Þjóðviljinn - 08.06.1990, Page 2
rWj. iwMji Wg > uHHK . ; ’ ' 1' -'-7',fTíír , . v.1 É^/'-íC’í' : ‘ - H^HBHK\tP pPS . T- j, . , '||aEH|H^H9Sv5t \ I jEL. || í Mm f%fSp: 'Wm' Mll - ■ • DH BL v HHHH|
Hvað á þetta að þýða?
Skaði er einhversstaðar á flakki í
miðju ábyrgðarleysi sumarsins, en áður
en hann hljóp út í buskann skildi hann
eftir þessar tvær myndir.
Fáið eitthvað út úr þeim ef þið getið,
sagði hann.
Og gat ekki stillt sig um að koma
með útskýringar á þessa leið:
Önnur myndin er úr málgagni ungra
sjálfstæðismanna, Stefni. Yndisleg
mynd reyndar, einhver fallegasta mynd
sem tekin hefur verið síðan Stalín dó.
Hún sýnir Davíð, foringjann vaska
og áræðna, sem fram gengur til að slá
Filisteann. Hinn sexhöfða þurs vinstrik-
raðaksins. Og myndin sýnir líka, að það
er lýgi sem vinstrimenn segja um að
Davíð sé bara einn á báti. Hann er hetja,
en ekki eru þeir síður hetjur sem standa
í kringum hann og að baki honum og
horfa af einbeitni og festu framan í
hvem pólitískan háska.
Hin myndin er svo komin frá vini
vorum Ólafi Th. Ólafssyni og hún býð-
ur upp á margskonar túlkun.
Menn gætu sagt að hún væri í beinu
framhaldi af ljósmyndinni. Hún sýnir á-
standið eftir bæjarstjómarslaginn. Tak-
ið eftir því að þær em níu fígúmmar
sem liggja flatar í Öskjuhlíðinni.
Þær tákna náttúrlega þær níu fígúmr
sem minnihlutaflokkamir hefðu þurft
að fá inn í borgarstjóm til að fá meiri-
hluta.
Eða hafíð þið aðra kenningu?
Svo er það náttúrlega mikið mál hve
mikilvægt húsið nýja í Öskjuhlíðinni er
á myndunum. Þetta hús sem vinir Dav-
íðs kenna við Perluna dým en óvinir
kalla Kúlusukk.
En ég vil kalla Móðurbijóstið...
NÝJAST í
SPORTINU
Hausaveiðar hafhar hér á
landi.
Pressan
EKKERT MÁ NÚ
Sólbekkjagægir handsamað-
ur.
Morgunblaðið
ALHLIÐA
ÞJÓNUSTA
Boðið upp á svæðanudd og
miðilsaðstoð.
DV
MARGT ER
SKRYTIÐ I
KÝRHAUSNUM
Nautin í Morgunblaðsfjósinu
eru búin að uppgötva gjá milli
landsbyggðar og þéttbýlis.
DV
FRAMSÓKNAR-
LEIÐIN REYND
Jón Baldvin opnar pólitískar
bakdyr.
Tíminn
KOMINN UNDIR
HATTJÓNS
Hrafh (Jökulsson) er búinn
að fá sér barðahatt að hætti Jóns
Baldvins...
Tíminn
KYNLEGT KYNLÍF
Stóðhestar: Ný kyntröll.
Hesturinn okkar
HVAÐAN ER
LIÐHLAUPINN?
Sjálfstæðisflokkurinn tapar
187 atkvæðum og Alþýðuflokk-
urinn 197 sem gera samtals 384
atkvæði og í listinn fær 385 at-
kvæði þannig að ég veit ekki
hvaðan þessi eini kemur.
Bæjaríns besta
JEREMÍAS!
Trúarbragðadeilur í sauðfjár-
ræktinni.
Bændablaðið &
Landsbyggðin
ARFTAKI
GENE KELLY
Skjóni verður Singing-in-
the-Rain.
Hesturinn okkar
2 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 8. júní 1990