Þjóðviljinn - 08.06.1990, Qupperneq 25
SKÁK
HELGI
ÓLAFSSON
Afdrifarikt tap Jóns L. í
lokaumferð Moskvumótsins
Jón L. Ámason hafði ekki hepp-
nina með sér þegar síðasta umferð
lokamóts Stórmeistarasambandsins
rann upp í Moskvu sl. þriðjudag.
Hann þurfti aðeins jafntefli til að
tryggja sér þátttökurétt í næstu
heimsbikarkeppni en örlögin höguðu
því svo að andstæðingur hans, Búl-
garinn Kiril Georgiev, var hálfum
vinningi á eftir Jóni og varð að vinna
til að tryggja sér þennan eftirsóknar-
verða aðgöngumiða. Jón L. vann Ge-
orgiev örugglega á úrtökumóti GMA
í Palma í desember sl. og hann var á
réttri leið í þessari skák lengi vel. En
honum urðu á mistök og mátti játa sig
sigraðan að loknum 61. leik. Þannig
fór um sjóferð þá. Það sýnir vel
hversu nálægt Jón var að hann varð í
8.-9. sæti af aðkomumönnum ásamt
Bandaríkjamanninum Gulko sem
einnig tapaði í síðustu umferð fyrir
Sovétmanninum Khalifman. Þetta
voru einu skákirnar í toppbaráttunni
sem ekki lauk með jafntefli.
Mótið í Moskvu var skipað 42 skák-
mönnum sem kepptu um 12 sæti í
heimsbikarkeppninni. Vegna sérs-
takra reglna gátu aðeins fimm Sovét-
menn unnið sér rétt og sautján skák-
menn frá öðrum löndum kepptu um
sjö sæti. Meðal „gestanna“ var Eng-
lendingurinn Jonathan Speelman
sem var hvort eð var búinn að tryggja
sér þátttökurétt á reiknuðum meðal-
stigum. Hann taldist fullgildur þátt-
takandi og tók því eitt sæti frá. Spe-
elman er allra viðfeldnasti náungi en
var ekki sérlega vinsæll fyrir vikið.
Hann heimsækir Sovétríkin alltaf
annað slagið, „til þess að æfa rússne-
skuna,“ eins og hann orðar það.“
Gífurlegur taugatitringur setti svip
á alla keppnina, ekki síst meðal so-
vésku skákmeistaranna. Stutt jafn-
tefli voru tíð og lítið um glæsileg tilþ-
rif. Lokaniðurstaðan, varð:
1.-5. Speelman (England), Gurevic,
Khalifman, Azmaparashvili og Baar-
ew (Sovétríkjunum) 7 vinninga. 6.-
12. Beljavskí (Sovétríkin), Portisch
(Ungverjalandi), Gelfand, Ivantsjúk,
Polugajevskí (Sovétrfkjunum), Nick
De Firmian (Bandaríkjunum) og
Chandler (Englandi) 6V2 v. 13.-16.
Serawan (Bandaríkin), Nikolic (Júgó-
slavía, Georgiev (Búlgaría) og Chern-
in (Sovétríkin) 6 v. 17.-18. Eingorn
og Dorfman (Sovétríkjunum) 5'/2 v.
og innbyrðis biðskák sem ekki getur
haft nein áhrif á lokaniðurstöðuna.
28 sveitir taka þátt í Bikarkeppni
Bridgesambands íslands að þessu
sinni. Slakasta þátttaka í áraraðir.
Dregið hefur verið í 1. umferð og 2.
umferð keppninnar. Eftirtaldar 4
sveitirsitja yfirí 1. umferð. Sigmund-
ur Stefánsson Reykjavík, Trésfld
Reyðarfirði, Verðbréf íslandsbanka
Reykjavík og Þröstur Ingimarsson
Kópavogi.
Þessir mætast í 1. umferð:
Grettir Frímannsson Akureyri gegn
Flemming Jessen Hvammstanga.
Samvinnuferðir Reykjavík gegn Stef-
áni Sveinbjörnssyni Eyjafirði.
Ragnar Magnússon Reykjavík gegn
Sigurði Sigurjónssyni Kópavogi.
Fjóla Magnúsdóttir Reykjavík gegn
sveit M.L.
Esther Jakobsdóttir Reykjavík gegn
Skúla Jónssyni Sauðárkróki.
