Þjóðviljinn - 19.08.1988, Qupperneq 3
Keppendur í Reykjavíkurmaraþoni verða enn fleiri en sjást á þessari mynd sem tekin var í hlaupinu í fyrra.
Reykjavíkurmaraþon
nýtur vaxandi hylli
Margir stórviðburðir
verða á íþróttasviðinu um
helgina. Islendingar geta
fylgst með stórmóti í hand-
knattleik þar sem Flug-
leiðamótið hefst á laugar-
dag. Þá er Norðurlanda-
mótið í golfi haldið hér á
landi í ár en það sem al-
menningur tekur sjálfur
mestan þátt í er Reykjavík-
urmaraþonið sem fer nú
fram í fimmta skipti við vax-
andi hylli.
Reykjvíkurmaraþonið hefst
kl. 12.00 á sunnudag og eru kepp-
endur því vonandi vel á sig komn-
ir nú. Þátttaka hefur aldrei verið
betri og höfðu um 1200 manns
skráð sig til þátttöku þegar síðast
fréttist og gætu því orðið enn
fleiri. Langfíestir skrá sig í svo-
kallað skemmtiskokk, sem er 7
km að lengd og því kjörið fyrir
fólk sem stundar skokk sér til
heilsubótar. Menn ættu að ráða
vel við þessa vegalengd en aðalat-
riðið er að finna sér hinn rétta
hlaupahraða og láta hraða ann-
arra hlaupara ekki hafa áhrif á
sig- 1
Aðrar vegalengdir eru hálft
maraþon sem er um 21 km og svo
sjájft maraþonið, rúmlega 42 km
vegalengd kennd við samnefnda
borg í Grikklandi. Keppni verður
eflaust harðari í þessum greinum
þó að margir taki þar einnig þátt
án þess að berjast um sæti heldur
keppa eingöngu við sjálfa sig og
klukkuna.
Það má því búast við að
Reykjvíkurmaraþon setji svip á
borgina á sunnudaginn og 17.
júní stemmning ríki í Lækjarg-
ötunni rétt áður en klukkan slær
12.
Flugleiða-
mótið
Á laugardaginn hefst Flug-
leiðamótið í handknattleik og er
það einn síðasti prófsteinn lands-
liðsins áður en það heldur til Seo-
ul. Mótið er sem kunnugt er mjög
sterkt á alþjóðlegan mælikvarða
og ber af öllum mótum sem háð
hafa verið hér á landi.
Eitt af því sem einkennir mótið
er hversu margir keppnisstaðimir
eru og hefur slík handboltaveisla
um allt land ekki þekkst fyrr. Lið-
in leika á Akranesi, Selfossi, Ak-
ureyri og Húsavík, auk Stór-
Reykjavíkursvæðisins, þ.e.
Laugardalshöllinni, Digranesi í
Kópavogi og íþróttahúsinu í
Hafnafirði. Er sjálfsagt að nýta
þessi góðu hús úti á landi undir
keppni eins og þessa og leyfa
landsbyggðinni að njóta þess. Þá
er nauðsynlegt að nota þessi hús
vegna hugsanlegrar heimsmeist-
arakeppni í handbolta 1993 því
mikil reynsla skapast við stórleiki
sem þessa.
íslenska landsliðið leikur þó
eingöngu í Reykjavík og er sú
ákvörðun HSI vel skiljanleg.
Strákarnir hafa verið í gífurlega
erfíðu prógrammi að undanförnu
og hafa ferðir þeirra milli keppn-
isstaða erlendis nærri gengið af
þeim dauðum. Það er því engin
ástæða til þess að gera þeim erfíð-
ara fyrir en nauðsyn krefur og
ætti liðið að ná best saman með
því að leika eingöngu á sínum
vanalegaheimavelli, Laugardals-
höllinni.
Mótherjar íslendinga em engir
aukvisar í faginu og verða fjögur
af sex þátttökuliðum keppendur
á ólympíuleikunum í Seoul.
Fremsta í flokki skal nefna Sovét-
menn, en þeim er undantekning-
arlaust spáð sigri í Seoul. Allir
leikmenn sovéska liðsins em
mjög góðir á alþjóðlegan mæli-
kvarða á meðan önnur lið hafa
þetta 6-7 slíka menn. Þá em
Spánverjar með geysisterkt lið og
hafa íslendingar átt í mestu vand-
ræðum með þá í gegnum tíðina.
Þeir unnu okkur síðast á Spán-
armótinu nú fyrir skömmu, en
Guðjón Guðmundsson, liðsstjóri
landsliðsins, spáir því að Spán-
verjar komi allra þjóða mest á
óvart í Seoul. Tékkar keppa einn-
ig á leikunum í Seoul en þeir
komu ásamt Sovétmönnum upp
úr síðustu B-keppni og hafa nú
mjög góðu liði á að skipa. Sviss-
lendingar era eina B-þjóðin á
mótinu en sjötta liðið er B-lið ís-
lands sem Jóhann Ingi Gunnars-
son stjórnar.
Enda þótt íslenska liðið sé á
heimavelli verður það þrautin
þyngri að sigra á þessu móti og
því ætti landinn að mæta vel á
landsleikina og styðja hressilega
við bakið á sínum mönnum.
Norður-
landamót
Það getur farið svo að Norður-
landamótið í golfi falli lítillega í
skugga handboltans og mara-
þonsins en allir sannir golfáhuga-
menn munu eflaust fylgjast vel
með mótinu. Það fer fram á
Hólmsvelli við Leiru og stendur
Golfklúbbur Suðurnesja, með
Loga Þormóðsson í broddi fylk-
ingar, þar að baki. Völlurinn
skartar nú sínu fegursta og er
jafnframt erfiðari nú en oft áður.
íslensku keppendumir munu
eiga erfitt uppdráttar gegn vel-
þjálfuðum Skandinövum en
möguleikar okkar manna eru
sennilega mestir í einstaklings-
keppninni. Eins og bent var á í
blaðinu í gær eiga Úlfar Jónsson
og Sigurður Sigurðsson, nýbak-
aður íslandsmeistari, mesta
möguleika og hafa þeir skoðað
völhnn mjög vel, eins og reyndar
allir aðrir keppendur íslands. En
við skulum ekki spyrja fyrr en að
leikslokum; veni, vidi, vici, sagði
mætur maður eitt sinn og við
tökum í sama streng. -þóm
NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 3
málning
og lökk
í þúsundum lita, úti og inni,
blandað eftir hinu vinsæla
TINTORAMA-litakerfi, sem
farið hefur sigurför um alla
Evrópu. Gæðin þekkja allir
þeirsemnotað hafa
NORDSJÖ-málningarvörur.
Útsölustaðir:
Reykjavík
Málarameistarinn
Síðumúla8, sími 84950
og 689045
Hafnarfjörður
Lækjarkot sf.
Lækjargötu 32,
sími 50449
Grindavík
Haukur Guðjónsson
málarameistari
Blómsturvöllum 10
sími 92-8200
Keflavík
BirgirGuðnason
málarameistari
Grófinni 7, sími 92-1950
Höfn,
Hornafirði
Kaupfélag Austur-
Skaftfellinga
sími 97-81206
Ðorgarnes
Einar Ingimundarson
málarameistari
Kveldúlfsgötu 27
sími 93-7159
Akranes
Málningarbúðin
Kirkjubraut40
sími 93-12457
Sauðárkrókur
Verslunin Hegri
Aðalgötu 14
sími 95-5132
Einkaumboðfyrirísland;
Þorsteinn Gísiason
heildverslun
Grensásvegi 50, sími 84950