Þjóðviljinn - 25.11.1988, Qupperneq 27
KYNLÍF
JÓNA INGIBJÖRG JÓNSDÓHIR
Ný kynlífsbylting?
Þessa dagana stendur yfir svo-
kölluð Alnæmisvika sem hefur
það að markmiði að vekja athygli
á þessum sjúkdómi og leiðum til
varna. Ég hef í fyrri pistlum fjall-
að um „öruggara" eða „hættu-
lausara“ kynlíf fyrir þá sem hafa í
hyggju að lifa áfram kynlífi en
vilja draga úr líkum á smiti hjá
sér. Fræðsla og forvarnir í sam-
bandi við alnæmi verður ekki síst
að fjalla um þá möguleika sem
við höfum til að lifa áfram kynlífi.
Með aukinni fræðslu er alrnenn-
ingur vonandi að átta sig á því að
það er ekki kynhneigð sem setur
viðkomandi í hættu á að smitast
af eyðnivírusum heldur hvað við-
komandi gerir í kynmökum. Ég
fjallaði um smitleiðir og varnir í
samlífi í pistlinum: „Að læra að .
vera góður elskhugi" fyrir nokkr-
um vikum. Ef þú kynnir þér og
ástundar „öruggara kynlíf" ertu
nefnilega um leið að læra að
verða betri elskhugi eða ástkona
hvort sem þú ert hommi, lesbía
eða ekki.
Kínverska táknið fyrir krísu
þýðir jafnframt tækifæri. Alnæm-
iskrísan er jafnframt að veita
okkur heilmikið tækifæri í að
endurmeta viðhorf og gildismat
til viðkvæmra málaflokka í
lífsreynslu fólks. Frá upphafi hef-
ur Alnæmi velt við sterkum tabú
umræðuefnum eins og dauða,
kynlífi og samkynhneigð. Það
sem er sárast í þessu sambandi er
samt það að það þurfi lífshættu-
legan sjúkdóm til að opna um-
ræður um kynlíf og kynhegðun
fólks.
Ölum við upp
skíthrædda
kynslóð?
Ég ræddi við fjölmiðlamann-
eskju í gær sem var að velta því
fyrir sér hvort ný kynlífsbylting
væri í uppsiglingu á fslandi. Þegar
ég spurði hana hvers vegna henni
hefði dottið það í hug þá nefndi
hún að það væri verið að halda
námskeið í kynlífi, það ætti að
fara að búa til íslenskar fræðslu-
myndir um kynlíf og það væri
verð að fjalla í meira mæli en
áður um kynferðislegt ofbeldi.
Ég var ekki alveg sammála henni
að eingöngu þessi atriði segðu til
um að „ný kynlífsbylting“ væri í
gangi hér á landi. Það á sér alltaf
stað viss þróun í sambandi við
kynferðismál á hverjum tíma
fyrir sig. Hversu áberandi um-
fjöllun er í fjölmiðlum segir bara
hálfa söguna. Ég hef til dæmis
mikið hugsað út í þá mótun sem á
sér stað núna meðal barna og
unglinga varðandi viðhorf til kyn-
lífs. Ég held því fram að við séum
að ala upp kynslóð sem verður
skíthrædd við að lifa samlífi ef við
förum ekki að snúa við blaðinu
t.d. í sambandi við alnæmis-
fræðslu. Hvað ætli börn og ung-
lingar hugsi þegar þau sjá fjólu-
bláu satínauglýsinguna sem
bendir á að kynmök séu „stund-
um banvæn og stundum ekki“?
Þessi auglýsing á rétt á sér en það
þarf að fara enn nákvæmar ofaní
hlutina um leið og segja að
blöndun líkamsvökva milli ein-
staklinga sé aðalsmitleiðin
þ.e.a.s. ef þú vilt ékki smitast af
eyðni þá á að forðast að fá í sig
sæði eða blóð annars einstaklings
(með því að nota alltaf smokkinn
við samfarir, gleypa ekki sæði og
deila ekki nálum). Það er hægt að
lifa öllu því kynlífi sem maður vill
svo framarlega sem maður fram-
fylgir þessum einföldu fyrirmæl-
um. Þetta þarf líka að heyrast en
gerir það í mun minna mæli en
önnur fræðsla.
