Þjóðviljinn - 16.03.1990, Side 19

Þjóðviljinn - 16.03.1990, Side 19
Valdimar örn Flygenring, næturvörður og leikskáld, og Sigríður Haga- lín, kona, sem komin er frá Ameríku með fortíðina í farangrinum. Dóttir hótelstýrunnar fer á fjörumar við jarðfræöinginn jafnvægislausa flnga Hiiaur Haraiasaomr og Sigurður Skúlason). Myndir - Jim Smart Haustlita- sinfónía Sigurður Pálsson: Númer eitt, tvö og þrjú leikrit um persónur, sögu þeirra og örlög þótt ísland sé allsstaðar í bakgrunni - Þetta er svona haustlitasin- fónía, segir Sigurður Pálsson, höfundur Hótels Þingvalla, nýs leikrits, sem verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu annað kvöld. - Leikurinn gerist í nútímanum á Þingvöllum, segir hann, - um haust á Hótel Þingvöllum og er mjög haustlegt verk. Það liggja einhver tímamót í loftinu, það er að Ijúka þarna skeiði, sem tengist á einhvern sérkennilegan hátt öllum þessum tímabilum sem nú er að Ijúka í veröldinni. - Ég skrifaði fyrstu drög að þessu leikriti fyrir einum fjórum árum og þá virkaði þessi hausttilfinning, eða þessi þrá- hyggja um vertíðarlok, sem kem- ur fram í verkinu, mjög einkenni- lega á mig. En eftir því sem á leið varð þetta ljósara, og það er óhætt að segja að árið 1989 hafi verið ótrúlega viðburðaríkt hvað þetta snertir, - mikið tímamóta- ár. Þau tímamót sem þá urðu voru þess eðlis að mann óraði ekki fyrir því mánuðinum áður að nokkuð slíkt gæti gerst. Ef við tökum bara ísland sem dæmi liggja hér einhver tímamót í loftinu. Það er eitthvert ójafn- vægi í íslensku þjóðfélagi, þetta er tímabil mikilla breytinga og það fer fram dauðaleit að nýju jafnvægi, án þess að við vitum nákvæmlega hvað er að breytast eða hvernig. Þessi tilfinning um vegamót kemur fram í verkinu en þar er ekki um að ræða eitthvert skipulegt uppgjör við fortíðina og ekki heldur bent á neinar lausnir, heldur er þetta bara þessi tilfinn- ing að ekkert verði aftur eins og það var. Þessi tilfinning um tímamót tengist svo auðvitað Þingvöllum, spumingunni um íslenskt þjóð- erni og þeirri nauðsyn að við missum ekki minnið sem einstak- lingar og sem þjóð. í þessum fyrstu drögum sem ég minntist á áðan var ég ekki með neinn á- kveðinn stað í huga. Ég var kom- inn með glefsur af persónunum og svo var ég alltaf með eitthvert endalaust raus um Þingvelli inn á milli án þess að mér fyndist nokk- ur sérstök ástæða til að vera eitthvað að minnast á þá. En smám saman fór þetta að renna saman í heild og þá var eðlileg þróun að staðsetja hótelið þar. En ég vil taka skýrt fram svo menn gleymi því ekki, að þetta leikrit er að sjálfsögðu númer eitt tvö og þrjú um persónur, sögu þeirra og örlög, en ekki um Konan frá Ameríku hughreystir son hótelstýrunnar (Kristján Franklín Magnús og Sigríður Hagalín). þjóðfélag, þó svo að ísland sé allsstaðar í bakgrunninum. Leikurinn gerist á einum degi á Hótel Þingvöllum árið 1988 eða 89. Persónumar eru starfsmenn eða gestir hótelsins, það er þama hótelstýra og tvö uppkomin böm hennar, næturvörðurinn, kona frá Ameríku, jarðfræðingur og fólk í haustlitaferð. Hótelstýran er dugnaðarforkur, - með fortíð, og ekki er fortíð konunnar frá Ameríku ómerkari, hún er kom- in aftur til að rifja upp ljúfsára reynslu frá Lýðveldishátíðinni 1944, er sem sagt með fortíðina í farangrinum og í gegnum hana tengjast fleiri persónur en við hugðum því fj ölskyldudrama sem þegar er í gangi á staðnum. Það em þama persónur sem lenda í kröggum vegna þess hvað þær era einhæfar eða öllu heldur jafnvægislausar. Þar má nefna jarðfræðinginn, sem er jafnvægislaus af því að vera ein- göngu efnishyggjumaður, og son hótelstýrannar, sem er í tætlum vegna þess að hann er jarðsam- bandslaus hughyggjumaður, sem sagt jafnvægislaus á hinn veginn. Sú staðreynd að þessar persónur eru jafnvægislausar veldur svo beinlínis misskilningi og átökum. Hlutverk haustlitahópsins er að- allega að létta eitthvað andrúms- loftið í fjölskyldudramanu, en þau dragast þó inn í lausn leiksins. í bakgrunni er svo alltaf vit- undin um sögu Þingvalla, alla þessa dapurlegu og gleðilegu hluti sem þar hafa gerst. Þessir atburðir era að hluta til rifjaðir upp í gegnum næturvörðinn, sem er leikskáld og sofnar gjaman á vaktinni. Á meðan hann sefur birtast ýmsar persónur f gegnum drauma hans, svo kannski er hann að skrifa þetta verk. Hallmar Sigurðsson leikstýrir Hótel Þingvöllum, Hlín Gunn- arsdóttir gerir leikmynd og bún- inga og tónlistin er eftir Láras H. Grímsson. Guðrún Ásmunds- dóttir leikur hótelstýrana, Krist- ján Franklín Magnús og Inga Hildur Haraldsdóttir börn henn- ar og Valdimar Örn Flygenring næturvörðinn. Sigríður Hagalín leikur kon- una sem kemur frá Ameríku með fortíðina í farangrinum, Sigurður Skúlason jarðfræðinginn jafn- vægislausa og haustlitahópurinn eru þau Gísli Halldórsson, Karl Guðmundsson, Soffía Jakobs- dóttir og Valgerður Dan. LG HELGARM ENNINC, IN Föstudagur 16. mars 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.