Þjóðviljinn - 10.09.1983, Qupperneq 11
Helgin 10.—11. september 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Sadat Egyptalandsforscti myrtur: þeir voru að líkindutn í tengslum við íslamska
sem ríkir í síðarnefnda landinu, var
að minnsta kosti upphaflega ver-
aldlega sinnaður. Þjóðernishyggja
er einnig villa að dómi strangtrúar-
manna; markmiðið er, að minnsta
kosti í orði kveðnu, að allt íslam sé
eitt ríki og eitt samfélag, svo sem
var á dögum Múhameðs og kalíf-
anna. Strangtrúarmenn í Pakistan
fordæmdu þessvegna bengalska
Múhameðstrúarmenn sem svikara
við íslam, enda þýddi stofnun ríkis-
ins Bangladesh í raun, að þjóðerni
og tungumál voru tekin fram yfir
trúna. A sama grundvelli fordæmir
Komeini kúrdneska og arabíska
þjóðernissinna í íran. írönsku bylt-
ingarvarðliðarnir, sem ganga hik-
laust í dauðann í stríðinu við írak,
segjast gera það fyrir íslam, en
ekki ríkið íran.
í orði kveðnu að minnsta kosti
eru strangtrúarmenn ekki beinlínis
fráhverfir lýðræði, en hugmyndir
þeirra um það, byggðar á íslömsk-
um hefðum, eru all-frábrugðnar
lýðræðishugmyndum Vesturlanda.
Samkvæmt vestrænum lýðræðis-
hugmyndum á fólkið, kjósendur,
að vera hin raunverulegi valdhafi,
samkvæmt íslömskum rétttrún-
aðarhugmyndum er það hinsvegar
sjaría, lögmál Allah, sem yfir öllu
stendur. Stjórnmálamenn og þing
mega ekkert það gera, er telst and-
stætt því lögmáli. í framkvæmd
þýðir þetta, að hið endanlega vald
er í höndum þeirra, er teljast
fróðastir um lög Allah, og í íran að
minnsta kosti er enginn vafi á því,
að þingmönnum er ætlað að hlýða
Komeini skilyrðislaust. Fjöl-
flokkakerfi Vesturlanda er að
dómi strangtrúarmanna út í hött
eða jafnvel vond villa, þar eð þeir
líta svo á að aðeins einn sannleikur
sé til; þingmenn vilja þeir að séu
kosnir sem einstaklingar.
Trúfrelsi í vestrænum skilningi
orðsins kemur ekki heldur til
greina samkvæmt kenningum
strangtrúarmanna. Öll völd í
samfélaginu skulu vera í höndum
Múhameðinga; samfélagið skal
með réttu einungis samanstanda af
þeim. Játendur annarra trúar-
bragða eru raunar taldir standa
utan samfélagsins. Sumir þeirra
(kristnir menn, Gyðingar, Saraþ-
ústrussinnar, Hindúar o.fl) eru þó
taldir hafa rétt á vernd hins mú-
hameðska samfélags og vissri sjálf-
stjórn í eigin málum (líkt og Gyð-
ingar höfðu í miðaldasamfélagi
kaþólikka). Öllu verr eru settir Ba-
braeðralagið.
haítrúarmenn í íran, því að þar er
svo litið á, að þeir hafi fallið frá
Múhameðstrú, en strangtrúar-
menn túlka íslamslög svo, að slíkir
séu óalandi og óferjandi og í raun
réttri dauðasekir. Hið sama á við
um Guadiani í Pakistan og Alavíta
í Sýrlandi, þótt báðir þessir trú-
flokkar telji sig til Múhameðinga.
Sudur-indverskur
hugmyndafræöingur
Efnahags- og fjármál eru þáu
svið, sem helst vefjast fyrir strang-
trúarmönnum. Þeir túlka íslams-
lög svo, að ekki megi taka vexti af
peningum, en það hefur reynst erf-
itt í framkvæmd, meðal annars
vegna alþjóðlegra sambanda mú-
hameðskra ríkja í fjármálum
Áhrifamesti hugmyndafræðing-
ur strangtrúarsinna hefur að líkind-
um orðið Abu ’l-Ala Mawdudi,
enda þótt hann sé miklu minna
þekktur á Vesturlöndum en Kom-
eini og Múhameðska bræðralagið í
Egyptalandi og Sýrlandi. Mawdudi
var Suður-Indverji, fæddur 1903 á
Deccan og lést fyrir fáeinum árum.
