Þjóðviljinn - 25.11.1988, Page 20

Þjóðviljinn - 25.11.1988, Page 20
BARNAFRÉTTIR Jólagjöfin Bókaútgáfan FORLAGIÐ hefur sent frá sér bókina Jólagjöf- in eftir Lars Welinder. Þar segir frá búálfi, honum Grástakki gamla. Hann átti heima í kofa sem staðið hafði mannlaus árum saman og hann var fjarska ein- mana. Þótt búálfar vilji láta sem minnst á sér bera, þá líður þeim samt best í návist fólks. En dag nokkurn birtist heim fjölskylda í kofanum. Pabbi, mamma og þrjú börn voru komin til sumardvalar. Hvflíkt gleðiefni fyrir gamla bú- álfinn. Og nú tók eitt ævintýrið við af öðru uns Grástakki gamla tókst að gleðja börnin á jólunum með gjöfunum sínum, segir að lokum í frétt frá FORLAGINU. Jólagjöfin er 30 bls., prýdd fjölmörgum litmyndum eftir sænska myndlistarmanninn Har- ald Sonesson. Þorsteinn skáld frá Hamri þýddi söguna. Bókin er prentuð í Svíþjóð. Sagan um sögu IÐUNN hefur gefið út barna- bók eftir Sun Axelsson, skemmti- lega myndskreytta af Sven Nordqvist, sem er íslenskum börnum að góðu kunnur fyrir bækur sínar, Pönnukökutertan, Hænsnaþjófurinn og Veiðiferð- in. Þetta er hlý og falleg saga um vináttu og nærgætni. Þetta er sagan um hana Soffíu litlu, sem býr rétt utan við borg- ina með pabba og mömmu og fjórum systkinum. Það er stund- um mikið að gera á stóru heimili og þá getur verið býsna gott að hafa einhvern til að heimsækja. Það finnst Soffíu að minnsta kosti. Og Anna frænka er nú ekk- ert venjuleg. Hún á alltaf eitthvert góðgæti - en hún á líka annað í pokahorninu sem Soffía kann að meta, og til eru gjafir sem glatast aldrei. Þorsteinn frá Hamri þýddi bókina. Alveg milljón Mál og menning hefur gefið út nýja unglingabók, Alveg milljón, eftir hinn vinsæla höfund Andrés Indriðason. Sagan er um 14 ára strák sem verður vitni að ráni á Laugaveg- inum. Hann hikar við að láta lögguna vita og tekur málin í sínar hendur þegar hann kemst á slóð ræningjanna. Sagt er frá átökum stráksins við skúrkana en jafnframt kemur skólalífið og fjölskyldan við sögu og síðast en ekki síst vinkona sem hann eignast óvænt. Bókin er 190 blaðsíður, unnin í Prentsmiðjunni Odda. Kápu- mynd gerði Brian Pilkington. BARNAKOMPAN Umsjón: KRISTÍN VALSDÓTTIR j ANDRÉS GUÐMUNDSSON Smása!jan Mamma kemur úr baði Það var snemma morguns sem ég vaknaði ótrúlega snemma, samt voru allir vaknaðir, mamma var í baði, pabbi var að skipta á litla bróður. Hann öskraði alveg ótrúlega hátt en svo hætti hann að gráta. Það létti alveg á mér þegar hann hætti. Síðan fór pabbi að fá sér kaffi. Þá skeði það, mamma var að koma fram með bund- ið handklæði á sér. Litli bróðir kom inn með krabba og lét hann skríða. Allt í einu beit krabb- inn mömmu í tána. - Æ, æ Snorri, sagði hún. - Vont, hvað varst þú að gera? - Ekkert, sagði Snorri. - Jú, sagði mamma, þú lést krabbann bíta í tána á mér. Á meðan veltumst ég og pabbi úr hlátri. Loks fór litli bróðir að hlæja og svo fór mamma að hlæja og svo hlógum við öll lengi lengi. Diljá Ámundadóttir 9 ára. Getur þú stækkað I myndina? Með því að teikna inn í einn reit í einu átt þú að geta stækkað myndina og fært hana yfir á stóru rúðurnar. Skoðaðu til dæmis reitinn sem er lengst tii hægri í efstu röðinni og reyndu síðan að teikna eins í sama reit á auðu myndinni. Það er nú það Um þessa helgi hefst jólafastan því næsti sunnudagur er fyrsti dagur í aðventu sem er annað nafn á þessu tímabili fyrir jólin. Orðið aðventa er komið úr lat- ínu, adventus, sem merkir koma, í þessu til- viki koma Jesú Krists. Með aðventunni hefst nýtt ár hjá kirkjunni sem auðvitað byrjar sitt tímatal á mikilvægustu hátíðinni jólunum. Jóla- fastan byrjar alltaf fjórða sunnudag fyrir jól og í gamla daga borð- aði fólk ekki kjöt á föst- unni. Ávallt hafa menn unnið að undirbúningi jólanna með öðrum verkum á jólaföstu. í gamla daga var undir- búningurinn fólginn í því að búa til einhverja fal- lega flík handa hverjum heimilismanni eða með því að huga að jóla- matnum. Auk þess var stundum tekið forskot á sæluna og borðaður aukabiti þegar unnið var langt fram á kvöld í skammdeginu við að Ijúka flíkinni. Jólaföstukrans Aðventukrans er á mörgum heimilum orðinn fast- ur þáttur í undirbúningi jólanna. Á kransinum eru fjögur kerti sem kveikt er á einu í senn á hverjum sunnudegi í aðventu. Kertin hafa nöfn og tákna á- kveðna atburði í jólaguðspjallinu. Fyrsta kertið er Spádómskertið, annað er Betlehemskertið, þriðja Fjárhirðakertið og það fjórða er kallað Englakertið. Margar hugmyndir eru til að jólaföstukrönsum og hérna látum við fljóta með eina einfalda sem ekki eykur á eldhættu. Takið flatan stóran disk og komið fyrir á honum fjórum stöðugum kertum. Hellið síðan dágóðum slatta af hnetum, máluðum steinum eða einhverju fallegu sem ekki brennur á diskinn og allt í kringum kertin. Líka má setja steina í álpappír eða safna mosa til skrauts. 20 SÍÐA - NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 25. nóvember 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.