Þjóðviljinn - 22.10.1983, Blaðsíða 27
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27
2. lota áskriftarherferðarinnar í fullum gangi_
Sækið ávísanir strax!
Nú er 2. lota áskriftarherferðar
Þjóðviljans hafm af fullum krafti
og er fólki boðin áskrift að blaðinu
tímabilið nóvember-desember fyrir
aðeins 350 krónur. Er þar með
veittur 150 króna afsláttur frá
venjulegu áskriftarverði dagblað-
anna í dag.
Fyrsta lota þessarar söfnunar
gekk afar vel og bættust um 850
nýir áskrifendur að Þjóðviljanum á
aðeins 6 vikum. Þegar eru fjöl-
margir safnarar á vegum blaðsins
um land allt að störfum, en með
birtingu „ávísunarinnar" nú vill
Þjóðviljinn vekja athygli á þessu
átaki. Allir velunnarar Þjóðviljans
geta sótt ávísanir á afgreiðslu
blaðsins Síðumúla 6 eða flokks-
miðstöð Alþýðubandalagsins
Hverfisgötu 105, ef þeir treysta sér
til að afla áskrifenda í kunningja-
hópnum. Allmargir einstaklingar
söfnuðu í 1. lotu tugum áskrifenda
og verkið vannst leikandi létt eins
og einn þeirra komst að orði í blað-
inu í gær.
Þeir sem vilja gerast áskrifendur
á þessum hagstæðu kjörum geta
einnig haft samband við blaðið,
t.d. strax í dag til hádegis og fram-
vegis á skrifstofutíma, og beðið um
að gerast áskrifendur.
Nú er aðeins rúm vika til
mánaðamóta og forráðamenn
söfnunarinnar hafa sett markið
hátt. Spurningin er hvort tekst að
safna 2000 nýjum áskrifendum að
Þjóðviljanum á tímabilinu 1. sept-
ember til áramóta en undirtektir
næstu daga skera úr um hvort það
mark næst.
-v.
PIOBVIUINN
sími: (91) 81333
Jfr. 000267
KynningaráskrifT^^^ÍÍ-
að Þjódviljanum
nóvember- desember 1983
• Blaö launamanna,
jafnréttis og friðarsinna
• Höfuömálgagn stjórnarandstöðunnar
• N;iuösyn fyrir þá scm vilja fylgjast mcö
og mynda sér sjálfstæöa skoöun
• Fjölbreytt sunnudagsblaö og vikulcgir
blaðaukar. .
Nalu safnani
M 2G7
DJOÐVILIINN
Ég undirrituð/aður óska eftir kynningaráskrift
aö Þjóðviljanum í nóvember ogdesember 1983.
Verö fyrir kynningartímabilið er kr. 350.-
Upphæðin verður innheimt í byrjun desember
Vilji ég ekki gerast ásknfandi Þjóðviljans
frá og með 1. janúar mun ég láta blaðið/
umboðsmann vita í lok desember.
Adda Bára rakti aðdragandann
að því að lögum um Framkvæmda-
sjóð aldraðra var breytt í fyrra,
þannig að nú er bannað að nota
nefskattinn í byggingu hjúkrunar-
heimila. „Þingmenn höfðu þá
greinilega og ekki að ófyrirsynju
hugboð um að svo kynni að fara að
ríkisstjórn kynni að vilja láta nef-
skattinn einan nægja“, sagði Adda,
„en í fjárlagafrumvarpinu 1984 er
hann eina tekjulind sjóðsins.
Ríkisstjómir áttu ekki að komast
upp með að sleppa því að greiða
sitt lögbundna 85% framlag til
byggingar hjúkrunarheimila og
sjúkrahúsa, - nefskatturinn átti að
vera hrein viðbót, ætlaður í vist-
heimili og þjónustuíbúðir. Og
hverjir skyldu hafa haft þennan
brennandi áhuga á að láta ríkis-
stjórnir ekki svíkjast um? Fremstur
í þeim flokki fór Matthías Bjarna-
son, núverandi heilbrigðisráðherra
og í þeim flokki voru hinir sömu
sem nú lækka ríkisframlagið niður í
núll!“
Adda benti á að þessari áskorun
yrði að fylgja eftir af fullum
myndugleika ef von ætti að vera
um árangur. Reykjavíkurborg fór
fram á 34 miljónir í B-álmuna á
næsta ári en nú vantar aðeins hersl-
umuninn til að ljúka annarri hæð
byggingarinnar. Fullbúin mun hún
rúma 172 aldraða langlegusjúkl-
inga og er það mat manna að slík
viðbót muni gerbreyta því neyðar-
ástandi sem ríkt hefur í málefnum
þessa sjúklingahóps.
Leiktækjasölum
fjölgar í borginni:
80 ný
tæki við
Hlemm
Á borgarstjórnarfundi í
fyrrakvöld samþykktu allir
borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins rekstrarleyfi til
tveggja nýrra leiktækjasala,
beggja í nágrenni við Hlemm.
Gerðist þetta þrátt fyrir ítrek-
aðar aðvaranir barnavernd-
arnefndar og tillögu Guðrún-
ar Ágústsdóttur á fundinum
um að hafna rekstrarleyfun-
um eða a.m.k. fresta af-
greiðslu þeirra.
Á borgarstjórnarfundinum
sagði Guðrún Jónsdóttir það á
allra vitorði að á „Billa-grilli“
við Hverfisgötu væru seld
fíkniefni og hefur borgarstjóri
í framhaldi af þeim orðum
beðið Fíkniefnadeildina að
rannsaka sannleiksgildi
þeirrar fullyrðingar.
