Þjóðviljinn - 24.11.1989, Side 20
SKÁK
HELGI
ÓLAFSSON
Bolvíkingurinn í efsta sæti á Haustmóti TR
Bolvíkingurinn Halldór G.
Einarsson stendur best að vígi
þegar ótefldar eru þrjár umferðir
í A-riðli á Haustmóti Taflfélags
Reykjavíkur (8. umferð var tefld
sl miðvikudagskvöld). Halldór
tapaði fyrir helsta keppinaut sín-
um, Björgvini Jónssyni, en hefur
unnið aðrar skákir. Staðan er
þessi:
1. Halldór G. Einarsson 6 v. (af 8)
+ biðskák. 2. Sigurður D. Sigfús-
son 5 v. + biðskák. 3. Björgvin
Jónsson 4Vi v. + biðskák og ó-
teflda skák. 4. Jóhannes Ágústs-
son 4 v. + biðskák. 5. Jón G
Viðarsson 4 v. 6. Dan Hansson
3V2 v. + biðskák og óteflda skák.
7. Ásgeir Þ. Árnason 3V2 v. +
biðskák. 8. Áskell Ö. Kárason 3
v. + biðskák. 9.-10. Hrafn Lofts-
son og Snorri Bergsson 2'/2 v. +
biðskák. 11. Bragi Halldórsson 2
v. og Lárus Jóhannesson IV2 v. +
biðskák.
í B-riðli er keppni óvenjulega
jöfn og spennandi. Ríkharður
Sveinsson og Haraldur Baldurs-
son eru efstir með 5 v. Eggert
ísólfsson er í 3. sæti með 4V2 v.
f C-riðli er Ragnar Fjalar Sæ-
varsson efstur með 6V2 v. í 2.-3.
sæti eru Hrannar Baldursson og
Kristján Eðvarðsson með 6 vinn-
inga.
Einar K. Einarsson hefur sett
stefnuna á mikinn sigur í D-riðli.
Hann hefur unnið allar sínar
skákir og er langefstur með 8 v. af
8 mögulegum. Ólafur Einarsson
kemur næstur með 5'/2 v.
í opna flokknum þ.e. E-riðli er
Halldór Jónsson efstur með 6V2 v.
Stefan Freyr Guðmundsson og
Árni Kristjánsson eru í 2.-3. sæti
með 6 v.
Þátttakendafjöldi í haustmót-
inu nú er svipaður og undanfarin
ár, alls um 150 þátttakendur með
unglingaflokki sem er þó skammt
á veg kominn. Fyrstu umferðirn-
ar fóru fram í gamla félagsheimi-
linu við Grensásveg sem er kom-
ið á sölulista og mótið hefur flust í
hið nýja og stórglæsilega húsnæði
í Faxafeni sem vígt var með pom-
pi og pragt fyrir viku. Velunnur-
um skáklistarinnar skal bent á að
styrkir til TR eru velkomnir, því
framkvæmdirnar hafa verið afar
kostnaðarsamar og peningar af
skornum skammti. Það er ekki
aðeins að TR flytji inn f Faxafen,
einnig Skáksamband íslands sem
þarna verður með rúmgott hús-
næði. Skákhreyfingin öll mun
njóta góðs af þessari byltingu í
húsnæðismálum.
Svo maður snúi sér að keppn-
inni í A-riðli sem allajafna vekur
mesta athygli, þá heftir frammi-
staða Halldórs G. Einarssonar
vakið mikla athygli. Hann kvaddi
sér hljóðs fyrir allmörgum árum
þegar eins og hendi væri veifað að
Vestfirðingar eignuðust tvo
glæsilega fulltrúa sem áttu í fullu
tré við jafnaldra sína á höfuð-
borgarsvæðinu, Halldór og Guð-
mundur Gíslason. Minna hefur
borið á Halldóri undanfarin ár en
nú mætir hann til leiks og teflir
frísklega. Hann tapaði að vísu
fyrir Björgvini Jónssyni en aðrar
skákir hefur hann unnið þ.á m.
Sigurð Daða, sem tekið hefur
stórstígum framförum undanfar-
ið og er alls ekki úr leik í barátt-
unni um efsta sætið.
