Þjóðviljinn - 22.06.1990, Side 2
SYSTIR SKAÐA SKRIFAR
En lille
solstrále-
historie
Eg er ennþá mjög jákvæð. Ég ætla bara að
taka það fram svona til vonar og vara, ég hef
nefniiega orðið vör við að sumir, - og ég nefni
engin nöfn, - að sumir semsagt trúa ekki al-
mennilega á þetta hjá mér. En ég segi bara
sem svo að sumir gætu verið jákvæðari sjálfir,
en þetta er auðvitað á vissan hátt gott fyrir
mig. Ég meina að fólk skuli vera soldið nei-
kvætt í kringum mig því þannig fæ ég sko nóg
af tækifærum til að æfa mig í jákvæðni og ætli
mér veiti nokkuð af því eftir öll mín neikvæðu
ár.
Ég á eflir að fara á fulit af námskeiðum tii
að verða fullnuma, mér er það alveg ljóst að
enginn nær hinni sönnu jákvæðni án þess að
leggja neitt á sig, en mér gengur samt alveg
rosalega vel. Nú hef ég náð öðru stigi já-
kvæðninnar á engum tíma næstum því, alla-
vega frétti ég um daginn að fólk væri yfirleitt
miklu lengur að því en ég og ég gæti meira að
segja nefnt dæmi, en það vil ég auðvitað ekki,
það er nefnilega ekki jákvætt. En ég hef sum-
sé náð öðru stigi og það þýðir að ég er ekki
einungis aiveg feikilega jákvæð sjálf svona al-
mennt, heldur er ég líka farin að sjá jákvæðn-
ina í öðrum, meira að segja þar sem ég sá ein-
ungis neikvæða hluti áður. Svona skiptir það
miklu máli hvaða augum maður litur hlutina
og nú ætla ég sko að illustrera. Myndskreyta
mál mitt.
Það er til dæmis þetta með sautjánda júní.
Alveg meiriháttar frábær dagur. Og ég orðin
svo bjartsýn og jákvæð í lok dagsins að ég
þurfti barasta að setja upp sólgleraugun, svei
mér þá, mér fannst vera komin sól og það
fmnst mér sko vera dæmi um jákvæðni því
það getur eiginlega ekki hafa verið rétt, svona
strangt tekið og veðurfarslega séð á ég við. En
það sem meira er, ég var ekki ein um þetta.
Það var fullt af fólki sem leið sona alveg
einsog mér, ég sá það vel. Aldrei hefur mér
liðið svona vel á sautjándanum áður. Ekki
einusinni þegar ég var bam. Sérstaklega ekki
þegar ég var bam. Ég hef verið alveg óhemju
neikvætt bam, það sé ég núna. Þau eru sko
ekki svona blessaðir englamir í dag, ónei.
Elsku litlu angans pottormamir sem réðu sér
ekki fyrir hamingju yfir sautjánda júní og
hreinlega grátbáðu foreldra sína um gotterí og
blöðrur til þess að allt væri nú fullkomnað...
en nóg um það.
En það var sko hljómsveitin okkar sem var
toppurinn. Hún var nefnilega það al jákvæð-
asta af öllu sem gerðist í lífi mínu ailan þann
dag og jafnvel þótt til Iengri tíma sé Iitið, ég
segi ekki meir. Sko, þau vom þama að syngja
og spila og svoleiðis einsog svona hljómsveit-
ir gera ha, heimsfrægt fólkið sem er búið að
vinna fyrir okkur stórsigra i útlöndum og ég
veit ekki hvað og svo, svona í kveðjuskyni, þá
dreifðu þau svona árituðum myndum af sér
yfir mannfjöldann og það fannst mér svo æð-
islegt. Algjör klassi sko, enda kunni fólk að
meta þetta. Og rétt einsog það væri ekki nóg
þá kvöddu þau líka á svo æðislega sætan og
krúttaðan hátt, já, og alþjóðlegan að maður
hreinlega fékk í hnén. Það voru sko svoleiðis
straumamir á svæðinu að loftið hreinlega víb*
raði yfir Lækjartorgi.
Það gerðist sko þegar þau stóðu þama
þessar elskir og hrópuðu I love you! I love you
all! Mér fannst þetta svo rosalega æðislegt að
ég réð mér ekki. Það var alveg hrikalega frá-
bært að finna hvemig svona jákvæð áhrif geta
gengið uppí eina heild á þennan hátt, svona
æðri einingu. Oooooohh! Og svo fannst mér
þetta svo rosalega viðeigandi, eitthvað svo
rosalega þjóðlegt og alþjóðlegt og allt, - og
það fannst öllum hinum líka. Fólk hreinlega
trylltist þama úr jákvæðni. Hugsa sér! En ég
ætla samt ekki að hugsa þá hugsun til enda
hvað það hefði verið mikill munur ef svona-
lagað hefði gerst í mínu ungdæmi. Ég hrein-
lcga meika það ekki. Ætli maður hefði ekki
orðið önnur manneskja þá þegar? Ég held
barasta að það geti verið.
