Þjóðviljinn - 22.10.1983, Page 13
Helgin 22.-23. október 1983 ÞJOÐVILJINN - SIÐA 13
Án titils, eftir Henk Visch. Tré og málning, 225 cm. 1982.
þverskurður af hollenskri list er hér
á ferð. En hann er litríkur og
margbrotinn og það er fyrir mestu.
Eini listamaðurinn sem ég kannast
við í þessum unga hópi er René
Daniéls. Hann er liðlega þrítugur,
en hefur þrátt fyrir ungan aldur
áunnið sér mikla frægð sem aðal-
boðberi nýrrar stefnu í hollenskri
myndlist.
Daniéls virðist í fljótu bragði
mjög sveiflukenndur málari. Það
mætti jafnvel væna hann um vissan
óstöðugleik í verkum sínum. Þegar
betur er að gáð kemur í ljós visst
samræmi í þróun hans. En það er
nokkuð villandi fyrir áhorfandann
að nægar upplýsingar skortir um
verkin, t.a.m. ártöl. Daniéls er
nefnilega á góðri leið með að feta
sig frá rómantískum stíl með miklu
og frjálsu litaspili til harðsoðnari
og yfirvegaðri framsetningar. Lit-
urinn heldur þó áfram að vera hans
megin og máttur. Hann þenur
byggingu, mótíf og útfærslu til hins
ýtrasta með hjálp litarins og nær
þar oft undraverðum árangri.
Jean-Paul Franssens er mjög ó-
líkur Daniéls þótt hann sé einnig
málari. Hann er eini virkilegi ex-
pressiónistinn í hópnum og raunar
sá eini Hollendinganna níu, sem
laus er við hugmyndrænt (concept-
uelt) ívaf. Grafísk málaratækni
hans minnir fremur á Alechinsky
og Cobrahópinn en undanfara nýja
málverksins, málarana Roger Ra-
veel og Lucassen. Þá er píetískur
expressiónismi hans, fullur af þem-
um úr Nýja-Testamentinu, frum-
stæður í anda Emils sáluga Node.
Þetta er stórgóður málari og lita-
meðferð hans er sláandi og sterk.
Martin van Vreden er einnig
málari, en sækir stíl sinn til barokk-
skrar fantasíu. Líkt og Daniéls ger-
ir hann sér mat úr einföldum og
hversdagslegum yrkisefnum, sem
hann tilreiðir á óvenjulegan máta.
Erik Andriesse gengur jafnvel enn
lengra. Hann málar blómamyndir,
þá tegund málverks sem er hvað
útþvældust og ómerkilegust. En
með stórum fleti og leikandi til-
þrifum tekst honum að blása nýju
lífi í þessa steindauðu myndgerð.
Frank van den Broeck er
teiknari af guðs náð og bregður
upp liprum og risskenndum krítar-
myndum sem eru nánast eins og
lífrænn gróður, undirorpinn
stöðugum myndbreytingum og
hvörfum.
Upplýstar konur
og sérstædir
myndhöggvarar
Einhver skemmtilegustu verkin á
sýningunni fannst mér vera fram-
lag Marlene Dumas. Verk hennar
eru hugmyndaræns eðlis, full af
ferskum hugleiðingum um stöðu
konunnar og samstöðu hennar
með kynsystrum sínum. Það er
sterk meining í þessum myndverk-
um, sem Dumas setur fram á
skýran og skorinorðan hátt. Þó
fellur hún aldrei í gildru barna-
legrar ítroðslu, heldur leyfir áhorf-
andanum að draga sínar ályktanir
og hugleiðingar af áreitum verk-
anna.
Svipaðs eðlis eru myndir Ansuya
Blom, sem þó er meiri málari og
nálgast myndmálið á huglægari
hátt. Myndraðir hennar, byggðar á
hinum þekkta baráttusöngleik
saxófónmeistarans Archi Shepp
„Atica Blues“, eru í hæsta máta
frumlegar og snjallar. Þar er teflt
saman margvíslegum miðlum og
ólíkum stærðum, sem gefa heild
verkanna magnþrunginn og sam-
stilltan blæ.
Henk Visch og Peer Veneman
eru myndhöggvarar, sérstæðir og
teknískir í senn. Visch notar tré og
málningu í tótemískum verkum
sínum. Höggmyndir hans eru fígúr-
atívar og draumkenndar, áleitnar
og ógnvekjandi í senn. Þær snúast
um náttúruna, tréð, í heimi sem
snúið hefur baki við uppruna sín-
um. Þetta bendir til rómantískar
afstöðu í anda Rousseaus og hlýtur
að standa Hollendingum nær, þjóð
sem býr í svo þéttbýlu og gjörrækt-
uðu landi þar sem lítið er um ó-
spillta náttúru.
Peer Veneman er óhlutbund-
nari, en kemur inntaki verka sinna
vel til skila með óvenjulegri sam-
setningu andstæðra efna. Hann
virðist ekki síður rómantískur, en í
stað náttúruskynjunar setur hann
fram spurningar um menningu og
sögu.
