Þjóðviljinn - 21.01.1984, Síða 28
DJÚÐVIUINN
Helgin 21.-22. janúar 1984
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til fostudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í sima 81663. Prentsmiöjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Sjónvarpsstöð kapítalsins
Davíð skrifar undir
Borgarráð hafnar beiðni um
frestun í 2 vikur til að borgar-
stjórn geti fjallað um málið
Davíð Oddsson borgarstjóri í Reykjavík skrifaði í gær undir samning
um aðild borgarinnar að fyrirtækjasamsteypu „til að annast ýmiss konar
fjölmiðlunarþjónustu“. Auk Reykjavíkurborgar eiga Árvakur, SIS, Al-
menna bókafélagið, ísillm og Frjáls fjölmiðlun aðild að fyrirtækinu.
Aukafundi borgarráðs um málið í gær lyktaði með því að felld var tillaga
Sigurjóns Péturssonar um frestun undirskriftar þar til borgarstjórn hefði
fcngið tækifæri til að fjalla um málið.
Sigurjón og Sólrún Gísladóttir létu bóka andstöðu sína við aðild
Reykjavíkur að þessu hlutafélagi. Bent er á í bókuninni að þegar séu til
fyrirtæki í borginni sem séu fær um að sinna yfirlýstum verkefnum þessa
fyrirtækis, bæði að því er varðar mannafla, tækjabúnað og reynslu.
Þá er bent á að aðilar hlutafélagsins standi fjárhagslega mjög sterkt að
vígi, og hefðu þess vegna ekki þurft á aðstoð borgarinnar að halda.
Dagsetningin 1. desember
Þá er bent á í bókinni að samningsuppkastið sé dagsett 1. desember á
síðasta ári, en borgarráðsmenn hafi fengið það í hendur 17. janúar. Þrátt
fyrir það fáist nú ekki 14 daga umbeðinn frestur á undirritun. Segir í
bókuninni að hér sé um að ræða „vægast sagt einkennilega ráðstöfun af
borgarinnar hálfu“.
-óg
bls. 8
1 WB. 1 ' ''t'? 1
Undirritun samningsins. Frá vinstri: Almenna bókafélagið, Frjáls fjölmiðlun,
Samband íslenskra samvinnufélaga, Indriði G. Þorsteinsson. Ljósm. Atli.
Reykjavíkurborg, Árvakur,
Hjálmtýr Heiðdal kvikmyndagerðarmaður hjá Sýn s/f.i
Er í hœsta máta óeðlilegt
- Miðað við yfirlýstan tilgang
fyrirtækisins þá er það mjög ein-
kennilegt af Reykjavíkurborg að
taka þátt í þessu samstarfi. Það er
stefnt inn á fuilmettaðan markað.
Fyrirtækin scm fyrir eru hafa ný-
lega fjárfest í tækjum fyrir ekki
minna en 10 miljónir, og mér finnst
þetta í hæsta máta óeðlileg aðgerð
af hálfu borgarinnar", sagði
Hjálmtýr Heiðdal kvikmyndagerð-
armaður hjá Sýn s/f.
Það kemur manni spánskt fyrir
sjónir að borgarsjóður geti lagt
fram 2 miljónir í þetta fyrirtæki,
þegar hann gat ekki séð af 250 þús-
und krónum á síðasta ári til að
bjarga frá glötun stórmerkilegri
heimildarmynd um borgina.'
Hjálmtýr sagðist ekki taka mikið
mark á yfirlýstum tilgangi hins nýja
fyrirtækis. Þetta er fyrst og fremst
Hjálmtýr Heiðdal: Kemur
spánskt fyrir sjónir.
spurning um kapalsjónvarp. Þarna
eru fremst í flokki Árvakur fyrir
Morgunblaðið, SÍS fyrir Tímann,
og Frjálst framtak. Hlutverk borg-
arinnar á síðan að vera að leggja
kapalkerfið og auðvelda þá fram-
kvæmd.
