Þjóðviljinn - 24.11.1989, Side 7
Lofsamlecj loftgæði
- seinheppin siðfræði?
Við verðum að fara að læra að yrði, þ.e.a.s. í köldu veðri og
Á íslandi er loftið svo gott - á
íslandi er gott andrúmsloft!
Það er sannleikskorn í báðum
þessum fullyrðingum, þótt þær
séu líka tvíræðar!
Ráðamenn mæra hreint ísland
á tyllidögum og telja slíkt rétti-
lega tii náttúruauðlinda landsins.
Töluverðum kaupmætti sé
jafnvel fómandi fyrir ioftið og
hreint umhverfi. Þótt ailir séu
ekki jafnfærir að iifa á loftinu, er
jafnvíst að mengað loft bætir ekki
heilsuna.
Nýlega voru engu að síður
kynnt tvö skýr dæmi um að ráða-
mönnum finnst líka sjálfsagt að
versla með loftgæðin, þegar þeim
hentar, án þess að þegnarnir fái
rönd við reist.
Það kom flestum á óvart í
fyrra, þegar birtar voru niður-
stöður mengunarmælinga, sem
Hollustuvernd ríkisins annaðist á
Miklatorgi, að litla Reykjavík
skyldi vera komin á blað sem
loftmenguð borg. Nefnd var
skipuð í tíð síðustu ríkisstjórnar
til að fjalla um blýlaust bensín.
Nýlega sendi nefndin frá sér
álitsgerð. l’ar hafði verksviðið nú
heldur verið vfkkað og töldu
nefndarmenn m.a. enga ástæðu
til að fara eftir reglugerð Hollust-
uverndar ríkisins frá í sumar um
mengunarmörk í útblæstri öku-
tækja.
Enda var verið að miða við allt
of mikil gæði, eða sambærilegt
því sem Bandaríkjamenn og Sví-
ar hafa sett sér!
Samkvæmt alþjóðlegum við-
skiptasamningum, sem við erum
aðilar að ætti að vera nóg að fara
eftir ECE-reglunum, sem leyfa
miklu meiri óþverra.
hugsa eins og Evrópumenn!
Bandaríkjamenn eru líka ekk-
ert betur settir, þótt þeir hafi ver-
ið að rembast þetta frá 1973. Út-
sýnið er svartara í Los Angeles nú
en nokkru sinni fyrr.
Það er áreiðanlega ekki vegna
offjölgunar bíla! Þeir hefðu betur
notað ECE reglurnar, og ekki
verið að eyða öllum þessum
milljónum dollara til einskis!
Lítum nú nánar á þessa sið-
fræði:
Haldið er uppi vörnum fyrir
eigendur einkabila. Það mundi
kosta 75-100 þúsund krónur á
hvem bfl, ef kröfum Hollustu-
verndar væri framfylgt.
Mælt er með lakari loftkröfum,
án þess að þeir bfllausu fái það
bætt á nokkurn hátt, hvað þá af-
komendur okkar allra í framtíð
né þær lífvemr sem eiga sama
réttinn til framhaldslífs hér á jörð
og félagar í FÍB!
Um allan heim em menn nú að
fallast á þá einföldu hagfræði, að
sá sem mengar á að borga fyrir
það! Á að gilda einhver undan-
tekning á íslandi?
Annað dæmi skal tekið af bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar. Þar voru
miklir hagsmunur í húfi. Búið að
skipuleggja heilt íbúðahverfi á
Hvaleyrarholti, þegar Holiustu-
verndin kemur enn til skjalanna!
Nú var bent á það, að þama
stæði álver ekki víðs fjarri og að
Straumsvíkursvæðið sé á hraðri
leið með að verða ailstórt iðnað-
arsvæði á alþjóðlegan mæli-
kvarða.
Væntanlegum íbúum holtsins
kynni e.t.v. að súrna nokkuð í
augum við ákveðin veðurskil-
vestanátt, eins og er nú þama
stundum um vetur.
í stað þess að viðurkenna þetta
og bregðast þannig við að borga
lóðahöfum skaðabætur, eða gera
þeim ljós loftgæði svæðisins í
framtíð, er formaður heilbrigð-
isnefndar Hafnarfjarðar, Eyjólf-
ur Sæmundsson, fyrrum starfs-
maður Holiustuverndar, iátinn
vitna gegn sínum fyrri félögum.
Ræðst hann á þá á óvenjutega
rætinn hátt. Hann telur stofnun-
ina byggja fullyrðingar sínar á of
veikum grunni, en bregður um
leið fyrir sig gögnum, sem eru
ekki hótinu betri. Hann telur líka
óþarfa að vera að miða mengun-
armörkin við einhverjar „við-
kvæmar tegundir gróðurs" og að-
eins ógnun við heilsufar manna sé
fullnægjandi ástæða til endur-
skoðunar skipulagsins. Hér höf-
um við sömu siðfræðina og fyrr er
getið og skilað hefur mannkyni
fram á hengiflug tortímingar.
