Þjóðviljinn - 21.01.1984, Síða 16

Þjóðviljinn - 21.01.1984, Síða 16
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 21.-22. janúar 1984 HFA Félagsmálaskóli alþýðu 1. önn 12. - 25. febrúar. 1. önn verður haldin í Félagsmálaskóla alþýðu dagana 12.-25. febrúar nk. í Ölf- usborgum. í aðalatriðum verður starfið með hefðbundnum hætti, en viðfangsefni annarinnar er einkum eftirfarandi: Félags- og fundarstörf, ræðumennska, framsögn, skipulag og starfshættir ASÍ, saga verkalýðshreyfing- arinnar, vinnuréttur, stefnuyfirlýsing ASI, kjararann- sóknir og vísitölur, undirstöðuatriði í félagsfræði og hópefli (leiðbeining í hópvinnu). Námsstarfið fer fram í fyrirlestrum, hópvinnu, og al- mennum umræðum. Flesta daga er unnið frá kl. 09.00 - 19.00 með hléum. Nokkur kvöld á meðan skólinn starfar verða menningardagskrár, listkynningar, upp- lestur og skemmtanir. Einungis félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eiga rétt á skólavist í Félagsmálaskólanum. Hámarksfjöldi á önninni er 25. Umsóknir um skólavist þurfa að berast skrifstofu MFA fyrir 8. febrúar nk. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu MFA Grens- ásvegi 16, sími 84233. Menningar- og fræðslusamband alþýöu Húsnæödsstofnun rikdsins Tæknddedld Laugavegi 77 R Simi28500 Útboó Hvolsvöllur Framkvæmdanefnd um byggingu dvalarheimilis fyrir aldraða, Hvolsvelli, óskar eftir tilboðum í að fullgera fjölbýlishús að innan. í húsinu verða 6 hjónaíbúðir, 8 einstaklingsíbúðir auk sameiginlegs rýmis. Húsinu skal skila fullfrágengnu að innan, 1. desember 1984. Afhending útboðsgagna er áskrifstofum Hvolshrepps og hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins frá mið- vikudeginum 25. janúar 1984, gegn kr. 5000.00 skila- tryggingu. Tilboðum skal skila á sömu staði eigi síðar en þriðju- daginn 14. febrúar 1984 kl. 14.00 og verða þau opnuð að viöstöddum bjóðendum. f.h. framkvæmdanefndar, tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins. Hjúkrunarfræðingur Óskum að ráða nú þegar hjúkrunarfræðing til starfa við Heilsugæslustöðina í Grundarfirði. Gott húsnæði og barnagæsla til reiðu. Allar nánari upplýsingar veita Hildur Sæ- mundsdóttir Grundarfirði í síma 93-8711 og ingibjörg Magnúsdóttir deildarstjóri í heil-. brigðisráðuneyti í síma 28455. Heilsugæslustöðin Grundarfirði. Fagleg ráðstefna verður haldin 17. og 18. febrúar nk. í Veitingahúsinu Tess, Trönu- hrauni 8, Hafnarfirði. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins. Nefndin Nýr flokkur 18 Stefanía Guðnadóttir. Jakobína Sigurðardóttir. Kristján Sigurðsson. Guðmundur Sigurðsson. Fríða A. Sigurðardóttir. Sigrún Huld Þorgrímsdóttir. Halldór Kristjánsson. Guðni Kolbeinsson. Hælavíkurætt Þá er hér kominn lokakafli í niöj- atali Guðna Kjartanssonar (1858- 1931) og Hjálmfríðar ísleifsdóttur (1860-1935) í Hælavík á Horn- ströndum. Að þessu sinni er sagt frá afkomendum Stefaníu í Hæla- vík. Barna innan við tvítugt er ekki getið. le. Stefanía Guðnadóttir (1879- 1973), átti Sigurð Sigurðsson bónda í Hælavík, síðar símstöðvar- stjóra á Hesteyri og loks í Keflavík. Þau áttu 13 böm. 2a. Jakobína Sigurðardóttir (f. 1918) rithöfundur í Garði í Mý- vatnssveit, gift Þorgrími Starra Björgvinssyni bónda þar. Börn þeirra: 3a. Stefanía Þorgrímsdóttir (f. 1950) rithöfundur í Garði í Mý- vatnssveit, gift Hauki Hreggviðs- syni vélvirkja. 3b. Sigrún Huld Þorgrímsdóttir (f. 1952) hjúkrunarfræðingur í Kópavogi, gift Guðlaugi Jóni Bjarnasyni sjómanni og mynd- listarmanni. 3c. Sigríður Kristín Þorgríms- dóttir (f. 1956) tækniteiknari í Rvík. 3d. Kári Þorgrímsson (f. 1959) bóndi í Garði, kv. Jóhönnu Jóns- dóttur. 2b. Sigurborg Sigurðardóttir (f. 1919) , gift Jóhanni Björgvinssyni bónda í Grænuhlíð við Reyðar- fjörð. Barnlaus. 2c. Ásdís Sigurðardóttir (f. 1920) í Rvík, gift Ragnari Jónssyni bílstjóra (þau voru áður búandi í Hólabrekku í Laugardal). Börn hennar: 3a. Guðni Kolbeinsson (f. 1946) ísienskufræðingur og rithöfundur í Rvík, kv. Lilju Bergsteinsdóttur. 