Þjóðviljinn - 17.02.1989, Blaðsíða 27

Þjóðviljinn - 17.02.1989, Blaðsíða 27
KYNLIF JÓNA INGIBJÖRG JÓNSDÓniR Þurr leggöng Kœra Jóna. Ég þakka þér greinar þínar, framtak og frœðslu í kynferðis- málum, sem flestir þurfa á að halda, en flestir fara með sem pukurmál. Þú átt heiður skilið fyrir hugrekki þitt. Mikil þörf vará slíku hér. Við hjón erum komin af léttasta skeiði, - tœplega sextug. - Spurn- ing: Hvaða smyrsl er best að nota við upphaf samfara? Þ.e.a.s. skaðlaus. Þetta er farið að há okk- ur, að líkindum vegna aldurs. Með bestu kveðjum, K.H.999 Svar: Ég þakka ykkur fyrir hlý- leg orð í minn garð. Ég geri ráð fyrir að þið eigið við að kynfæri konunnar blotni ekki nóg og hvað sé þá til ráða. Eitt greinilegasta merki um að konan sé byrjuð að örvast kynferðislega er blotnun leggangnanna. Við aukið blóðflæði til kynfæravefj- anna þrútna kynfæravefirnir en við það „lekur“ bleyta út um veggina í leggöngunum. Margir halda þess vegna að ef kynfæri konunnar eru rök að þá sé hún „tilbúin“ fyrir samfarir en það þarf ekki að vera. Að hún sé orð- in blaut er aðeins byrjunarmerki um kynferðislega örvun. Áfram- haldandi kelerí eða forleikur (segir ekki orðið til um hvað aðal- atriðið er!) er nauðsynlegt áður en konan er nálægt fullnægingu. Staðreyndin er nefnilega sú að langflestar konur fá ekki fullnægingu með samfaraörvun eingöngu. Örvun á ytri kynfæri - þá aðallega snípinn þarf yfirleitt að koma til. Að kona geti fengið fullnægingu með samfaraörvun- inni eingöngu er svipað og ef karlmaður ætti að fá fullnægingu ef kona togaði létt í forhúð karlsins og hreyfði hana með tveimur fingrum fram og aftur. Þannig að ein ástæðan fyrir þurr- um leggöngum getur hreinlega verið of lítil eða stutt örvun. Þessu atriði er alltof oft horft framhjá. En því miður verður það að segjast að þó svo karlinn vildi vera blíður og tillitssamur við hana og gæla vel við hana áður en samfarir hefjast þá finnst sumum konum óþægilegt að fá athygli lengur en „venjulega". Þetta getur valdið kvíða og þar er örugg leið til að drepa niður kyn- svörun líkamans. Þannig neita sumar konur sér um þá örvun sem þær þurfa og langar í. Það sem málið er þá farið að snúast um er sjálfstraust konunnar - að henni finnist hún eiga það alveg skilið að fá þessa væntumþykju og athygli. Munnvatn og smyrsl Margar aðrar ástæður geta valdið þurrum leggöngum. Það er rétt hjá ykkur að hár aldur get- ur valdið minni blotnun. Eftir tíð- ahvörf minnkar oft framleiðsla estrogen kvenhormóma en það getur valdið breytingum í legg- angnaslímhúðinni. Einnig missa veggirnir í leggöngunum nokkuð af teygjanleika sínum í ellinni og gefa leggöngin ekki eins vel eftir við samfarir. Þetta eru eðlilegar breytingar í líkamanum. Við þessar aðstæður þarf konan jafnvel enn lengri tíma en áður til Konur þurfa góða örvun. örvunar svo hún blotni nóg. Ef aukin örvun nægir ekki bregða sumir á það ráð að nota munnvatn sem sleipuefrii, en ef ykkur langar ekki til þess er hægt að kaupa rakasmyrsl. K-Y raka- smyrslið er ágætt en það fæst í flestöllum apótekum, er vatns- leysanlegt og talið skaðlaust til notkunar. Ég mæli ekki með að nota vaselín - það er fituleysan- legt og getur eyðilagt gúmmí sem