Þjóðviljinn - 16.09.1988, Page 32

Þjóðviljinn - 16.09.1988, Page 32
psó/sía r Eric Roberts í Meffí Menn hafa beðið þess í of- væni að fá að vita hver hin erlenda stórstjarna verði sem mun leika í kvikmynd Hilmars Oddssonar, Meffí. Einsog komið hefur fram þá fjár- magna bandarískir aðilar myndina að miklu leyti en skil- yrðið sem þeir settu fyrir því var að erlend stórstjarna færi með aðalhlutverk í henni. Nú hefur Hilmar gengið frá samn- ingi við leikarann Eric Ro- berts, sem kunnur er hér fyrir leik sinn í Kókakóla- drengnum. Eiríkur þykir einn af efnilegri leikurum af ungu kynslóðinni í Bandaríkjunum og síðast vakti hann athygli í myndinni Páfinn í Greenwich Village, þar sem mótleikari hans er Michael Rough. Hilmar reyndi einnig að ná samningi við Burt Lancaster, þá öldnu kempu, en þar gekk ekki saman og óvíst enn hvort einhver annar kemur í staðinn fyrir hann. íslensku leikararnir eru þeir Hjálmar Hjálmars- son, Þröstur Leó Gunnars- son og Helgi Björnsson, en ung stúlka Ylfa Edelstein, fer með aðal kvenhlutverkið. Ylfa fær ekki að kyssa Eric í mynd- inni heldur verður hún að láta sér Helga nægja, nema hand- ritið verði skrifað um einusinni í viðbót, en það handrit sem nú liggur fyrir er mjög ólíkt því handriti sem lagt var upp með. Tökum hefur verið frest- að um einn mánuð vegna Er- ics og hefjast um mánaða- mótin október / nóvember. Myndin verður bæði tekin upp í Reykjavík og á Miami.B Bjarni situr heima i Eftir að íþróttadeild Ríkisút- varpsins sameinaðist sömu deild Sjónvarps undir stjórn Ingólfs Hannessonar fannst mörgum að illa væri farið með Bjarna Felixson. Bjarni hafði verið nær einráður yfir íþrótt- um Sjónvarpsins en skyndi- lega varð hann aðeins einn af fimm, og nú þurfti kappinn að lýsa í útvarpi líka. Þegar síðan fréttist að Arnar Björnsson og Samúel Örn Erlingsson færu á vegum hinnar samein- uðu deildar til Seoul var mönnum nóg boðið og há- værar raddir heyrðust um að nú væri verið að bola Bjarna greyinu í burtu. Sannleikurinn er sá að Bjarni klúðraði þessu máli upp á eigin trassaskap, því hann sótti aldrei um frétta- mannapláss í Seoul. Það þarf að gera með löngum fyrir- vara, sem þeir Arnar og Samúel gerðu fyrir um ári en þá voru þeir einu starfsmenn íþróttamála hjá Útvarpinu. Það komu því ekki aðrir til greina en þeir tveir og eftir sameiningu deildanna var að sjálfsögðu engin ástæðatil að senda Bjarna sem þriðja mann.B Nasistar á íslandi Þeir bræður lllugi og Hrafn Jökulssynir eru um þessar mundir að leggja síðustu hönd á bók um íslenska nas- ista og starfsemi þeirra á fjórða og fimmta áratugnum. M.a. verða í bókinni viðtöl við marga sem tóku þátt í hreyf- ingu nasista hér á landi á sín- um tíma. Það er bókaforlagið Tákn sem gefur út bókina.B Formannsslagur hjá ungkrötum Samband ungra jafnaðar- manna heldur þing um helg- ina í Keflavík, og verður þar meðal annars kosinn nýr for- maður í stað Hafnfirðingsins Erlings Kristensens. Helst eru nefndir til sögunnar Tryggvi Harðarson, bæjar- fulltrúi í Hafnarfirði af gömlum krataættum (bróðir Ólafs Þ.), og Bfrgir Árnason hagfræð- ingur. Birgir var áður á Þjóð- hagsstofnun og var þá talinn hallur undir Alþýðubandalag- ið, en fór yfir í viðskiptaráðu- neytið þegar frændi hans, Jón Sigurðsson, varð þar ráðherra, og fór skömmu síð- ar að sjást í félagsstarfi hjá ungum krötum. Flokksforyst- an mun styðja Birgi, en hjá ungkrötum og meðal eldri eðalkrata er hrifningin ekki alltof mikil, og þykir halia á gömlu krataættimar, -auk þess sem Hafnfirðingar hafa hefð í formannsstöðunni, -forveri Erlings var til dæmis María Kjartansdóttir Jó- hannssonar stórkrata.B Engjarós Ljúfar kókosköloir með súkkulaðibitum: Hátíðarbragð af hversdagskökum. Dásamlegar súkkulaðikökur með hnetum: Villtir bragðdraumar með kafifi eða mjólk. Menn eru á einu máli um að danska framleiðslumeistaranum okkar, Steen Ludvigsen, hafi tekist vel upp í uppskrift sinni að ENGJARÓSAR-KÖKUM. Þær eru afbragðs góðar og án aukaefna. V/ ■ - “ > ••.. ;■ * \ .» ■* , - -i, • ■ -JJR OSVIKNAR ENGJ Þær eru aíbragðs góðar og án aukaeiha FRÓN FRÓN HF. KEXVERKSMIÐJA SKÚLAGÖTU 28 SÍMI 11400

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.