Víst skortir áreiðanlegri mæl-
ingar og gleðilegt að Hafnar-
fjarðarbær skuli nú hafa sett upp
mælistöð á holtinu. Áreiðanlegri
dreifispá er líka væntanleg vegna
fyrirhugaðrar stækkunar álvers
eða nýs álvers í Straumsvík.
Ábendingar Hollustuverndar,
þótt síðbúnar séu, eru samt fylli-
lega réttmætar.
Það eru léleg rök að segja, að
vegna slælegrar frammistöðu
fyrrum (væntanlega þegar E.S.
starfaði þar), eigi Hollustuvernd-
in ekkert með það að gagnrýna
nú. Batnandi manni er best að
lifa!
Hvað eiga nú skipulagsyfirvöld
að gera? Halda fyrir augun?
gleyma því að til stendur senni-
lega að tvöfalda álframleiðslu
svæðisins fjótlega? Koma sér hjá
því að hugsa um síaukið álag á
svæðið vegna vaxandi iðnaðar og
bflaumferðar þarna á næstu ár-
um?
Þama kemur siðfræðin tvö-
falda enn fram. Yfirvöldum
Hafnarfjarðar hentar betur að
málið verði þaggað niður strax á
meðan fólk ánetjast svæðinu.
Síðan er hægt að velja eitthvert
„vinsælt“ umhverfismál til að
veifa fyrir næstu kosningar!
Nei, það er miklu betra að vera
bara heiðarlegur strax og viður-
kenna að þetta hverfi á bara að
vera ódýrara en t.d. Breiðholt,
vegna fyrirsjáanlegrar mengunar
Hvaleyrarholtsins. Fólk á svo
bara að fá að velja, hvar það vill
búa að gefnum þessum forsend-
um.
Svo er líka til fýrirbæri er kall-
ast „sjónræn mengun“, en það
spillir vfst ekki heilsu! Hefur samt
áhrif á fasteignaverð, svo allt
helst þetta nú í hendur.
Á dæmum þessum sést, að
verkefni hins nýja umhverfis-
ráðuneytis að samræma öll þessi
sjónarmið, verða ærin. Auðvitað
verður að lokum að sættast á lak-
ari loftgæði fyrir aukin lífsgæði og
að kappkosta að ná sáttum í
öllum málum. Menn mega bara
ekki vera með tvöfalt siðgæði á
hátíðastundum. Niðurstaðan
hlýtur að verða sú að fóma ís-
lenskum náttúruauðlindum sem
eru almenningseign fyrir lífskjör-
in
- maður Iifir jú ekki á loftinu !
Dr. Einar Valur Ingimundarson,
umhverfisverkfræðingur
að gera hvað?
vélarstillingu. Þar er því ekki gert
ráð fyrir breytingum á vél eða
uppsetningu hreinsibúnaðar. Það
er því misskilningur hjá nefnd-
inni að ætlast sé til slíkra fjárfest-
inga um næstu áramót. Það er
hugsanlegt að þær kröfur sem við
höfum gert þarna um köfnunar-
efnisoxíð séu í hærri kantinum
miðað við tæknilega möguleika.
Þær verða þá endurskoðaðar.
Seinni áfangi þessa útblást-
ursátaks miðast við árið 1992, en
þá er gert ráð fyrir því að banda-
rískir staðlar taki við. Þeir nást
ekki nema með sérstökum
hreinsibúnaði (þriggja þátta
katalýsator) sem settur er á út-
blástursrör. Þessar reglur hafa
þegar tekið gildi á Norðurlönd-
unum nema Finnlandi þar sem
þær taka gildi 1992.
Það ber vott um skilningsskort
nefndarmanna að þeir skuli lýsa
undrun á því að útblástursmörk
skuli sett í mengunarvarnareglu-
gerð þar sem dómsmálaráðu-
neytið sé nú með starfshóp í gangi
sem gera eigi tillögur um búnað
bifreiða. Þessi mál eiga hvergi
heima nema í mengunarvarna-
reglugerð, og hvar sem litið er til
nágrannalandanna eru þessi mál í
höndum viðkomandi umhverfis-
ráðuneytis. Ef dómsmálaráðu-
neytið fer að blanda sér í málið
skapar það eintóman glundroða.
Ágreiningur um
þvingunar-
heimild
Nýlega var veist harkalega að
ákvœðum í nýju lagafrumvarpi
um Hollusdtuvernd ríkisins, þar
sem stofnuninni er heimilað að
beita einstök fyrirtæki, sem hún
hefur eftirlit með, þvingunarað-
gerðum. Ólafur Þ. Þórðarson
lýsti því m.a. yfir að þetta laga-
frumvarp væri tilræði við réttar-
öryggi borgaranna. í hverju felst
þessi lagabreyting?