3b. Ingveldur Ragnarsdóttir (f. 1953) bankamaður í Rvík, gift Guðmundi Theodórssyni hagfræð- ingi hjá Iðntæknistofnun. 3c. Hilmar Árni Ragnarsson (f. 1955) vélvirki, starfandi hjá prent- smiðju R.víkurborgar, kv. Guð- rúnu Jörgensdóttur. 3d. Stefanía Kolbrún Ragnars- dóttir (f. 1959) háskólanemi. 3e. Sigurður Ragnarsson (f. 1962) nemi í tölvunarfræði, starf- andi hjá Seðlabankanum. 2d. Sigríður Sigurðardóttir (f. Í922) verslunarmaður í Keflavík, gift Björgvin Árnasyni skrifstofu- manni. Börn þeirra: 3a. Sigurður Björgvinsson (f. 1950) kennari í Hafnarfirði, kv. Þórdísi Guðjónsdóttur hjúkrunar- fræðingi. 3b. Svala Björgvinsdóttir (f. 1952) félagsráðgjafi í Keflavík, gift Baldri Kristjánssyni sálfræðingi. 3c. Árni Björgvinsson (f. 1953) bankamaður í Keflavík, kv. Friö- björgu Helgadóttur. 3d. Sveinn V. Björgvinsson (f. 3. hluti 1958) húsasmiður, kv'. Margréti Reynisdóttur húsgagnasmið. 2e. Sigurður Kristinn Sigurðs- son (1923-1934). 2f. Kristján Sigurðsson (f. 1924) yfirlæknir í Keflavík, kv. Valgerði Halldórsdóttur. Börn þeirra yfir tvítugt: 3a. Hildur Kristjánsdóttir (f. 1950) ljósmóðir í Rvík, gift Ingi- birni Hafsteinssyni kaupmanni í Hamrakjöri. 3b. Halldór Kristjánsson (f. 1952) rafmagnsverkfræðingur í Rvík, kv. Jenný Ágústsdóttir tann- lækni. 3c. Sigurður Kristjánsson (f. 1955) læknir, kv. Önnu Daníels- dóttur hjúkrunarfr. 3d. Hjalti Kristjánsson (f. 1958) læknanemi, kv. Veru Björk Ein- arsdóttúr hjúkrunarfr. 29. Ingólfur Sigurðsson (1926- 1971) trésmíðameistari í Rvík, kv. Svanfríði Símonardóttur starfs- stúlku á Borgarspítala. Börn þeirra: 3a. Birgir Ingólfsson (f. 1949) verkamaður í Rvík. 3b. Hrafnhildur Ingólfsdóttir (f. 1952) snyrtisérfræðingur, gift Guðmundi Ársælssyni trésmið í Rvík. 3e. Örn Ingólfsson (f. 1958) sjó- maður í Rvík, kv. Oddnýju Jóns- dóttur. 2h. Baldvin Sigurðsson (f. 1928) verkamaður í Rvík, kv. Halldóru Guðmundsdóttur. Börn þeirra: 3a. Anna María Baldvinsdóttir (f. 1952), gift Hrafni Karlssyni bif- vélavirkja í Rvík. 3b. Garðar Baldvinsson (f. 1954) bankamaður í Rvík. 3c. Baldvin Baldvinsson (f. 1956) sjómaður á Reyðarfirði. 3d. Hafþór Baidvinsson (f. 1957) verkamaður í Rvík. 3e. Sigurður Baldvinsson (f. 1958) verkamaður í Rvík. 3f. Þórir Baldvinsson (1963- 1980). 2i. Guðmundur Sigurðsson (1929-1979) skipasmiður í Kefla- vík. Ókv. 2j. Guðrún Sigurðardóttir (f. 1930), gift Hirti Guðmundssyni kaupmanni í Kópavogi. Börn: 3a. Kjartan Baldursson (f. 1951) starfsmaður Námsgagnastofnunar. 3b. Lilja Hjartardóttir (f. 1953) starfsmaður leikskólá á Hvamms- tanga, gift Magnúsi Aðalsteinssyni bílstjóra. 3c. Sigrún Hjartardóttir (f. 1954) kennari á Ólafsfirði. 3d. Guðmundur Hjartarson (f. 1955) skipasmíðameistari á Akra- nesi. 3e. Stefanía Hjartardóttir (f. 1956) hjúkrunarfræðingur á Akra- nesi. 3f. Gunnhildur Hjartardóttir (f. 1957) starfsmaður Gefjunar á Ak- ureyri, átti Júlíus Kristjánsson, þau skilin. Býr með Gunnari Friðjóns- syni starfsmanni Gefjunar. 3g. Ingibjörg Hjartardóttir (f. 1962) verslunarm. 3h. Skarphéðinn Hjartarson (f. 1963) nemi. 2k. Guðni Kjartans Sigurðsson (1931-1935). ^ 21. Fríða Á. Sigurðardóttir (f. 1940) cand.mag., rithöfundur í Rvík, gift Gunnari Ásgeirssyni yfirkennara í Réttarholtsskóla. Eldri sonur þeirra: 3a. Ásgeir Gunnarsson (f. 1959) líffræðinemi. 2m. Guðný S. Sigurðardóttir (f. 1945) skrifstofumaður í Rvík, gift Hallbirni Björnssyni rafvirkja. -GFr Orlofsbúðir Umsjónarmaður Rekstrarfélag Orlofsbúða, Svignaskarði, vill ráða umsjónarmann við orlofshús verka- lýðsfélaga í Svignaskarði, Borgarfirði. Starfið er fólgið í umsjón með húsunum og umhverfi þeirra. Móttöku orlofsgesta og að- stoð við þá eftir atvikum. Starfstími er frá 1. apríf til 1. október ár hvert. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Iðju, sími 12537 og 16438. Skriflegar um- sóknir sendist á skrifstofu Iðju, félags verk- smiðjufólks, Skólavörðustíg 16, Reykjavík, fyrir 5. febrúar 1984. Orlofsbúðir, Svignaskarði.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.