Aukum skilning
með alnæmi
Við getum tekið virkan þátt í
að snúa alnæmiskrísunni upp í
tækifæri ef við notum hana til að
auka umburðarlyndi og skilning
manna á milli. Alnæmi olli því að
„öruggara kynlíf“ er núna að
kenna okkur að njóta kynlífsins
betur með því að verða betri elsk-
hugar. Alnæmi hvetur okkur til
gagnrýni varðandi alla óformlegu
kynfræðsluna (vinir, fjölmiðlar).
Við verðum að skoða hvaðan við
fáuin núverandi viðhorf og þekk-
„Hvað ætli börn og unglingar hugsi þegar þau sjá fjólubláu satín-
auglýsinguna?"
ingu með því að auka formlegri
kynfræðslu (í skólum og heima)
svo það geti leitt til aukinnar víð-
sýni og þekkingar. Alnæmi og
önnur „vandamál“ varðandi
kynlíf fólks er li'ka að kenna okk-
ur að missa ekki sjónar á þeirri.
yndislegu tjáningu og upplifun
sem samlíf er. Alnæmi er einnig
að benda okkur á, að gagnslaust
sé að draga kynhneigð fólks í
dilka. Við eigum frekar að spyrja
okkur að því hversvegna við
séum að afneita kynferðislegum
tilfinningum sem búa innra með
okkur öllum. Við megum ekki
hræða líftóruna úr okkur sem
kynverum heldur kynna okkur
möguleikana. Alnæmi er bæði
sársaukafull staðreynd en gagn-
leg lexía í því að vera mann-
leg(ur). Hvort um „nýja kynlífs-
byltingu“ sé að ræða er undir
okkur sjálfum komið.
Örugg forysta Sovétmanna
Sovétmenn hafa nú örugga for-
ystu á ólympíumótinu með 29
vinninga eftir 10 umferðir.
Næstir eru síðan Englendingar
með 25,5 vinninga eftir frekar lé-
lega byrjun. íslendingar hafa 23
vinninga og eru nú í kringum 20.
sæti. Það þykir nokkuð Ijóst að
Sovétmenn verja titil sinn en síð-
ustu umferðirnar verða æsi-
spennandi varðandi næstu sæti.
Ljóst er að við verðum að taka á
honum stóra okkar ef við ætlum
okkur að endurtaka dæmið frá
síðustu leikum þar sem við lent-
um í fímmta sæti. Að sögn Jóns L.
Árnasonar voru menn lúnir eftir
umferðir undanfarinna daga og
var að heyra á honum, er blaða-
maður talaði við hann í gær að
menn væru frídeginum fegnir.
Ekki var Ijóst á þeirri stundu
hverjir yrðu andstæðingar okkar
í 11. umferð. Jón var á því að nú
yrðu menn að fara að taka sig
saman og ná góðum endaspretti.
Það er útlit fyrir að þeir félagar
Kasparov og Karpov ætli að
tryggja gullið fyrir Sovétmenn.
Þeir hafa teflt afskaplega vel þó
að stíllinn sé ólíkur eins og marg-
talað er. Skákir þeirra úr umferð-
inni við Englendinga eru þarna
dæmigerðar. Við skulum gera
þessar tvær skákir að meginefni
dagsins.
Hvítt: Kasparov
Svart: Short
Drottningarbragð
1. c4-eó 5. Bf4-c6
2. Rc3-d5 6. Dc2-g6
3. d4-Be7 7. e3-Bf5
4. cxd5-exd5 8. Dd2
Hugmynd Petrosjans, eftir 8.
íslendingar gætu skotist upp með góðum endaspretti
17
Þeir kumpánar Kasparov og Karpov hafa teflt manna best í Þessalón-
íku.
Annars yrði d-peðið skotspónn
hvíts eftir dxc5, Bg7, Bxfó osfrv.
11. cxd4-a6?!
Heldur hægfara leikur. Til
greina kemur 11. -Rc6 t.d. 12. g4
Be6 13. Bg2 Db6 14. Rge2 0-0-
0!?
12. g4-Be6 15. b3-Hc8
13. Rge2-Rbd7 16. 0-0-Hc6
14. Bg2-Rb6
Svo virðist sem þessi uppbygg-
ing Shorts bjóði afhroð hér. Hvít-
ur hefur hinsvegar einfalda áætl-
un sem er að leika f4-f5. f fram-
haldinu er hvítur ekkert að hugsa
sig um tvisvar heldur einbeitir sér
að kóngsvængnum. í áðurnefndri
skák Karpovs og Kasparovs fór
hvítur að reyna að vinna meira
rými á drottningarvæng sem varð
til þess að Kasparov fékk nægi-
legt spil. Svo virðist sem Kaspar-
ov hafi dregið ályktanir af þeirri
skák.
h3-Rfd7
Ekki er það glæsilegt en svart-
ur hyggst leika f5
18. Rdl!
Riddarinn er á leið til d3 eftir
atvikum.
