Þjóðviljinn - 03.02.1989, Page 2
Guðbjörg
útskýrir
breytingar
á flokka-
kerfinu
ÉG KÆRI ÞAÐ
FYRIR JAFNRÉTT-
ISRÁÐI
Fimm þúsund Islendingar ná
þrjátíu sjónvarpsdagskrám.
DV
AÐHALDSSEMI í
EILÍFÐARMÁLUM
Ellilífeyrisþegi, 82 ára gamall,
leitar tilboða í ódýrustu jarðarför.
Gert er ráð fyrir líkbrennslu og
öskukeri í hvaða kirkjugarði sem
vera skal.
Auglýsing í þýsku blaöi
HIÐ LJÚFA
SAMHENGI
TILVERUNNAR
Skipti á illskiljanlegri bók um
getnaðarvarnir og barnavagni.
Auglýsing í þýsku blaði
Ég, Skaði, hefi verið að velta fyrir mér þessu rauða villuljósi
sem AA-formennirnir veifa nú framan í nýjungagjarnan lýðinn
eins og einhverri sjaldgæfri bjórtegund. Þeir segjast ætla að
sameina þessar flokkspíslir sínar og ég get ekki neitað því að
eitthvað var ég að klóra mér í skallanum yfir þessu, því mér
finnst ekkert fyndið ef aðrir flokkar færu að belgja sig eitthvað út
og þykjast vera eitthvað í samanburði við minn Sjálfstæðisflokk
sem er borg á bjargi traust eins og menn vita.
Ég fór að tala um þetta við hana Guðbjörgu frænku mína sem
kemur stundum í heimsókn og er með afar skæða Framsóknar-
erfðastofna í blóðinu úr hinni ættinni. Og ég sagði eins og var
að ég hefði nokkrar áhyggjur af þessu brölti í þeim Ólafi Ragn-
ari og Jóni Baldvin.
Iss, sagði Guðbjörg. Getið þið Sjálfstæðismenn ekki gert
eitthvað svipað. Getið þið ekki sameinast Borgaraflokknum?
Það tekur því ekki frænka, sagði ég. Albert farinn og allt það.
Ekki getur Ijónið farið að giftast músinni.
Jæja, sagði Guðbjörg. Þið um það. En þú skalt ekki vera
smeykur við þessa AA-karla. Þar leiðir blindur vesælan, og þeir
munu steyta á steini veruleikans og hrasa og fall þeirra verður
mikið.
Af hverju segirðu það frænka? spurði ég.
Það er mjög einfalt. Helmingurinn af krötum þolir ekki komma
og fer til ykkar í bili. Helmingurinn af kommum þolir ekki krata og
flytur yfir á Kvennó og Framsókn. Afgangurinn sem ætlaði að
verða stór flokkur verður svo lítill flokkur að hann tætist sundur í
ásökunum um það hverjum það sé að kenna.
Þú meinar það, sagði ég hugsi.
Ég meira en meina það frændi, sagði Guðbjörg. Ég er forspá
og framsýn eins og vera ber um dótturdóttur ömmubróður
Jónasar frá Hriflu.
Jæja, sagði ég si sona og lét ekki á því bera að mig langaði til
að trúa á ruglið í kerlingunni.
Já, sagði hún. Sameiningarbröltið í AA-flokkunum verður til
þess að þeir sökkva báðir í kaf eins og hafskip. En það er eins
og segir í fornu kvæði um Völuna, formóður mína: Upp sér hún
koma, öðru sinni. Þegar einstaklingarnir úr þessum flokkum
krafla sig í land eftir óveðrið, þá munu þeir sjá að á ströndu
stendur Framsóknarflokkurinn og formaður hans Steingrímur,
og hann breiðir út sinn breiða föðurfaðm og segir: Komið til mín,
þið sem klofnir eru og tvístraðir og ég mun gjöra yður að einni
hjörð. Þetta var allt á misskilningi byggt hjá ykkur vinir mínir, þið
áttuð alltaf heima hér. Og SÍS mun steikja stykki úr kjötfjallinu
(engin þörf á að slátra alikálfi eins og áður fyrr þegar glataðir
synir sneru heim) og menn munu setjast niður og éta sig glaða
og sátta.