S. Ármann Magnússon Reykjavík
gegn Guðmundi Baldurssyni Reykja-
vík.
Alfreð Kristjánsson Akranesi gegn
Ásgrími Sigurbjörnssyni Siglufirði.
Delta Hafnarfirði gegn Jóhannesi
Sigurðssyni Keflavík.
Baldur Bjartmarsson Reykjavík gegn
Sveini R. Eiríkssyni Reykjavík.
Hótel Höfn Hornafirði gegn Trygg-
ingamiðstöðinni Reykjavík.
Eðvarð Hallgrímsson Skagaströnd
gegn Guðlaugi Sveinssyni Reykjavík.
Sigfús Örn Árnason Reykjavík gegn
Einari Val Kristjánssyni fsafirði.
f 2. umferð mætast eftirtaldar sveit-
ir:
19.-23. Jón L. Árnason, Dolmatov,
Vladimirov og Sokolov (Sovétríkjun-
um), Gulko (Bandaríkjunum) 5'/2 v.
24.-34. Vaganian, Malanjúk,
Naumkin, Tal, Gavrikov, Makarit-
sjev, Pigusov, Akopjanm og Geo.
Timoschenko (Sovétríkjunum) Sax
(Ungverjaland), Pshakis (ísrael),
35.-38. Jóhann Hjartarson (Island),
Nogueiras (Kúba), Miles (Bandarfk-
in) og Geo. Timoschenko (Sovétrík-
in) 4'/2 v. 39,—40. Hulak (Júgóslavíu)
og Tukmakov (Sovétríkin) 4 v. 41.
Spraggett (Kanada 3'/2 v. 42. King
(England) 2Vi v.
Auk þeirra 12 sem komust áfram í
þetta mót bætast við sex efstu menn
úr síðasta heimsbikarkeppni: Kaspar-
ov, Karpov, Salov, Ehlvest, Ljuboje-
vic og Nunn. Þá bætast við sex skák-
menn sem komast áfram á stigum:
Timan, Short, Andersson, Kortsnoj,
Ribli, Hubner og svo 25. keppandinn
sem einnig fer inn á stigum. Endur-
nýjun verður ekki mikil í næstu kepp-
ni, aðeins sex skákmenn bætast við.
Gata Kamsky
meinuð þátttaka
Undirritaður gæti skrifað mikinn
bálk um það sem miður fór hjá Stór-
meistarasambandinu við framkvæmd
allrar undankeppninnar, en ég ætla
að einskorða mig við mótið í Moskvu.
Komið hefur fram að aðstæður hafi
verið með lakara móti hvað varðar
kost á veitingastað en út af fyrir sig
ekki hægt að eiga von á öðru í því
írafári sem greip um sig þegar til-
kynnt var um væntanlegar verohækk-
anir. Flestum keppendum gekk erfið-
lega að ná sér í vegabréfsáritun og
það á einnig við um Jóhann og Jón L.
Sovéska sendiráðið í Reykjavík virð-
ist ekki vera svo illa haldið hvað varð-
ar starfsmannafjölda að verjandi sé
að ferðalöngum sé haldið í ógnar-
spennu fram á síðustu stundu um það
hvort áritun fáist.
Mál Gata Kamsky, sem ávann sér
þátttökurétt með góðri frammistöðu í
Palma, er sérkapítuli út af fyrir sig.
Hann yfirgaf heimaland sitt eftir
Opna New York mótið í fyrra og því
var viðbúið að Færeyingurinn Þránd-
ur í Götu yrði á vegi hans á leiðinni til
Moskvu. Kom á daginn. Eftir mikið
stapp kom svar frá Sovétmönnum
þess efnis að Kamsky gæti teflt í Mos-
kvu, en við spurningunni um það
hvort faðir hans, Rustam gæti farið
með syni sínum barst kunnuglegt
svar: Njet!
í Bandaríkjunum rifjuðu menn það
upp að nú er aldarfjórðungur frá því
að Bobby Fischer tók þátt í minning-
armóti um Capablanca í Havana á
Kúbu með því að tefla skákir sínar á
hótelherbergi í New York og leikirnir
voru síðan færðir yfir til Kúbverja
með aðstoð telex-tækis. Nú er tækni-
öldin önnur og bandaríska skáksam-
bandið bar upp tillögu þess efnis að
Kamsky tefldi skákir sínar í gegnum
gervihnött. Sovétmenn höfnuðu
þessari hugmynd og einhverjir kepp-
endur mölduðu í móinn svo ekkert
varð úr þátttöku undrabarnsins.
