Þjóðviljinn - 25.11.1988, Page 7

Þjóðviljinn - 25.11.1988, Page 7
Blaðamaður ræðir við Guðmundu Helgadóttur en hún er ein af fyrstu búsetunum að flytja inn í búseturéttaríbúð. Myndin er tekin í fjölbýlis- húsi Búseta í Grafarvogi, í stofunni í þriggja herbergja íbúð á annarri hæð. Guðmunda fær sjálf afhenta eins íbúð 1. desember nk. Einkavæðingin er vitleysa Heimir Ingimarsson: Fyrstu búsetarnir á Akureyri gœtuflutt inn á nœsta ári Búsetamenn hafa gert víð- reist að undanförnu og kynnt húsnæðissamvinnufélags- formið fyrir ráðamönnum víða á landsbyggðinni og hefur komið í Ijós mikill áhugi og eru nú undirbúningsnefndir víða starfandi við að undirbúa stofnun búsetafélaga. Á þremur stöðum á lands- byggðinni eru þegar starfandi búsetafélög, á Akureyri, í Árn- essýslu og í Borgaríirði. Við höfðum samband við Heimi Ingimarsson, hjá Búseta á Akureyri. Heimir sagði að félagið hefði verið stofnað árið 1984 og gengu þá um 130 manns í félagið. Búseti á Akureyri hefur lagt inn gilda umsókn fyrir 12 íbúðir hjá Húsnæðisstofnun og að sögn Heimis er nú verið að ganga frá tilskildum gögnum til þess að senda stofnuninni. Þeir hafa leitað til byggingaaðila á Akur- eyri og kannað hvaða íbúðir eru í framboði núna og á næstunni, því félagið hyggst ekki ráðast í ný- byggingu heldur kaupa tilbúið húsnæði. I ljós hefur komið að rúmlega 150 íbúðir eru og verða á sölu á næsta ári, þannig að fram- boðið er nægilegt. Nú er verið að kanna það sem í boði er og bera saman verð og annað svo hægt sé að gera kaupsamning fljótlega, með nauðsynlegum fyrirvörum t.d. um að félagið fái fyrirgreiðslu hjá Húsnæðisstofnun fyrir þess- um 12 íbúðum. Það er vel hugsanlegt að fyrstu búsetarnir á Akureyri flytji inn á næsta ári. „Ég er ekki í nokkrum vafa um það að búseturéttarfyrirkomu- lagið hentar landsbyggðinni bet- ur en kaupleiguíbúðirnar. Kvað- irnar um fjármögnun í kaupleigunni eru sveitarfélögun- um mjög erfiðar, fyrir utan það að ég á ekki von á að fólk úti á landi kjósi að kaupa íbúðirnar eftir fimm ár einsog kaupleigan býður upp á þar sem markaðs- verð á íbúðum er mjög lágt á landsbyggðinni. Hér á Akureyri er t.d. markaðsverð á eldra hús- næði um 70% af byggingarkostn- aði. Það er því ljóst að kaupleigu- kerfið verður fljótlega ofviða sveitarfélögunum. Þá er ljóst að fyrirtækin munu ekki heldur ráða við þetta einsog ástandið er í dag. Búseturéttarkerfið sækir hins- vegar 15-30% af kaupverðinu til búsetans. Takist okkur að fá fólk inn á þá hugsun að það sé ekkert unnið með því að eiga íbúðina á pappírnum og undirbyggjum þetta af skynsemi, þá er ég ekki í neinum vafa um að búseturéttar- fyrirkomulagið er komið til að vera. Það er vissulega engin þörf á því lengur að geyma peninga í steinsteypu. Einkavæðing hús- næðis er vitleysa sem er komin í ógöngur." -Sáf Búseta- húsið Hús Búseta að Frostafold 20 stendur efst á Grafarholti og er útsýni gott til allra átta. Sérhver íbúð er með svalir í' suðurátt og lýsingu úr tveimur áttum. Það var Valdimar Harðarson, arkitekt, sem hannaði húsið, en vertakafyr- irtækið Hagvirki sá um allar framkvæmdir. Húsið er níu hæðir og í því eru 46 íbúðir, þar af 16 tveggja her- bergja íbúðir 62 fermetrar að stærð, 15 þriggja herbergja íbúð- ir, 78 fermetra stórar og 15 fjög- urra herbergja íbúðir 88 fermetr- ar að stærð. Á fyrstu hæð hússins eru tvær íbúðir og geymslur. Sex íbúðir eru svo á hverri hæð utan á 9. hæð því þar eru tvær íbúðir, samkom- usalur fyrir íbúa hússins og þvott- ahús. Þar eru einnig stórar svalir og er útsýnið þaðan frábært í einu orði sagt, Reykjanesið, Bláfjalla- hringurinn, Mosfellsheiðin, Esjan, Akrafjall og sundin blá. Verðið á íbúðunum er mjög lágt, enda gætt hagkvæmni í alla staði við byggingu hússins. Þann- ig kostar tveggja herbergja íbúð rúmar 3,6 miljónir kórna, þriggja herbergja íbúð rúmar 4,5 miljón- ir og fjögurra herbergja íbúð rúmar 5 miljónir króna. Búseturéttur í tveggja her- bergja íbúð er 543 þúsund og