Sýning Hollendinganna er
margbreytileg og fersk. Þó finnur
maður alls staðr hinn hollenska
þráð, næma tilfinningu fyrir mögu-
leikum og frjóa tilraunastarfsemi.
Þessir ungu listamenn sem vart eru
komnir á fertugsaldur sýna að
tengslin við bestu eiginleika hol-
lenskrar listhefðar hafa ekki rofn-
að. Það er óþarft að fjölyrða um
eiginleika þessarar hefðar. Senni-
lega hefur ekkert land átt jafn
breiðan og breytilegan flokk
myndlistarmanna, enda er mynd-
listin sá miðill sem risið hefur hæst
í hollenskum menningarheimi.
Rökhugsun og tilfinningaríki hafa
löngum barist um völdin í þessari
myndhefð og stuðlað að sífelldri
endurnýjun. En fyrst og fremst eru
það löng kynni Hollendinga af
framsækinni myndlist, sem hin
nýja kynslóð byggir á og viðheldur.
Vona ég að gifturíkt framhald
verði á menningarsamstarfi þess-
ara þjóða á sviði myndlistar, því
hún getur ekki annað en opnað
okkur víðari skilning á mögu-
leikum sjónrænna mennta.
íslenskir
rithöfundar rita
Jaruzelski
„Skýlaust
brot á
mann-
réttind-
um“
„íslenskir rithöfundar láta í ljós
megnustu vanþóknun á þeirri á-
kvörðun pólskra stjórnvalda að
ieysa upp Pólska rithöfundasam-
bandið“, segir í bréfi sem rithöfúnd-
ar hafa sent Wojciech Jaruzelski.
í bréfinu sem sent er á vegum
Rithöfundasambands íslands og
Leikskáldafélags íslands segir og:
„Þessi aðgerð er skýlaust brot á
almennum mannréttindum, heftir
eðlilega starfsemi rithöfunda í
landi yðar og ógnar listrænni
sköpun þeirra.
Menningarsaga allra þjóða
sýnir, svo ekki verður um villst, að
bókmenntir eru nauðsynlegar
menningarlífi hverrar þjóðar. Þeg-
ar þér þrengið hag rithöfunda svo
mjög, hlýtur það að vekja miklar
áhyggjur um framtíð pólskra bók-
mennta.
Við skorum því á yður að endur-
skoða nú þegar ákvörðun yðar. Að
öðrum kosti er hætt á að þér vinnið
menningu pólsku þjóðarinnar
óbætanlegt tjón.“
Fyrirspurnir
frá Steingrími:
Gróður-
vernd
og sjónvarp
Steingrímur J. Sigfússon alþing-
ismaður hefur lagt fram eftirfar-
andi fyrirspurn til mennta-
málaráðherra.
1. Hvað er fyrirhugað að gera til
að bæta óviðunandi móttökuskil-
yrði sjónvarps víða í Norður-
Þingeyjarsýslu?
2. Hver er stefna núverandi
stjórnvalda hvað varðar uppbygg-
ingu sjónvarpsendurvarpsstöðva
til að bæta móttökuskilyrði á mið-
unum umhverfis landið?
Einnig hefur Steingrímur lagt
fram eftirfarandi fyrirspurn til
landbúnaðarráðherra:
Hvernig miðar framkvæmd
gróðurverndar samkvæmt lögum
nr. 17/1965, um landgræðslu, með
áorðnum breytingum frá 24. apríl
1982?
1. Hafa gróðurverndarnefndir alls
staðar verið kosnar í samræmi við
þessi lög?
2. Hefur reynst þörf á að grípa til
aðgerða samkvæmt 23. grein áð-
urnefndra laga?
3. Hvernig gengur gerð gróður-
korta og hvenær má ætla að þeirri
vinnu ljúki?
Nú eru fyrirliggjandi hjá hjólbaröasölum
um land allt vetrarhjólbarö-
ar í ílestum stœröum, bœöi venjulegir og
radial.
Öryggiö í íyrirrúmi meö
undir bílnum.
25 ára reynsla á íslandi.
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23, sími 812 99.
Lausar stöður
Heilsugæslulækna
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stööur
heilsugæslulækna:
1. Patreksfjörður H2, staöa annars læknis
frá 1. mars 1984.
2. Þingeyri H1, staöa læknis frá 1. febrúar
1984.
3. Laugarás H2, staöa annars læknis frá 1.
janúar 1984.
4. Vestmannaeyjar H2, ein læknisstaöa af
þremur frá 1. janúar 1984.
Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um
læknismenntun og læknisstörf skulu hafa
borist ráöuneytinu á þar til gerðum eyöu-
blöðum, sem fást í ráðuneytinu og hjá land-
lækni, eigi síðar en 18. nóvember n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir ráðuneytið.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
21. október 1983
kassettur
Siliii ■i 11 sm mMkrnmmiM IHI BHi
Gœði og verð
sem koma á óvart!