Við skulum fylgjast með sigri
Halldórs yfir sterkasta fulltrúa
Norðlendinga um þessar mundir:
Jón G. Viðarsson -
Halldór G. Einarsson
Frönsk vörn
1. e4-eó
2. d4-d5
3. Rc3-Bb4
4. e4-c5
5. a3-Bxc3+
6. bxc3-Re7
7. Dg4-Dc7
8. Dxg7-Hg8
9. Dxh7-cxd4
10. Re2-dxc3
11. f4-Rbc6
12. Dd3-Bd7
13. Hbl
(Vinsælasta framhald hvíts i
þessu hárbeitta afbrigði frönsku
varnarinnar er 13. Rxc3 eða 13.
Dxc3 og hefur um þessa tvo
möguleika geisað hörð fræðileg
barátta undanfarin ár. Niður-
staðan: hvítur á betri möguleika.
13. Hbl er leikur, sem flestum
gleymdur skákmaður Henrique
Mecking, beitti í frægri skák við
Uhlmann á millisvæðamótinu í
Manila á Filippseyjum 1976.)
13. .. d4
(Uhlmann lék 13. ... Rf5 sem er
lakara. Þessi peðsleikur leiðir til
snarprar baráttu og semiilega
hefði hvítur gert best í því að
leika 14. Rxd4 strax fyrst hann á
annað borð girnist peðið.)
14. HgRl?-0-0-0
15. Rxd4-Rxd4
16. Dxd4-Bb5!
(Við það að missa kóngsbiskup-
inn veikjast varnir hvítu stöð-
unnar verulega.)
17. Dxa7-Bxfl
18. Kxfl-Dc6!
(Þó hvítur eigi tveim peðum
meira er staða hans afar erfið því
kóngsstaðan er ekki beint burðug
og allir menn svarts stefna að
henni.)
19. Be3-Rf5
20. Bc5-Hd2
21. Hb4-Hxc2!
(Hvítur vonaðist eftir 21.
.. Hgxg2 sem er svarað með 22.
Da8+-Kc7 23. Bd6+! o.s.frv.)
22. Da8+-Kc7
23. Da5+
(Ekki 23. Dxg8-Da6+! og
mátar.)
23. .. Kd7
24. Hb6-Hcl+
25. Kf2
*É?1?^**
' ~k ‘"1*1
a b c d e f g h
25. .. Hxg2+!
26. Hxg2-Hc2+
27. Kel-De4+
28. Kdl-Kd3+
29. Kel
- og Jón gafst upp um leið því
hann verðurmát: 29... Hcl+ 20.
Kf2-Hfl mát.
Sovétmenn
sigruðu á
HM landsliða
Um svipað leyti og sveit TR
tefldi við MTK Budapest í
Evrópukeppni skákfélaga, lauk
heimsmeistarakeppni landsliða í
Luzern í Sviss. Þetta er í annað
sinn sem þessi keppni er haldin,
en hún er skipuð 10 sveitum:
fimm efstu sveitum frá undan-
gengnu Ólympíumóti og einni
sveit frá hverri heimsálfu, þó ekki
Eyjaálfu. íslendingar hefðu unn-
ið sér rétt til þátttöku ef árangur-
inn í Dubai hefði talið, en 15.
sætið í Saloniki dugði skammt.
Það fór eins og við var að búast
að Sovétmenn unnu afar öruggan
sigur. Anatoly Karpov var á 1.
borði, en þó vakti fjarvera Kasp-
arovs heimsmeistara meiri at-
hygli. Hann hefur lýst því yfir að
hann tefli ekki framar f FIDE-
mótum a.m.k. ekki meðan Cam-
pomanes sé forseti þeirra sam-
taka. Menn eru logandi hræddir
um aðhann mæti ekki til leiks í
einvíginu um heimsmeistaratitil-
inn sem fram á að fara í Lyon í
Frakklandi á næsta ári, og hafa
staðið yfir miklar samningavið-
ræður milli FIDE og GMA, al-
þjóðasamtaka stórmeistara, um
þann atburð.
