Þjóðviljinn - 25.11.1988, Page 11
Eyðni getur bankað upp á hjá öllum
Þaö er staðreynd að fólk sem smitað er af eyðni á í miklum erfiðleikum
með að halda atvinnu sinni, segir Auður Matthíasdóttir.
Mynd: Jim Smart
Auður Matthíasdóttir: Þó fólk telji útilokað að það fái sjúkdóminn veit
engin nema vinur eða ættingi smitist. Ákveðið hefur verið að stofna samtök
áhugafólks um varnir gegn eyðni
- Það má segja að kveikjan að
stofnun þessara samtaka hafi
verið hingað, koma Bandaríkja-
mannsins Richarts Rectons,
sem Rauði krossinn bauð til
landsins fyrr á þessu ári. Richarts
er smitaður af eyðni og hélt hér
fyrirlestur um sjúkdóminn og af-
leiðingar hans. Á þeim fyrirlestri
lýstu margir yfir því að nauðsyn-
legt væri að stofna samtök
áhugafólks um varnir gegn
eyðni, sagði Auður Matthíasdótt-
ir. Hún hefur ásamt sjö öðrum
lagt mikla vinnu á sig til að ýta úr
vör samtökum áhugafólks um
eyðnivarnir, sem stofna á innan
skamms hér á landi.
- Aðalverkefni svona samtaka
er að fara nýjar leiðir til að upp-
fræða fólk um sjúkdóminn og
stofna til umræðu- og fræðslu-
hópa til að auka þekkingu og
skilning á sjúkdómnum eyðni.
Markmiðið er að gera sem flest-
um ljóst að sjúkdómurinn kemur
öllum við. Þó viðkomandi telji
öruggt að hann smitist ekki, er
aldrei að vita hvenær þessi vá-
gestur bankar upp á hjá vinum
eða ættingjum, sagði Auður en
hún er félagsráðgjafi og starfar
hjá borgarlæknisembættinu
Heilsuverndarstöðinni í Reykja-
vík og sér urn félagslegan stuðn-
ing við eyðnismitaða og aðstand-
endur þeirra.
45 smitaðir
í dag vitað um 45 einstaklinga
hér á landi sem smitaðir eru af
HIV veirunni, karlmenn eru þar í
algerum meirihluta eða 41. Fjór-
ar konur hafa mælst með mótefni
gegn HIV. Flestir hinna smituðu
eru á aldrinum 20 - 29 ára eða 25,
15 eru á aldrinum 30 - 39 ára,
einn er innan við tvítugt og fjórir
fertugir eða eldri. Tæplega helm-
ingur þessa hóps er einkenna-
laus. - Annað aðal verkefni
svona samtaka er að styðja við
bakið á þeim sem hafa smitast, og
og þó þeir hafi ekki fengið nein
einkenni, þá fylgir því gífurlegt
andlegt álag að vita það að einn
daginn veikist maður kannski.
Það er nauðsynlegt að styðja við
bakið á þeim fólki, á sama hátt og
þá sem fengið hafa einkenni. Það
er kannski ekki síður nauðsynlegt
að hjálpa aðstandendum sjúkl-
inganna, sem oft eru ráðvilltir og
skortir kannski vettvang til að
ræða þau vandamál sem þeir
standa frammi fyrir, sagði
Auður.
Áhugahópar á borð við þann
sem nú á að fara að stofna hér-
lendis eiga sér margar fyrirmynd-
ir erlendis og hafa víðast reynst
ómetanlegur bakhjal í baráttunni
við eyðni. Samtökin hyggjast
styðja við bakið á eyðnisjúk-
lingum, ma. með fjársöfnun sem
verður eitt af megin verkefnum
samtakanna. Til að afla fjár hefur
verið ákveðið að halda tónleika í
Háskólabíói nk. miðvikudags-
kvöld. Þar mun koma fram endu-
rgjaldslaust þeir Bubbi Mort-
hens, Hörður Torfason og
Megas, og bera tónleikarnir yfir-
skriftina Bubbi, Hörður og
Megas - gegn alnæmi.. Allur
ágóði af þessum tónleikum renn-
ur beint til þessara væntanlegu
samtaka sem stofnuð verða á
mánudagskvöldið 5. desember í
húsi Rauða krossins við Rauðar-
árstíg.
-sg
Rembingskoss eftir forsetakjör.
Myndir: Jim.
Heyrðu Hermann
erekkikominn
tími til að grípa (taumana.
Jú Snorri,
við höfðum nú stjórn á
mannskapnum í þá gömlu
góðu daga.
Tolli í
Óperunni
Tolli, Þorlákur Kristinsson,
hengir myndir sínar upp á ólík-
legustu stöðum í veröldinni. Síð-
ast fréttum við af honum á Ól-
ympíuleikunum í S-Kóreu og nú
er hann búinn að skreyta veggi
íslensku óperunnar með mál-
verkum sínum. Sýningin opnar á
sunnudag og stendur til 18. des-
ember. Myndin var tekin í gær
þegar Tolli var að hengja upp
myndirnar. Mynd Jim Smart.
Linda fékk
heillaskeyti
Fyrsta formlega eða öllu held-
ur óformlega samþykkt ASÍ-
þingsins var að senda Lindu Pét-
ursdóttur fegurðardrottingu al-
heimsins, heillaskeyti. Það var
Sveinn Gamalíelsson úr Dags-
brún sem bar erindið upp og Jón
Karlsson þingforseti ákvað að
koma þessu áleiðis, án frekari
umræðu eða atkvæðagreiðslu.
Það var greinilegt að ekki voru
allir þingfulltrúar hæstánægðir
með tillögu þessa.
Klipptur, kembdur, þveginn...
Hagmælska á ASÍ-þingi
Alþýðusambandsþingin ein-
kennast ekki bara af þungum, al-
varlegum málatilbúningi og pólit-
fskum plottum, heldur slá menn
þar oft á léttari strengi. Það hefur
löngum verið siður á slíkum þing-
um að kasta fram stökum til
fundarstjóra til upplestrar á þing;
unum og vekja þær að jafnaði
mikla kátínu ef vel er ort.
Þannig urðu úrslitin í forset-
akjörinu á miðvikudag mörgum
hagyrðingnum tilefni til vísna-
gerðar og bárust fundarstjóra
fjölmargar stökur. Þessi kom frá
ónefndum þingfulltrúa.
Hafsteinn Stefánsson, sá mikli
hagyrðingur frá Selfossi, afhenti
fundarstjóra tvær vísur eftir há-
degisferðalag þingkvenna á
þriðjudag.
Körlum er það mikil mæða
mengað líf við þröngan kost.
Þegar frúrnar fá að snœða
fría kássu, brauð og ost.
Kerlingar kviðsettar
kjarnafæði tóku.
Furðulega framsettar
fengu það hjá Jóku.
Siðabrotin sutna hrjá,
síðan öðrum kenna.
Ymsir vildu ekki sjá
Ásmund milli kvenna.
Þessi vísa eftir ónefndan þing-
fulltrúa þótti ein sú besta sem ort
var á þinginu.
Vísar okkur veginn
virtur forsetinn.
Klipptur, kembdur, þveginn
kom hann hingað inn.
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 11