Þjóðviljinn - 08.06.1990, Blaðsíða 7
Allt snýst
um Þýskalandsmál
Sovétríkin vilja hraða myndun nýs ör-
yggiskerfis er komi ístað Nató og Var-
sjárbandalags. Vestrœnir ráðamenn
viljafara sér hœgar íþvíefni, enþeim er
jafnframt áhugamál að styrkja stöðu
Gorbatsjovs heimafyrir
Skoðanir eru skiptar um árang-
ur ráðstefnu þeirra Bush og
Gorbatsjovs í Washington, sum-
part án efa vegna þess að ráð-
stefnur þess síðarnefnda með
húsbændum í Hvíta húsinu eru á
leiðinni að verða til þess að gera
hversdagslegir atburðir. En ekki
verður annað sagt um ráðstefnu
þessa um mánaðamótin en að á
henni hafi verulegur árangur
náðst, ekki síst ef þrátefli kalda
stríðsins er tekið til samanburð-
ar.
Eftir átta ára stapp hefur
Bandaríkjunum og Sovétríkjun-
um í fyrsta sinn tekist að ná í meg-
inatriðum samkomulagi um
fækkun langdrægra kjarnavopna.
Ætlast er til að fyrir árslok verði
undirritaður samningur um þriðj-
ungs fækkun slíkra vopna í eigu
stórvelda þessara tveggja, eða
þar ujn.bil. Þá náðist á ráðstefn-
unni samkomulag um að Banda-
ríkin og Sovétríkin hætti þegar í
stað framleiðslu efnavopna. Eftir
tíu ár eiga stórveldin tvö þar að
auki að hafa eytt helmingi allra
slíkra vopna, er þau hafa yfir að
ráða, og eftir tvö ár í viðbót að
hafa minnkað birgðir sínar af
Nautakjötsbanni
aflétt
Frakkland, Ítalía og Vestur-
Þýskaland hafi heitið því að
aflétta banni því er stjórnir þeirra
settu við innflutningi á nautakjöti
frá Bretlandi, af ótta við BSE-
veikina í nautgripum þarlendis.
Breska landbúnaðarráðuneytið
lofar á móti ráðstöfunum sem
eiga að tryggja að kjöt af sýktum
gripum verði ekki flutt út til
nefndra þriggja meginlandsríkja.
Virðist þar með vera lokið máli,
sem var á leiðinni að verða meiri-
háttar viðskiptadeila innan Evr-
ópubandalagsins.
Sovétsendiherra í
Páfagarði
Júríj Karlov, fyrsti ambassador
Sovétríkjanna í Páfagarði, af-
henti Jóhannesi Páli páfa öðrum
trúnaðarbréf sín í gær. Páfagarð-
ur og Sovétríkin tóku upp
stjórnmálasamband sín á milli í
mars s.l. og lauk þar með sjö ára-
tuga tímabili lítils vinskapar þar á
milli.
Dregið úr viðskipta-
hömlum
Vesturlandaríki hafa komist að
samkomulagi um að draga úr tak-
mörkunum á útflutningi á há-
tæknivarningi til Austur-
Evrópulanda og Sovétríkjanna.
Er svo að heyra að Vestur-
Þýskaland, sem er áfram um að
flytja út hátækni til Austur-
Þýskalands, hafi verið þessa
mjög hvetjandi.
þeim niður í 500 smálestir á hvort
stórveldi.
Viðskiptasamningur
til hjálpar Gorbatsjov
Þá urðu forsetarnir tveir sam-
mála um að leggja áherslu á að
samkomulag um niðurskurð
hefðbundins vígbúnaðar í Evr-
ópu verði frágengið fyrir árslok.
Þar að auki hafði Gorbatsjov
heim með sér af ráðstefnunni við-
skiptasamning, þann umfangs-
mesta sem nokkru sinni hefur
verið gerður milli stórvelda þess-
ara tveggja.
Fyrir ráðstefnuna var gert ráð
fyrir því að mál Eystrasaltslanda
og Þýskalands yrðu þar helstu
ágreiningsefnin. Það stóð heima.
Viðskiptasamningurinn er að
mati sumra mikill sigur fyrir Gor-
batsjov og Bandaríkjastjórn, sem
hefur skiljanlegar áhyggjur af því
að valdatíð hans kunni að verða
lokið fyrr en varir, mun einmitt
hafa gert við hann samning þenn-
an með það fyrir augum að hressa
upp á virðingu hans heimafyrir.
En ekki er það mál komið í höfn,
því að samningurinn öðlast ekki
gildi fyrr en öldungadeild Banda-
ríkjaþings hefur samþykkt hann.
Opinberlega er skilyrðið fyrir því
að sovéska æðstaráðið samþykki
lög, er auðveldi þaríendum
mönnum að flytjast úr landi, ef
þeir svo vilja.