Já. Þetta var bara svona lítil solstrálehi-
storie fra det virkelige liv. Ha. Bara svona til
að sýna hvað smá jákvæðni getur gert fyrir
mann. Ætli vona sögur gerist bara betri. Ég
hugsa bara sveimérþá eiginlega ekki.
Það er nú annars engin smávinna að læra
raunverulega jákvæðni, ég skal alveg viður-
kenna það, en þetta er auðvitað allt tekið út
með sældinni, enginn vafi á því. En fyrir
svona fólk einsog mig sem er nú bara komið á
annað stig þá er nú stundum erfítt að finna útúr
hlutunum. Hver hin raunverulega jákvæða
hlið sumra mála er meina ég. (En það er alveg
gífurlega jákvætt að viðurkenna að maður geti
átt í smá basli með þctta. Það er eiginlega tera-
pía, eða svoleiðis.) Þessvegna er nú verið að
hafa þessi námskeið. Svo maður læri að fatta
hvað er alvöru jákvæðni og hvað plat.
Ég er til dæmis núna með próblem sem er
eiginlega fyrir lengra komna. Ég meina, ég
fatta ekki hvað er mest jákvætt. Mér finnst
nefnilega alveg hrikalega jákvætt hjá fólki að
gera svona launasamninga og setja inní þá að
það eigi að svíkja þá. Þetta er sko hinn rétti
andi, meina ég. Það vita hvort sem er allir að
svona samnignar eru alltaf sviknir á einn eða
annan hátt og þá er bara best að gera ráð fyrir
því. Hafa þetta bara opinbert, ég meina það.
Kominn tími til. En svo bara það að það er
einsog þetta sé ekkert rosalega jákvætt fyrir þá
sem gerðu samninginn. Þessa sem áttu að fá
launahækkun á ég við. Það er bara einsog
þeim finnist alls ekkert ókei að fá ekki þessa
peninga sem þau voru að semja um.
En ef þetta er nú einsog maðurinn segir að
það hafi verið skrifað undir að þetta eigi að
vera svona þá er náttúrlega verið að standa við
samninginn en ekki svíkja hann... nema það sé
á þessu einhver vínkill sem mér hefúr hrein-
Iega sést yfir. Ég er farin að halda það. Ég
meina mér finnst þetta alveg hryllilega loðið
þótt ekki sé meira sagt og það er svona smá
erfitt fyrir byrjendur einsog mig að vita ekki
hvert á að beina ákveðninni svona mest, þótt
auðvitað eigi hún að fara útum allt.
En ég er semsagt soldið miður mín yfir að
fatta þetta ekki nógu vel þótt það lagist auðvit-
að þegar ég er búin að fara á fleiri námskeið.
Maður verður bara að vona það.
\ ROSA-
GARÐINUM
Betur að satt væri
Sú sorglega staðreynd blasir við
að eina dagblaðið á íslandi sem
telur sig styðja málstað hægri
manna, Morgunblaðið, er á
síðari árum orðið ruslakista
vinstri sjónarmiða.
DV
Hollráð við hárleysi
Madonna þarf að hugsa ráð sitt ef
hún vill halda hárinu. Hún gerir
svo mikið af því að lita það að
hætta er á að hún verði sköllótt...
Undanfarið hefur Madonna oft
sést með hárkollu svo augljóst er
að þetta er orðið mikið vandamál
fyrir hana. Ef hún missir einu
sinni allt hárið er ekki víst að það
komi aftur.
DV
Af ástum samlyndra
hjóna
Díana fór nýlega í enn eitt fríið án
Karls... Heyrst hefur að Karl sé
eigingjarn og geri það sem hon-
um dettur í hug þegar honum
dettur það í hug... Díana dansaði
við lífverðina hvern á eftir öðrum
og skemmti sér konunglega þó að
eiginmaðurinn væri víðsfjarri.
DV
Sjómannadagurinn
loksins alþjóðlegur
Ríkissjónvarpið franska... mynd-
aði íslenskan sjómannadag.
DV
Komiðtilmínog
allaryðaróskir
verða uppfylltar
Ertu þreyttur á ruglinu hérna
heima og ert atvinnulaus? Viltu
vinna erlendis við olíupalla, hót-
el, samyrkjubú ofl. Upplýsingar í
síma...
Smáauglýsing í DV
Seint verður upp á
landann logið
íslendingar snemma flestum
hærri og spengilegri: Fæðast mun
þyngri en Norðurlandabúar.
Tíminn
Spyr sá sem ekki
veit
Hvað er unnið með því að finna
nýja fiska í sjónum ef ekki má
veiða þá og verða vinsæll af þyí að
hafa fundið þá?
DV
Svefnleysið hrjáir
margan
Vofa Khomeinis vakir.
Fyrirsögn
í Alþýöublaóinj
Ást er...
Ást er... það að vera eins og ég og
Sigríður, nýgift og nýkomin úr
brúðkaupsferð.
DV
2 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 22. júní 1990