Artur Jusupov
sýnt banatilræði
Artur Jusupov gat ekki verið með á
lokamótinu og kom það ekki til af
góðu. Þrem dögum áður en það hófst
réðst einhver óþjóðalýður inn í íbúð
hans í Moskvu og hugðist ræna meist-
arann. Jusupov var viðstaddur og við-
skiptum hans við þetta fólk lauk með
því að hann fékk skammbyssuskot í
kviðinn og var fluttur I sjúkrahús all-
mikið særður en er á batavegi. Nafni
hans Felix Jusupov er talinn hafa
ráðið niðurlögum hins fræga Grigorij
Rasputin, en það er önnur saga.
Æsispennandi
lokaumferð
Mótið í Moskvu fór fram á Hotel
Ismalova en þar eru aðstæður þokka-
legar ef menn ná að gleyma því að við
hverjar þær dyr sem menn freista
inngöngu spretta upp þrír til fjórir
verðir og krefja þá um vegabréf og
helst brot úr ævisögunni í leiðinni.
Forsprakki GMA, Garrí Kasparov
hafði lítið í frammi meðan á mótinu
stóð og lét sjaldan sjá sig.
Þeir Jón og Jóhann byrjuðu rólega
með mörgum jafnteflum og það var
ekki fyrr en í síðustu umferð að Jón
tapaði sinni fyrstu skák. Jóhann átti
þokkalegustu möguleika þar til hann
tapaði fyrir Beljavskí í 9. umferð og í
síðustu fór á sömu leið gegn Vladim-
irov. Hann var æfingalítill og nýkom-
inn frá prófum í lagadeild Háskólans
en fær annað tækifæri á millisvæðam-
ótinu í Baguio sem hefst síðar í þess-
um mánuði. Jón tefldi af miklu öryggi
og vinningur hans yfir Tukmakov var
afar sannfærandi.
Að Alexander Beljavskí og Mikha-
el Gurevic undanskildum eru Sovét-
mennirnir sem tryggðu sér sæti áfram
lítt þekktir utan heimalands síns.
Khalifman varð einn efstur í New
York á dögunum og hefur náð góðum
árangri við ýmis tækifæri en hefur
staðið í skugga Vasily Ivantsjúk og
Boris Gelfand sem ekki komust
áfram. Er vissulega mikill sjónar-
sviptirað Ivantsjúk. Hann byrjaði illa
en sótti sig mjög eftir því sem leið á
mótið en allt kom fyrir ekki. Þó hann
sé fjórði stigahæsti skákmaður heims
verður hann ekki með í næstu
heimsbikarkeppni.
Við skulum líta á eina af sigur-
skákum Ivantsjúk, sem tefld var í 10.
umferð:
Ivantsjúk - Nikolic
Firc-vörn
1. e4 d6
2. d4 Rf6
3. Rc3 g4
4. g3
(Ein traustasta leið hvíts gegn Pirc-
vörninni.)
4. .. Bg7
5. Bg2 0-0
6. Rge2 c6
7. 0-0 e5
8. a4 Ra6
9. h3 exd4
10. Rxd4 He8
11. a5 Rb4
12. Kh2 d5
13. exd5 Rfxd5
14. Rxd5 Rxd5
15. a6!
(Ivantsjúk er fljótur að finna
snöggan blett á stöðu andstæðings-
ins.)
15. .. Db6
16. c3 Hb8
(Vitaskuld ekki 16... bxa617. Rxc6!
o.s.frv.)
17. Da4!
(Geysiöflugur leikur sem hótar
ekki aðeins 18. Bxd5 heldur einnig
18. axb7 sem vinnur peð.)
17. .. Bxd4
18. Bxd5 Be5
(Hæpið er 18. .. Bxf2 vegna 19.
Bxf7+ Kxf7 20. Df4+ Bf5 21. Hxf2
og veikleikarnir á svörtu reitunum
reynast svörtu ofviða.)
19. axb7 Bxh3?
(Betra var 19... Bxb7 þó hvítureigi
aðeins betri stöðu.)
Afspymuléleg þátttaka
Eðvarð/Guðlaugur gegn Hótel
Höfn/T ryggingamiðstöðinni.
