Þjóðviljinn - 08.06.1990, Síða 19
„Fiskur með gott minni man ekki eftir neinu vegna
þess að hann gleymir engu.“ Viðtal heitir þetta verk
eftir Kjetil Sköien, bláir þorskhausar ræðast viðá
bláum bekk á ónefndum stað^^
Hvar er seglið? Sigríður Guðjónsdótt-
ir gerði skúlptúrinn, en staðsetningin
er að sjálfsögðu ekki gefin upþ.
Myndir: Kristinn
ICAR MKNNINGIN
„Móttökuskilyrði aldrei betri“ f Risi Þorvalds Þorsteinssonar.
í fjár-
sjóða-
leit
FYRIR OFAN GARÐ OG
NEÐAN I PINGHOLTUNUM
Alla hefur einhverntíma
dreymt um fara í fjársjóðaleit og
nú gefst tækifærið. Ovenjuleg-
asta sýningin á Listahátíð er án
efa Fyrir ofan garð og neðan sem
Nýlistasafnið stendur fyrir undir
berum himni í Þingholtunum.
Fyrir þá sem vilja fara á þessa
nýstárlegu sýningu er nauðsyn-
legt að komast yfir kort sem Ný-
listasafnið og fleiri söfn hafa
undir höndum því annars gæti
leitin að listaverkunum reynst
torveld.
Það reyndi blaðamaður Nýs
Helgarblaðs daginn fyrir opnun
sýningarinnar þann 1. júní síð-
astliðinn. Bjartsýnn lagði blaða-
maður af stað og hugðist ganga
fram á risavaxin umhverfislista-
verk í Þingholtunum. Ljósmynd-
ari var með í för og átti nú að festa
öll herlegheitin á filmu. En engin
fundust verkin og blaðamaður
fór sneyptur heim.
Kortið auðveldar leitina að
fjársjóðunum en menn verða að
stíga út úr bílunum, vera vakandi
og veigra sér ekki við að kíkja inn
í annarra manna garða til þess að
hafa uppi á verkunum.
Nýlistaverkin í Þingholtunum
eru rúmlega tuttugu eftir 26 inn-
lenda og erlenda listamenn.
Verkin eru af ýmsu tagi, rýmis-
verk, skúlptúrar, myndbönd,
hljóðverk og myndhreyfingar
fyrir opin svæði í Þingholtunum.
Gjörningar
í tengslum við sýninguna Fyrir
ofan garð og neðan eru gjörning-
ar bæði inni í Nýlistasafninu og
undir berum himni. Sýningin var
opnuð með dagskrá í Hallargarð-
inum síðasta laugardag. Einn
gjörningurinn á dagskránni var
að hluta til nakinn maður, sem
fór fyrir brjóstið á vegfarendum,
og var hann fjarlægður af lög-
reglu.
Fleiri skemmtilegir gjörningar
verða á næstu dögum. I kvöld kl.
20 flytja Kaethe Kruse og Wolf-
gang Mueller ásamt hljóm-
sveitinni Die Tödliche Doris
hljómlistargjörning. Á morgun
kl. 15 flytur Helgi Skj. Friðjóns-
son gjörninginn Undir grænni
torfu. Á sama tíma flytur Rod
Sommers gjörninginn Kvöld-
verðarhljómlist fyrir Jukka.
Seinna um kvöldið flytur Brian
Catling gjörning að nafni Elds-
auga.
Ofantaldir gjörningar fara
fram í Nýlistasafninu, Vatnsstíg
3b og er aðgangur ókeypis. Auk
þess verður í dag, á sunnudag og
þriðjudag kl. 16.30 og aftur kl. 17
að Laugavegi 7 og 8 uppákomur,
sem ásamt rýmisverkum Maria
Roers og Thomas Dreissigacker,
ganga undir heitinu Það er ekkert
það þar. Guðrún Gísladóttir leik-
kona flytur leikverk eftir Beckett
og Gertrud Stein.
Fjársjóðakortið fæst víða, á
flestum söfnum borgarinnar, eins
og Listasafni íslands, Kjarvals-
stöðum og Nýlistasafninu við
Vatnsstíg 3b. Auk þess er upplagt
fyrir menn að næla sér í kortið í
miðasölu Listahátíðar við Lauf-
ásveg og í Borgarbókasafninu við
Þingholtsstræti. Sýningin stendur
til 16. júní.
BE