Sovétmenn þeir sem eins og
sakir standa eru mest áfram um
að yfirgefa föðurland sitt eru gyð-
ingar, sem streyma til ísraels, og
er búist við að þeir muni flytjast
þangað svo hundruðum þúsunda
skipti á yfirstandandi ári. Það
hefur orðið til þess að arabaríki
og fleiri íslamsríki leggja fast að
Sovétríkjunum að stöðva þann
fólksútflutning. Með hliðsjón af
ókyrrðinni á sovéskum múslím-
um má ljóst vera að það mál geti
orðið óþægilegt fyrir sovésku
stjórnina.
Erfitt að sniöganga
Eystrasaltslönd
Mál Eystrasaltslanda voru
mikið til sniðgengin á ráðstefn-
unni og stafaði það einnig af
nærgætni Bandaríkjastjórnar við
Gorbatsjov, af áður umgetinni
ástæðu. En þetta vandamál er
eigi að síður veruleiki, sem stór-
veldin tvö eiga ekki gott með að
sniðganga í samskiptum sínum
yfirleitt. Bandaríkjamenn ættað-
ir frá Eystrasaltslöndum hafa
vakið athygli á málstað ættlanda
sinna og málflutningur þeirra
hefur haft veruleg áhrif á Banda-
ríkjaþing. Það gæti haft sín áhrif
er öldungadeildin tekur við-
skiptasamninginn til umfjöllun-
ar.
Raunar er ekki víst að við-
skiptasamningurinn verði stjórn
Gorbatsjovs til mikils framdáttar
heimafyrir. Þetta er ekki bestu-
kjarasamningur, og það sárnar
Gorbatsjov og Bush í Washington - haldið er áfram að reyna að finna lausn á
ágreiningi þeirra um framtið Þýskalands.
AÐ UTAN
Sovétmönnum með tilliti til þess,
að Kínverjar njóta slíkra kjara í
viðskiptum við Bandaríkin, þrátt
fyrir kúgun á andófsmönnum í
Kína. Þar að auki virðast eins og
sakir standa vera takmarkaðar
líkur á því að hægt sé að auka
viðskipti Bandaríkjanna og Sov-
étríkjanna að stórum mun, aðal-
lega vegna þess að Sovétríkin
nafa ekki upp á margt að bjóða
sem líklegt er að Bandaríkja-
mönnum þyki girnilegt til inn-
flutnings.
í samskiptum Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna eru það Þýska-
landsmálin, sem öllu öðru fremur
eru í brennidepli og margt annað
er komið undir. Árangur við-
ræðnanna í Vín um niðurskurð
hefðbundins vígbúnaðar í Evr-
ópu er þannig að miklu leyti
undir því kominn, hvernig tekst
að ráða fram úr þeim málum.
Nátengd Þýskalandsmálum er
einnig spurningin um framtíð
Atlantshafsbandalags og Var-
sjárbandalags, „máttarstólp-
anna“ gömlu úr kalda stríðinu, en
talsverð óvissa virðist ríkja um
hvað eigi eiginlega af þeim að
gera þegar kaldastríð og járntjald
eru ekki lengur til.
Ágreiningur ekki
ýkja mikill
Munurinn á afstöðu Sovétríkj-
anna og Vesturlanda í Þýskal-
andsmálum virðist raunar ekki
mjög mikill. Báðir þessir aðilar
hafa sætt sig við sameiningu
Þýskalands sem óhjákvæmilegan
hlut, báðir ganga út frá því að
hlutverk hernaðarbandalaganna
breytist, að pólitíski þátturinn í
starfi þeirra aukist á kostnað hins
hernaðarlega. Báðir telja
æskilegt að samráð með aðild
DAGUR
ÞORLEIFSSON
allra ríkja Evrópu og Norður-
Ameríku, einnig um hermál,
aukist, enda vart ráð fyrir öðru
gerandi éftir þá gagngeru
breytingu á stöðu Austurs og
Vesturs hvers gagnvart öðru, sem
varð með lýðræðisbyltingunni í
Austur-Evrópu s.l. ár.
Aðalmunurinn virðist liggja í
því að sovéska stjórnin vill ganga
lengra í flestum þessara mála en
Vesturlönd eru reiðubúin að
samþykkja þegar í stað. Það má
eðlilegt kalla. Austurblökkin
gamla er varla til lengur. Hvað
alþjóðamál varðar er aðaláhuga-
efni Austur-Evrópuríkja að kom-
ast í nánari efnahagssambönd við
Vestrið. Af Varsjárbandalaginu
er varla mikið eftir framyfir form-
ið eitt. Stjórnir Tékkóslóvakíu og
Ungverjalands fara ekki leynt
með að hugir þeirra standi til þess
að ganga úr bandalaginu og lík-
legt er talið að ríki þessi geri al-
vöru úr því þegar að loknum við-
ræðunum í Vín um niðurskurð
hefðbundins vígbúnaðar. Jozsef
Antall, forsætisráðherra Ung-
verjalands, sagði í gær að stjórn
hans teldi æskilegt að „núverandi
form bandalagsins" yrði lagt nið-
ur fyrir lok næsta árs.
