Þjóðviljinn - 25.11.1988, Page 17

Þjóðviljinn - 25.11.1988, Page 17
 síst á óvart ef Sigurbjörn reyndi nú að hverfa aftur með mein- lausum hætti að sinni fyrri rót- tæku, upphöfnu og andlegu for- tíð - að minnsta kosti í orði el- legar á prenti. Hinn andlegi doði samtímans og þráin eftir fortíð sem hafði yfir sér baráttuanda býður upp á slík hamskipti. Skömmu eftir að andblásturs fór að gæta gegn Sigurbirni og hann hafði verið tekinn á beinið í Mogganum, boðaði hann til fundar í Mjólkurstöðinni gömlu og sagðist verða að hætta, börnin sín fengju engan frið í skólanum og það væri farið að veitast að heimili sínu. Skyndilega var hann orðinn píslarvottur. En kannski var þetta píslarvætti hans sprottið af innri þörf eða áhrifum frá Kaj Munk, sem hann hafði verið að þýða á þessum árum. í ræðugerð hans kom fram ým- islegt sem mér fannst vera ósmekklegt, en ég vissi að það átti að hrista upp í fólki. Hann gat notað gróf orð og görótt og hrært þeim saman við guðsorðið. Orð- unum skaut allt í einu upp úr djúpum, kristilegum hugleiðing- um. í bland við þessa smekkleysu örlaði annað veifið á tilhneigingu til væmni. Ýmsir yngri prestar hafa reynt að stæla ræðustíl Sig- urbjarnar, en fæstir komist þar með tærnar sem hann hafði hæ- lana, vegna þess að andagiftina skorti. En öllum hefur þeim tek- ist eitt, að ná væmninni og smek- kleysunum. Hvað um það, á sín- um tíma var séra Sigurbjörn einn af bestu ræðumönnum okkar. - 0 - Að koma til starfa sem prestur, beint frá prófborði, hlýtur að verða mikil þoranraun ungu fólki. Það er ekki nægilega vel undir það búið að takast á við þann margvíslega vanda sem mætir því, ekki nógu þroskað eða lífsreynt til þess að geta horfst í augu við harm lífsins, kvöl og sorg annarra, og er oft ófært um að hugga syrgjendut'við missi ást- vina. Það hefur ekki reynsluna sjálft sökum æsku sinnar. Þannig stendur ungi, nýútskrifaði prest- urinn andspænis hinu óþekkta með ekkert í höndunum annað en prófið sitt og þann bóklega lærdóm sem er á bak við það. Auðvitað væri hægt hér, eins og víða erlendis, að senda prestsefni til starfandi presta og láta þá vinna undir leiðsögn þeirra sem hafa reynsluna. Það væri að sjálf- sögðu ágætt áður en þeir tækjust starfið á hendur einir og hjálpar- laust. Það hlýtur að koma að því hér, eins og annars staðar, að sú fræðsla verði veitt. Ég hef kannski fundið í mér vanmátt minn, æsku og getuleysi andspænis þessum ógurlega vanda, heiðarleika samviskunn- ar, þegar ég ákvað að fara aldrei út í prestskap og taldi að hann yrði mér ofviða. Eitt starf ógnaði mér öðrum fremur - það að þurfa að jarðsyngja menn. En það var líka margt annað í tengslum við prestskap sem var mér fjarlægt, og þess vegna fannst mér að ég væri eins og þjófur sem hefði ver- ið staðinn að verki, þegar ég kom inn í kirkju. Eitthvað í mér hvísl- aði að ég hefði ekkert leyfi til að vera þarna, starfið sjálft væri ætl- að öðrum en mér, mönnum guði kærari og honum handgengnari, sem hefðu verið einslags innan- búðarmenn hjá honum frá blautu barnsbeini. Ég á hér við þá ágætu pilta úr K.F.U.M. og aðra sem höfðu fengið trúarlegri mótun en ég í æsku. En vegir guðs eru ór- annsakanlegir og ég held að hann hafi einmitt ríka þörf fyrir furðu- menn líka, eins og mig og okkur sem vorum ekki úr hinni iöggiltu guðsvinasveit. Kannski fannst mér ég fjar- lægur prestastéttinni vegna upp- eldis míns, vegna þess að ég var alinn upp við aðstæður sem verða ekki beinlínis kallaðar kirkju- legar. Ég hafði farið sárasjaldan í kirkju sem barn og var í þokka- bót haldinn bæði fordómum sós- íalista og andstæðinga sósíalism- ans - þótt það kunni að virðast fáránlegt að einhver sé haldinn í senn eigin fordómum og and- stæðings síns, sem er þó algengt - þeim að sannur, einlægur sósíal- isti megi hvorki né geti trúað á guð eða þjónað kirkju og