Þjóðviljinn - 21.01.1984, Síða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 21.-22. janúar 1984
fréttaskyring
Hún lætur ekki mikið yfir sér
fyrirsögnin í Morgunblaðinu í
gær: „lsfilm færir út kvíarnar".
En fréttin var um þau tíðindi að
hinir ýmsu armar stórauðvaldsins
á íslandi hafa sameinast í einu
fjölmiðlunarfyrirtæki. Það þarf
ekki mikið hugmyndaflug til að
átta sig á þvf, að hér er kominn
vísir að fjölmiðlarisa, „Stóra
bróður“ Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksi ns.
Fjölmiðlasamsteypa þessi hef-
ur lengi staðið fyrir dyrum og
menn sem eru með lítil mynd-
bandafyrirtæki sögðu í gær við
Þjóðviljann að upphaflega hafi
Morgunblaðið og SÍS farið af
stað fyrir tilverknað Svarthöfða,
Indriða G. Þorsteinssonar.
„Hann er eini maðurinn sem get-
ur límt saman tvo stærstu anga
fyrirtækjaveldisins á íslandi“,
sagði góðkunningi hans í viðtali
við Þjóðviljann.
Fyrirtækin Frjáls fjölmiðlun og
ísfilm komu síðar inn í sam-
steypuna. Frjáls fjölmiðlun gefur
út DV, Vikuna, Úrval og fleira.
Fyrirtækið gerðist lögbrjótur
fyrir nokkrum misserum með því
að senda út í gegnum kapal sjón-
varpsefni í Breiðholtinu. Það
gerði fyrirtækið undir nafninu
„Videoson“.
ísfilm erhinsvegar Indriða G.
Þorsteinssonar. Það fyrirtæki
hefur verið pappírsfyrirtæki síð-
ustu árin og á engar eignir. „Vi-
deoson" Frjálsrar fjölmiðlunar
situr uppi með lélegan tækjabún-
að og slæman fjárhag og mun því
hafa tekið tilboðinu um samruna
fegins hendi.
Reykjavíkurborg, sem á einna
vafasamastan hlut að tilurð þess-
arar samsteypu, kemur til með að
hliðra til fyrir kapalkerfi í
Reykjavík. Ef ósvífni borgar-
stjórans í Reykjavík fær að njóta
sín áfram í þessu máli óáreitt,
telja margir ekki ólíklegt að það
skref verði stigið á þessu ári,
1984; Kapalveitur Reykjavikur.
Kosta einn miljarð
Björn Vignir Sigurpálsson,
sem þekkir „videóbransann" út
og inn, sagði við blaðamann
Þjóðviljans í gær: „Það er greini-
legt að menn hugsa sér að kapal-
væða borgina og langtímamark-
miðið er að koma upp sjónvarp-
stöð“. Segir Björn Vignir að kap-
alvæðing í Reykjavík kosti ekki
undir einum miljarð króna.
Hjálmtýr Heiðdal kvikmynda-
gerðarmaður segir að hlutverk
borgarinnar verði trúlega „að
leggja kapalkerfið og auðvelda þá
frakvæmd".
Allir fagmenn sem blaðið
leitaði álits hjá í gær lýstu furðu
sinni á þátttöku Reykjavíkur-
borgar í þessu ævintýri stór-
auðvaldsins.
Einrœðisherrann
léttir af leyndinni
Indriði G. Þorsteinsson rithöf-
undur segir í Morgunblaðinu í
gær að þetta mál hafi verið til um-
ræðu á meðal þessara aðila í hálft
annað ár. Allan þann tíma hafa
fyrirtækin og stofnanirnar
steinhaldið kjafti um málið.
Alvarlegastur er hlutur borg-
arstjórans í Reykjavík Davíðs
Oddssonar. Þessi kjörni fulltrúi í
rekstri fyrirtækja. Tveimur
dögum síðar tilkynnir hann al-
þjóð að borgin stofni fyrirtæki
með Mogganum og SIS. Eru
svona vinnubrögð sæmandi borg-
arfulltrúum Reykjavíkur? Ætla
þeir að láta bjóða sér þetta hátt-
arlag?
