Þjóðviljinn - 04.05.1990, Blaðsíða 10
AUGLÝSINGAR
Aðalfundur
Þinghóls h.f.
Aðalfundur Þinghóls h.f. verður haldinn föstu-
daginn 4. maí 1990 í húsi félagsins Hamrahlíð
11 í Kópavogi og hefst kl. 20.
Fundarboð með dagskrá hefur verið sent hlut-
höfum.
Reikningar félagsins fyrir árin 1988 og 1989
liggja frammi á skrifstofu félagsins á milli kl. 17
og 18 alla daga fram að aðalfundi.
Að loknum aðalfundarstörfum verða boðnar
fram léttar veitingar. Stjórnln
SVÆÐISSTJORN
MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJAVÍK
Svæðisstjórn málefna fatlaðra í Reykjavík leitar
eftir kaupum á hentugu húsnæði fyrir sambýli í
Reykjavík. Um er að ræða einbýlishús, par-
og/eða raðhús á einni hæð með 5-6 rúmgóðum
herbergjum. Æskileg staðsetning vestan Ellið-
aár.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, bygging-
arár og -efni, herbergjafjölda, brunabóta- og
fasteignamat, afhendingartíma og söluverð,
sendist eignadeild fjármálaráðuneytisins, Arn-
arhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 15. maí 1990.
Fjármálaráðuneytið,
3. maí 1990
Veðurathugunarmenn
á Hveravöllum
Veðurstofa íslands óskar að ráða tvo einstak-
linga, hjón eða einhleypinga, til veðurathuguna
á Hveravöllum á Kili. Starfsmennirnir verða
ráðnir til ársdvalar, sem væntanlega hefst í lok
júlímánaðar 1990. Umsækjendur þurfa að vera
heilsuhraustir og reglusamir, og nauðsynlegt
er, að a.m.k. annar þeirra kunni nokkur skil á
meðferð véla. Tekið skal fram, að starfið krefst
góðrar athyglisgáfu, nákvæmni og samvisku-
semi. Laun eru samkvæmt launakerfi ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
heilsufar, menntun, fyrri störf og meðmælum,
ef fyrir hendi eru, skulu hafa borist Veðursto-
funni fyrir 20. maí n.k.
Allar upplýsingar eru gefnar í tækni- og veður-
athuganadeild Veðurstofunnar Bústaðavegi
9, 150 Reykjavík, sími 600600.
VISINDARAÐ
Sérfræðingsstaða
Staða sérfræðings við Vísindaráð er laus til
umsóknar.
Starfssvið er m.a. skýrslu- og áætlanagerð,
vinna við mótun vísindastefnu og almenn
stjórnunar- og skrifstofustörf.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkis-
ins.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
menntun og starfsferil sendist Vísindaráði, Bár-
ugötu 3, 101 Reykjavík fyrir 1. júní n.k.
Lögtök
Eftir kröfu gjaldheimtustjórans í Reykjavík og að
undangengnum úrskurði verða lögtök látin fara
fram án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda,
en á ábyrgð Gjaldheimtunnar, að átta dögum
liðnum frá birtingu auglýsingar þessarar fyrir
eftirtöldum gjöldum:
Vanskilafé, álagi og sektum skv. 29. gr. laga nr.
45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda fyrir
1.-3. greiðslutímabil 1990 með eindögum 15.
hvers mánaðar frá febrúar 1990 til apríl 1990.
Reykjavík 02. 05. 1990
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
AUGLYSINGAR
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
ORUGGT VAL
TIL
VINSTRI!
Sigurjón Pétursson
Guðrún Ágústsdóttir
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Kosningaskrifstofa
Kosningaskrifstofa G-listans í Reykjavík að Hverfisgötu 105 er
opin alla virka daga frá kl. 16.00-20.00, laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 14.00-18.00. Stuðningsmenn eru hvattir til að taka
þátt í stefnumótun og kosningavinnu. Frambjóðendur á staðnum
alla daga. Símar kosningaskrifstofu eru 625470, 625475 og
17500. Heitt á könnunni.
G-listinn í Reykjavík
ÆFR á Nýjum vettvangi
Opinn fundur í Múlakaffi
Opinn fundur í Múlakaffi laugardagsmorgun 5. maí kl. 9.00.