Naumur tími ffyrir
Gorbatsjov—tilvistar-
kreppa í Nató
Sovétríkin hafa því orðið litlu
að tapa hvað Austur-Evrópu og
Varsjárbandalagið varðar. Gor-
batsjov er því kappsmál að koma
upp einhverskonar öryggiskerfi í
staðinn, og í þeim efnum á sov-
éska stjórnin varla annars kost en
að taka upp nánara samráð við
Vesturlönd. Fyrir Gorbatsjov er
það þar að auki áríðandi að slíku
kerfi sé komið á hið allra fyrsta,
því að óvissan í þessum málum
getur orðið vatn á myllu hinna og
þessara aðila í Sovétríkjunum,
sem meira eða minna óhressir eru
með gang mála. Af þeim aðilum
er herinn hvað efst á blaði. Fækk-
un í honum, eyðing vopna og
samdráttur vopnaframleiðslu
vekur ugg herforingja og her-
manna um að verða atvinnulausir
og minnkandi Iíkur á frama.
Að hraða þróun um myndun
sameiginlegs öryggiskerfis er
ekki eins áríðandi Natómegin. f
Atlantshafsbandalaginu er engin
upplausn, þvert á móti hafa Vest-
urlönd eflst hlutfallslega í al-
þjóðamálum með upplausn
austurblakkarinnar. En Nató
hefur eigi að síður fengið tilvist-
arkreppu í fangið, vegna þess að
andstæðingurinn, sem það hafði
til tilveruréttlætingar í kalda
stríðinu, getur vart talist and-
stæðingur lengur. Þarað auki ótt-
ast vestrænir ráðamenn að Gor-
batsjov kunni að missa völdin og
Sovétríkin að leysast upp af völd-
um efnahagsvandræða og þjóð-
ernishreyfinga og enginn veit
hvað þá kynni að taka við austur
þar.
Tilboö í níu liðum
Þeir Baker og Shevardnadze,
utanríkisráðherrar Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna, ræddu
Þýskalandsmál á mannréttinda-
ráðstefnu RÖSE í Kaupmanna-
höfn og herma fregnir að þeim
hafi miðað í átt til samkomulags.
Genscher utanríkisráðherra
Vestur-Þýskalands hafði áður
heitið á sovésku stjórnina að
auðsýna Nató þolinmæði, meðan
það væri að átta sig á breyttum
kringumstæðum og endurforma
sig samkvæmt þeim. Utanríkis-
ráðherrar Natóríkja, sem í gær
voru á ráðstefnu í Turnberry í
Skotlandi, voru sagðir hafa rætt
tilboð, sem Bandaríkjastjórn
með samþykki bandamanna
sinna hefur gert sovésku stjórn-
inni, í von um að það dugi til þess
að Sovétríkin samþykki að sam-
einað Þýskaland gangi í Nató.
Atriði þess tilboðs eru:
Hernaðarlegt hlutverk Nató
verði tekið til gagngerrar endur-
skoðunar og stefnt að því að vett-
vangur bandalagsins verði eftir-
leiðis meira á sviði alþjóðastjórn-
mála, en minna á sviði hermála.
Hlutverk RÖSE, ráðstefnu 35
Evrópu- og Norður-Ameríku-
ríkja um öryggi og samvinnu í
Evrópu, verði aukið og form-
legum stofnunum á vegum henn-
ar komið á fót. Sovéska stjómin
hefur óskað eftir þessu og gefið í
skyn, að hún vilji láta samstarf á
vegum RÖSE leysa hemaðar-
bandalögin að miklu leyti af
hólmi.
Undinn verði bráður bugur að
fækkun skammdrægra kjarna-
vopna í Evrópu.
Þýskaland veiti Sovétríkjunum
drjúga efnahagsaðstoð.
Engar Natóhersveitir verði
sendar inn á það svæði, sem nú er
Austur-Þýskaland.
Sovéskur her verði áfram á því
svæði í fimm til sjö ár. Vestur-
þýska stjómin hefur lofað að
Þýskaland taki þátt í að greiða
kostnaðinn við þá hersetu.
Þýskaland heiti því að eignast
ekki kjarna-, efna- eða sýkla-
vopn.
Fækkun í her sameinaðs
Þýskalands verði rædd í Vín að
náðu samkomulagi í yfirstand-
andi viðræðum um niðurskurð
hefðbundins vígbúnaðar.
Tryggt verði að Þýskaland geri
engar kröfur til landsvæða, sem
það missti í lok heimsstyrjaldar-
innar síðari.
Föstudagur 8. júní 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 7