Þjóðviljinn - 15.06.1990, Blaðsíða 3
Guðmundur
Árni lúffar
Guðmundur Árni Stefánsson
bæjarstjóri í Hafnarfirði varð
undir í fyrstu rimmunni innan
meirihluta Alþýðuflokksins í
bæjarstjórn. Guðmundur Árni
var þess mjög fýsandi að
Magnúsi Jóni Árnasyni
bæjarfulltrúa Alþýðubanda-
lagsins yrði boðin aðild að
meirihlutanum, þrátt fyrir að
kratar þyrftu ekki á stuðningi
hans að halda. Ástæðan fyrir
því var sú, að þeir Guðmund-
ur og Magnús áttu mjög gott
samstarf á síðasta kjörtímabili
og auk þess mun Guðmundur
hafa óttast fordæmið úr Kópa-
vogi, en einsog kunnugt er þá
ákváðu A-flokkarnir að halda
framsókn utan meirihluta-
samstarfs á síðasta kjör-
tíma-bili og notaði Framsókn-
arflokkurinn það til að réttlæta
samstarf sitt við Sjálfstæðis-
flokkinn núna. Þau Jóna Ósk
Guðjónsdóttir og Tryggvi
Harðarson bæjarfulltrúar
krata studdu Guðmund Árna
en bæjarfulltrúarnir Ingvar
Viktorsson, Valgerður Guð-
mundsdóttir og Arni Hjörleifs-
son voru andvtg því að nokk-
urt samstarf yrði haft við Alla-
balla. Kallaður var saman
fundur toppkrata í Hafnarfirði
á miðvikudagskvöldið og
niðurstaða þess fundar varð
su að Guðmundur Árni varð
að lúffa.B
Bæjarstjóri
að ofan
17. júní er haldinn hátíðlegur
um land allt að venju og víðast
hvar hefðbundin dagskrá.
Ekki feta þó allir troðnar slóðir
í tilraunum sínum til að gleðja
pöpulinn og eru Kópavogsbú-
ar þar eflaust fremstir i flokki.
Þar hefjast hátíðahöldin á því
að nýskipaður bæjarstjóri,
Sigurður Geirdal, kemur svíf-
andi í fallhlíf niður á Rútstún
og setur þar hátíðina. Þetta er
áreiðanlega í fyrsta sinn sem
bæjarstjóri kemur til þegna
sinna að ofan...B
Til hvers
skógrækt?
Oddur Ólafsson lætur ekki
staðar numið eftir að hafa út-
húðað „góðgerðarrokkinu"
Sting. Nei, áfram skal halda
og nú skulu íslenskir tónlistar-
menn fá að kenna á því. Tón-
listarmenn á íslandi vilja
nef nilega vera góðir við landið
sitt og græða það upp. Þess
vegna ætla þeir að reisa
Rokkskóg og halda í því skyni
tónleika. Ágóðinn af þeim á
svo að renna til skógræktar.
Þessu er Oddur ekki hrif inn af.
Og ekki heldur, áð því er virð-
Hvað er Sting
ist, af skógrækt yfirleitt. Sér
engan tilgang í slíku ogpaðan
af síður því átaki sem Islend-
ingar vilja gera. „Nú skal sem
sagt gera átak og rokka upp
skógi um eina helgi. Alvöru
skógræktarmenn fylgjast
hissa með fruntaskapnum og
velta fyrir sér hvort það sé ein-
hver misskilningur að skóg-
rækt sé þolinmæðisverk sem
aldrei verður unnið í óðagoti
eða með bumbuslætti og há-
vaða.“ Aftur skal Oddur upp-
lýstur. Rokkskógamenn ætla
ekki að koma upp skógi á ein-
ni helgi, heldur ætla þeir að
safna fé til að kaupa plöntur.
Þær verða svo gróðursettar
hægt og hljóðlega, sem
auðvitað er
þolinmæðisvinna.B
Aðstoðarritstjóri Tímans,
Oddur nokkur Ólafsson, er ef-
laust hinn mætasti maður og
vel upplýstur. í föstum dálki
sínum, Vítt og breitt, hefur
hann oft skrifað mörg vel valin
orð öðrum til ánægju og upp-
lýsingar. En í gær fataðist
honum nokkuð flugið þegar
hann réðst all harkalega gegn
þeim tónlistarmönnum sem
hafa reynt að afla fjár til góð-
gerðarstarfsemi. Oddur er að
skrifa um indíánahöfðingja í
Brasilíu sem gerir nú tilraun til
að rukka góðgerðarrokkið
Sting og leppa þess um fé
sem rokkararnir gengust fyrir
að safna og átti að renna til
varðveislu regnskóganna.
Síðan segir: „Sting var aug-
lýst ofboðslega og Ijómaði og
lak af þeim manngæsKan og
regnskógaástin..." Þar sem
Oddur er örugglega ekki í
þeim aldurshópi sem mest
hlustar á Sting og veit þar af
leiðandi ekki hvað Sting er, er
auðvelt að upplýsa það mál.
Sting er nefnilega breskur
tónlistarmaður en ekki
„góðgerðarrokk“.B
Og svo var það blaðaljós-
myndari í Reykjavík sem fékk
þá dagsskipun að taka mynd
af komu hljómsveitarinnar
Grænu svertingjakonurnar á
Hótel Esju sl. miðvikudag.
Ljósmyndarinn beið í anddyr-
inu. Loksins renndi rúta í hlað-
ið og út úr henni streymdi hóp-
ur manna sem fékk lykla í af-
greiðslunni og hvarf svo upp á
herbergi sín. Ljósmyndarinn
beið hinn rólegasti og bjóst
við að önnur bifreið renndi í
hlaðið með grænar svert-
ingjakonur innanborðs, en
ekkert gerðist. Að lokum
spurðist hann fyrir í af-
greiðslunni og fékk þá að vita
að svertingjakonurnar hefðu
verið í hópnum sem kom með
rútunni. „En það voru engar
svargrænar svartar konur í
hópnum," sagði þá aumingja
Ijósmyndarinn.B
Farið mannavillt
Réttir viðsldptahættir tryggja heiðarleg skattskil.
Þau eru undirstaða þeirra sameiginlegu verkefna í
landinu sem við njótum öll góðs af.
Kassinn á að vera lokaður
þegar afgreiðsla hefst og
honum á að loka þegar
afgreiðslu lýkur.
Háóujf'
viðskf1,
ij tifdiM-
FIÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Öryggi íviðskiptum *
- heiðarleg skattskil!
Það er allra hagur að peningakassar (sjóðvélar) verslana séu í lagi. Staða
viðskiptavinarins er þá örugg og tryggt er að skatturinn sem hann greiðir í
vöruverðinu kemst til skila. Verslunin hefur öll bókhaldsgögn á hreinu
og báðir aðilar standa skil á sínu í sameiginlegan sjóð okkar allra.
Það er því mikilvægt að vita hvemig löglegir peningakassar eiga að vera.
Glugginn á að vera sýnilegur til
þess að viðskiptavinurinn geti
gengið úr skugga um að
viðskipti hans séu rétt skráð.
Innri strimill verður að vera í
kassanum sem sýnir hverja
innstimplun og fer hann inn í
bókhaldsgögn verslunarinnar.
Ytri strimil—kassakvittunina -
á hver viðskiptavinur að fá í
hendur.