Þjóðviljinn - 16.06.1989, Side 29
Fyrr má nú rota
en dauðrota
Ihaldið lætur ekkert tæki-
færið ónotað til að koma
höggi á ríkisstjórnina og þá
sérstaklega fjármálaráðherra
og beitir í þeim leik ýmsum
brögðum. Það nýjasta í þeim
efnum var þegar einhver stór-
skrítnasti mótmælafundur
gegn meintum hækkuðum
eignaskatti var haldinn á Hót-
el Borg ívikunni. Þarvar sam-
ankominn fríður flokkur ekkna
og ekkla sem varla gat hreyft
sig fyrir skartgripaglingri,
rándýrum fötum og úti fyrir var
hver glæsikerran á fætur ann-
arri. Hópurinn, sem var kom-
inn þó nokkuð til ára sinna, á
það sammerkt að búa í íburð-
armiklum og alltof stórum
skuldlausum einbýlishúsum
sem voru byggð ma. fyrir
óverðtryggð lán. Tilgangur
fundarins var öðrum þræði að
afla samúðar hjá almenningi
út af illri meðferð sem fundar-
menn telja sig hafa orðið fyrir
af hendi skattheimtumanna
ríkissjóðs. Af viðbrögðum al-
mennings að dæma eftir
fundinn mega fundarboðend-
ur prísa sig sæla ef ekki
kemur fram krafa um að
eignaskatturinn verði hækk-
aður til muna og þeirpeningar
verði síðan látnir renna til
Húsnæðisstofnunar ríkisins,
til að jafna aðstöðu þeirra sem
nú eru að koma sér þaki yfir
höfuðið í samfélagi jöar sem
allt er verðtryggt upp í topp. ■
Af óverðtryggð-
um lánum
Meira um þá klafa sem
hvíla eins og mara á þeim
sem mættu á fundinn á Hótel
Borg og mótmæltu því sem
ekki er til. Lánþegi sem tók
óverðtryggt lífeyrissjóðslán
upp úr 1970 að upphæð 400
þúsund gamlar krónur borgar
af því í dag 133 krónur í af-
borgun, vextir eru 94,20 krón-
ur og ef afborgunin er komin í
vanskil eru dráttarvextir rúm-
ar 12 krónur. Samtals nemur
því afborgun af þessir óverð-
tryggða láni, plús vextir og
dráttarvextir í dag 1989,
hvorki meira né minna en
tæpum 240 krónum. Og til að
kóróna vitleysuna taka bank-
ar 382 krónur fyrir að inn-
heimta þessa afborgun. Það
er ekki nema von að þessir
700 borgarar sem mættu á
áðurnefndan eignaskattsfund
beri sig illa yfir þessum miklu
og íþyngjandi álögum sem
þeim er gert að standa undir.
OÐL
INNLENT
HEILBRIGÐISMAL
Ég vil Davíð á þing.................................. 9-15
I ýtarlegu viðtali við Þorstein Pálsson
formann Sjálfstæðisflokksins er víða
komið við. Þorsteinn rekur m.a. endalok
síðustu ríkisstjórnar og fer harkalegum
orðum um þáverandi samstarfsmenn sína.
Hann fjallar einnig um
Sjálfstæðisflokkinn, sem fagnar
sextugsafmæli sínu á þessu ári. Núverandi
ríkisstjóm fær einnig sinn skammt...
íslendingar elska Svía. Goðsögninni um „Svíahatur“ íslendinga
hrundið. Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar um afstöðu
fslendinga til annarra þjóða .............................. 16
Friðun Reykjanesskaga...................................... 17
Gífurleg þörf fyrir félagslegar íbúðir..................... 18
Sumar í sveit. Hundruð barna og unglinga úr þéttbýli fara til vinnu og
leiks í sveitum landsins. Félag fósturmæðra í sveitum hafa milligöngu
um sveitadvöl barna........................................ 20
Skák
Fer skákin á hausinn? Áskell Örn Kárason skrifar grein um bága
fjármálastöðu í íslensku skákinni.......................... 22
ERLENT
Pólland
Vopnahlé. Tíðindamaður Pjóðlífs var viðstaddur er Samstaða var
lögleyfð og segir frá umdeildu vopnahléi í landinu......... 25
Við tókum áhættu .......................................... 26
Hringborðið á sér öfluga andstæðinga ...................... 27
Brctland
Verkamannaflokkur í endurhæfingu........................... 28
Noregur
Sundrung á hægri vængnum. Framfaraflokkurinn er líklegur til
fylgisaukningar í kosningunum í haust. Sagt frá stöðu norsku
stjórnmálaflokkanna ....................................... 30
Hitler í hundrað ár................................... 33-37
Hverjir komu Hitler til valda? Um þessar
mundir er öld liðin frá fæðingu hins
harðsvíraða einræðisherra í Þýskalandi. í
tilefni af því hafa fjölmiðlar og
sagnfræðingar víða um heim rifjað upp
söguna og endurmetið hana. Einar
Heimisson, sem leggur stund á sagnfræði
við háskólann í Freiburg í V—Þýskalandi,
skrifar um bakgrunn valdatökunnar og
endalok Weimarlýðveldisins....
