Selfosskirkja:
Ameriski drengjakórinn frá Princeton í
New Jersey sem dvelst hér á landi um
þessar mundir syngur i Selfosskirkju í
kvöld kl. 20.30.
Söngskólinn:
Söngskólinn er nú að útskrifa nemendur
og í þvl tilefni eru haldnir tónleikar i tón-
leikasal skólans aö Hverfisgötu 44.1 dag
kl.'15.00 koma fram þau Kolbrún á
Heyjum Magnúsdóttir alt, Esther H.
Guðmundsdóttir sópran og Sigurður
Þórðarson bassi. Aðrir tónleikar verða á
miövikudaginn kemur, þá syngja þau
Guðmundur Þ. Gíslason tenór, Iðunn
Ragnarsdóttir sópran. Undirleikarar eru
þau Jórunn Viöar, Guðrún A. Kristins-
dóttir og Pavel Smid.
Tónlistarskólinn Reykjavík:
Burtfarartónleikar verða á þriðjudaginn
24. mai kl. 17.00 í sal skólans að Skip-
holti 33. Þá syngur Sigríður Gröndal verk
eftir J.S. Bach, Schubert og fl.Jónas
Ingimundarson leikur undir á píanó.
leiklist
Leiklistarhátíð á Akureyri:
j dag hefst á Akureyri leiklistarhátíð og
ráðstefna leikfélaga á Norðurlandi í
leikhúsinu á Akureyri. Kl. 21.00 i kvöld
sýnir Leikfélag Siglufjarðar Getraunar-
gróða eftir Philip King i leikstjórn Jónas-
ar T ryggvasonar. Á eftir verður skemmti-
kvöld i Sjálfstæðishúsinu, þar sem
leikfélögin norðanlands troða upp með
sjálfvalið efni.
Leikfélag Reykjavíkur:
Engar sýningar um hvítasunnuhelgina i
Iðnó en farið verður í leikför með Jóa eftir
Kjartan Ragnarsson um suður- og vest-
urland i komandi viku. Fyrsta sýningin
verður í Bióhöllinni á Akranesi á annan í
hvítasunnu og næstu sýningar í Stapa,
Njarðvíkum, á Selfossi, Hvolsvelli, i Árn-
esi og viðar.
| Nemendaleikhúsiö:
I Miðjarðarför Sigurðar Pálssonar verður
sýnd í Lindarbæ ánnan i hvítasunnú kl.
20.30. Miðasala opin á mánudag frá kl.
17.00. Það eru útskriftarnemar Leiklist-
Danans.
Norskl, færeyskt og íslenskt
landslag er eftirlætis viðfangsefni
listamannsins og Skotland bættist
í hópinn er hann kvæntist skoskri
konu. Þá hefur hann myndskreytt
margar bækur m.a. eftir og um
Martin A. Hansen, gert kirkju-
skreytingar og altaristöflur og eru
skissur að þeim á sýningunni.
Sýningin í Norræna húsinu
verður opin daglega kl. 14-19 (þó
lokað á hvítasunnudag) til 12.
júní.
arskóla Islands sem sýna. Leikstjóri
Hallmar Sigurðsson.
Þjóðleikhúsið:
Aukasýning verður á Súkkulaði handa
Siljueftir Nínu Björk Árnadóttur þann 26.
maí, vegna mikillar aðsóknar. Miðar
verða seldir frá og meö öðrum í hvíta-
sunnu kl. 13.15. Þá má geta þess að
hlutverkabreyting hefur nú orðið í sýn-
ingum á ballettinum Fröken Júlía eftir
Birgit Cullberg. Sænski dansarinn Per
Arthur Segerström hefur tekið við hlut:
verki Jeans af landa sinum Niklas Ek.
Segerström er Islendingum að góðu
kunnur þvi þetta er í þriðja sinn sem
hann kemur hingað til að dansa fyrir
landann.