Nýju staðirnir tveir sem
meirihluti borgarstjórnar
samþykkti í fyrrakvöld eru að
Hverfisgötu 105 og Laugavegi
116. Á Hverfisgötu verða 38
leiktæki á 63ja fermetra
gluggalausu herbergi, sem
ekki tengist veitingarekstrin-
um í kjallaranum eða mynd-
bandaleigu sem þar verður
einnig. Salurinn verður opinn
frá 11-23.30 og kostar 15 kr. í
tölvuspil, 10 krónur í önnur.
Á Laugaveginum eru 10
spil í 43ja fermetra sal tengd-
um sælgætis- og tóbakssölu
sem þar er. Salurinn var opn-
aður í ágúst þrátt fyrir að leyfi
fengist ekki fyrr en nú og þar
kostar 10 og 15 krónur í tækin.
Nýjar starfsreglur sem
borgarstjórn samþykkti í vor
virðast ekki hafa náð þeim ár-
angri sem ætlað var, - s.s. að
setja skorður við þessum
rekstri. Að vísu fækkar
leiktækjum í sjoppum þar sem
þau eiga að vera tengd
veitingasölu, en leiktækja-
eigendur hafa lært á kerfið og
nú fjölgar sölunum óðfluga. 4
nýir staðir hafa verið opnaðir í
nágrenni Hlemms með 80
leiktækjum.
Tillaga Öddu Báru samþykkt:
Áfram með B-álmuna
segir borgar-
stjórn og skorar
einróma á
Albert!
íslenska skáksveitin í
Osló________________
Efst fyrir
síðustu
umferð
Síðasta umferðin í áttalanda-
keppninni í skák í Osló verður tefld
í dag og kljást okkar menn þá við
Danskinn. Fyrir síðustn umferðina
er íslenska sveitin efst á mótinu eftir
drjúgan gærdag.
f gær tefldu Íslendingí r við Fær-
eyinga og sýndu litla vægö, frændur
okkar héldu eftir hálfun vinningi
með jafntefli í skák Marg.árs, aðr-
ar skákir unnu íslending ir. Enn
bættist í íslenska sarpinn þ, gar Jó-
hann Hjartarson vann tvær bið-
skákir sem menn höfðu áður gert
sér um litlar vonir, gegn Norð-
manninum Vibe og Grún frá V-
Þýskalandi.
Fyrir umferðina í dag eru íslend-
ingar með 23 v., Pólverjar með 22,
Danir og Svíar með 21, Þjóðverjar
með 20. Aðrar sveitir eiga ekki
sigurmöguleika. Pólverjar keppa í
dag við Þjóðverja.
hól/m
Borgarstjórn samþykkti sam-
hljóða sl. fimmtudag að skora
á fjárveitinganefnd og þing-
menn Reykjavíkur að breyta
fjárlagafrumvarpi Alberts Guð-
mundssonar þannig að fé fáist
1984 til að halda áfram bygg-
ingu B-álmunnar. Það var Adda
Bára Sigfúsdóttir sem mælti
fyrir tillögunni og tók Páll Gísla-
son, formaður í bygginganefnd
fyrir aldraða undir gagnrýni
hennar á fjárlagafrumvarpið.
Páll sagði m.a. að borgarstjórn
myndi leita til „okkar ágæta fjár-
málaráðherra, sem þekkir þessi
vandamál best, þó hann hafi lagt
fram þetta frumvarp."
Snemma í sumar opnaði Davíð Oddsson fyrstu hæðina í B-álmunni með pompi og prakt. Nú hefur Albert
Guðmundsson lagt til að byggingin verði stöðvuð, en tillaga Öddu Báru um að borgarstjórn sætti sig ekki
þegjandi við slíkt var samþykkt í fyrrakvöld. Ljósm. -aj.
Ihaldið í stjórn Borgarbókasafns
40% haddam á
bókakortum!
Sjálfstæðismeirihlutinn í
stjórn Borgarbókasafns
Reykjavíkur gekk í gær frá til-
lögum sínum um fjárhagsáætl-
un safnsins 1984. M.a. sam-
þykkti meirihlutinn að skírteini
skyldu hækka um 40% og fer
fullorðinsskírteini þá í 140
krónur en barnaskírteini í 35
krónur!
Fulltrúar minnihlutans í stjórn
Borgarbókasafns, þær Kristín
Ástgeirsdóttir og Guðrún Helga-
dóttir bókuðu hörð mótmæli gegn
þessari hækkun. „Við bentum á að
þetta væri óþolandi meðan launum
er haldið niðri í landinu og aðeins
gert ráð fyrir4-6% hækkun þeirra á
næsta ári“, sagði Kristín
Ástgeirsdóttir í gær. „Það eru helst
börn og gamalt fólk sem notfærir
sér þjónustu safnsins og það hefur
komið fram að þessir hópar eru
farnir að veigra sér við að kaupa
kortin á því verði sem þau eru á
núna, hvað þá ef þau hækka um
40%.“
Kristín sagði meginverefni Borg-
arbókasafnsins á næsta ári vera að
ljúka við safnið í Gerðubergi, en
þar stendur húsnæði safnsins
óhreyft tilbúið til innréttingar.
„Það er áætlað að það muni kosta
23,3 miljónir króna að innrétta
húsnæðið og kaupa bækur“, sagði
hún, „og stjórn safnsins stefnir að
því að dreifa því á 2 ár.“ Þess má
geta að Framfarafélag Breiðholts
hefur ákveðið að beita öllum sínum
kröftum á næstunni til þess að ýta á
eftir safninu í Gerðubergi.
-ÁI