það kemst í snertingu við eins og t.d. smokka. Ef hvorki aukin ör- vun, munnvatn eða rakasmyrsl duga geta estrogen leggangastflar kannski hjálpað en þá þarf kven- sjúkdómalæknir að ganga úr skugga um nauðsyn á þesskonar úrræði. Ýmis lyf s.s. ofnæmislyf eða róandi lyf, sjúkdómar einsog sykursýki og leggangasýkingar geta einnig valdið leggangaþur- rki. Ég vona að þessar upplýsingar geti hjálpað ykkur við að skoða hvað sé að í ykkar tilviki og hvað þið getið gert til að gera ykkar samlíf ánægjulegra. Hafi lesendur áhugaá að fá svör við ýmsum spurnlngum um kynlíf geta þeir sent inn bréf undir dul- nefni. Bréfið skal merkt: Kynlíf, Nýtt Helgarblað, Þjóðviljinn, Síðu- múla 6,108 Reykjavík. Timman, Karpov, Speelman og Jusupov komust átram. Timman komst áfram á síðasta snúningi Jan Timman, Anatoly Karopv, Johathan Speelman og Arthur Jusupov komast áfram í næstu hrinu áskorendakeppninnar eftir síðustu tíðindi. Lengi vel var út- litið annað en bjart fyrir Jusupov og Timman en heilladísirnar voru á þeirra bandi. Spragett veitti Jusupov harðvítuga mótspyrnu. Hann komst yfir í einvígi og eftir átta skákir var staðan jöfn, 4:4. í hraðskákunum reyndist Jusupov sleipari. Hann vann strax og komst áfram og má það teljast verðskuldað því Spragett var í áskorendakeppninni sem gestur og þess ekki vænst að hann gerði slíkan usla sem raun varð á. Jus- upov hefur verið í öldudal upp á síðkastið og er ekki búist við að hann veiti Karpov harða keppni. Einvígi Portisch og Timman var e.t.v. það skemmtilegasta. Timman setti niður vænlegar stöður í þrem af fyrstu fjórum skákunum en í fimmtu skákinni sneri hann dæminu við, vann og síðan einnig lokaskákina. Tim- man ætti að eiga betri möguleika gegn Speelman í sumar en þessi tvö einvígi fara fram samhliða í London. Það borgar sig hinsveg- ar ekki að afskrifa Speelman. SKÁK HELGI ÓLAFSSON Honum var ekki spáð of háu 14. b4 Rc8 29. Rf2 Da4 gengi gegn Short og Seirawan en 15. Dd3 Dc7 30. g3 a6 getur státað af 75% vinningshlut- 16. Be2 e5! 31. b6 Hdc8! falli í þessum einvígjum. 17. bxc5 dxc5 32. b7 Hxc6 Hér kemur fimmta skák Port- 18. f4 b5 (Hvítur hefur algerlega isch og Timman, skákin sem í 19. Hxb5 Rd6 þráðinn.) raun réði úrslitum: 33. Da7 Hxb7 (Öflug skiptamunsfórn sem 34. Dxb7 Hcl 5. einvígisskák tryggir hvítum yfirburðastöðu. 35. Df3 Dd4 Lajoc Portisch - Jan Timman Staðan er þó viðkvæm og flókin 36. Kg2 Hel Kóngsindversk vörn og taugar Ungverjans þola ekki 37. Rdl Bf8 spennuna.) 38. Df2 Dd5+ 1. Rf3 g6 20. e5 Rxb5 39. Kgl Hxfl + 2. e4 Bg7 21. cxb5 Da5 40. Kxfl f6 3. d4 d6 22. d6 Dxa2 41. exf6 Bxd6 4. c4 Bg4 23. Dc4 Db2 42. De3 Kf7 5. Be2 Rc2 24. Bf3 Hab8 43. Ke2 Bc5 6. Be3 eS 25. Bc6 Hed8 44. Dc3 De4+ 7. d5 Bxf3 26. DxcS d3 45. Kfl Dhl+ 8. Bxf3 Rd4 (Betravar26. .. Dc3. Núgetur 46. Ke2 Dxh2+ 9. Bxd4 exd4 Portisch tryggt vinningsstöðu 47. Kf3 Dhl+ 10. Ra3 Re7 með27. Re3 t.d. 27. ,.d228. Rc4 - og Portisch gafst upp. 11. 0-0 c6 o.s.frv.) Þessi sigur gaf Timman 12. Hbl 0-0 27. Rb4 d2 sjálfstraust og hann vann 13. Rc2 c5 28. Rd3 Db3 skákina næsta auðveldlega Föstudagur 17. febrúar 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 27

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.