Þjóðviljinn - 17.02.1989, Page 20
Umsjón:
KRISTÍN VALSDÓTTIR
ANDRÉS GUÐMUNDSSON
BARNAKOMPAN
Einu sinni fyrir langa löngu
var konungsríki. Þar var einn
kóngur og ein drottning. Þau
áttu eina kóngsdóttur og einn
son og tíu þjóna og tvö hirðfífl
og hundrað riddara. En þar
skammt frá bjó dreki sem var í
riddarabúningi og hafði þjón
sem varskógarbjörn. Kóngur-
inn lét senda níutíu og níu
þjóna til drekans. Þegar ridd-
ararnir komu aftur heim voru
þeir klóraðir, fótbrotnir, hand-
leggsbrotnir og með magasár
og tannpínu. En þá sagði
prinsinn. - Láttu hirðfíflin fara
til þeirra og skemmta þeim
svo þeir deyi úr hláturskasti.
Þá sagði kóngurinn. - Það er
góð hugmynd.Þá kallaði kóng-
Ævintýri
lönqu 3r
urinn á þjónana sína og bað
þá að sækja hirðfíflin sín.
Hann sagði við þau: - Farið út
í helli þar sem drekinn á
heima, þið vitið drekinn í ridd-
arabúningnum með björn fyrir
þjón og skemmtið þeim svo
vel að þeir deyi úr hlátri.
Þessir spörfuglar sitja syngjandi á símalínum og bíða eftir að einhver kasti fyrir þá korni. í
hópnum eru tvíburar sem líta alveg nákvæmlega eins út. Getur þú fundið þá?
20 SIÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Fimmtudagur 16. febrúar 1989
1
Þessi stelpa heitir Gréta og er að æfa hundinn sinn sem heitir
Flekkur í að hoppa hátt. Þá kemur stóri bróðir hennar ríðandi á
hestinum sínum sem heitir Sprettur. Þá stoppar Sprettur og
reynir að éta beinið sem Gréta notar til að láta Flekk hoppa
hærra. Sprettur nær því sem betur fer ekki, en þótt enginn viti er
Gvendólína kisa að njósna.
Sunna Björg Símonardóttir 9 ára
Guðný Jónsdóttir 8 ára sendi þessa mynd af hesti úti í haga á
sumardegi.
Þennan hest teiknaði Gylfi Jónsson 5 ára.
Matardagar og
gamlir mánuðir
Við höfum sagt frá gömlum og nýjum mánaðaheitum hér í
Barnakompunni. Nú er að koma að nýjum mánuði samkvæmt
gamla tímatalinu. Það er Góa sem tekur við af Þorra. Góa er
fimmti mánuður vetrar en ekki vita menn hvaðan nafnið er
dregið. í gamalli sögu er sagt frá Þorra kóngi sem átti hana Góu
fyrir dóttur. Eitt sinn bar það til tíðinda á þorrablóti að stelpan
Góa hvarf og fannst ekki þó að leitað væri að henni. Þá hélt
Þorri karlinn Góublót til að fá vitneskju um hvar Góa sín væri
niður komin. Nú eru nýliðnir miklir matardagar og gleðskapur á
öskudag. Bolludagur dregur nafn af bollunum og sprengidagur
af þeim sið að sprengja sig af saltkjöti. Öskudagur dregur nafn
sitt af katólskum helgisið. Presturinn gerir krossmark á enni
sóknarbarna sinna og notar til þess ösku. Allir þessir dagar eru
svo til komnir vegna föstunnar sem byrjar á öskudag. Fastan
stendur í 40 daga eða alveg til páska. A föstunni borðaði fólk
ekki kjöt og þess vegna át fólk oft yfir sig síðasta daginn fyrir
föstu, sprengidag.