Sovétmenn hlutu 27‘/2 v., Júg-
óslavar urðu í 2. sæti með 22/2,
Englendingar í 3. sæti, eftir jafn-
tefli við Kína, 2:2 í síðustu um-
ferð, með 21'/2 v. Ungverjar urðu
í 4. sæti með I8V2 v. Bandaríkja-
menn og Svisslendingar deildu 5.
sæti með 17 vinninga, Kúbverjar
urðu í 6. sæti með I6V2 v., Kín-
verjar áttundu með 151/2 v. Hol-
lendingar urðu í 9. sæti með 12V2
v. og restina rak lið Afríku með
llVi v.
Sigursveit Sovétmanna skip-
uðu Karpov, Beljavskí, Ehlvest,
Vaganian, Ivantsjúk og M. Gure-
vic.
Bestum árangri 1. borðs
manna náði Viktor Kortsnoj,
hlaut 6 vinninga úr 9 skákum.
Þess má að lokum geta að að-
aldómari í keppninni var Þor-
steinn Þorsteinsson alþjóðlegur
skákdómari.
Úr ýmsum áttum
Undanrásir Reykjavíkurmótsins í
tvímenningskeppni hófust sl. mið-
vikudag og var framhaldið á
fimmtudag. Þeim lýkur næsta þriðju-
dag. 23 efstu pörin úr undanrásum
komast í úrslitakeppni, auk meistara
fyrra árs. Úrslitin verða spiluð helg-
ina 2.-3. desember n.k.
Guðrún Jóhannedóttir og Jón
Hersir Elíasson sigruðu fyrsta Opna
stórmótið með blönduðu fyrirkomu-
lagi, sem haldið hefur verið hér á
landi. 31 par tók þátt í mótinu. í öðru
sæti urðu þau Hulda Hjálmarsdóttir
og Þórarinn Andrewsson og Esther
Jakobsdóttir og Hrólfur Hjaltason
náðu þriðja sætinu.
Kristján Már Gunnarsson og Vil-
hjálmur Þ. Pálsson frá Selfossi urðu
Suðurlandsmeistarar í tvímennings-
keppni 1989. Mótið var haldið í
Eyjum fyrir skemmstu og aðeins 12
pör tóku þátt í mótinu. I öðru sæti
urðu Brynjólfur Gestsson og Sigfús
Þórðarson og Guðjón Einarsson og
Sveinbjörn Guðjónsson urðu í þriðja
sæti, allir frá Selfossi.
Eftir 22 umferðir af 51 í Butler-
keppni Briedgefélags Reykjavfkur,
er staða efstu para þessi:
Gísli Hafliðason -
Þorvaldur Matthíasson 123
Matthías Þorvaldson -
Ragnar Hermannsson 119
Ragnar Magnússon -
Rúnar Magnússon 100
Bjöm Eysteinsson -
Guðmundur Hermannsson 97
Opna stórmótið í Sandgerði, á veg-
um Bridgefélagsins Muninn, verður
spilað á morgun (laugardag). Stefnt
er að þátttöku 34 para. Spilaður verð-
ur barometer með 2 spilum milli para
og hefst spilamennska kl. 10 árdegis.
Spilað verður í Félagsheimilinu.
Stjórn Bridgesambandsins hefur
skipt með sér verkum. Forseti er
Helgi Jóhannsson, varaforseti er
Guðmundur Sv. Hermannsson,
gjaldkeri er Kristján Hauksson, ritari
er Sigríður Möller og í meðstjórn eru
Frímann Frímannsson, Jakob Krist-
insson og Magnús Ólafsson.
Væntanleg skil á meistarastigum,
þeim er óskráð eru, til skrifstofu
Bridgesambandsins, er 1. desember.
Meistarastigaskrá 1990 kemur vænt-
anlega út í byrjun janúar.
Bridgefélag Akraness mun vænt-
anlega gangast fyrir Opnu stórmóti
helgina 9.-10. desember, og endur-
vekja þar með mótahald sem naut
töluverðra vinsælda hér á árum áður.
Nánar síðar.