Hann var fyrst og fremst afkasta-
mikill rithöfundur, skrifaði á úrdú,
en rit hans hafa verið þýdd á all-
nokkur mál, þar á meðal ensku en
einkum arabísku. Djamaat-i-
Islami, félagsskapur sem hann var
aðalmaðurinn í, hefur að vísu ekki
náð fjöldafylgi, enda þeir einir í
hann teknir, sem að mati fyrir-
manna eru úrvalsmenn og treyst er
til skilyrðislausrar og takmarka-
lausrar hollustu við málstað og
leiðtoga, ekki alveg ósvipað því
sem gerist (eða gerðist) hjá komm-
únistaflokknum, enda kann fyrir-
myndin að skipulagningu félags-
skaparins að vera sótt þangað. En
þrátt fyrir fámennið hefur félags-
skapnum tekist að ná víðtækum áh-
rifum út fyrir sinn eigin hóp, enda
einbeittur og áróður hans skýr í
framsetningu og vel skipulagður.
Zia ul-Haq hershöfðingi, sem
steypti Bhutto 1977, hefur mikla
hliðsjón af Djamaat-i-Islami, og er
félag þetta því síðan áhrifamikið í
Pakistan.
íslamska bræðralagið
Auk Djamaat-i-Islami og hreyf-
ingar Komeinis er Múhameðska
eða íslamska bræðralagið (al-
Ikhvan al-múslimún) sá aðilinn,
scm hvað mest hefur látið að sér
kveða af íslömskum strangtrúar-
samtökum. Bræðralag þetta á
mestu fylgi að fagna í Egyptalandi
og Sýrlandi, sem er að vonum, þar
eð al-Asjarháskólinn í Kaíró var
eitt af upphaflegum. virkjum
strangtrúarhyggju nútímans í ntú-
hameðskum löndum. íslamska
bræðralagið hefur í meginatriðum
svipaða stefnu og skipulag og fylg-
ismenn Mawdudis í Pakistan, en að
nokkru annan ytri svip og baráttu-
aðferðir. Djamaat er tiltölulega
friðsamt, samanstendur einkum af
menntamönnum og leggur mesta
áherslu á skriftir og áróður.
Bræðralagið hefur að nokkru svip
af dultrúarreglum (dervisum) og er
mikið fyrir að beita vopnum. Hefur
það þannig stundað víðtæka
hryðjuverkastarfsemi og áratugum
saman verið stjórnvöldum í Eg-
yptalandi og Sýrlandi mikill höf-
uðverkur. Morðingjar Sadats Eg-
yptalandsforseta voru að líkindum
í tengslum við samtök þessi.
Núverandi valdhafar Sýrlands
eru af trúflokki Alavíta, sem
strangtrúarmenn (og líklega Súnn-
ítar yfirleitt) viðurkenna ekki sem
Múhameðstrúarmenn, heldur líta
ntiklu fremur svo á, að þeir hafi
fallið frá þeirri trú. Petta hefur
hleypt sérstakri heift í viðskipti ísl-
amska bræðralagsins og stjórn-
valda í Sýrlandi. Bræðralagið hefur
reynt að fella stjórn Assads með
morðum og hryðjuverkum og
stjórnin svarað fyrir sig af engri
vægð, enda er hún stöðugt hrædd
unt sig af þeirn sökum, að Alavítar
eru í miklum minnihluta í landinu.
Fyrir skömmu var gerð uppreisn í
borginni Homs, og mun Bræðra-
lagið hafa róið þar undir. Sýrlands-
her, þar sem Alavítar hafa tögl og
hagldir og byggja vald sitt fyrst og
fremst á, barði uppreisnina niður
af mikilli grimmd og var borgin við
það tækifæri að miklu leyti lögð í
rústir. Þúsundir manna kváðu hafa
látið lífið í þeirri viðureign. Þessi
átök hafa og orðið einn liður óald-
arinnar í Líbanon. Sýrlendingar
hafa hlaðið undir þarlenda Alavíta
og má til þess rekja bardagana milli
þeirra síðarnefndu og Múhameðs-
trúarmanna af Súnna í borginni
Trípólís í norðurhluta landsins.