guði, þótt hann megi rannsaka eðli guðs og trúar, stunda trúar- bragðasögu. Þess vegna var mér mikil hjálp að kynnast manni eins og Sigfúsi Sigurhjartarsyni. í honum sá ég fyrir mér mann sem hafði samein- að hvort tveggja, að vera guð- fræðingur og sósíalisti. Hann hafði ekki hafnað trú sinni, þegar hann aðhylltist sósíalisma, og allt virtist falla í ljúfa löð í huga hans, þannig að úr varð meira jafnvægi og innri tengsl við umhverfi, al- heiminn, trú, félagsmál og menn en virtist vera hjá flestum. Ég kynntist Sigfúsi og við ræddum um þessi mál. Einnig kynntist ég séra Gunnari Benediktssyni sem var sósíalisti en afar ólíkur Sigfúsi í flestu. Hjá mér fór mikill tími í að sætta þetta sem virtust ósættan- legar andstæður: sósíalismi, upp- reisn og róttækni í þjóðfélagsmál- um og svo trúin og guð og undir- gefni við trúna, trúarlotningin. Því að það er staðreynd að á þess- um árum í lífi mínu og íslenska samfélagsins, bæði í huga sósía- lista og afturhalds, var guð hvergi nema á himnum og í Sjálfstæðis- flokknum eða öllu heldur aðeins í honum, af því að með stefnu sinni veitti flokkurinn víst svipað skjól og himnarnir. Flest það fólk sem var handgengið kirkjunni í Hafn- arfirði á mínum uppvaxtarárum var í þeim flokki, svo hið fátæka, róttæka sósíalistastóð varð að standa með trú sína og trúarþörf fyrir utan kirkjuna og gat sjálfu sér um kennt. En kannski var misskilningurinn gagnvart flokkslegri stöðu guðs í íslensk- um stjórnmálum gagnkvæmur misskilningur ríkra og snauðra, eins og oft vill verða í mann- heimum, en vill fara alveg fram hjá mönnum í hita umræðna eða í blindum deilum. Mér fannst Sigfús vera heill og óklofinn í viðskiptum sínum við mannlegt samfélag og viðhorfum sínum til guðdómsins. Aftur á móti verður það ekki sagt um Gunnar Benediktsson, hann hef- ur kannski aðeins náð því að verða heill með því að kljúfa sig með hörku frá kirkjunni. Hann var kaldari og sjálfumglaðari. Ýmsum samherjum Gunnars þótti nóg um „kennimennsku“ hans og umvöndun og fannst illt að sitja undir slíkri typtan á stundum. Einn þeirra var Jó- hannes vinur minn úr Kötlum. Það var eitt sinn að séra Gunnar hafði skrifað eina af sínum ádrep- um vegna nýútkominnar bókar eftir ungan höfund og réðst heiftarlega á þessa ritsmíð og höfund hennar. Þorgeir Þorgeirs- son rithöfundur tók upp hansk- ann fyrir bókina og dró hvergi af sér að venju. Skáldinu úr Kötlum fannst lítið til um hógværð þess- ara snillinga og kastaði fram eftir- farandi stöku í tilefni ritdeilunn- ar: Herra Gunnar hann er maður heldur betur sjálfumglaður, hœrra kemst þó herra Þorgeir, hann er ekkert nema gorgeir. einna best geymdir í rílcisvíxlum vegna öryggis þeirra . ' og hárrar ávöxfunar ‘Eftirá greiddir véxtir; ‘!t t . í Rrkisýíxlar eru mjög gotf tæki,í ' peningastjóriiun fyrirtækja, sfofnana og sjóða, sem þurfa að ávaxta laust fé á öruggan og arðbæran hátt til skémmri tíma.-Að sjáifsögðu'geta einsta^dingar einnig nýtt sér þessá hágstæðú leið tíl fjárfestingár. • Ríkis'víxlar bera nú . 14% forvex.ti á ári, sem- jafngildir 15-,32% eftirá greiddum vöxtum á ári miðað við 90 daga lánS- tíma í senn. Lágmarksfj.árhæð ríkisvíxla er 500.000 kr.;' en getur Verið hvaðá fjárhæð se’m er umfram þáð. ; . • , 15,32% • 15,27% * • 15,22% 15,17% 45 dagar 60 dagar 75 dagar 90 dagar ■ Einnig.er hægt að veljá gjalddaga frá 4’5 dögum - 90 dága: - ’ • . Ríkisvíxiar béra ekkert stimpilgjaid og um skattalega meðferð þeirra giida • sömu reglur og um sparifé í þönkum og spárisjóðum. . Ríkisvíxlar eru til sölu í Seðjabanka íslands. Einnjg er hægt að panta þá í .síma 91-099863, greiðá með C-gíróseðli og fá þá síðan senda í ábyr'gðar pósti. .. . . Léitaðu upplýsipga um fíkisvíxla í • Seðlábarika íslands í síma 91-699863. V . RIKISSJOÐUR ISLANDS W NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.