Heldurðu virkilega að þetta geti gengið, Guðbjörg? spurði
ég. Það eru svo miklar andstæður og þverstæður í þessu liði,
það er allt þvers og kruss, út og suður.
Ég get sagt þér það frændi, sagði Guðbjörg: þær andstæður
eru ekki til sem við Framsóknarmenn getum ekki brætt saman í
æðri samhljóm. Allaballar eru á móti Könum og herstöðvum og
markaðshyggju, kratar eru á móti byggðastefnu og pólitísku
handafli í fjármálum. Smámunir væni minn, ekkert nema hég-
ómi og vindgangur. Við Framsóknarmenn hyllum bóndann
hvort heldur hann þraukar af hetjuskap í dreifbýlinu eða kemur
til Reykjavíkur að hvíla sín lúin bein. Við erum hlynntir ábyrgri
herstöðvapólitík þegar alminnilegir menn geta fengið einhver
verkefni við hana, en við tökum ekki í mál að selja ísland
Könum á uppboði. Við erum bæði með samkeppni og á móti
henni því eins og Steingrímur veit þá getur hún verið bæði
skynsamleg og óskynsamleg og þó ekki nema síður væri. Það
er sama hvar þú berð niður, væni minn, við ráðum við þetta allt.
Meira að segja kunnum við tökin á Austurlöndum nær: hefur
ekki Steingrímur kennt ísraelum að rota verðbólguna og er
hann ekki einkavinur Arafats í frægum hugskeytum sem
skjótast um hið pólitíska andrúmsloft heimsins?
Og svo, og svo kemur að ykkur, Skaði minn, sagði
Framsóknarfrænkan með glettinni en þungri illkvittni í röddinni.
Að okkur? spurði ég með uppgerðaráhyggjuleysi.
Já, að ykkur. Framsóknarmenn allra flokka sameinist! Hehe-
he.
Mér varð hugsað til minna manna og ég skildi hvað hún átti
við. Og mér varð ekki um hval... nei fyrirgefið: ekki um sel.
JAFNVÆGI
VERÐUR AÐ VERA
Umferðarslysum fækkaði
verulega á Akureyri í fyrra. Fleiri
kynferðisafbrot og aukið tékka-
misferli.
Fyrirsögn í DV
NÆST VERÐUR
VÆNDIÐ
ÞJÓÐNÝTT
Samtök spilavítaeigenda í
Frakklandi, sem eitt sinn var hinn
ábatasamasti útvegur, hafa
leitað ásjár hjá frönsku ríkis-
stjórninni. Það eru ekki fjárhættu-
spilarar sem eru að setja spilavít-
in á hausinn heldur dræm að-
sókn.
Morgunblaðió
EÐA EINS OG
NJÁLGURí
YFIRLIÐI?
Og sjálft Samband íslenskra
samvinnufélaga er nú eins og
risaeðla í megrunarkúr.
Morgunblaðið
Æ HVAÐA SKRAMBI
Hafa bækur af ýmsu tagi yfir-
tekið þann litla tíma sem fólk virð-
ist almennt eyða í bóklestur.
Morgunblaðið
AF KVENNAVELDI
Hinn fullkomni hirðmaður for-
sætisráðherrans (Margaret
Thatcher) á að vera um fimmtugt.
Hann á að vera sjarmerandi og
kunna að slá gullhamra. Hann á
helst að vera fallegur, gjarna
með gráar strípur í hárinu. Hann
verður að vera duglegur og
vinnusamur, en ekkert endilega
gáfaður. Umfram allt á hann að
trúa á Guð, fjölskyldulíf, peninga
og Margaret Thatcher.. og gjarna
í öfugri röð.
Alþýðublaðið
2 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 3. febrúar 1989'