MENNING
Reykingar
Et.drekk, reyk ok ver grannr. Óholl aðferð til að halda kjörþyngd . 47
Óbeinar reykingar hættulegar ............................ 47
Fósturvefjalækningar. Umdeild grein læknavísinda......... 48
Börn alkóhólista. í þessari grein segir frá samtökum fólks í
Bandaríkjunum sem ólst upp við alkóhólisma foreldra sinna . 50
VIÐSKIPTI
Samruni fyrirtækja. Margir telja að árið 1989 verði „ár samrunans" í
íslensku atvinnulífi. Hliðstæðar bylgjur hafa gengið yfir fyrirtæki
annars staðar á Vesturlöndum. Oft er verr af stað farið en heima setið.
Jónas Guðmundsson hagfræðingur skrifar............... 53
UPPELDISMÁL
Kennaramenntunin mikilvægasta forsenda farsæls skólastarfs. Ásgeir
Friðgeirsson ræðir við Jónas Pálsson sálfræðing og rektor
Kennaraháskólans .....................................57
Börn eru heimspekingar. Heimsókn á dagvistarheimilið að Marbakka,
þar sem uppeldisstarf er byggt upp á skyldum aðferðum og kenndar
hafa verið við Reggio Emilia ........................ 60
65-67
ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
Að hafa kvenkynið undir ..
Stcinunn Jóhannesdóttir skrifar grein um
ofbeldi gagnvart konum, nauðgun.
Steinunn vitnar til þrenns konar nauðgara:
Sá reiði, sá ráðríki og sadistinn.
Langflestar konur verða fyrir barðinu á
„þeim ráðríka". Steinunn byggir grein sína
á umfjöllun um þetta efni erlendis og á
Islandi...
Saklausir dæmdir í fjölmiðlum...... 68-71
Kvikmyndir
Magnús —nýr norðri. Spjallað við Þráin Bertelsson kvikmyndagerðar-
mann um nýjustu mynd hans, „Magnús" og íslenska kvikmyndagerð . 39
Kafflleikhúsið í Kvosinni....................................... 43
Karlmenn hafa alltaf verið í skítverkum. Guðrún Túliníus spjallar við
Ríkharð Valtingojer, sem opnað hefur gallerí austur á Stöðvarfirði. 44
Þegar hið umfangsmikla „Geirfinnsmál“
var uppi, lentu fjórir saklausir menn í
þeirri raun að sitja í fangelsi. Halldór
Reynisson prestur og fjölmiðlafræðingur
rannsakaði umfjöllun fjölmiðla á þessum
tíma og hefur unnið þessa grein upp úr
ritgerð sem hann skrifaði við bandarískan
háskóla...
ÝMISLEGT
Smáfréttir af fólki ....................................... 32 og 38
Smáfréttir af viðskiptum.......................................... 56
Barnalíf.......................................................... 63
Fordfjölskyldan .................................................. 72
Bílar. Ingibergur Elíasson skrifar ............................... 75
Krossgáta......................................................... 78
FRÁ BORGARSKIPULAGI
REYKJAVÍKUR
Unnin hefur veriö tillaga til að bæta umferðarör-
yggi skólabarna í skólahverfi Vogaskóla.
I tillögunni er m.a. gert ráð fyrir að lokað verði
fyrir umferð á milli Ferjuvogs og Snekkjuvogs.
Einnig að bílastæðum verði fjölgað við Gnoðar-
vog.
Tillögurnar verða til sýnis á Borgarskipulagi
Reykiavíkur, Borgartúni 3, 105 Reykjavík, alla
virka daga milli kl. 8.30-16.00 frá mánudegi 19.
júní til þriðjudagsins 4. júlí 1989.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila
skriflega á sama stað fyrir 4. júlí 1989.
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
Rannsóknastyrkir EMÐO
í sameindalíffræði
Sameindalítfræðisamtök Evrópu (European Molecular Bio-
logy Organization, EMBO), styrkja vísindamenn sem starfa í
Evrópu og ísrael til skemmri eða lengri dvalar við erlendar
rannsóknastofnanir á sviði sameindalíffræði. Nánari upplýs-
ingar fást um styrkina í menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík. - Umsóknareyðublöð fást hjá dr. J.
Tooze, Executive Secretary, European Molecular Biology
Organization, 69 Heidelberg 1, Postfach 1022 40, Sam-
bandslýðveldinu Þýskalandi. Límmiði með nafni og póst-
fangi sendanda skal fylgja fyrirspurnum. Umsóknarfrestur
um langdvalarstyrki er til 15. ágúst en um skammtímastyrki
má senda umsókn hvenær sem er.
Menntamálaráðuneytið
13. júní 1989
W Utboð
Menntaskólinn á ísafirði
Lóðarvinna
Tilboð óskast í frágang lóðar við Mennta-
skólann á ísafirði.
Ljúka skal frágangi lóðar vestan, norðan og
austan við skólahúsið. Verkinu skal vera lokið
15.september1989.
Útboðsgögn verða afhent til föstudagsins 23.
júní 1989 gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri þriðjudag-
inn 27. júní 1989 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartúni 7, sími 26844