Þjóðviljinn - 16.06.1989, Side 11
DAGUR
ÞORLEIFSSON
AÐ UTAN
Öldungaræði
til bráöabirgða
Líkur á að stuðningsfólk mótmælahreyfingar verði beitt hörðu en
farið að frjálslyndum flokksmönnum með vægð. Herinn að líkindum
samstæðari og íhaldssamari en talið var
í f réttum frá Kína segir að þrir
menn úr hópi mótmælafólks hafi
verið dæmdir til dauða í Sjang-
haí, að víðsvegar um landið hafi
fólk verið handtekið í hundraða-
tali og að forustumanna mótmæl-
astúdenta í Peking sé leitað. Mót-
mælahreyfingin, sem einkum
hafði uppi kröfurum lýðræði og
útrýmingu spillingar, hefur verið
barin niður, að minnsta kosti í
bráðina. Um margt annað eru
fréttir óljósari.
Ágreiningur er efalaust innan
hersins, en að líkindum hvergi
nærri eins alvarlegur og sumir
ætluðu. Haft er raunar eftir viss-
um kínverskum heimilda-
mönnum að þarlendir valdhafar
hafi sjálfir komið á kreik orðrómi
um yfirvofandi borgarastríð, í
þeim tilgangi að hræða útlend-
inga úr landi, svo að hægt yrði að
„hreinsa til“ án þess að útlend-
ingar fréttu mikið af því. En ljóst
virðist að 38. herinn, sem stað-
settur er á Pekingsvæðinu, hafi
verið ófús að beita mótmælafólk-
ið hörðu. í þeim her kváðu eink-
um vera menn úr höfuðborginni
og nágrenni hennar, margir stúd-
entar hafa gegnt þjónustu í hon-
um og hermenn í honum eiga trú-
lega margir ættingja og vensla-
menn meðal mótmælafólksins.
Kynslóö Göngunnar
löngu
Öðru máli gegnir með 27. her-
inn, sem drap niður fólkið á Him-
insfriðartorgi 4. þ.m. og braut
síðan á bak aftur mótmæla-
hreyfinguna í höfuðborginni. í
honum eru að sögn einkum her-
menn frá Innri-Mongólíu (sem
núorðið er að langmestu leyti
byggð kínversku fólki). Að sögn
erlendra sérfræðinga um kín-
verska herinn er 27. herinn miklu
dæmigerðari fyrir „alþýðuher-
inn“ almennt en sá 38. Flestir
hermannanna eru sveitamenn,
sem lítillar menntunar hafa notið
og hafa takmarkaðan skilning á
gangi mála í þjóðfélaginu. Liðs-
foringjarnir, sem flestir hafa ekki
annað en föst laun sín til að lifa af,
hafa orðið illa úti af völdum verð-
bólgunnar undanfarið. Talið er
því að margir þeirra séu andsnún-
ir breytingum þeim á efnahagslíf-
Yang Shangkun - ættartengsl við
herinn.
inu, er orðið hafa undanfarin ár,
og líti á lýðræðishreyfinguna
undir forustu stúdenta sem merki
þess, að þær breytingar leiði ekki
til annars en upplausnar.“
Á milli hershöfðingjanna og
„öldungaklíkunnar," þ.e.a.s.
elstu kynslóðarinnar í forustu
kommúnistaflokksins, virðist í
bráðina hafa skapast einskonar
samstaða. Gamalmenni þessi,
flest á níræðisaldri, er í æsku voru
með í Göngunni löngu eða
jafnvel í flokknum allt frá stofnun
hans, hafa alltaf litið á nýskipan
Deng Xiaopings í efna-
hagsmálum með tortryggni.
Hann hefur að líkindum sjálfur
alltaf verið fráhverfur því að
breytingar á stjórnarfari fylgdu
breytingum í skipan atvinnulífs.
Þegar lýðræðishreyfingin undir
forustu skólaæskunnar magnað-
ist, sneri hann því baki við yngri
(en þó öldruðum) skjólstæðing-
um sínum, Hu Yaobang og Zhao
Ziyang, og hallaðist í staðinn að
gömlu félögunum, sem eru á
sama aldri og hann.
Yang Shangkun „sá
sterkasti"
Þau helstu í „öldungaklíkunni"
auk Dengs eru sögð vera Yang
Shangkun, forseti, Chen Yun,
formaður tveggja áhrifamikilla
flokksnefnda (önnur þeirra hefur
flokksagann á sinni könnu), Li
Xiannian, fyrrum forseti og með
fræðgarferil að baki sem hers-
höfðingi, Peng Zhen, fyrrum for-
maður fastanefndar þingsins,
einnig fyrrum hershöfðingi og nú
varaforseti og Deng Yingchao,
ekkja Zhou Enlais og fósturmóð-
ir Li Pengs forsætisráðherra.
(Hún var um tíma talin gagnrýnin
á stefnu hans, en annað tveggja
er að það hefur verið á misskiln-
ingi byggt eða að hún hefur
ákveðið að standa með drengn-
um sínum, er í harðbakka sló.)
„Sterki maðurinn" í þeim hópi
virðist eins og sakir standa vera
Yang Shangkun, en sagt er að
nánir ættingjar hans stjórni 27.
hernum.
