Þjóðviljinn - 22.10.1983, Qupperneq 16
16 SIÐA - ÞJOÐVILJINN Hérgin 22.-23. október 1983
dægurmál (sígiid?)
Ég er lifandi
og það getur ekki
verið slæmt
Kinks kom hér á Bítlaæðistímum. Hér eru þeir ásamt íslensku hijóm-
sveitinni Tempó. Ray Davis er fyrir miðju (yfir hægri öxl hans gægist
Þorgeir Astvaldsson).
Kinks hefur nú um nokkurt
skeið verið í hópi virtustu hljóm-
sveita vestan ög austan Atlants-
ála. Hljómsveitin á að baki
langan og stormasaman feril. Þar
sem skipst hafa á skin og skúrir.
Hún hefur gefið út fleiri og betri
hljómplötur en ég hef tölu á og
nýverið leit nýjasta afkvæmi
Kinks, State of Confusion, dags-
ins ljós.
Kinks var stofnuð í Englandi
árið 1964 og náði skjótt miklum
vinsældum með laginu „You Re-
ally Got Me“. Fljótlega fóru
hæfileikar Ray Davies að skína.
Textar hans vöktu mikla athygli,
og einkanlega sá gálgahúmor sem
þar var að finna og fljótlega
skipaði hann sér í hóp með snill-
ingum eins og Bob Dylan og John
Lennon.
Kinks nutu mikilla vinsælda í
upphafi og hversu skringilega
sem það kann að hljóma þá fóru
vinsældir hljómsveitarinnar dvín-
andi samtímis því sem hæfileikar
Ray Davies komu betur og betur
í ljós.
Eftir nokkurra ára öldudal þá
skaut hljómsveitin fram í sviðs-
ljósið á ný lag með hinu sívinsæla
lagi „Lola“. Lagið beindi athygli
manna aftur að Kinks en fljótlega
fór aftur að síga á ógæfuhliðina.
Hljómsveitin lenti í útistöðum
við útgáfufyrirtækið sitt, og end-
aði sú deila með því að Kinks
gerði samning við annað útgáfu-
fyrirtæki.Samhliða nýjum samn-
ing, nýjum plötum, sem flestar
hlutu mjög góða dóma
gagnrýnenda, sneru aðdáendur
hljómsveitarinnar í Englandi
baki við henni.Þeir félagar hrökkl-
uðust þá vestur um haf þar sem
þeir hafa alið manninn síðan, við
góðan orðstír.
Nýjasta plata Kinks, State of
Confusion, er tónlistarlega á eng-
an hátt frábrugðin seinustu
plötum hljómsveitarinnar. Þeir
hafa ef eitthvað er færst örlítið í
átt að „heavy metal“ en það er
varla neitt sem orð er á gerandi,
sem betur fer.
Sem fyrr eru það textar Ray
Davies sem gefa Kinks þann
Ástfangnir lögfrœðingar
Matreiðslumenn -
Matreiðslumenn
Almennur félags- og fræöslufundur veröur
haldinn miðvikudaginn 26. október kl. 15 aö
Óðinsgötu 7.
Fundarefni:
1. Hótel- og veitingaskóli Islands,
Frummælandi Friðrik Gíslason,
skólastjóri.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Þegar Jackson Browne sendir frá
sér brciðskífu fer fíðringur um
gömlu aðdáendurna. Browne á
nefnilega nokkuð marga, trausta
og trúfasta stuðningsmenn sem
ganga með honum í gegnum þunnt
og þykkt. Þetta eru yfirleitt fólk
sem komið er yfír 25 ára aldurs-
mörkin, í daglegu tali kallað hipp-
ar. I vitund margra þeirra hefur
Browne öðiast sess sem einn hinna
„gömlu góðu“.
Browne á langan og litríkan feril
að baki. Hann vakti fyrst á sér at-
hygli upp úr 1970 þegar hljóm-
sveitir eins og Nitty Gritty Dirt
Band og aðrar stórhljómsveitir
þessara ára fóru að leika lögin
hans. Orðspor hans fór fljótiega
vaxandi og það kom að því að hann
gaf út sína fyrstu breiðskífu, sem
eins og síðari plötur hans hafa fékk
afbragðs dóma og viðtökur. Eftir
því sem frægð Brownes jókst fóru
fleiri og fleiri hijómsveitijr og lista-
menn að leika lögin hans. Hljóm-
i sveitir eins og Byrds og Eagles, og
' söngvarar eins og Linda Ronstadt
kassettur
GϚi og verd
sem koma á óvart!
og Joe Cocker. I dag hefur Browne
skipað sér ákveðinn sess sem einn
besti lagasmiður síns tíma.