Lagabreytingin felst í því, að
okkur eru veitt söntu þvingunar-
úrræði og heilbrigðisnefndir hafa
nú, gagnvart þeim fyrirtækjum
sem eru háð starfsleyfi frá ráðu-
neyti og Hollustuverndin hefur
eftirlitsskyldu með. Með þessu er
verið að samræma eftirlit og
þvingunaraðgerðir. En þetta vald
til þvingunaraðgerða, sem um er
að ræða er þegar fyrir hendi sam-
kvæmt lögum.
PCB-mengun
í Sundahöfn
Síðastliðið sumar kom upp
mengunarmál hjá fyrirtœkinu
Hringrás við Sundahöfn, þar sem
Hollustuvernd uppgötvaði hættu-
lega mengun af völdum efnisins
PCB. Hverjar urðu lyktir þess
máls?
Það mál er alls ekki til lykta
leitt. Þar er enn deilt um það hver
á að gera hvað. fyrirtækið hefur
til þessa verið undir eftirliti
heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur,
en á því verður væntanlega fljót-
lega breyting, þannig að við mun-
um taka að okkur sérhæft eftirlit.
Saga þessa máls er annars sú,
að starfsmaður okkar fann PCB
mengun í olíu af spennum, sem
þarna höfðu verið teknir til
endurvinnslu. Þessi uppgötvun
okkar hefur trúlega komið í veg
fyrir að olían af spennunum yrði
sett saman við aðra úrgangsolíu
og seld til endurnýtingar, t.d. í
loðnubræðslur með ófyrirsjáan-
legum afleiðingum. Við lögðum
strax til að spennarnir yrðu fluttir
út og þeim eytt í þar til gerðum
eyðingarstöðvum. það hefur ekki
verið gert enn, en við reiknum
með að það verði gert. Þá teljum
við að framkvæma eigi frekari
mælingar á staðnum til þess að
kanna umfang PCB-mengunar.
Við erum tilbúnir með sýni sem
Við höfum tekið í þessum til-
gangi, en þau hafa ekki fengist
greind ennþá. Ástæðan er sú að
enginn aðili hefur fundist til þess
að greiða fyrir greininguna.
Það er okkar sjónarmið að
Hollustuvernd verði að geta stað-
ið sjálf að slíkum rannsóknum,
en til þess hefur skort fjármagn.
Við vonumst samt til þess að hægt
verði að senda sýnin út fljótlega
og að greiningin verði greidd af
Hollustuvernd og öðrum aðila í
sameiningu.
Skipulag
umhverfis-
verndar
Þetta dæmi sýnir okkur hins
vegar í hnotskurn hvernig skipu-
lagsmálum umhverfisverndar hér
á landi er ábótavant, þar sem
ekki er ljóst hver á að gera hvað
og hvaða aðilar beri ábyrgð. Við
erum opinber mengunarvama-
stofnun. Hins vegar er okkur
ekki gert kleift að sinna því starfi
eins og þarf. Þess vegna m.a. er
margt í þessum málum ábóta-
vant. - Við höfum til dæmis laga-
lega eftirlitsskyldu með um 300
fyrirtækjum, sem em háð starfs-
leyfi. Við höfum hins vegar ekki
mannafla til þess að sinna þessu
starfi nægilega vel. Við emm
lengi búnir að berjast fyrir því að
Ólafur Pétursson: Væntum okkur mikils af nýju umhverfisráðuneyti.
Mynd: Jim Smart.
fá að ráða 1-2 menn í sérstaka
eftirlitsdeild, en án árangurs.
þrátt fyrir það að fyrirtækin
greiði sérstakt eftirlitsgjald til
okkar. Auðvitað reynum við að
sinna þessu starfi eftir megni, en
hér em sérmenntaðir menn á sín-
um sviðum sem anna ekki eftir-
litsskyldum jafnframt sérfræðist-
örfunum.
Hverju mun vœntanlegt um-
hverfismálaráðuneyti breyta að
þínu mati, og hvaða væntingar
hafið þið til þess?
Við væntum okkur mikils af
nýju umhverfisráðuneyti. Það á
að gera starfið markvissara og
koma í veg fyrir tvíverknað og
skömn á verksviðum. Við vænt-
um nýrra vinnubragða, þar sem
umhverfismálin fái þann sess sem
þeim ber, og að þau verði eðli-
legur þáttur í undirbúningi fram-
kvæmda og atvinnustarfsemi al-
mennt, þannig að við getum séð
fram á það í framtíðinni að með
markvissum aðgerðum hafi verið
komið í veg fyrir umhverfisspjöll
og að þessi mál séu þannig í rétt-
um farvegi. _óie
Föstudagur 24. nóvember 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 7