Aðalverktakar
íslenska auðvaldið, fjármagns-
öflin í Framsóknarflokknum og
Sjálfstæðisflokknum kræktu
Óskar
saman til varnar og sóknar. Og
með þessari ríkisstjórn hefur
auðvaldið sameinast til nær lát-
lausar sóknar.
Morgunblaðið hefur á stund-
um látið þannig undanfarin ár að
SÍS sé einokunarfyrirtæki, óvinur
Nýir Aðalverktakar hf
Árvakur, SIS, Frjáls fjölmiðlun, Isfilm,
Almenna bókafélagið og Reykjavíkurborg
Sjónvarpsstöð kapítalsins‘?
BÖUJW 'Mm
út kvíarnar
t itnm nýir aAíi
• Stórauðvaldið sameinast í
fjölmiðlasamsteypu # SÍS, DV,
Morgunblaðið og Reykjavlky'
leggja sevrwg 1
\iivit\RS
Hægri
fjölmidla*
mafían í
eina sæng
BorgarráA wttM á fwn<h
i dag afvWAw «,I
horjíarstjora. IhrvjAv Oddsvon,
«m að Ht-ykjíivrttMfbnrtj gerísi
»6ill hlulaíélafi win gerA og
myndbíittda h«ftsaw-
lega kvifcmjada. uuk skyídntr
úiaáfu Ucír uðUttr stm slxwda
Ihaldsöflin emoká
nýjasta vettvang
ísl. fjölmiðlunar
borgarstjórn Reykjavíkur skrifar
undir samninginn áður en opin-
ber umræða hefst, án nokkurrar
lýðræðislegrar umfjöllunar.
Meira en það, hann krefst
Ieyndar þegar hann loks eftir
hálft annað ár í samningum
leggur málið fyrir borgarráð
Reykjavíkur á þriðjudag.
Leyndinni er ekki aflétt fyrr en
á fimmtudag þegar Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir tilkynnir borgar-
stjóra að hún segi upp trúnaði í
málinu. Þá lætur Davíð aðra
borgarráðsmenn vita að trúnað-
inum sé aflétt. Síðan lætur hann
útvarpið hafa viðtal við sig þar-
sem reynt er að gera málið sem
sakleysislegast. Engir aðrir voru
til andsvara.
Á þriðjudaginn lýsti borgar-
stjórinn því yfir að hann væri á
móti því að borgin væri að vasast í
saman klónum á sínum tíma í
svokallaðri helmingaskiptastjórn
Framsóknar og Sjálfstæðis-
flokks. Fyrirtækjasamsteypan ís-
lenskir aðalverktakar, hefur
einkarétt á framkvæmdum fyrir
herinn á íslandi, nýtur tollfríð-
inda og skilar óhemju gróða leynt
og ljóst. Gróðanum af hermang-
inu hafa forkólfarnir síðan skipt á
milli sín.
Ríkisstjórn íslands núverandi
er auðvitað kraftbirting þess sam-
runa semvarð í íslenskum Aðal-
verktökum fyyir mörgum árum.
Helmingaskiptin hafa með þess-
ari ríkisstjórn verið praktiseruð
uppá nýtt.
Á köflum hafa verið
hagsmunaárekstrar hjá hinum
ýmsu örmum íslenska auðvalds-
ins. En þegar heildarhagsmunir
þess eru í húfi taka þeir höndum
ffjálsrar samkeppni, það beri að
stemma stigu við útþenslu þess.
Blaðið hefur notað nokkur tilefni
(þarsem sameiginlegu hags-
munirnir eru ekki í húfi) og
gagnrýnt SÍS fyrir siðleysi og þar
fram eftir götum. Þannig var til
dæmis um styrki til íþróttasam-
banda sem voru veittir með
ákveðnum skilyrðum um að SÍS
fengi auglýsingu út á styrkina.
