Þjóðviljinn - 10.09.1983, Page 7
Ari Trausti Guðmundsson:
Bókin er handbók
Bókarhöfundur deilir ekki við
gagnrýnanda um ágæti sinnar
eigin bókar. Sú hefðskal hald-
in. Annar höfundur bókar um
fjallamennsku, sem Jóhannes
Eiríksson gagnrýnir 4. sept. í
Þjóðviljanum, ætlar sér þó þá
framhleypni að hnýta upplýs-
ingar til lesenda við pistil Jó-
hannesar.
Jóhannesi finnst bókin („Fjalla-
mennska, Örn/Örlygur, 1983) vera
þurr, leiðinleg, textinn klúður og
alrangar áherslur í efnismeðferð,
allt kapp lagt á þurrar staðreyndir
sem „úreldast eins og hendi sé
veifað". Þennan dóm ræði ég ekki
um. En af pistlinum má hins vegar
skilja að Jóhannes hafi viljað sjá
allt aðra bók en þessa, þar sem
„alls ekki er reynt að glæða skilning
á fjallaíþróttum eða miðla persón-
ulegri reynslu“. Skoðunin sú að
bókin hefði átt að vera áhugaverð
kynningarbók kemur fram annars
staðar: „Ef bókin hefði miðast við
að reyna að vera upplýsinga- og
leiðbeiningarit um þessa þætti
(þ.e. klifur innsk. ATG), í bland
við persónulega reynslu höfunda,
má vera að þeim hefði tekist að
skapa frumlega og skemmtilega
bók“. Og aftur: Lesandanum, sem
er „lítt kunnur landinu og duldum
þess, munu ekki opnast dyr í fjall-
ið“ við lestur bókarinnar.
Vegna þessa finnst mér mikil-
vægt að fram komi.að umrædd bók
var samin sem handbók handa
hvers kyns fjallamönnum, rit með
„praktískum" leiðbeiningum fyrir
fólk í gönguferðum, jafnt sem
harða klifrara. Höfundar gera
vegna ritdóms
um
,,Fjallamennsku ”
skýra grein fyrir efni bókarinnar í
sérstakri grein 1. kafla. Þar er
bókin sögð vera „alhliða
leiðbeiningabók“ með „grófgerðri
mynd af grundvallaratriðum" og
að höfundar hafi stuðst við nýjar
eriendar handbækur.
Verði bókin einhverjum hvatn-
ing, eins og segir í formála, er það
ekki vegna efnismeðferðar eða
frumlegs texta, heldur vegna
mynda og lærdóms sem vonandi er
þar að finna. Kennsla í hnútagerð
eða nákvæmur kafli um snjóflóð og
flóðavarnir glæðir ekki skilning á
fjallaíþróttum umfram jarðbundn-
ar (og lífsnauðsynlegar) upplýs-
ingar. Persónuleg reynsla var held-
ur ekki notuð sem efni í heillandi
og skemmtilegar frásagnir, heldur
við samningu leiðbeininga. Al-
hliða, tæknileg handbók, í fjalla-
mennsku, siglingum eða skíða-
mennsku, getur seint orðið að
persónulegu ritverki og kynning-
arriti. Aðrar og gjörólíkar bækur
fjalla um áhrif af náttúrunni,
svaðilfarir, skemmtilegar fjall-
göngur. Okkur vantar fleiri en eina
slíka bók, sem opna lítt kunnugum
dyr í fjöllin og þeim kunnugu að-
gang að nýjum. Á þá kannski að
gefa eina slíka út á undan uppfletti-
og leiðbeiningabókinni? Eða þá
síðarnefndu fyrst.
Það er erfitt að gefa umsagnir
um bækur. Ég vildi óska þess að
Jóhannes hefði fjallað um bókina
sem handbók og rætt síðan um
gagnsemi þess að gefa fremur út
slíkt rit en bókina, sem hann hefur í
huga. Fyrir gagnrýni á málfar, o.fl.
ber að þakka, hvað sem öllu líður.
Að lokum: Megindrættir skíða-
göngutækni eða leiðavals eða klifur-
tækni eða þá staðreyndir um ýmsar
gerðir prímusa, úreldast ekki „eins
og hendi sé veifað", - ekki í
„Fjallamennsku" fremur en er-
lendum bókum af sama tagi (og
fjallamennsku á alpavísu). Höf-
undar og útgefandi hafa álitið
fundar og útgefandi hafa álitið
kleift að endurbæta bókina í takt
við nýjungar sem koma hægt og
sígandi fram.
£8PÍ udirisly'> (I— 01 ÞI/ÍLJl “?! — >
Helgin 10.—11. september 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
NIUAN
19 kjörbúöir og stórmarkaðir
á höfuðborgarsvæðinu.
EURQCARD
TIL DAGLEGRA NOTA
rMFA---
JDLVB QB
WWWfl
- Ný bók um efnahagsleg og félagsleg
áhrif örtölvunnar.
Bókin er hvort tveggja í senn: Fróðleg fyrir þann,
sem hyggst kynna sér tölvur og tölvuvæðingu og
um leið aðgengileg námsbók, sem hentar ýmsum
skólastigum.
Dreifing: Mál og menning.
Menningar- og fræðslusamband
alþýðu s: 84233
HAGKAUP
ÞÁERUÞAÐ. •
Nýjar vörur streyma inn
daglega, allt sem þarf til
skólans fæst í Hagkaup.
Á Hagkaupsverði.