Revíúleikhúsið:
Siðasta sýningin á þessu leikári á revi-
unni hans Geirharðs Markgreifa verður i
Gamla bíói annan i hvitasunnu kl. 20.30.
Miðasala opin frá kl. 15-19.
ýmislegt
Ferðalög:
Grafarvogur:
I dag, laugardaginn 21. maí efnir félagið
Ingólfur til gönguferðar um Grafarvog-
inn. Ráögert er að hittast við Grafarholt
kl. 14:00 og gengið veröur um Keldna-
land og þann vettvang er brátt verður
lagður undir nýja íbúðabyggö Reykvík-
inga. Með í ferðinni verða kunnugir leið-
sögumenn. Félagsmenn eru hvattirtil að
fjölmenna og jafnframt eru nýir meðlimir
boðnir velkomnir.
Þernueyjarferð:
Sögufélag Kjalarnesþings gengst fyrir
Þernueyjarferð i dag, laugardaginn 21.
maí. Safnast verður saman við Hlégarð
kl. 13.30. Ekið verður á einkabifreiðum1
að Víðinesi. Þeir sem ekki hafa bíl fá far
með öðrum. Meðal leiðsögumanna
verður Björn Þorsteinsson fyrrv. pró-
fessor.
Stúdentafagnaður:
Árlegur stúdentafagnaöur Nemenda-
sambands Menntaskólans ( Reykjavik
verður haldinn að Hótel Sögu 27. maí,
daginn eftir skólauppsögn. Nýstúdendar
og nemendur úr afmælisárgöngum hafa
forgang að þáttöku. Nemendur afmælis-
árganga eru því beðnir að tilkynna
miðapantanir til fyrirsvarsmanna ár-
ganga hið fyrsta.
Fyrirlestur um sállækningar:
Dr. Stephen Appelbaum flytur opinber-
an fyrirlestur í boði félagsvísindadeildar
mánudaginn23. maíkl. 5síðdegis. Fyrir-
lesturinn, sem verður fluttur á ensku, fer
fram í Lögbergi í stofu 102 og nefnist „A
psychoanalyst explores the new therap-
ies“. Dr. Appelbaum er prófessor í klín-
iskri sálarfræöi við University of Missouri
í Kansas City og er þekktur fyrir rit um
sáilækningar og rannsóknir á þeim. Öll-
um heimill aðgangur.
Bilasýning Kvartmlluklúbbsins:
Um hvítasunnuhelgina gengst Kvart-
míluklúbburinn fyrir áttundu bílasýningu
sinni. Á sýningunni verða að vanda flest-
ir glæsilegustu bílar landsins auk ýmsra
gerða af keppnisbílum. Að
þessu sinni verður sýningin haldin i nýju
glæsilegu húsi sem Gúmmívinnustofan
hefur reist uppi i Árbæjarhverfi fyrir
norðan dælustöðina og Coke verk-
smiðjuna. Verður sýningin opin í þrjá
daga, laugardag, sunnudag og mánu-
dag frá kl. 14.00 til 22.00 alla dagana.
Þrastarlundur
Fyrsta
sýning
sumarsins
Sigurpáll A. ísfjörð sýnir í
veitingaskálanum Þrastarlundi í
Grímsnesi.
Þetta er sjötta einkasýning Sig-
urpáls auk nokkurra samsýninga.
Hann sýnir að þessu sinni 30
vatnslitamyndir og 5 olíuverk.
Margar myndanna eru úr Gríms-
nesi og nágrenni. Allar myndirn-
ar á sýningunni eru til sölu.
Menning-
arvika á
Siglujirði
Árleg menningarvika Sigl-
firðinga sem endurvakin var fyrir
nokkrum vikum, hófst í gær með
opnun málverkasýningar í ráð-
hússalnum, en þar sýnir Birgir
Schut 126 málverk og teikningar.
Sýning þessi verður opin til 26.
maí.