mánaðargjaldið er rúmar 11 þús- und krónur. Búseturéttur í þriggja herbergja íbúð er 685 þúsund krónur og mánaðargjald- ið er 14 þúsund krónur. Búsetur- éttur í fjögurra herbergja íbúð er 761 þúsund krónur og mánaðar- gjaldið 15,6 þúsund krónur. -Sáf Draumurinn sem rættist Rœtt við Guðmundu Helgadóttur, sem er einn þeirra búseta semflyst inn ífjölbýlishúsið í Grafarvogi í byrjun desember Það var mikið um að vera í blokk Búseta að Frostafold 20 í Grafarvogi, þegar okkur bar að garði, enda fáir dagar þar til fyrstu búsetarnirfá afhentar íbúðir sínar. Ein lyfta er í hús- inu og var hún á ferð og flugi. Málarar, dúklagningamenn, rafvirkjar, smiðir og fulltrúar annarra iðngreina þutu íbúð úr íbúð að leggja síðustu hönd á fráganginn. Alls munu um sjötíu manns hafa verið að störfum í húsinu þessa síð- ustu daga, en húsið verður af- hent fullfrágengið á morgun, laugardag. Við vorum þarna staddir til þess að spjalla við Guð- mundu Helgadóttur, en hún er einn þeirra búseta, sem fá íbúð afhenta um mánaðar- mótin. Guðmunda hefur verið með í Búseta frá stofnun hús- næðissamvinnufélagsins fyrir fimm árum og setið lengst af í stjórn þess. Nú er hún í undir- búningsstjórn húsfélagsins að Frostafold. „Við erum að vinna að því að setja saman húsreglur, auk þess sem við erum að koma saman reglugerð um búseturéttarformið, en slík reglugerð er ekki til.“ Enginn íburður Guðmunda sýndi okkur eina íbúðina í húsinu, en sú íbúð hafði verið innréttuð með húsgögnum frá IKEA til bráðabirgða. „Það er enginn íburður hérna, en eins- og sjá má er þetta mjög þokkaleg íbúð.“ Það er hverju orði sannara. íbúðirnar eru 2ja, 3ja og fjögurra herbergja að stærð og öllu hagan- lega fyrirkomið. Það sem þó vek- ur mesta eftirtekt er útsýnið sem íbúarnir munu njóta, því húsið stendur hátt og ekkert sem skyggir á. Guðmunda sagði að vonleysi hefði oft gripið um sig meðal fé- laganna á þeim 5 árum sem liðin eru frá því að Búseti var stofnað- ur 26. nóvember 1983. „Okkur finnst einsog núna sé draumurinn, sem stundum var líkastur martröð, að rætast. Það að þetta skuli vera svona langt komið er eingöngu að þakka ótrúlegri seiglu og fórnfúsu starfi þeirra einstaklinga sem hafa ver- ið í forsvari fyrir Búseta og ég held að ég halli ekki á neinn þó ég nefni Reyni Ingibjartsson sér- staklega." Óöryggi leigjandans Guðmunda hefur búið í leiguí- búð fram til þessa fyrir utan stutt skeið áður en hún skildi við eigin- mann sinn, en þá áttu þau íbúð í verkamannabústað. „Það skiptir mig engu máli hvort ég á íbúðina á pappírnum ef ég fæ að vera í friði heima hjá mér. Ég hef búið í leiguhúsnæði obbann af minni ævi. Eftir að ég skildi hef ég nokkrum sinnum sótt um íbúð í verkamannabústað en ætíð fengið synjun. Það fylgir því mikið óöryggi að búa í leiguhúsnæði. Áður fyrr, þegar börnin mín voru enn ung, þurfti ég að flytja mjög oft, jafnvel árlega, þannig að þetta var gífurlega erfitt og fylgdi því mikið öryggisleysi, einkum fyrir börnin. Nú vona ég að ég fái að vera í friði hér til elliáranna og reikna fastlega með því, þar sem munurinn á búseturéttarforminu og sjálfseignarforminu er lítill sem enginn. Eini munurinn er sá að þú átt ekki íbúðina á pappírn- um heldur bara búseturéttinn og sá réttur erfist til barnanna," sagði Guðmunda Helgadóttir. -Sáf DAIHATSU VOLVO VETRARSKOÐUN í Þjónustumiðstöð, Bíldshöfða 6 Vetrarskoðun frá kr. 4.515,- til kr. 5.343,- Ný símanúmer Skrifstofa & söludeild 68-58-70 ★ Vélarþvottur ★ Hreinsuð geymasambönd ★ Mæling á rafgeymi ★ Mæling á rafhleðslu ★ ísvari settur í rúðusprautu ★ Stillt rúðusprauta ★ Skipt um kerti ★ Skipt um platínur ★ Mæling á frostlegi ★ Vélarstilling ★ Ljósastilling Ný símanúmer Skrifstofa & söludeild 68-58-70 Verkstæði 673-600 ★★★ Efni ekki innifalið Verkstæði 673-600 Varahlutir 673-900 Varahlutir 673-900 Brimborg hf., Bíldsh öfða 6 Daihatsu — Volvo Nýtt símanúmer: 673-600 Föstudagur 25. nóvember 1988 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.