Ræðumenn: Kristín Á. Ólafsdóttir og Hrafn Jökulsson.
Fundarstjóri: Kristín Guðmundsdóttir.
H-listinn. Nýr vettvangur
ÆFR á Nýjum vettvangi
Sjálfboðaliðar óskast
Nýr vettvangur óskar eftir sjálfboðaliðum til ýmissa starfa, svo
sem aksturs, dreifingar, sölustarfa o.fl.
Sjálfboðaliðar hafið samband við skrifstofu Nýs vettvangs, Þing-
holtsstræti 1 (Bankastrætismegin). Sími: 625525.
H-listinn
Utankjörfundarskrifstofa
Alþýðubandalagsins
Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík
Símar: 629982 og 629983
Myndsendir: 17599
Utankjörfundarskrifstofa Alþýðubandalagsins er í Miðgarði,
Hverfisgötu 105, 4. hæð.
Skrifstofan veitir upplýsingar um kjörskrá og aðstoðar við kjör-
skrárkærur.
Athygli er vakin á því að kærufrestur vegna kjörskrár rennur út 11.
maí n.k.
Símar aðalskrifstofu Alþýðubandalagsins eru: 17500 og 629971
og 72.
Alþý&ubandalagið hvetur alla þá kjósendur sem staddir
verða utan heimabygg&ar á kjördag 26. maí að kjósa
snemma. Alþý&ubandalagið
Alþýðubandalagið ísafirði
Kosningaskrifstofa
Kosningaundirbúningur er hafinn af fullum krafti. Skrifstofan er
opin frá 14-19. Sími: 3020.
Félagar eindregið hvattir til að koma á skrifstofuna til að fá fréttir af
málefnum bæjarins og greiða fólagsgjöldin. Stjórnin
, Alþýðubandalagið í Reykjavík
Stuðningsmenn G-listans í Reykjavík! Hafið samband við skrif-
stofu félagsins að Hverfisgötu 105, sími 17500 og gerist félagar í
Alþýðubandalaginu í Reykjavík. Styrkjum þannig stjórnmálastarf
félagsins. Stjórnin
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn 8. maí kl. 20.30 í Skálanum, Strand-
götu 41.
Fundarefni kosningastarfið, -undirbúningur og horfur.
Stuðningsmenn og félagar fjölmennið. Stjórnin
Alþýðubandalagið Egiisstöðum
Kosningaskrifstofa
Alþýðubandalags Héraðsmanna að Selási 9 verður opin
alla virka daga frá 20.30 - 23.00.
Þar kólnar aldrei á könnunni og allir eru velkomnir til skrafs og
ráðagerða.
) Sími: 11425. Stjórnin
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Spilakvöld
Spilakvöld verður í Þinghóli, Hamraborg 11, mánudaginn 7. maí
kl. 20.30.
Allir velkomnir. Stjórnin
Alþýðubandalagið í Keflavík
Kosningaskrifstofan
Búið er að opna kosningaskrifstofu á Hafnargötu 37A og verður
hún opin fyrst um sinn frá 15 til 19 og 20.30 til 22.
Sími: 11061.
Stuðningsmenn eru hvattir til að líta við á skrifstofunni og fá fréttir.
Frambjóðendur verða til viðtals á kvöldin. G-listinn í Keflavfk
Alþýðubandalagið Kópavogi
Opið hús
f Þinghól, Hamraborg 11 kl. 10-12 alla laugardaga fram yfir bæjar
stjórnarkosningar.
AUGLYSINGAR
Alþýðubandalagið í Borgarnesi
Minnir á kosningaskrifstofuna
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins í Borgarnesi er opin alla
virka dagaíRöðli frá kl. 20.30 til 22.00. Laugardaga frákl. 14-17.
