Þjóðviljinn - 03.03.1989, Blaðsíða 26
1 2 1 ‘A 5 G> 7 r JO r )l <1
)( /3 5 )</- T~ (o <y> !5 H> e )7 w <5 (p
/3 Itf /<? 20 12 17 8 V 2J 22 T~ 3 T 13
V /V 21 V 21 15 )V )7 e T z:5 % ZDL
(r lo 20 21 Í 23 3 * 3 V 21 2 3 9 V
$ 2 3 2 3 5" V (p 12 12 V 23 5 lo n
/5 2*/ V )K~ v- JÝ 8 T 20 Z 5 23 V 5 25
23 2(o 15 v- 2/ zs 2) 17 5 ((> V l(p T~
12 (o 2o // e 17 V £ 17 e 20 S2 23
Mt> V )0 13 (p W JT~ 27 & Ý 3 5 17 V
2* 10 h 21 T~ y 1°) i2 3 i /f 10 T S W
v 2$ 23 V e (p y 20 /V . e S2 10 21
12 2/ b i 13 3 2.1 20 V* 30 22 T~ (0
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Verðlaunakrossgáta
Setjið rétta stafi í reitina hérfyrir neðan. Þeir mynda þá karlmannsnafn.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla
6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 33“. Skilafrestur er þrjár vikur.
Verðlaunin verða send til vinningshafa.
Nr. 33
12 8 3 25 21 7 25 )ú> 8 5
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 33 er
Lausnarorðið fyrir krossgátu nr. 30 var VESTURBRÚN. Dregið var úr ^táílLfÍÍÍi
réttum lausnum og upp kom nafn Ástu Stefánsdóttur, Aðalstræti 60, U dsson’ SkakPrent
Patreksfirði. Hún fær senda bókina Landið, sagan og sögurnar eftir 9
Magnús Magnússon.
TAROT
Hilmar Öm
Hilmarsson
Saltfiskréttur
og ávaxtadrykkur
gegn þynnku
Saltfiskur þykir mikill hátíðar-
matur í Kólumbíu og er ómiss-
andi hluti af páskahátíðinni. Þeir
framleiða sinn eigin saltfisk og
nota til þess vatnafisk kallaðan
bagre sem þeir salta og sól-
þurrka.
Fyrir fjóra:
500-600 gr saltfiskur
1 og hálfur stór laukur
hálf rauð paprika
hálf græn paprika
2 hvítlauksrif
2 tómatar
púrrulaukur
4-5 tsk. tómatkraftur
tómatsósa
tabaskósósa
kúmenduft
salt og pipar
matarolía
Saltfiskurinn er lagður í bleyti
yfir nótt, síðan soðinn það lengi
að auðvelt sé að losa hann frá
beinunum. Hreinsið bein og roð
af fiskinum og tætið hann í smá-
bita. Geymið soðið.
Saxið laukinn og hvítlaukinn
smátt og brúnið ásamt með slatta
af kúmendufti á djúpri pönnu.
Niðurskorinni papriku og
púrrulauk bætt útí, þegar það
tekur að brúnast bætið þá smátt
skornum tómötunum við.
Út í þetta er svo settur tómat-
kraftur, tómatsósa og taba-
skósósa, kryddað með pipar og
salti og kúmendufti, bætt í 1-2
bollum af fiskisoði og saltfisknum
blandað samanvið.
Látið malla á vægum hita,
hrærið í öðruhvoru og bætið á
fiskisoði ef með þarf. Þegar salt-
fiskurinn er nokkurnveginn kom-
inn í mauk er rétturinn tilbúinn,
og er þá borinn fram með soðn-
um hrísgrjónum. Ávaxtasafi er
ávallt borinn fram með mat í Kól-
umbíu og svona í tilefni af komu
bjórsins þá fylgir hér uppskrift af
drykk sem þykir mjög góður gegn
þynnku.
2 bollar af smátt skornum gulrót-
um
safi úr 2-3 appelsínum
1 ástríðuávöxtur
Allt sett í mixer, fyllt upp með
vatni og þeytt saman.
Síið í gegnum fínt sigti og bætið
í sykri eftir smekk.
SIGRÍÐUR ELFA
SIGURÐARDÓTTIR
CHEO CRUZ
Spáö í eðli hlutanna
Þá er komið að því að fólk geti
lagt einfalda Tarotlögn, en fyrst
verð ég að koma með smá út-
úrdúr til að setja stemmninguna.