Sennilegt er að íslamska bræðra-
lagið eigi einnig þar hlut að máli.
Einhverjir þræðir kunna að liggja
milli Bræðralagsins og PLO, sam-
taka Palestínumanna; þessir aðilar
eiga sameiginlegan fjandskapinn
við Egyptaland (og að sjálfsögðu
ísrael), auk þess sem sambönd
PLO við Sýrlandsstjórn hafa jafn-
an verið brösótt. En sterkir eru
þeir þræðir varla, þar eð leiðtogar
PLO eru flestir einskonar „verald-
arhyggjumenn" og sósíalistar, auk
þess sem talsverður hluti Palestínu-
manna er kristinn.
Strangtrúarhreyfingar hafa látið
verulega að sér kveða í fleiri ísl-
amslöndum á síðustu áratugum.
Þær náðu til dæmis snemma rniklu
fylgi í Indónesíu og voru þar áhrifa-
miklar fyrsta kastið eftir að það
land varð sjálfstætt ríki. Fólk
áhangandi þeim mun hafa átt
drjúgan þátt í fjöldamorðunum á
kommúnistum þarlendis 1965.
Beðið eftir al-Mahdí
Fylgisnienn Mawdudis og ísl-
amska bræðralagið eru af Súnna,
aðalgrein íslams, Komeini og hans
menn hinsvegar af minnihluta-
greininni Sjía. En það hefur ekki
valdið verulegum ágreiningi milli
Komeinis og hinna. Helst skilur þá
á í skilgreiningunni á „íslamska rík-
inu“. I augum Súnníta er stofnun
slíks ríkis fullnægjandi takmark í
sjálfu sér, en Sjíar telja að það geti
ekki orðið nema bráðabirgðaá-
stand, er standi þangað til al-
Mahdí, frelsari eða Messías Sjía-
manna, komi og stofni hið endan-
lega guðsríki á jörðu. Mikill meiri-
hluti írana játar því að Allah hafi,
að Múhameð látnum, útnefnt
tengdason hans Ali sem ímam,
leiðtoga hinna trúuðu og eftirmann
spámannsins, Ali útnefndi svo nýj-
an ímant sem sinn eftirmann og
svo koll af kolli, uns komnir voru
tólf. Allir voru þeir, samkvæmt
trúnni, fullkomnir og óskeikulir.
Tólfti ímaminn var um sína daga (á
níundu öld) í felurn, enda Sjíar þá
ofsóttir af stjórnvöldum kalífa-
dæmisins. Er því síðan trúað að ím-
am þessi, al-Mahdí, lifi í öðrum
heimi, en muni aftur í fyllingu
tímans og útrýma allri villu í
Islam. Þangað til er gengið út frá
því að hinir trúuðu eigi að hlíta
leiðsögn séfróðra manna á sviði
trúarinnar, úlama, múdjtahída.
Öðlist einhver slíkra óvenju mikla
virðingu meðal hinna trúuðu, og
starfsbræðra sinna sérstaklega, er
hann titlaður mardja eða mardja-í-
taklíd, og er skylt að hlýða fyrir-
mælum hans í einu og öllu, þangað
til al-Mahdí kemur. Ekki er hægt
að útnefna rnardja með formlegri
tilskipan eða kosningu; hann verð-
ur sjálfkrafa að hljóta þá virðingu,
er dugir til tignarinnar, af hálfu
flestra eða allra úlama Imamíta,
bæði í íran og utan þess lands.
Þessar virðingar nýtur Komeini nú
og hafði náð henni þegar nokkru
fyrir fall keisarans, og kraftur sá, er
þeirri virðingu fylgir, varð keisar-
anum að falli öllu öðru framar.
dþ.
Lada 1300
Lada Safír
Lada Canada
Lada Sport
kr. 142.000
kr. 162.000
kr. 192.000
kr. 271.000
Nýir
og
notaðir
bílar
Tökum notaða, vel með farna Lada-bíla upp í nýja
Verð frá kr.
153.000
Bifreiðar og Landbúnaöarvélar hf
Suðurlandsbraut 14 - Sími 38 600