Það þótti því nokkrum tíðindum
sæta þegar slíkur styrkur var síð-
ast veittur með svipuðum for-
merkjum og áður að Morgun-
blaðið lét einsog nú væri allt í
lagi.
Það kemur enda á daginn að
Morgunblaðið er ekki hræddara
ensvo við „einokunarfyrirtækið
SÍS“ að það leggst í eina sæng
með því í fjölmiðlasamsteypu.
Morgunblaðið hefur því í afstöðu
Guömundsson
skrifar
sinni til SÍS snúist í hring. Einsog
fyrirsögn Morgunblaðsins „ísfilm
færir út kvíarnar" gefur til kynna
skammast blaðið sín fyrir þennan
samruna.
Það er eins með þetta fyrirtæki
og önnur fjársterk „dótturfyrir-
tæki“ SÍS-forstjóranna, að hin fé-
lagslega umræða samvinnu-
hreyfingarinnar er gjörsamlega
hundsuð við ákvörðun málsins.
Almenna bókafélagið er stofn-
að sem andsvar borgaraaflanna í
landinu við Máli og menningu á
sínum tíma. Þetta er dótturfyrir-
tæki Sjálfstæðisflokksins með
þátttöku hægri krata. Fyrirtækið
hefur haft á sér nokkuð menning-
arlegan blæ, og því á þátttaka
þess að vera einskonar menning-
arlegur stimpill á hina nýju Aðal-
verktaka.
Á næstunni mun þjóðin fá að
heyra frá þessum talsmönnum
stórauðvaldsins sem standa að
fyrirtækinu ýmsar kenningar um
það hversu mikið menningarfyr-
irbæri er hér á ferðinni. Þær eru
reyndar strax komnar á loft;
„Sambandið erfyrst ogfremst að
leita eftir - með þátttöku sinni að
auka menningu og fróðleik í
landinu og þá m.a. fróðleik um
samvinnuhreyfinguna“. Og svo á
þjóðin að trúa því að SIS hafi
ekki treyst sér til þess að gera
þetta nema með því að fá til þess
Svarthöfða, Davíð Oddsson og
DV!
Sameiningartákn þessara arma
auðvaldsins sem sameinast í hinu
nýja „sannleiksmálaráðuneyti“,
Indriði G. Þorsteinsson, segir í
viðtali við Morgunblaðið tilgang-
urinn sé að ,jtanda með öflugum
hætti að kvikmyndagerð, mynd-
bandagerð og ýmsu því öðru sem
væri að þróast í fjölmiðlun".
Meðal þess sem er að „þróast í
fjölmiðlun“ eru hugmyndir
Sjálfstæðismanna og Framsókn-
armanna á alþingi að setja fram
frumvarp sem bíður afgreiðslu
um svokallað „frjálst“ útvarp.
Stórkapítalið í landinu sér hag í
því þegar þar að kemur að reka
útvarpsstöð fyrir auglýsingar og
til skoðanamótunar í landinu.
Staðreyndin er nefnilega sú að
markaðurinn er of lítill til að
smáfyrirtæki eða félagasamtök
geti staðið fyrir „öflugum" rekstri
af þeim toga. I framhaldinu er
ejnnig líklegt að „frjáls" sjón-
varpsstöð komi til. Indriði segir í
Mogganum þegar hann er spurð-
ur um sjónvarpsstöð: „Það er
ekki til umrœðu enda standa eng-
in lög í landinu til slíks“. Þetta er
rétt hjá Svarthöfða, þetta er bara
frumvarp ennþá. Auk þess voru
lög í landinu þegar frjáls fjölmiðl-
un sendi út um sjónvarpskaplana
í Breiðholti.
Með hinum nýju Aðalverktök-
um er lýðræðislegri umræðu og
skoðanamótun stefnt í enn meiri
hættu en við þekkjum dæmi um.