18. -Hg8
19. Rf2-f5?! 20. Hael!-g5
Hvað annað? Hvítur hótaði
Rf4. Svartur gælir einnig við það
að hvíti biskupinn á h6 lokist inni.
21. gxf5!-BÍ7
Ef21. -Bxf5þá 22. Rg3Be623.
Rg4 Bxg4 24. fxg4 Hxh6 25. Rf5
og vinnur.
22. Rg4-Bh5
23. Rg3!
Bd3 Bxd3 9. Dxd3 Rf6 er staðan
jöfn.
8. -Rf6
í sjöundu einvígisskákinni í
London 1986 lék Kasparov með
svörtu hér 8. -Rd7 og eftir 9. ö
Rb610. e4 Be611. e5! stóð hvítur
betur.
9. £3-c5
Til greina kemur að leika 9.-h5
til að hindra g4 en þannig hefur
Geller haft háttinn á. Hvítur gæti
þá leikið 10. Bd3 Bxd3 11. Dxd3
og Rge2 0-0 og e4 og mundi þá
standa aðeins betur.
10. Bh6!?
Athyglisverður leikur. í skák
milli Petrosjans og Beljavskys
árið 1982 lék hvítur hér 10. Bb5
og eftir 10. -Rc6 11. dxc5 Bxc5
12. Ra4 Be7 lék hann loks 13.
Bh6 en fékk einungis jafnt tafl
eftir 13. -Bd7.
10. -cxd4
að það er mjög erfitt fyrir hvítan
að tefla þessar stöður upp á mikla
vinningsmöguleika.
7. -d5 H. Rxd5-Bxd5
8. cxd5-Rxd5 12. d4-Hc8
9. Bb2-c5 13. Dd2-cxd4
10. Hcl-Rd7 14. Hxc8
Áður hefur sést hér 14. Bxd4
Hxcl 15. Hxcl Da8! og hægt er
að svara 16. Hc7 með Hd8.
14. -Dxc8
15. Dxd4-Rf6!
Annar möguleiki var 15. -Bf6
16. Dd2 Bxb2 17. Dxb2 Db7 og
staðan er jöfn.
16. Hcl-Da6 20. Dd4-Ba3!
17. e3-Dxa2 21. Bxa3-Dxa3
18. Rd2-Bc5 22. Hc7-Bxg2
19. De5-Bd6 23. Kxg2-h6
Hvítur hefur nú fórnaö peöi án
þess að hafa sýnilegar bætur fyrir.
Staða Shorts kann að hafa knúið
á þessa lausn.
24. Rc4-Dxb3
25. Hxa7-Dc2
26. Re5
Ekki 26. Rxb6 Re4 og vinnur
létt.
LÁRUS
JÓHANNESSON
í
abcdefgh
Opnar e-línuna með tempói.
23. -Bxg4 24. Bxg5! o.sfrv.
Svartur gafst því upp.
Á næsta borði tefldu saman
Speelman og Karpov. Sú skák
þróaðist á allt annan veg.
Hvítt: Speelman
Svart: Karpov
Drottningarindversk vörn
1. Rf3-Rf6 5. 0-0-Be7
2. c4-b6 6. Rc3-0-0
3. g3-b6 7. b3
4. Bg2-Bb7
Eftir 7. d4 er komin upp hefð-
bundin staða í þessari byrjun en
hana þekkir Karpov mjög vel.
Speelman reynir að sniðganga
þekktar leiðir, vandinn er bara sá
26. -Re4
27. Rd3-Rd2
28. Re5-b5
29. h4-Re4
30. Rd3-Dc4
31. Dd7-Rd2
32. Hc7-De4
33. Kh2-Rf3
34. Kh3-g5
35. hxg5-hxg5
m A
abcdefgh
Og Speelman gafst upp. Svart-
ur hótar g4 og ef 36. g4 þá Rh4
o.s.frv.
Föstudagur 25. nóvember 1988 NYTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 27