Nýjasta platan hans Lawyers in
Love kom út fyrir þó nokkru og
geröi þaö bara gott. Á henni má
heyra Browne í öllu sínu gamla
veldi. Tónlist hans og lagasmíðar
hafa ekki tekið miklum breyting-
um í tímans rás. Hann heldur sig á
svipuðum slóðum og fyrr, rólegum
og melódískum. Til að undirstrika
kyrrstöðuna þá notar hann sömu
mennina og hafa leikið með honum
undanfarin ár.
Hér í „dentíð" var ég mjög
heillaður af Browne en hrifningin
hefur farið minnkandi. Því við
þessi „tónlistarbastarðar" sem
„fædd“ erum á mörkum.hippa og
pönktímans erum ekki sérlega
staðföst í trúnni á gömlu goðin.
Dyggustu stuðningsmenn Brownes
og annarra „gamalla góðra“ líta á
það sem persónulega móðgun, ef
einhver vogar sér að hallmæla
gömlu köppunum. Ég held að
Browne sé að sigla inn í höfn
gleymskunnar. Hann er rækilega
staðnaður og varla miklar líkur á
því að sigla út úr þeirri lognmollu
sem umlykur hann.
Öll er platan þræl vel unnin enda
eru færustu „sessionleikarar"
Bandaríkjanna honum innan
handar á þessari plötu. Menn eins
og Russel Kunkel sem hefur
ábyggilega leikið inn á fleiri plötur
en nokkur annar núlifandi
trommuleikari.
Lawyers in Love verður ekki tal-
in í hópi bestu platna Brownes. en
fyrir volga og hálfvolga aðdáendur
er hún fengur og eins fyrir þá sem
eru hrifnir af rólegri og vel unninni
tónlist.
JVS
gæðastimpil sem er á hljómsveit-
inni. Er ég efins um að það til séu
margir textahöfundar sem eru
jafngóðir og Ray Davies.
Hann er sennilegast besti texta-
höfundur dægurlagatónlistar-
innar í dag. A State of Confusion
kemur hann víða við. Hann fjall-
ar um firringu hins daglega lífs,
hið seinvirka kerfi sem við höfum
komið okkur upp, ástina og síð-
ast en ekki síst hjónabandið sem
er „engin ást, aðeins einkaeign".
Textarnir á plötunni eru hreint út
sagt frábærir, og eftir því sem
maður hlustar oftar á þá, þeim
mun betri verða þeir. Hann á
engan sinn líka.
Kinks eru ekki að gera neina
nýja hluti á þessari plötu, þetta
eru allt saman lummur sem við
höfum heyrt áður. En það eru
textarnir sem gera það að verkum
að Kinks rís langt upp fyrir
„vísitöluhlj ómsveitina“. Verður
þessarar plötu sennilega minnst
fyrst og fremst fyrir textana. Það
er gott til þess að vita að engin
ellimörk eru farin að sjást á Ray
Davies og skora ég á alla þá sem
langar til að hlusta á góða texta
að gefa State of Confusion tæki-
færi.
JVS
Vector
Þessi fjölhæfa!
□ I28K minni (stækkanlegt í
256K)
□ Tvær örtölvur: 8 bita Z80B
og 16 bita 8088
□ Stýrikerfi CP/M-86, MS-DOS
og CP/M-80
□ íslenskir stafir skv. staðli
□ Fjölnotendakerfi með LINC-
Network
□ 5, 10 eða 36MB innbyggðir
Winchester diskar
□ Úrval prentara
□ Hugbúnaður:
Fjárhagsbókhald, viðskipta-
mannabókhald, birgðabók-
hald, sölunótukerfi, tollskjala-
kerfi ásamt verðútreikn-
ingum, launabókhald, gjald-
endabókhald f. sveitarfélög,
ritvinnsla, áætlanagerð, fél-
agabókhald (ASÍ) o.fl. Auk
okkar býður Hagtala hf. hug-
búnað fyrir Vector tölvur.
□ Fjölhæfustu tölvurnar á
markaðnum!
MICRO
Síðumúla 8 — Simar 83040 / 83319
Gleymum
ekki
geðsjúkum
29.10.'83