Þröstur Ingimarsson gegn Fjólu/M.L.
Grettir/Flemming gegn Samvinnu-
ferðum/Stefáni Sveinbjörnssyni.
Trésfld gegn Ragnari/Sigurði.
Alfreð/Asgrímur gegn Baldri/Sveini.
Esther/Skúli gegn Sigmundi Stef-
ánssyni.
S. Ármann/Guðmundur gegn Verð-
bréf íslandsbanka.
Delta/Jóhannes gegn Sigfúsi Erni/
Einari Val.
Leikjum í 1. umferð skal vera lokið
fyrir 25. júní nk., og leikjum í 2. um-
ferð skal vera lokið fyrir 29. júlí.
Fyrirliðar geta snúið sér til skrifstofu
BSÍ til nánari glöggvunar á andstæð-
ingum sínum eða öðrum upplýsing-
um. Þátttökugjaldi kr. 10 þús. pr.
sveit skal einnig komið til skrifstofu
sambandsins við fyrsta tækifæri.
Sveit skipuð Arnari Geir Hinriks-
syni, Einari Val Kristjánssyni,
Guðmundi M. Jónssyni og Kristjáni
Haraldssyni, varð Vestfjarðameistari
í sveitakeppni 1990. Mótið fór fram á
ísafirði um síðustu helgi. 6 sveitir
tóku þátt í því, sem er frekar slök
þátttaka.
góðum hópi. Húsið opnar kl. 17 báða
dagana og hefst spilamennska í hverj-
um riðli um leið og hann fyllist.
Útlit er fyrir að tvær sveitir héðan
taki þátt í hinu árlega stórmóti á
Schipool flugvelli í Amsterdam, sem
fer fram í miðjum þessum mánuði.
Það eru sveitir Modern Iceland (sem
spilar undir nafni Arnarflugs) og
landsliðið í opnum flokki. Síðar-
nefnda liðið notar tækifærið og reynir
sigí strekari alþjóðlegri keppni, fyrir
NM í Þórshöfn í næsta mánuði. Með-
al þátttakenda í mótinu í Hollandi eru
m.a. landslið Dana og Sviss, auk
sterkra sveita af meginlandi Evrópu.
Talsvert stór hópur spilara og
venslamanna þeirra er á förum til
Sviss í ágúst/sept. til þátttöku í
heimsmeistaramótinu í tvímenning
og óopinberri heimsmeistarakeppni
sveita (Rosenblum), auk
heimsmeistaramótsins í parakeppni
og blandaðri sveitakeppni. Öll þessi
mót í Sviss eru opin, einnig
heimsmeistaramótið í opnum flokki í
tvímenning, þannig að hver sem er
getur verið með. Hafi einhverjir
áhuga á að kynna sér málin frekar,
getur viðkomandi haft samband við
Magnús Ólafsson, stjómarmann hjá
Bridgesambandi íslands (í s. 91-623
326).
Varðandi leiki í Bikarkeppni Bri-
dgesambandsins sem fram undan em
í sumar, er ekki úr vegi að fyrirliðar
komi upplýsingum þar að lútandi á
framfæri við skrifstofu BSÍ, svo hægt
sé að auglýsa viðkomandi ieiki. Helsti
veikleiki er einmitt sá feluleikur sem
skortur á upplýsingum veldur.
Sumarbridge í Reykjavík er að
sækja í sig veðrið. S.l. þriðjudag
mættu 40 pör til leiks, en betur má ef
duga skal. Skorað er á allt áhugafólk
um bridge að líta við í Sigtúni 9 á
þriðjudögum og fimmtudögum og
kynnast skipulögðum keppnisbridge í
Ólafur
Lárusson
Hver kannast ekki við eftirfarandi:
„Þú heldur á ás fjórða, kóng og
drottningu sjötta, einspili og ásinn
annan. Sagnir hafa gengið bla, bla,
bla og blindur leggur upp. Útspilið er
tígulfimma.“
Eða eitthvað í svipuðum dúr. Mörg
gullkornin hafa farið forgörðum á
þennan háttinn, þegar umræður
deyja út og sneplum er hent í ruslið
(ekki bara sóun á pappír...)
