Þjóðviljinn - 08.06.1990, Síða 28
Stórauknar kröfur eru nú gerðar á hendur bílaiðnaðin-
um um varnir gegn loftmengun
Umræöan um útblástur bif-
reiða og loftmengunarvarnir
tekur nú sem óðast skýrari stefnu
í Evrópu. Kröfur innan Evrópu-
bandalagsins hafa sett fram-
leiðendum vissarskorður, en
þrýstihópar umhverfisverndar-
sinna eru álitnir geta haft áhrif í
þá átt að kröfur verði enn hertar.
Sænski umhverfisverndarsinn-
inn Christer Agren sem setti
alþjóða-loftmengunar-vikuna,
28. maí til 3. júní sl., lýsti því yfir
að bifreiðaframleiðendur í Evr-
ópu væru 10 árum á eftir banda-
rískum kollegum hvað varðaði
áherslu á mengunarvarnir.
Strangar kröfur hafa verið
gerðar í bandarískum lögum frá
1983 um útblástur og skyldubún-
að bifreiða. Þriðjungurinn af
Ford-bílum sem seldir voru í Evr-
ópu 1989 hafði útblástursvarnir,
þótt slíkt sé enn ekki skylda. Fyr-
irtækið segist ætla að verða fyrri
til en löggjafinn.
Bílarnir verða dýrari í fram-
leiðslu. Strangari reglur um út-
blástur bíla taka gildi í Evrópu-
bandalaginu 1992. Kostnaðurinn
við þær breytingar á framleiðslu
nýrra bílvéla sem til þarf svo að
þær nýti allar bensínlaust blý, er
talinn nema 480 milljörðum
króna, og fellur þetta gjald að
mestum hluta á kaupendur bíl-
anna.
Hins vegar er staðreyndin sú,
að sá tækjabúnaður sem nú tíðk-
ast sker ekki niður magn það sem
frá bílnum berst af koltvísýringi,
en hann er grunaður um að vera
stórtækastur í að auka gróður-
húsaáhrifin í lofthjúpnum. Sam-
tökin FoE (Friends of the Earth)
halda því fram, að ekki líði langur
tími þar til Evrópubandalagið og
önnur lönd í Evrópu setji lög sem
takmarki mjög.notkun eldsneyt-
is, en verði um leið til að stórauka
kostnað. FoE-Samtökin segja að
blýlaust bensín sé bara fyrsta
skrefið í því að gera bílaiðnaðinn
„grænni", mengunarvarnabúnað
í bílum annað skrefið. En þriðja
og mikilvægasta skrefið segja þau
vera betri eldsneytisnýtingu, sem
takmarki í sjálfu sér koltvísýr-
ingsmagn frá bílunum. Þetta
mundi krefjast endurhönnunar á
öllum bílvélum.
Um það bil 13 miljónir nýrra
bíla eru seldar í Evrópu árlega.
Markaðurinn fyrir slíkan búnað
nemur sem svarar um 96 miljörð-
um ísl. króna árlega. Reiknað er
með að framleiðsla þar á meng-
unarvarnabúnaði fyrir bíla fjórf-
aldist frá því sem nú er fram til
ársins 1993.
Framleiðendur frönsku
Citroén- og Peugeot-bílanna
höfðu vonast til að einfaldari
búnaður yrði samþykktur en nú
er búist við og að viðmiðunar-
staðlar um eiturefni yrðu lækkað-
ir, og af þeim sökum er mengun-
arvarnabúnaður aðeins í þeim
bílum af þessum tegundum sem
seldir eru til landa sem setja svip-
aðar kröfur og Bandaríkin, eink-
um Svíþjóð, Noregur, Sviss,
Austurnki og loks Finnland
innan skamms.
Volvo og Volkswagen eru þau
fyrirtæki sem standa sig best í að
setja mengunarvarnabúnað í
bfla. Volvo tók þátt í þróun slíks
búnaðar í Bandaríkjunum frá
1975 og naut þess að skattur var
felldur niður í eitt ár af búnaðin-
um áður en hann var lögleiddur í
Svíþjóð 1988. Yfir 75% allra bfla
sem eru framleiddir í Volvoverk-
smiðjunum í Svíþjóð hafa út-
blástursvarnakerfi.
Allir Volkswagen-bflar frá
1979 hafa verið framleiddir til
notkunar á blýlausu bensíni og
90% af bílum sem framleiddir eru
handa Vestur-Þjóðverjum hafa
mengunarvarnabúnað.
Hlauparar mæla
loftmengun
í alþjóðlegu mengunarvikunni
27. maí -3.júní lögðu tveir breskir
hlauparar það á sig að’skokka um
París og láta síðan rannsaka efna-
mengun í lungum sínum á eftir.
Þetta gera þeir á vegum fyritækis-
ins Enviro Technology, sem sér-
hæfir sig í rannsóknum á
loftmengun og er að markaðs-
færa mengunarmælingatækni
sína. Þetta þótti nokkuð hreysti-
legt tiltæki hjá félögunum, í ljósi
gífurlegrar loftmengunar í París,
og sem dæmi má nefna að í ágúst
á sfðasta ári lét Jacques Chirac
borgarstjóri Parísar, loka mið-
borginni fyrir vélknúnum öku-
tækjum í tvo daga, þegar mengun
keyrði mjög úr hófi.
Hlaupararnir sem heita Peter
Hammond-Seaman og Dez De-
arlove, skeiðuðu nýlega um veg
M25, sem umlykur Lundúna-
borg, og létu síðan mæla hve
mikið hefði safnast fyrir af skað-
legum efnum í Iungum og líkama.
ÓHT
rétti tíminn til að
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULlNA 991002
Grænir bílar