Þau félög sem eru aðilar að Bridge-
sambandi Islands og spila á höfuð-
borgarsvæðinu eru eftirtalin: á mánu-
dögum; Bridgefélag kvenna, (for-
maður Ólxna Kjartansdóttir) og
Hafnfirðingar (formaður Kristján
Hauksson). Á þriðjudögum; Skag-
firðingar (formaður Ólafur Lárus-
son), Breiðhyltingar (formaður Bald-
ur Bjartmarsson) og Hjónaklúbbur-
inn (formaður Jónas Elíasson). Á
miðvikudögum: Bridgefélag Reykja-
víkur (formaður Haukur Ingason) og
Húnvetningar (formaður Valdimar
Jóhannsson). Á fimmtudögum;
Bridgefélag Breiðfirðinga (formaður
Guðlaugur Karlsson), Bridgefélag
Kópavogs (formaður Trausti Finn-
bogason) og Tafl- og bridgeklúbbur-
inn (formaður Sigurjón Tryggvason).
Auk áðurgreindra félaga eru nokkur
félög sem halda úti reglubundinni
spilamennsku vikulega, en eru ekki
aðilar að BSÍ. Nánari upplýsingar um
starfsemi félaganna veitir skrifstofa
Bridgesambandsins í símum 689360
og 689361.
Eftir 2 umferðir í aðalsveitakeppni
Skagfirðinga, sem hófst sl. þriðjudag,
með þátttöku 10 sveita, er staða efstu
sveita; sveit Lárusar Hermannsonar
39, sveit Arnar Scheving 38, sveit
Geirlaugar Magnúsdóttur 37 og sveit
Sigfúsar Arnar Árnasonar 33.
Eftir 10 umferðir af 13 í aðalsveita-
keppni Breiðfirðinga, er staða efstu
sveita: sveit SALSHA 182, sveit Eh's-
ar R Helgasonar 182, sveit Hans Ni-
elsen 176 og sveit Ólafs Týs Guðjóns-
sonar 171.
Eftir 8 umferðir af 18 í Akur-
eyrarmótinu í sveitakeppni (tvöföld
umferð með þátttöku 10 sveita) er
staða efstu sveita: sveit Hermanns
Tómassonar 165, sveit Grettis Frí-
mannssonar 152, sveit Arnar Einars-
sonar 149 og sveit DAGS 136.
Það hefur víst ekki farið framhjá
neinum bridgeáhugamanni, að Helgi
Jóhannsson er nýkjörinn forseti
Bridgesambandsins. Helgi er einnig
mjög frambærilegur spilari og þótti
hér á árum áður með þeim efnilegri í
íþróttinni. Annir síðustu ára hafa trú-
lega sett Helga stólinn fyrir dyrnar,
hvað varðar frekari ástundun og
sækni í skipulagða keppni.
Lítum á handbragðið hjá Helga, en
spilið kom fyrir í íslandsmótinu í
sveitakeppni 1979, eða fyrir 10 árum.
S: K10975
H: D74
T: Dg7
L: K8
S: Á8
H: Á9
T: 8532
L: D9542
S: D632
H: 653
T: ÁK9
L: ÁG6
Norður vakti á 1 spaða og Helgi í
Suður stökk í þrjú grönd, sem varð
lokasamningurinn. Vestur spilaði út
laufafjarka, Helgi lét áttuna í
blindum og Austur setti tíuna.
Það var ekki ólíklegt að vörnin gæti
tekið 4-5 slagi á hjarta og ef AV sæju
að laufið væri ekki vænlegt til sóknar
þá var nær öruggt að þeir skiptu í
hjarta þegar þeir kæmust inn á spaða-
ás. Helgi tók því fyrsta slaginn á
laufaás heima og spilaði spaða á kóng
og meiri spaða, á ás Vesturs. Og nú sá
Vestur enga ástæðu til annars en að
spila laufi áfram. Það leit út fyrir að
Áustur hefði átt G10 í laufi í upphafi
og því riði á að brjóta laufið meðan
Vestur héldi enn á hjartaás. Nú átti
Helgi 9 slagi en við hitt borðið fóru 4
spaðar 2 niður.
Það er eins með blekkispila-
mennsku og blekkisagnir, hún þarf að
vera vel útfærð til að takast. Og á
stundum ertu staddur undir óska-
stjörnu og þá er allt mögulegt.
Tekið úr Hringsvíningum og
Hræringsþvingunum, eftir Guð-
mund Sv. Hermannsson varafor-
seta BSÍ.
BRIDGE
20 SÍÐÁ - NYTT HELGARBLAÐ
Ólafur Lárusson
S: G10
H: KG1082
T: 1064
L: 1072