Fólk þarf að þjálfa sig til að líta
á spilin sem tæki til þess að ná til
dulvitundarinnar, eins konar
spegla sem endurvarpa innri vitn-
eskju sem við öllu jafna höfum
ekki aðgang að.
Frá frumbernsku höfum við
tekið við innrætingum frá um-
hverfinu sem segja okkur hvað
megi gera, hvað eigi að gera,
hvað er hægt og hvað er ekki
hægt. Þessar innrætingar skapa
ekki einungis skilyrt viðbrögð
gagnvart umhverfinu, heldur
einnig gagnvart innri veruleika
okkar og fólk er neytt til að af-
neita innsæi sem oft kann að vera
dulræns eðlis, eða jafnvel byggt á
hæfileikum okkar til að túlka
líkamleg skilaboð frá öðru fólki,
lyktarskyni eða eftir öðrum
leiðum sem siðmenningin hefur
bælt niður.
hætt við að láta eigin fordóma
komast inn í lagnirnar og þess
vegna ætti að byrja á því að nota
spilin sem eins konar sálgreining-
artæki til að sjá hvaða áherslur
það eru sem ykkur er hætt við að
setja inn í túlkunina. Slíkar
áherslur segja yfirleitt meira um
ykkur sjálf en þá manneskju sem
þið eruð að spá fyrir, - ef þið eruð
á annað borð að spá fyrir öðrum.
Ég þekki ágæta konu sem hefur
það fyrir sið að troða hávöxnum
dökkhærðum mönnum og sólar-
landaferðum uppá gest og gang-
andi í hvert skipti sem hún snertir
Tarotspil eða kaffibolla.
Sumsé meginmálið er að nota
Tarotspilin sem hjálpartæki við
að segja sögur og um leið að læra
að halda sér og fordómum sínum
fyrir utan spásögnina.
Jæja, þá förum við út í spá-
dómsaðferð sem byggir á tromp-
spilunum 22 og ég geng útfrá því
að þið hafið öll lært Iykilorðin
fyrir trompin frá því í síðustu
Á vissan hátt má líta á spilin
sem hliðstæður við blekklessu-
prófin sem kennd eru við Rorsc-
hach þar sem fólk er látið rýna í
allavega undarlegar klessur og
sagt að lesa úr þeim þær myndir
sem fyrst koma upp í hugann.
Kenningin segir að kynóðir sjái
bara bert fólk eða einstök líffæri í
klessunum á meðan bakteríufób-
ískir sjái bregða fyrir stafffló og
streftókokkum auk hinna og
þessa vírusa.
Á svipaðan hátt eigið þið að
nota spilin til að örva ímyndunar-
aflið, nota þau sem tæki eða veg-
vísa við að segja sögur. Auðvitað
verðum við að trúa því að spilin
risti aðeins dýpra heldur en áð-
urnefndar blekklessur, en til að
byrja með ætti fólk að átta sig á
því hvaða hughrif einstök spil
framkalla og að læra að tengja
þessar tilfinningar við hefð-
bundnar túlkanir spilanna.
Fyrst í stað er ágætt að komast
að því hvort ykkur sjálfum er
Djöfullinn
viku.
Stokkið spilin og dragið út eitt
spil sem þið leggið til vinstri við
ykkur, dragið út annað sem þið
leggið til hægri, dragið út hið
þriðja sem þið leggið í miðjuna.
Staða spilanna túlkast þannig
að vinstra spilið vísar til fortíðar-
innar og þeirra áhrifa sem hún
hefur á kringumstæður. Miðju-
spilið er nútíðin, staða mála í dag
og hægra spilið er framtíðin, sú
þróun sem er líklegt að verði.
Æfið ykkur á þessu og reynið
að láta undirmeðvitundina koma
upp með einhverja sögu. Það er
visst þjálfunaratriði að hitta á
þann hluta dulvitundarinnar sem
hefur unun af því að spinna upp
spásagnir, þannig að það er gott
að æfa sig á góðum vini sem segir
ykkur hvenær þið eruð að bulla
og hvenær þið hittið naglann á
höfuðið.
Næst ætla ég að fara út í túlkan-
ir á Vöndum og Bikurum. Spáið í
málin á meðan...
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 3. mars 1989
f