Á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí nk. verður
opið hús í Röðli frá kl. 20.30. Frjálsar stjórnmálaumræður- kaffi-
veitingar.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Kosn i ngaskr if stof a
Kosningaskrifstofa G-listans í Hafnarfirði, Skálanum, Strandgötu
41, er opin 14 - 20 alla virka daga og frá 10 til 14 á laugardögum.
Sími: 54171.
Stuðningsmenn hvattir til að líta inn og ræða bæjarmálin. Heitt
kaffi á könnunni.
Alþýðubandalagið Vestmannaeyjum
Vinnufundir - Opið hús
Kosningaundirbúningur frambjóðenda Alþýðubandalagsins í
Eyjum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar er hafin. Vinnufundir
verða haldnir öll fimmtudagskvöld frá klukkan 20.30 í húsi félags-
ins við Bárugötu. Stuðnirgsfólk er hvatt til að mæta og hafa áhrif á
stefnumótunina. Opið hús verður álla laugardaga frá klukkan 13 -
15- Frambjó&endur AB
Alþýðubandalag Hafnarfjarðar
Viðtalstímar
Bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins, Magnús Jón Árnason, verður
til viðtals á kosningaskrifstofunni Skálanum, Strandgötu 41, mán-
udaga, miðvikudaga og föstudaga frá kl. 16-17. Áhugafólk um
bæjarmál hvatt til að koma.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Vinnufundur
Vinnufundur verður í kosningamiðstöð G-listans, Hverfisgötu
105, í kvöld frá kl. 17-19. Rætt verður um heilbrigðismál,
æskulýðs- og íþróttamál.
Kaffi og meðlæti. Allir stuðningsmenn velkomnir.
Takið þátt í stefnumótun með frambjóðendum G-listans.
Kosningastjórn ABR
Aðalfundur Birtingar
verður haldinn laugardaginn 5. maí á Kornhlöðuloftinu, Bern-
höftstorfu. Aðalfundurinn fer fram í þremur hlutum, og hefst á
umræðufundi um stöðuna í sjávarútvegsmálum, frá 13.30 til um
15.00. Þá taka við hefðbundin aðalfundarstörf, og standa til um
17.00. Frá klukkan 21.00 verður síðan samsæti með óformlegu
spjalli og óvæntum skemmtiatriðum í Stúdentakjallaranum við
Hringbraut.
Tímamót í sjávarútvegi 13.30*15.00)
Snjólfur
Svanfríður
Mörður
Opinn umræðufundur um endurskipulagningu í íslenskum sjávar-
útvegi og nýjar hugmyndir um fiskveiðistjórn.
Snjólfur Ólafsson ræðir um nýskipan við stjórn fiskveiða, hug-
myndir um kvótaleigu og breytingar á efnahagsstjórn. Svanfríður
Jónasdóttir ræðir um afdrif og afleiðingar kvótafrumvarpsins,
stefnu hagsmunahópa og stjórnmálaflokka. Mör&ur Árnason
segir frá málefnastarfi Birtingarmanna og stýrir umræðum.
Adalfundarstörf (15.00-17.00)
Hrafn
Kristín
Össur
Dagskrá:
1. Hefðbundin aðalfundarstörf, Kjartan Valgarðsson formaður
flytur skýrslu stjórnar, bornir upp reikningar, hugsanlegar laga-
breytingar afgreiddar, kosin ný stjórn.
2. Sveltarstjórnarkosningarnar Ávörp: Hrafn Jökulsson og
Kristín Ágústa Ólafsdóttir.
3. Umræður.
Fundarstjóri: Össur Skarphéöinsson.
Samdrykkja í Stúdentakjallaranum (21.00-)
Óformlegar þjóðmálaumræður, óvænt skemmtiframlög.
Margrét Sigrún syngur sigurlagið í Evróvisjón. Þjóðkunnur að-
stoðarforstjóri stígur flóðhestadansinn. Leiklesnar kosninga-
ræður oddvita minnihluta borgarstjórnar frá 1970, 1974, 1982,
1986 og 1990. Stjórnin
10 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 4. maí 1990