Hér er eitt sem barst mér á
hlaupum:
S:G9872
H:52
T:Á82
L:ÁK2
BRIDDS
20. Bxf7+! Kxf7
21. Kxh3 Hxb7
22. Dc4+ He6
23. f4 Bf6
24. f5!
(Krafturinn er mikill í taflmennsku
Ivantsjuks.)
24. .. gxf5
25. Hxf5 c5
26. Bh6! Kc8
(Ekki26... Kg627. Dg4+ Kxh628.
Hh5 mát.)
27. Dg4 Hf7 29. Dg8+ Kd7
28. Hafl Hee7 30. Bf8
- og Nikolic gafst upp.
Nick De Firmian var ansi farsæll í
Moskvu og árangur hans gerir það að
verkum að Bandaríkjamenn eiga nú
tvo fulltrúa í heimsbikarkeppninni.
Einn mikilvægasti sigur DeFirmian
kom í 9. umferð er hann lagði Sovét-
manninn Chernin að velli:
DeFirmian - Chernin
Pirc-vörn
1. e4 cl6
2. d4 Rf6
3. Rc3 g6
4. f4 Bg7
5. Rf3 c5
6. dxc5 Da5
7. Bd3Dxc5
8. De2 Bg4
9. Be3 Da5
10. 0-0 0-0
11. Khl Rc6
12. Del Bxf3
13. Hxf3 Hac8
14. a3 d5?
(Eftir hefðbundna byrjun þar sem
möguleikarnir ættu að vega nokkuð
jafnt leggur Chernin út í vafasamar
aðgerðir. Betra var 14. .. Rd7).
15. e5 d4 18. Rxf6+ exf6
16. exf6 Bxf6 19. Hxe3 Db6
17. Re4 dxe3
(Svartur fær erfitt endatafl eftir
drottningaruppskipti en engu að
síður kom sá möguleiki til greina.)
20. Hbl f5
21. c3 Rd8
(Svartur er tilbúinn að koma ridd-
aranum vel fyrir á e6 en DeFirmian á
skemmtilegt svar við þeirri áætlun.)
22. Bxf5! gxf5
(Svarta staðan er hartnær vonlaus
eftir t.d. 22. .. Hc7 sem þó var
sjrárra ^
23. Hg3+ Kh8 26. Hxg8+ Kxg8
24. De7! Hg8 27. De8+
25. De5+ f6
- Chernin gafst upp því eftir 27. ..
Kg7 28. Hdl ræður hann ekki við hót-
un hvíts 29. Hd7+ o.s.frv.
S:654
H:DG109874
T:9
L:106
S:ÁKD103
H:ÁK
S:—
H:63
T:DG 10654
L:DG984
T:K73
L:753
Suður spilar 6 spaða. Útspilið er
hjartadrottning. Spurningin er:
Hvernig getur Suður fengið 12 slagi
gegn bestu vörn?
Áður en þú lest meir af þessu
dæmi, skal það upplýst að undirritað-
ur gróf það uppi að viðkomandi spil
birtist í Bridgeblaði Jóns Ásbjörns-
sonar 1972, einhverja besta bridge-
blaðinu sem gefið hefur verið út hér,
fyrr og síðar.
Nú, lausnin í þessu spili blasir ekki
við, eins og sagt er. Hætt er við að
flestir bridgespilarar tapi þessu spili í
fyrstu þremur til fjórum slögunum og
hefji þá tilraunir til vinnings. Sem
mistakast, því vinningsleiðin liggur
einmitt í upphafsslögunum. Við
tökum slaginn á hjartaás, leggjum
niður spaðaás og legan kemur í ljós.
(Við vorum svo forsjál að henda
spaðasjöunni í ásinn, ef einhver
skyldi hafa gleymt því...). Tókum því
næst á spaðakóng og hendum áttunni
úr borði. Þá tígulás, laufaás og kóng-
ur. Þá hjartakóngur og Vestri hent
inn á spaðasexu. Hann á bara hjarta
eftir, við hendum tígli úr borði og
trompum með spaðadrottningu, spil-
um spaðatíu og yfirtökum í blindum á
gosa. Spaðanía úr blindum gengur af
Austur dauðum, sem má ekkert spil
missa og Suður fær alla slagina sem í
boði eru. Einföld kastþröng á Austur
í lokin.
Flókið? Það sagði enginn að bridge
væri einfalt spil. Eða hvað?
Föstudagur 8. júní 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25