~óg
ritstjórnargrcin
Höfnum einokun ífjölmiðlun
Hin nýja fjölmiðlasamsteypa
SÍS, Morgunblaðsins, síðdegis-
blaðsins, Indriða G. Þorsteins-
sonar og Davíðs Oddssonar er
ein harkalegasta aðför að ís-
lenskri menningu sem gerð hefur
verið frá því núverandi ríkis-
stjórn var mynduð enda eru hinir
nýju Aðalverktakar rökrétt
framhald þeirrar stjórnarmynd-
unar.
Það hefur löngum verið á-
hyggjuefni lýðræðiselskandi
manna í landinu að Morgunblað-
ið með síðdegisblaðinu hafi yfir-
burðastöðu í fjölmiðlun. í krafti
útbreiðslu sinnar hefur Morgun-
blaðið og hliðarblöð þess á veg-
um Sjálfstæðisflokksins haft
óhugnanlega mikil áhrif á
skoðanamyndun og umfjöllun
mála í landinu. Morgunblaðið
hefur t.d. í krafti útbreiðslu sinn-
ar verið einsog ritskoðari á ríkis-
fjölmiðlunum einsog dæmin
sanna.
Þótt yfirburðir hægri pressurin1-
ar á fjölmiðlamarkaðinum hafi
verið miklir fram að þessu, þá eru
þeir barnaleikur í samanburði við
það einveldi sem við gætum stað-
ið andspænis á næstu árum með
hinni nýju fjölmiðlasamsteypu.
Innan samvinnuhreyfingarinn-
ar hefur engin opin umræða verið
um þetta mál. SlS-topparnir taka
ákvörðun um að fara í samstarf
og samruna við ævarandi fjendur
samvinnuhreyfingarinnar, ætta-
fjármagnið í Sjálfstæðisflokkn-
um.
Sameiningartákn hinna nýju
Aðalverktaka, Indriði G. Þor-
steinsson, sagði að viðræður hafi
staðið á milli þessara aðila í hálft
annað ár og Reykjavíkurborg
hafi komið inn í myndina eftir
borgarstjórnarkosningarnar í
Reykjavík. Það er táknrænt fyrir
þennan nýja fjölmiðlarisa að eng-
in, alls engin, opinber umræða
hefur farið fram um málið áður
en fulltrúar SÍS og Reykjavíkur-
borgar skrifa undir stofnsamn-
ing.
Stofnsamningurinn er dagsett-
ur 1. desember sl. en það er ekki
fyrr en síðastliðinn þriðjudag að
borgarstjórinn í Reykjavík, sem
er að verða álíka trúður í íslensk-
um stjórnmálum og flokksbróðir
hans Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra, leggur fram málið
til umræðu á lokuðum fundi
borgarráðs. Borgarstjórinn
krafðist aukinheldur leyndar um
þetta mál. Pukrið og leyndin sem
hvílt hefur yfir þessum áformum
stórauðvaldsins og Reykjavíkur-
borgar í hálft annað ár er vís-
bending um þá innrætingu sem
þessir nýju Aðalverktakar koma
til með að veita landi og lýð.
Nýja samsteypan gæti í krafti
forræðis síns yfir gífurlegu fjár-
magni fljótlega skapað sér einok-
unaraðstöðu í upplýsingamiðlun
á íslandi. íslenskir aðalverktakar
á Keflavíkurflugvelli, síðdegis-
blaðið og Morgunblaðið gefa
einnig nú þegar til kynna hvers
konar menning verður fram bor-
in á vegum þessara aðilja.
Þjóðviljinn heitir því á alla
hvar í flokki sem þeir standa að
veita hinum nýju Aðalverk-
tökum viðnám. Launafólk, smá-
atvinnurekendur, samvinnu-
menn, félagshyggjufólk, sósíal-
istar, rithöfundar og listamenn,
allir unnendur íslenskrar menn-
ingar og lýðræðis verða að taka
höndum saman til mótvægis við .
þennan Stóra bróður sem Fram-
sóknarflokkurinn og Sjálfstæðis-
flokkurinn hafa eflt til áhrifa á því
herrans ári 1984.