Hann vildi einnig mótmæla
harðlega þeim ummælum Davíðs
Oddssonar borgarstjóra í útvarpi í
fyrrakvöld um að kvikmyndagerð
hérlendis væri ekki nógu góð, það
væri einn rökstuðningurinn fyrir
stofnun hins nýja fyrirtækis. Þetta
væri undarleg yfirlýsing. „Það virð-
ist vera þannig að ef maður nálgast
borgarstjórn úr réttri vindátt þá
fæst það sem um er beðið“, sagði
Hjálmtýr Heiðdal kvikmyndagerð-
armaður.
-*g-
Snorri Þórisson: Borgin keppir við eigin skattgreiðendur
Snorri Þórisson hjá Saga-film:
Björn Vignir Sigurpálsson hjá Framsýn:
Ekki heppilegasta
samansafn eigenda
- Þessi fyrirtækisstofnun kemur
ekki á óvart miðað við þróun er-
lendis, blaðafyrirtæki víkka út sína
starfsemi, en það kemur spánskt
fyrir sjónir að borgin skuli taka
þátt í þessu. Það er greinilegt að
menn hugsa sér að kapalvæða
borgina og langtímamarkmiðið er
að koma upp sjónvarpsstöð, sagði
Björn Vignir Sigurpálsson einn
eigenda Framsýnar og kvikmynda-
gerðarinnar Ismynd.
„Það þarf verulegt fjármagn að
koma upp slíkri sjónvarpsstöð og
dreifikerfi. Kapalvæðing í Reykja-
vík kostar ekki undir 1 miljarði.
Þessir stóru aðilar sjá sér hag-
kvæmni í því að slá saman, en sem
fjölmiðlamaður verð ég að segja að
þetta er ekki heppilegasta saman-
safn eigenda upp á skoðunarmynd-
un að gera ef menn fara að velta
fyrir sér pólitííi.
Björn sagði að ef gengið væri út
frá kvikmyndagerð þá óttaðist
hans fyrirtæki ekki þetta nýja fyrir-
tæki. - Ég trúi ekki öðru en að
Davíð láti bjóða út þau kvik-
myndaverkefni sem hann ætlar að
láta vinna fyrir borgina. Við
skulum bíða og sjá hver býður
lægst. Þessir menn hljóta að spyrja
Björn Vignir: Kapalvæðing kostar
1. miljarð.
um hagkvæmni og það eru fyrir
fjölmörg fyrirtæki á markaðnum til
að sinna þessari þjónustu“, sagði
Björn Vignir Sigurpálsson.
-•g-
Borgarstjóri hef-
ur ekki hugsað
dœmið til enda
- Mér finnst ekki annað en eðli-
legt að menn stofni einhvers lags
fyrirtæki í kringum kvikmynda-
gerð, en að borgin taki þátt í slíku
fyrirtæki og keppi þannig við
skattgreiðendur sína, það fæ ég
ekki skilið“, sagði Snorri Þórisson
kvikmyndatökumaður og einn
eigenda Saga-film.
Það kemur ekki á óvart að fyrir-
tæki sem þetta skuli stofnað. Morg-
unblaðið og Sambandið hafa lengi
verið að hóa sér saman og þá er
vitanlega verið að spá í væntanleg-
an sjónvarpsrekstur. En að talaum
kvikmyndagerð sem yfirlýst mark-
mið finnst mér undarlegt því þegar
er nóg til af fyrirtækjum hérlendis í
þeirri grein, nóg til af tækjum og
starfsliði til að framleiða kvik-
myndir. Við í Saga-film er t.d.
nýbúnir að kaupa tæki fyrir miljón-
ir. Annars trúi ég því ekki að þetta
fyrirtæki verði að veruleika. Borg-
arstjóri hefur alls ekki hugsað
þessa hugsun til enda, og sjálfsagt
hefur hann fengið rangar upplýs-
ingar um stöðu þessara mála, ef
reka á þetta fyrirtæki samkvæmt
yfirlýstu markmiði, sagði Snorri
Þórisson.
-»g-