Pessar manneskjur hafa lifað
og hræst í kommúnistaflokknum
allt frá æskuárum og ummæli
höfð eftir Yang í „leyniræðu“
(eintak af henni á að hafa borist
mótmælastúdentum) benda til
þess, að þær hafi talið víst að það
Kína, sem þær höfðu varið lífi
sínu til að móta, hlyti að hrynja,
ef mótmælahreyfingin yrði ekki
barin niður harðri hendi.
Áhyggjur út af bömum, barna-
börnum og venslamönnum þess-
ara gamalmenna, sem yfirleitt
eru í góðum stöðum hjá flokki
eða ríki, hafa án efa blandast inn í
þetta.
Vægö viö frjálslynda
flokksmenn?
Nú er mörgum spurn hve
grimm sú „hreinsun" verði, sem
hafin er gegn mótmælahreyfing-
unni og tiltölulega frjálslyndum
flokksmönnum. Síðustu fregnir
benda til þess að valdhafar séu
staðráðnir í því að halda áfram
fjöldahandtökum á stuðnings-
fólki mótmælahreyfingarinnar,
hvað sem gert verður við það í'
framhaldi af því. Hinsvegar er
svo að sjá að í bráðina hallist
valdhafar að því að meðhöndla
tiltölulega frjálslynda flokks-
menn, sem sakaðir eru um meiri
eða minni stuðning við mótmæla-
hreyfinguna, af vissri vægð.
Þannig hafði í gær ekki enn verið
opinberlega tilkynnt að Zhao Zi-
yang, sem ekki hefur sést frá því
að hann ávarpaði stúdenta á
Fallnir
mótmæla-
menn
eftir
árás
27.
hersins.
Særður verkamaður, löðrandi í blóði, steytir hnefann af reiði og harmi eftir árás
hersins á Himinsfriðartorg.
Himinsfriðartorgi 19. maí, hafi
látið af embætti flokksaðalritara,
og stjórnarerindrekar í Peking
telja ólíklegt að hann verði svipt-
ur öllum áhrifum. Par að auki
hafa ýmsir háttsettir flokksmenn
úr hópi frjálslyndra komið fram í
sjónvarpi undanfarið án þess að
fordæma „morðingja" og „gagn-
byltingarmenn“, eins og mót-
mælamenn eru nú titlaðir opin-
berlega. Þetta bendir ekki til
þess, að mjög sé þrengt að þeim
frjálslyndu. Vera má að „öld-
ungaklíkan" óttist, að mjög
hrottaleg „hreinsun“ á flokknum
sjálfum kynni að lama hann og
leiða til þess að herinn, sem óhjá-
kvæmilega hefur eflst jafnframt
atburðum síðustu daga, tæki öll
völd.
Síðustu daga hafa opinberir
fjölmiðlar dregið úr skömmum
gegn Bandaríkjamönnum fyrir
að hafa tekið á móti Fang Lizhi,
þekktasta oddvita kínverskra
andófsmanna, í sendiráð sitt. Má
vera að það sé merki þess að vald-
hafar vilji ekki að þykkja sú, sem
risið hefur milli Kína og Vestur-
landa samfara aðförunum gegn
mótmælahreyfingunni, verði til
frambúðar.
Börn flokksmanna
Verði mótmælafólkið beitt
vægðarleysi áfram, fangelsað eða
jafnvel líflátið unnvörpum, gæti
svo farið að það gerði að engu þá
viðleitni, sem nú virðist gæta af
hálfu valdhafa, að sætta deiluað-
ila innan flokksins. Stúdentar eru
upp til hópa börn flokksmanna,
og áframhaldandi umfangsmiklar
hrottaaðfarir gegn stúdentum
hlytu því að valda mikilli beiskju
innan flokksins og gætu jafnvel
haft í för með sér uppreisn innan
hans.
Sennilega eru gamlingjamir,
sem í bráðina virðast halda um
valdataumana, að einhverju leyti
að minnsta kosti, haldnir sárum
kvíða og óvissu. Deng er kannski
þegar að miklu leyti út úr heimin-
um og honum og þeim hinum er
væntanlega ljóst, að þeir geta
ekki orðið nema til bráðabirgða.
Holtaskóli
sp Keflavík
Næsta skólaár eru lausar 4 kennarastöður m.a.
í ensku, íslensku, samfélagsfræði, stærðfræði
og raungreinum. í skólanum eru u.þ.b. 500
nemendur frá 6. til 9. bekkjar og kennarar um
30. Einnig vantar íþróttakennara drengja.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 92-15597 og
yfirkennari í síma 92-15652.
Skólanefnd
Útboð
Borgarfjarðarvegur, Mýnes-Eiðar
r Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Lengd vegarkafla 7,6 km, fyllingar 43.000m3 og burðarlög 58.000 m3.
Verki skal að fullu lokið 1. júlí 1990. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Reyðarfirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 13. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 26.júní 1989.
Vegamálastjóri
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vináttu við fráfall
mannsins míns, föður og tengdaföður.
Jóns Haraldssonar
arkitekts
Áslaug Stephensen
Gyða og Peter Bishop
Haraldur, Stefán og Edda
Föstudagur 16. Júnf 1989) NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 11